Vísir - 20.09.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 20.09.1978, Blaðsíða 10
10 VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Daviö Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulttrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: G,uðmundur Pétursson. Umsjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöa- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrin Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlitog hönnun: JónOskar Hafsteinsson, MagnúsOlafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Askriftargjald er kr. 2000 Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson á mánuöi innanlands. Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8. Verö i lausasölu kr. 100 Simar 88611 og 82260 eintakið. Afgreiösla: Stakkholti 2—4 simi 86611 Prentun Blaöaprent h/f. Ritstjórn: Siöumúla 14 simi 86611 7 linur Af krónunni skul- uð þér þekkja þá Þær efnahagsráðstafanir, sem nú hafa verið gerðar eru ekki lausn á meinsemdum efnahagslífsins. Hér er aðeins um að ræða hefðbundnar skammtímaráðstafanir til þess að halda fiskvinnslunni gangandi í tvo til þrjá mánuði. Að teknum þessum ákvörðunum blasir við ný gengisfelling. Talsmenn stjórnarinnar hafa lýst yf ir því, að hún haf i orðið að grípa til bráðabirgðaráðstafana nú í því skyni að fá svigrún til að undirbúa varanlegar ráðstafanir eða gjörbreytta efnahagsstefnu. Sumum finnst að vísu kynlegt að flokkar, sem boða gjörbreytta efnahags- stef nu í kosningum, skuli ekki hafa hana á takteinum að þeim loknum. Á það verður að fallast að þetta er fremur undarlegt, en ætti ekki að koma mönnum á óvart og síst stjórnar- andstöðunni, því að þetta hef ur gerst svo oft áður. Fyrr- verandi ríkisstjórn greip til bráðabirgðaaðgerða í febrú- ar sl. til þess að halda atvinnufyrirtækjunum gangandi f ram yf ir kosningar. öllum var Ijóst á þeim tima að þar var aðeins um gálgafrest að ræða. Vandamálin, sem nýja stjórnin er að leysa mátti sjá fyrir í febrúar og reyndar var á þau bent þá. En gamla ríkisstjórnin notaði einnig sömu útskýringar og nýja stjórnin. Febrúarráðstafanirnar voru sagðar skammtímaráðstafanir til þess að gefa stjórnmála- flokkunum tíma til að móta stefnu til varanlegrar lausnar á efnahagsmeinsemdum þjóðarbúsins. Enginn flokkanna sýnist hafa notað tímann i því skyni. Þannig eru teknir gálgafrestir með ákveðnu millibili með fyirheitum um alvöruaðgerðir síðar. Við "þessar aðstæður hætta borgararnir að treysta nokkrum hlut. Þeir treysta ekki stjórnmálamönnunum og þeir treysta ekki á krónuna. í sjálf u sér er ekkert óeðlilegt,að menn treysti stjórn- málamönnum misjafnlega. Það er heldur ekki nýtt fyrirbæri. En við stöndum nú frammi fyrir þeim alvar- lega vanda, að fólkið í landinu hefur með öllum misst traust á gjaldmiðlinum. Þó að krónan sé f yrst og f remst milliliður er hún einnig mælieining. Hafi menn traust á gjaldmiðlinum gefur það vísbend- ingu um að efnahagslífið sé byggt á sterkum stoðum. Þegar allir eru á hinn bóginn hættir að líta á krónuna sem verðmæti, er stendur frá einum degi til annars, blasa fúaspýtur efnahagslífsins við. Nú hef ur gengi krónunnar verið lækkað og gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að lækka vöruverð. En þrátt fyrir þetta er trúin á krónuna ekki meiri en svo, að menn bíða í biðröðum til þess að hamstra kjöt og f lýta sér sem mest þeir mega til þess að breyta krónunum i frysti- kistur, hljómflutningstæki, bíla eða steinsteypu. Nýja rikisstjórnin heldur áfram eins og sú gamla að gefa út aukagjaldmiðil við hliðina