Vísir - 20.09.1978, Síða 4

Vísir - 20.09.1978, Síða 4
4 Miðvikudagur 20. september 1978 VISIR AUKAÞING S.U.S. Ungir Sjálfstæðismenn eru hvattir til þess að mæta á aukaþingi S.U.S. sem haldið verður dagana 30. sept. og 1. okt. i Valhöll, Þingvöllum. Félög ungra Sjálfstæðismanna um land allt eru hvött til að senda þátttökutilkynn- ingar til skrifstofu S.U.S. Valhöll, Háa- leitisbraut 1, Reykjavik, eða i sima 82900 (Stefán H. Stefánsson) fyrir 23. sept. n.t. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Iteykjavlk, og ýmissa iög- manna veröur opinbert uppboö sett I dómssal embættisins aö Skólavörðustig 11 miövikudag 27. september n.k. kl. 10.30, og veröur þar tekin fyrir sala á ýmsu lausafé, og uppboöum framhaldið sama dag þar sem lausaféð er. Væntanlega veröa seldir þeir hlutir, er nú veröurr greint: Prentvél, eign Ingólfsprents h.f. Ijósprentunarvél, eign tstaks h.f., prentvél meö tækjabúnaöi, eign Jakobs Haf- stein, dragskófla, eign Köfunarstöövarinnar h.f., Ijós- myndavél, eign Ljósbrots h.f., logsuðutæki og mælitæki eign Nicolai Nicolaissonar, pen.skápur og skrifstofuvélar, eign óöinstorgs h.f., prentvél, eign Arna Valdimarssonar hf., rennibekkur, eign Stálvinnslunnar h.f., klippiborö og etcvél, eign Texta h.f., bandsög, ristisög, þykktarhefill, bitsög (Delta), vélhefill, eign Trésm. Defensor sef., borö stólar, peningaskápur, reiknivéi, ritvél, eign veitinga- hússins Útgarös og sófar, sófaborö, skrifborö, peninga- skápur, búöarkassi og reiknivél, eign Virkni h.f. og vinnu- skúr, eign Hústaks h.f. Greiösla viö hamarshögg. Borgarfógetaembættiö i Reykjavik. VfSIR Okkur vontar umboðsmann ó Neskaupstað Upplýsingar i síma 28383 VlSIR MULNINGSVÉL TIL SÖLU Universal CSE 1024, ásamt sambyggðum mötunar-og hörpunarbúnaði. Upplýsingar hjá véladeild Vegagerðar rikisins á Reyðarfirði og í Reykjavik. Skrifleg tilboð berist skrifstofu vorri fyrir kl. 11:00 f.h. 3. okt. 1978, merkt: Otboð nr. 2432/78. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Húsbyggjendur ó landsbyggðinni: Fá allt að 11 milljónir úr byggingasjóði • meðan maður ó höfuðborgar- svœðinu fœr 3,6 milljónir ,,Verulegur hluti af svokölluðum leigusöluibúðum, sem byggðar eru úti á landi með 80 prósent f jármögn- un frá byggingasjóði ríkisins eru einbýlishús og rað- hús. Dæmi eru til þess að maður hafi á s.l. ári fengið lánaðar tæpar 11 milljónir úr byggingarsjóði rikisins til byggingar einbýlishúss á meðan höfuðborgarbúi fékk lánaðar 2.7 milljónir", sagði Víglundur Þor- steinsson framkvæmdastjóri steypustöðvarinnar BAA Vallá í samtali við Visi um þróun í byggingariðnaði hér á landi undanfarin ár. Hann bendir á að sam- rikisins á þennan hátt sem nefndur hefur verið, þá hefur ekki verið hægt að hækka hin al- mennu byggingarsjóðslán i samræmi við verðbólguþróun. Þvi hafa þau lækkað sem hlut- fall af byggingarkostnaði. „Þaö er búið aö viðurkenna þennan leik á kerfið með reglugerð um byggingu leigu og söluibúða, eins og þetta heitir frá s.l. vori”, sagði Viglundur. Hækkun á fasteignum fyrirsjáanleg drátfur í byggingariðnaði á höfuðborgarsvæðinu hafi verið gífurlegur á síðustu árum. Frá árinu 1976 hef ur samdrátturinn verið um 20 prósent þar til í ár. Vegna hins gifurlega sam- dráttar i byggingariðnaöi sem þegar er oröinn fyrirsjáan- Skolialeikur