Vísir - 20.09.1978, Page 11

Vísir - 20.09.1978, Page 11
vism Miðvikudagur 20. september 1978 11 Ohætt er að segja að þátttakan í Jafnréttisgöngunni í gær haf i farið framm- úr vonum þeirra allra bjartsýnustu. Gangan náði endanna á milli, ef svo má að orði komast. Þeir fyrstu voru komnir á áfangastað, að Kjarvalsstöðum þegar þeir síðustu voru að leggja af stað frá Sjómannaskólanum. Erfitt er að geta sér til um fjöldann, en hann hefur sennilega verið milli fimm og tíu þúsund. Fyrir göngunni fóru fánaberar, Hreinn Halldórsson, kúluvarpari, sem hélt á íslenska fánanum og Arnór Pétursson, formaður íþróttafélags fatlaðra, sem bar fána Sjálfsbjargar. Á eftir þeim kom svo halarófan, fyrst fóru fatlaðir í hjólastólum, svo þeir minna fötluðu, lúðrasveit lék undir fjöldasöng, nokkrir hinna fötluðu voru á hestbaki. Á eftir kom svo mikill fjöldi almennra borgara, á öllum aldri að þvi er virtist og báru spjöld og borða með ýmsum áletrun- um. Veður var því miður.eins og best var var á kosið, - það rigndi, aldrei þessu vant. En fólk virtist ekki taka mikið eftir þvi. Þegar komið var í Kjarvalstaði virtist svo sem hið ágæta skipulag sem hafði verið á göngunni færi úr böndum. Var þó nokkur töf á þvi að dagskráin sem þar átti að hef jast klukkan f jögur hæfist, sem varð til þess að margir hurfu frá. Dagskráin fólst í því að nokkrir aðilar f rá bæði forsvarsmönnum íatlaðra og frá borgaryf irvöldum fluttu ávörp, og kór tók lagið. Kaffiveitingar voru bornar fram, og lauk fundinum eftir klukkan sex. Myndírnar hér á siðunni tóku Jens Alexanderson og Gunnar V Andrésson i göngunni og inni á Kjarvalsstöðum í gær. Þær þarfnast ekki skýringa. —GA

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.