Vísir - 29.08.1978, Blaðsíða 4
4
Þriöjudagur 29. ágdst 1978 VISIR
Til sölu Willys árg. '46
með blæju.
Volvo B18 vél. Allur uppgerður.
Til sýnis i Fiat-sýningarsalnum Siðumúia
35. Simi 85571.
VISIR
BLAÐBURÐAR- \
BÖRN ÓSKAST
Hafnarfjörður
Blaðburðarbörn óskast í Suðurbæ. Uppl. I
síma 50461.
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Skólasetning:
••
Oldungadeild: miðvikudag 30. ágúst kl. 17.30
Dagskóli: fimmtudag 31. ágúst kl. 14.
Stundarskrá afhent, bóksalan opin miðviku-
dag, fimmtudag, föstudag frá kl. 9-21 og
laugardag frá 9—16.
Ráðgert er að hafa opið kl. 12—18 5 daga vik-
unnar í vetur.
Kennsla hefst samkvœmt
stundaskró 1. september
Þessi fallegi Chevrolet Blazer árg. '73 6 cyl.
beinskiptur ertil sýnis og sölu í Fíatsýningar-
salnum Síðumúla 35 í dag og næstu daga. Uppl.
i síma 85571.
Mikil örtröð myndaOist stundum á vængjum flugvélanna, sem voru til sýnis á sýningarsvæOinu, en
flestum tókst þó aö gjóa inn I vélarnar meö guös hjálp og annarra.
ljósm. Jens)
Velheppnuð fíugsýn-
ing á sunnudaginn
„Dagskráin fór í stórum
dráttum fram samkvæmt áætl-
un,” sagöi Baldur Sveinsson,
formaöur Flugsögufélagsins, er
Vlsir innti hann eftir þvi, hvern-
ig Flugdagurinn heföi gengið.
,,Okkur telst til aö um 3000
manns hafi keypt sig inn á
sýningarsvæðið. auk þess sem
annar eins fjöldi, ef ekki meiri
hafi staðiö i öskjuhlíöinni og
fylgst með.”
Nokkur afföll uröu á sýn-
ingaratriðunum m.a. þurfti
breski 1 istflugmaöurinn
Anthony Bianchi að hverfa af
landinu á laugardaginn vegna
þess aö hann átti aö sýna gaml-
ar breskar orustuflugvélar á
flugsýningu i Bretlandi á sama
tima og flugdagurinn var. Aö
þvi er virtist kom brottför hans
ekki aö sök, þvi að Eliezer Jóns-
son sýndi listflug á flugvél af
gerðinni CAP 10 og tókst þaö
mjög vel. Sannarlega óvænt og
ánægjulegt atriöi.
,,Þá áttum við einnig von á
bandarisku Orion vélinni frá
Keflavikurflugvelli, en þeir
hættu við aö koma og ástæöan
sem okkur var gefin var sú, aö
þeir væru hræddir um aö vélin
„sykki niöur i flugbrautina”.
Þaö er nú reyndar nokkuö til i
þessu, þar sem ætlaö er aö flug-
brautirnar þoli ekki umferð
allan daginn, sem reyndar var I
allan gærdag. Fyrir svo þungar
vélar þarf sérstakt leyfi þegar
svona stendur á. Norsk Orion
vél fékk slikt leyfi og var allt i
lagi með hana. Hún sökk ekkert
niður I flugbrautina.”
„Þá var einnig sérlega
skemmtilegt aö sjá hvaö hægt
er aö gera á gömlu Fokkerun-
um. Ingimar Sveinbjörnsson
flugstjóri sýndi neyðarlendingu
og gerði það svo vel aö heföi ég
ekki vitað betur, væri ég viss
um aö vélin heföi veriö aö
hrapa,” sagöi Baldur. Ingimar
sýndi flug á einum hreyfli.
Ekki höfum viö tölu á sýn-
ingaratriöunum, en liklega hafa
um 50 flugvélar tekið þátt i sýn-
ingunni. Þar á meðal geröu
fimm þotur sér litiö fyrir og
flugu yfir völlinn svo aö segja i
handarseilingu. Fylgdi þessu
geysimikill hávaði og var ekki
laust viö aö einhverjir hafi
sleppt hlutunum eitt augnablik
og blessað sig I bak og fyrir.
Flughæð þotanna var lygilega
litil, varla meiri en 60 fet.
Allt fór þetta þó vel eins og
reyndar öll sýningin, sem gekk
slysalaust. Fór þaö þvi betur en
á horfðist, þvi að fjöldi barna
fylgdist meö sýningunni oft af
meira kappi en forsjá og áttuöu
þau sig ekki á þvi aö flugbrautir
eru ekki æskilegustu staöirnir
fyrir fótgangandi, sérstaklega
ekki þegar flugvélar eru sifellt
að fara i loftið eöa lenda.
ÞJH
Þaö var fylgst af áhuga meö þvi þegar Sikorsky þyrla varnarliösins
tók eldsneyti á flugi hjá Lockheed Herkules vélinni. Þó viröist eins
og manninum til hægri finnist nóg komiö af sliku.
(ljósm. Jens)
„Sjáöu góöa min, þarna situr flugmaöurinn og þarna..” margir
kunnu svo sannarlega aö meta þaö aö komast I návigi viö flugvél-
arnar og voru ófeimnir aö svala forvitni sinni.
Drullupollarnir voru ágætir til þess aö sulla i svona rétt á milii atr-
iöa. Svo speglaöist lika svo flott i þeim
(Ljósm. Jens)