sveitar- félaga Orsakirnar fyrir samdrætti i byggingariðnaði i Reykjavik og á höfuðborgarsvæðinu, sagði Viglundur vera þær fyrst og fremst að húsnæöismálastjórn hefur ekki fjármagnaö sama hlutfall i byggingarkostnaði undanfarin ár með húsnæðis- stjónarlánum eins og gert hefði veriö fyrr. Húsnæðisstjórnarlán hafa rýrnað verulega undan- farin ár sem hlutfall af bygg- ingarkostnaði, samanborið við hvað slik lán borguðu fyrir nokkrum árum. „Þetta hefur hins vegar ekki komið alveg jafnt niöur á lands- byggðinni vegna þess að sveitarfélögin úti á landi hafa leikið svolitinn skollaleik undanfarin ár. Þau hafa leikið með vitund og vilja húsnæðis- málastjórnar, hlýtur að vera, þann leik að vilja ekki byggja t.d. verkamannabústaði af þvi að sá böggull fylgir skamrifi þar, að jafnframt þvi að fá lán til byggingar verkamannabú- staða, þá þurftu sveitarfélögin aö leggja fram sérstakt framlag i jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Til að komast hjá þessu þá not- færðu sveitarfélögin sér heim- ildir til byggingar leiguibúöa meö þeim kjörum aö leiguibúðir fengu 80 prósent lán eins og reyndar er hægt aö fá með verkamannabústaðakerfinu einnig. Með þvi að byggja leigu- ibúðir, þá þurftu þeir ek.ki aö greiða sérstakt framlag i jöfn- unarsjóð sveitarfélaga”. Viglundur Þorsteinsson Jafnvel þrefalt lán úr byggingasjóði „Þegar lokið var byggingu leiguibúðanna sendu æði mörg sveitarfélög beiðni til húsnæðis- málastofnunarinnar og óskuðu eftir leyfi til að selja ibúöirnar, sem þeir fengu i flestum tilfell- um. Með þessu móti byggja þeir húsnæði úti á landi, sem var fjármagnaö 80 prósent af hús- næðisstofnun rikisins. Þannig hafa ibúöabyggjendur úti á landi fengið tvöfalt og jafnvel þrefalt þaö lán úr byggingasjóöi rikisins sem húsbyggjandi i Reykjavik eða á höfuöborgar- svæðinu fær”, sagði Viglundur. Hann benti á að mikill hluti þessara svokölluðu leiguibúöa eru einbýlishús og raðhús og að út á hvert þessara húsa hafi á siðasta ári fengist lán á bilinu 5 til 10 milljónir. „A árinu 1978 með áframhaldi á þessu kerfi stefnir i það að verulegur hluti af einbýlishús- um og raðhúsum sem byggður er samkvæmt leigu- og sölu- ibúöa kerfi hljóta lán á bilinu 10 til 15 milljónir á meöan einbýlis- húsa og raöhúsabyggjandi á höfuðborgarsvæðinu fær 3.6 milljónir. Hér er um að ræöa argasta hneyksli og misnotkun á byggingasjóði rikisins að minu mati”, sagði Viglundur. Leikurinn á kerfiö viður- kenndur Viglundur sagði að með þvi að ráðstafa fé úr byggingasjóði legur svo og ennfrekari sam- drætti á næstu árum, þá er ljóst að iðnaðarmenn sjá ekki fram á mikla atvinnu. „Það er ljóst að iðnaðarmenn hafa farið úr landi eða út á landsbyggðina s.l. 2 til 3 ár og það endurspeglar þessa þróun. A landsbyggðinni er ekki aukningar aö vænta, þvi að samdráttur hefur orðið i bygg- ingariðnaði á landsmælikváröa um 3 til 4 prósent, en á höfuð- borgarsvæöinu, hefur hún verið um 20 prósent frá 1976. Það er ekki ofbyggt húsnæði á höfuð- borgarsvæðinu, húsnæðis- skorturinn er þegar farinn að segja til sin. Menn hafa leitt hjá sér skýrslur um byggingarþörf á ibúöarhúsnæði. Vegna ósam- ræmis i framboði og eftirspurn eftir húsnæði mun hækkun á fasteignum vera fyrirsjáan- leg”, sagði Viglundur.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.