á krónunni í formi verðtryggðra spariskírteina ríkisstjóðs. Ríkið treystir á að fólk breyti gömlu krónunni í verðtryggðar spariskir- teinakrónur. Allir vita að gamla krónan heldur áf ram að falla. Það nær engin ríkisstjórn tökum á efnahagsvanda- málunum, sem ekki byrjar á því að gera aðgerðir i þá veru að auka trú mana á krónuna. Vitaskuld kostar það skerðingu á fölskum lífskjörum. En aðgerðir, sem breyta engu um tiltrú manna á gjaldmiðilinn eru dæmdar til að mistakast. Ríkisstjórn sem byrjar á því að taka sér gálgafrest, hangir i snöru efnahagsringul- reiðarinnar fyrr en seinna. Þau hafa orðið örlög tveggja siðustu ríkisstj&rna. Miövikudagur 20. september 1978 VÍSIR Vardvelfum iríkirkjuna á Héraði tslenska frikirkjan er á margan hátt einstök i sinni röö. Þaö veröur ekki séö, aö kenningarmunur sé neinn milli hennar og þjóökirkjunnar, — þvert á móti hafa prestar frikirkjunnar ætfö veriö prestar úr rööum þjóökirkjumanna, bæöi hafa þeir hlotiö menntun sina i skóla þjóökirkjunnar, guöfræöideild Háskóla tslands, og þeir hafa allir hlotiö vigslu hjá Biskupi tslands, og prestaheit þeirra er hiö sama og presta þjóökirkjunnar. Margir mætir hafa unniö báöum kirkjum gagn. Er mér þó helst i huga Loftur Bjarnason útgeröarmaöur, sem var ötull frikirkjumaöur i Hafnarfiröi, en var þó jafnframt helsti stuönings- maöur Hallgrimskirkju i Saurbæ og gaf þangaö meö frú Sólveigu konu sinni marga fagra gripi auk annars stuönings. Tengsl frikirkj- unnar og þjóökirkjunnar eiga sér eölilegar skýringar i upphafi frikirkjusafnaöanna á tslandi. Ekkideilt um kenningu Þeir voru stofnaðir á Islandi skömmu eftir að Hans Hátign Kristján IX gaf Islendingum stjórnarskrá. t stjórnarskránni voru sett ákvæði um skilyrt trúfrelsi, þ.e. aö hér skyldu menn mega stofna félög til þess að þjóna guði, og er vitanlega átt við Guð kristinna manna. Rétt um 1880 kom upp deila á Austurlandi um veitingu prests- embættis. Jónas Hallgrimsson var þá aðstoðarprestur föður sins á Hólmum i Reyðarfirði og hafði verið frá 1871. Jónas var- vinsæll af alþýðu og var vilji safnaðarins að hann yrði eftirmaður föður sins. En Hólm- ar voru eitt besta brauð lands- ins. Jónas varð aðTúta aldurs- reglu og biskup veitti fullorön- um sæmdarklerki brauðið. Svo mikilli andstöðu mætti þessi veiting að menn sögðu sig úr söfnuðinum og stofnuðu sér- stakan frikirkjusöfnuð á Eski- firði, og siðar var annar söfnuö- ur stofnaöur á Héraði. Báðir eru þessir söfnuðir nú runnir saman við þjóðkirkjusöfnuðina á staðn- Mikið lagt á sig. Þessir söfnuðir voru ekki svo stórir, aö nokkur treysti þeim til að standa að kirkjusmftmm. En söfnuðurnir létu ekki fámennið draga úr sér kjark og það voru frikirkjur á Eskifiröi og Héraði, — falleg guðshús með ágætum gripum. Eftir aö söfnuðurnir runnu saman við Þjóðkirkjuna af nýju, þá voru kirkjurnar teknar til annars og nú er frikirkjan á Eskifirði horfin en þó mun til af henni teikning og Haroldur Blöndal skrifar: Kirkja gamla frikirkjusafnaðarins ó Héraði er nú notuð sem peningshús eða geymsla. Bogi Nílsson sýslumaður hefur úhuga á að vernda þessa kirkju frú frekari skemmdúm og gera hana upp Eskfiröingar hafa látiö gera af henni snoturt likan. En kirkjan á Héraði stendur Fallvölt heimsins dýrð. I sumar var ég á ferö um Héraö ásamt sýslumanni Suðurmúlasýslu, Boga Nilssyni. Þegar við ókum um Velli, tók ég eftir steinhúsi, sem var orðiö hrörlegt og illa fariö. Þetta hús liktist kirkju. Ég spurði sýslumann hvað húsa þetta væri, og hvort kirkja heföi veriö flutt af þessum stað. Sýslumaður sagði mér