Vísir - 29.08.1978, Blaðsíða 5

Vísir - 29.08.1978, Blaðsíða 5
vism 5 Baldur Möller, ráðuneytisstjóri: Þyrla hefur veríð pöntuð, en ekki er ákveðið að kaupa hana! Ákvörðun um þyrlukaup Landhelgisgæslunnar verður ekki tekin fyrr en um leið og fjárlaga- frumvarp verður samið, og þá væntanlega ekki endanlega tekin afstaða til kaupanna fyrr en ný rikisstjórn hefur tekið við”, sagði Baldur Möller, ráðuneytisstjóri dómsmálaraðuneytisins, i sam- tali við Visi i gær. Akvörðun um það hvort þyrla er keypt og þá hvaða tegund er tekin af ráðherra, að fengnu samþykki rikisstjórnar eða fjárveitingarvalds, að sögn Baldurs Möller. Sagði hann að hér væri um að ræða fjárfest- ingu fyrir svo háa upphæð, að nær útilokað væri að ákvöröun yrði tekin án samþykkis fjár- veitingavaldsins. Sagði Baldur þó, að raunverulega væri Land- helgisgæslan „teknískt” séð sá aðili, sem ákvörðunina tæki I raun, en ekki að formi til. For- stjóri Gæslunnar og flugmenn væru ráðgjafar, en annarra væri aö taka endanlega ákvörö- un. Það að ákveðin þyrla var pöntuð, og þar með farið inn i svokallaða afgreiðsluröð, var gert til aö tryggja réttindin, sagði Baldur ennfremur, rétt- indi til kaupa á alveg ákveöinni gerð þyrlu. Sagði Baldur að þessi Sirkorsky-þyrla væri eintak i frumröð þessarar gerð- ar. ,,En ég vil taka það fram, að þessi kaup hafa enn ekki verið ákveðin”, sagöi Baldur að lnk- um. —AH. Baldur Möller. ÞYRLUKAUP LANDHELGISGÆSLUNNAR „Cngin ákvörðun verið tekin um aðild Slysa varnarfélagsins' ‘ — segir forseti félagsins ,,Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgis- gæslunnar, ræddi um þessi þyrlumál við mig á sinum tima. Á þessu stigi vil ég hins vegar ekkert um það segja, hvort Slysavarnarfélag íslands verður aðili að þyrlukaupum Landhelg- isgæslunnar.” sagði Gunnar Friðriksson for- seti Slysavarnarfélags íslands. Haft var samband við hann vegna skrifa um þyrlumál Land- helgisgæslunnar. í þeim hefur veriðvakin athygliá þvi aðSlysa- varnarfélagið hafi yfirleitt átt hlut i þyrlum Landhelgisgæslunn- ar. „Slysavarnarfélagið átti helm- inginn I fyrstu þyrlunni, sem Landhelgisgæslan keypti. Við fengum vátryggingarfé út vegna þeirrar þyrlu, sem við höfum sið- an lagt i aðrar þyrlur, sem keypt- ar hafa verið. Þannig erum við aðilar að þyrlunni GNÁ.” Aðspurður sagði Gunnar, að Slysavarnarfélagið hefði lagt fram fé úr Björgunarskútusjóði Austfjarða en i hann hafði verið safnað i áraraðir. Ætlunin hefði verið að verja fénu til kaupa á björgunarskútu,en siðar verið af- ráðið að verja honum til þyrlu- kaupa fremur. „Það má öllum vera ljóst að það er ofviðamikiðfyrirtæki fyrir Slysavarnarfelagið að vera veru- legur aðili að þyrlukaupum. Það þarf þvi að athuga það mál mjög vel áður en nokkur ákvörðun verður tekin. Gunnar vildi sérstaklega taka það fram að þegar þyrlur hefðu verið skoðaðar hefðu ávallt verið sendir til þess þeir fulltrúar, sem mesta tæknilega þekkingu hefðu á slikum málum. Þannig hefðu til dæmis i vetur verið sendir þeir Hannes Hafstein, framkvæmda- Gunnar Friðriksson. stjóri Slysavarnarfélagsins og Björn Jónsson þyrluflugmaður Landhelgisgæslunnar, til Þýska- lands til að skoða þyrlur. Þar hefðu þeir skoðað MBB Bo 105 þyrlur. Skrifað hefur verið um þessar þyrlur hér i Vfsi og þessi tegund borin sarnan við Sikorsky S76 sem Landhelgisgæslan hefur tryggt sér afgreiöslu á. „Skýrsla um niðurstöður af þessari athugun hefur ekki borist stjórn S.V.F.l. Éghef þvi ekki álit þessara aðila á getu viökomandi þyrlu til að annast þau verkefni sem liggja fyrir. Þessi þyrla er mun ódýrari en Sikorskyþyrlan”. Gunnar vildi að lokum taka þaö fram, að rekstur á slikum þyrlum væri alltof viðamikill fyrir S.V.F.l. — enda heföi Landhelgis- gæslan ávallt séð um rekstur á þeim þyrlum, sem keyptar hafa verið. —BA. Síðasta sýningarviko ó Light Nights Síðustu sýningar á Light Nights á þessu sumri verða n.k. mánudags-, þriöjudags-, miövikudags- og fimmtu- dagskvöld kl. 21.00 i Ráð- stefnusal Loftleiðahótels. Light Nights eru kvöldvökur, sem sérstaklega eru ætlaðar enskumælandi ferðamönnum til fróðleiks og skemmtunar. Þetta er niunda sumarið i röð, j sem Ferðaleikhúsið stendur j fyrir slikum sýningum. mríoum jl i / t l Þaðerenginn einmana sem hefur mig í bílnum PHILIP 15655 Eneinn framleiðir meira af bUtækium en Philips. Heimilistæki hafa á boðstólum mikið úrval út- varpa og kassettutækja ásamt sambyggðum út- varps og kassettutækjum, í öilum verðflokkum. Líttu inn við höfum örugglega tæki, sem henta Jiér. Isetning á verkstæði okkar. heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTUN 8 • okkur sjó um að smyrja bílinn reglulega Passat Auói 0000 Audi 100 Avant 0PIÐ FRÁ KL. 8-6. hekla Hl Smurstöð Laugavegi 172 — Simar 21210 — 21246.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.