Vísir - 30.08.1978, Blaðsíða 24
VÍSIR
Islensk fyrirsœta
f bandarískri kvikmynd
Anna 1$juriisdóttir leikur islenskan skiptinemu I Aineri
ean (irafl'iti 2.
Anna Björns-
dóttir í Ameri-
can Oratfíti
Anna Björnsdóttir, fyrirsætan íslenska,
sem starfar í Los Angeles, leikur um þessar
mundir i kvikmyndinni American Graffiti 2,
sem veriö er aö taka i San Francisco í Kali-
forniu.
Anna, sem á mikilli vel-
gengni að fagna i íyrir-
sætustörfum sinum, er i
hlutverki islensks skipti-
nema i myndinni.
American Grafl'iti 2, er
eins og nafnið gefur til
kynna framhald af mynd-
inni American Graffiti sem
sýnd var við miklar vin-
sældir um allan heim fyrir
nokkrum árum. Það er
leikstjórinn heimsfrægi,
George Lucas (Star Wars),
sem hefur yfirumsjón með
gerðmyndarinnar, en hann
leikstýrði einmitt hinni
fyrri.
„Nýja” myndin verður i
i'jórum hlutum, og i hverj-
um þeirra er greint frá af-
drifum unglinganna. sem
komu við sögu i fyrri
myndinni.
— GA
Sólarlandaferðirnar:
Hœkka um 19%
„Viö erum háðir samn-
ingum ierlendum gjaldeyri
bæði hvað varðar flug og
gistingu þannig að við urð-
um að taka okkar trygg-
ingu eins og bankar og
flugfélög hafa gert”, sagði
Steinn Lárusson hjá Úrvali
i samtaii við Visi en Félag
islenskra ferðaskrifstofa
hefur ákveðið að hækka
hópferðir um 19% þar til
nýtt gengi veröur skráö.
Steinn sagöi að feröa-
skrifstofur fengju ekki
gjaldeyrisyfirfærslu fyrr
en 3 dögum fyrir brottför
og það aðeins 60% af áætl-
uöum kostnaði en 40%
fengjust yfirfærð eftir á
samkvæmt reikningi.
Bindiskylda bankanna er
nú 20% miðað viö gengiö
þegar það var siðast skráð
og verða ferðaskrifstofur
aðhlita þvi sem aðrir. Hins
vegar taka þær 19% trygg-
ingarfé af farþegum og
sagði Steinn að skýringin á
þviværiað hlutikostnaöar-
ins við ferðirnar væri
innlendur. Agreiningur
hefði verið um það hvort
þeir hefðu átt að vera einu
eða tveimur prósentum
lægri, i bindiskyldu en
bankarnir. „Ef þessi áætl-
un okkar reynist of há þeg-
ar nýtt gengi verður skráð
verður fólki greitt til
baka”, sagði Steinn.
—KS.
■
Enn
í skipaflofa Sambandsins
MYTT OLIU-
SKIP KEYPT
Skipadeild SIS hefur gert samning við I sem á að afhendast um mitt næsta ár,
skipasmiðastöð i Lauwenburg I Þýska- | samkvæmt heimildum Visis;
landi um smiði á 2000 lesta oliuskipi,
Axel Gislason, fram-
kvæmdastjóri Skipa-
deildar StS, er erlendis að
ganga endanlega frá
þessum samningum og
mun hann væntanlegur til
landsins i dag eöa á
morgun. Að þvi er Visir
hefur fregnað var búið að
leita til um 30-40 aðila um
smiði skipsins. Itarlegar
viðræður fóru fram á
milli viðsk iptaráðu-
neytisins og forráða-
manna StS til að kanna
hvort ekki væri unnt að
láta smiða skipiö i Portú-
gal, en skipasmiöastöðv-
ar þar reyndust ekki
samkeppnisfærar. — KS
Skotmalið á Þormóðsstöðum við Hafravatn:
Réð konu sinni og
sjélfum sér bana
Hjónin að Þormóðsstöðum við Hafra-
vatn fundust látin af skotsárum
snemma i gærmorgun. Maðurinn
hringdi til lögreglunnar i Reykjavik um
klukkan sex og sagði að slys hefði orðið.
Þegar lögreglan kom á staðinn voru þau
bæði látin.
Njörður Snæhólm, yfir-
lögregluþjónn Rann-
sóknarlögreglu rikisins,
sagði i morgun, að allt
benti til þess að maðurinn
hefði fyrst orðið konunni
að bana, siðan hringt til
lögreglunnar og að þvi
loknu banað sjálfum sér.
Ekki er vitað um ástæð-
ur þessa atburðar og ekki
bendir neitt til þess að
þarna hafi fleiri komið
við sögu.
Maðurinn hét Gisli
Kristinsson og kona hans
Sólveig Jóhannsdóttir.
Gisli annaðist gæslu á
hundum embættis veiði-
stjóra, sem þarna eru
geymdir. Var hann liö-
lega fimmtugur að aldri,
en Sólveig um fertugt.
— SG
Húsið að Þormóðsstöðum við Hafravatn,
þar sem harmleikurinn átti sér stað. Vísis-
mynd: GVA
■ SSaiSHiHIBBB
■
a
■
Stereóútvarp
9
og onnur rass
■
■
Útvarpsstjóri hefur látiö kanna hvaö það kostar að
hefja útvarpsútsendingar I stereó, uppsetningu stúdióa
úti á landi, og hver kostnaðurinn yrði við að koma upp
annarri bylgjulengd er sendi út tónlist og auglýsingar.
Þá hefur útvarpsstjóri einnig látið kanna kostnað við
gerð myndsegulbanda með völdu efni sjónvarps, til
notkunar fyrir islensk skip á hafi úti.
Þessar kostnaðaráætlanir hafa verið geröar vegna
tillögu Ellerts B. Schram i útvarpsráði um að hraðað
verði framkvæmdum við ofangreind atriði.
Tæknimenn útvarpsins
telja að koma megi fyrir
tvirása stereó útsendingu
i núverandi húsnæði út-
varpsins. Stofnkostnaöur
við stjórnborð og dreifi-
kerfi er áætlaður 38 til 43
milljónir króna, en áætlað
er að reksturkostnaður
yrði um 35 milljónir á ári.
Stofnkostnaður við upp-
setningu þriggja stúdióa
úti á landi er áætlaöur um
20 milljonir, en erfiðara
er talið að áætla reksturs-
kostnað.
Þá telja starfsmenn
Rikisútvarpsins erfitt að
áætla hvað kosti að koma
upp aukaútvarpsrás, en
bent er á að ef til vill sé
unnt að leysa þörfina á
sliku útvarpi með leng-
ingu dagskrárinnar upp i
17 klukkustundir á sólar-
hring.
Ekki liggur enn fyrir
kostnaðaráætlun vegna
gerðar myndsegulbanda
fyrir sjómenn, og tekiö
skal fram, að allar kostn-
aðartölur sem hér að
fráman eru, eru settar
fram með fyrirvara.
t samtali við Visi sagði
útvarpsstjóri Andrés
Björnsson, að hann vissi
ekki hvenær þessi mál
yrðu tekin fyrir i útvarps-
ráði né hvert framhald
yrði á málinu.
—AH.
■
■
■
1
■
■
■
■■■■■■■aaaa■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
SMAAUGLÝSINGASIMINN ER 86611
;'Smáauglýsingamóttaka
,alla virka daga frá 9-22.
Laugardaga frá 9-14 og
sunnudaga frá 18-22.