þá, að þetta hús hefði eitt sinn veriö frikirkja, — reist af frikirkju- söfnuðinum á Héraði og verið snotur litil kirkja á sinni tið. Kirkjan er nú notuð sem peningshús, held ég, eða geymsla. Menningarverðmæti Sýslumaður sagði mér þarna á leiðinni söguna af frikirkjunni á Austfjörðum. Og jafnframt sagði hann mér af þvi, að hann hefði mikinn áhuga á þvi að vernda þessa kirkju frá frekari skemmdum og að gera hana upp. Island ætti ekki mörg hús, sem væru i raun tengd sögulegri hreyfingu en frikirkjuhreyfing- unni á siðustu öid. Vagga þeirra hreyfingar hefði verið á Islandi og væri þvi eðlilegt að Austfirð- ingar vildu vernda þetta hús. En til þess að þetta geti tekist þarf talsvert fé. Það þarf að kaupa kirkjuna af eiganda Ketilstaða og siðan að gera hana alla upp. Það er mikið verk og kostnaðarsamt. Verkefni fyrir þjóðhátiðarsjóð. Nú veit ég ekki, hvert hefur verið framhaldið á þessu máli. En þetta hús hefur hvaö eftir annað komið upp i huga mér, þegar verndun húsa á Islandi ber á góma. Ég býst við þvi, að margir hafi tekiö eftir þessari kirkju, þeir, sem ekið hafa frá Egilsstöðum til Hallormsstaöar eöa suður Firði. Nú stendur hún rúin skrauti og reisn, veöruð en á þó minningu þess, þegar hún var kirkja frikirkjumanna á Héraði, eina frikirkjusafnaöar- ins sem var nokkurn tima i sveit. A þjóðhátiðarárinu var stofn- aður sjóður, — Þjóöhátiöar- sjóður og er hlutverk hans m.a. að leggja fram fé til að vernda menningarminjar. Þessi sjóöur hefur lagt fram myndar- legan skerf til varðveislu húsa i landinu. Ég efa það ekki, að sá sjóður yrði Austfirðingum gullkista, ef | þeir leituðu þangað um styrk til að endurgera kirkjuna á Ketil- stöðum á Völlum. Sköpunin og 9. sinfónían meðal verkefna hjá söngsveitinni Söngsveitin Filharmónia mun hefja sitt 19. starfsár i kvöld. Verkefnin i vetur munu verða „Sköpunin” eftir Joseph Haydn, sem flutt veröur á tónleikum með Sinfóniuhljómsveit tslands þann 15. febrúar, undir stjórn Marteins Hunger Friöriks- sonar. Og „9. sinfónian” eftir Ludwig van Beethovén, en hún veröur flutt á tónleikum meö Sinfóniuhljómsveit tslands þann 7. og 9. júni undir stjórn franska hljómsveitarstjórnandans J.P. Jacquillet. Þá mun Söngsveitin einnig æfa nokkur islensk lög meö útvarpsupptöku fyrir augum. Sköpunina samdi Haydn á árunum 1795 til 1798 eftir aö hafa kynnst kórverkum Handels á Lundúnaárum sinum. Sköpunin er i hefðbundnum óratóriustil, samin fyrir fjögra radda kór, þrjá einsöngvara og hljómsveit. Þarskiptastá ariur, resitativ og kórar. Verkið verður sungið á þýsku og tekur 105 minútur i flutningi. Beethoven samdi 9. sinfóniuna á siðustu árum ævi sinnar. Þrátt fyrir miskunnar- lausa ævi var hann lengi staö- ráðinn i aö semja gleðinni lof- söng. Boðskapur ljóðsins, sem er eftir Schiller er áhrifamikill. t vetur munu fjórir einsöngv- ara, þau Ólöf Harðardóttir, Rut Magnússon, Friðbjörn G. Jóns- son og Halldór Vilhelmsson, starfa með stjórnandanum og þjálfa hverja rödd fyrir sig, við æfingu fyrrgreindra verka. Einnig mun kórinn hafa milli- göngu við útvegun einsöngvara til kennslu i hóp og einkatimum. Þá mun Pétur Hafþór Jónsson tónmenntakennari hafa með höndum stjórn á tónfræði- kennslu innan kórsins. Þess má geta að Söngsveitin Filharmónia, óskar eftir nú eins og ávallt áhugasömu söngfólki til starfa með sér. En stjórnandi Söngsveitarinnar er Marteinn Hunger Friðriksson og undir- leikari Agnes Löve. Æfingar fara fram i Melaskólanum við Hagamel á mánudags og miðvikudagskvöldum kl. 20.30.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.