Vísir - 20.01.1979, Blaðsíða 2

Vísir - 20.01.1979, Blaðsíða 2
2 Laugardagur 20. janúar 1979. vism .... " Efnahagsfillögur Framsóknarflokksins: TAKMARKA LAUNAHÆKKANIR OG BREYTA VÍSITÖLUKERFI Blaöamannafundur Framsóknarflokksins f gær: Steingrimur Hermannsson og Guömundur Þórarinsson skýra frá stefnu flokks- ins i efnahagsmálum. Vfsismynd: JA „Meginmarkmiöiö meö þess- um tillögum er aö ná veröbólg- unniniöur. Viö höfum rætt þaö i okkar hópi aö koma veröbóig- unniniöur i 15-20% á næsta ári, en þessar tillögur miöa aö því aö veröbólgan veröi komin undir 30% í lok þessa árs”, sagöi Steingrlmur Hermannsson rit- ari Fram sóknarflokksins á fundi meö fréttamönnum f gær. Þar voru kynntar tillögur Framsóknarflokksins i efna- hagsmálum eins og þær voru samþykktar i þingflokki og framkvæmdastjórn. Guðmund- ur G. Þórarinsson varaformað- ur efnahagsmálanefndar flokksins var meö Steingrimi á fundinum, en i þeirri nefnd voru þessar tillögur unnar. Til þess að draga úr veröbólg- unni en halda jafnframt fullri atvinnu og styrkja stöðu at- vinnuveganna vil Framsóknar- flokkurinn meöal annars aö gripiö verði til eftirfarandi ráö- stafana. Afram veröileitaö samkomu- lags viö aðila vinnumarkaöar- ins um félagslegar umbætur I staö launahækkana. Launa- hækkanir l. mars fari ekki fram úr 5% og visitölukerfiö tekiö til endurskoöunar. Visitöluviömiö- un launa veröi breytt þannig aö breytingar á óbeinum sköttum og niöurgreiöslum hafi ekki áhrif á veröbótavisitölu launa. VEsitölubætur taki miö af breytingum viðskiptakjara og timabil milli verðbótadaga veröi fyrst um sinn lengt upp i sex mánuöi. Samráði aðila vinn uma rkaöarins veröikomiö I fast form og tilhögun vinnutima og launamála veröi tekin til endurskoöunar. Vaxtalækkun Þá er gert ráö fyrir aö vextir veröi lækkaöir i áföngum og komiö á verötryggingu inn- og útlána, þannig aö höfuöstóll breytist meö verðlagsþróun. Afborganir og vextir reiknist af veröbættum höfuðstól. Verö- trygging veröi reiknuö eftirá eftir verðlagsþróun nema af mjög stuttum lánum, en sam- hliöa verötryggingu veröi láns- timi lengdur. ___ „Niöurgreiöslur eru orönar hættuiega miklar og þaö mætti frekar nota eitthvaö af þessu fjármagni til tekjujöfnunar”, sagöi Steingrimur Hermanns- son. Taldi hann aö flytja mætti fjármagn frá niöurgreiöslum til fjölskyldubótaogkæmi þaðbest aö notum fyrir þá sem stæöu höllum fæti. Steingrimur sagöi aö nú væri rikið hánast fariö aö leita i hverjum krók og kima til aö standa undir tekjuþörfinni og ekki mætti auka skattheimtu. Ákveða þyrfti rikisumsvif sem hæfilegt hlutfall af þjóöartekj- um og næstu tvö árin skuli þau ekki vera meiri en 30% Varöandi f járfestingamál gera tillögurnar ráö fyrir aö fjárfestinga- og lánsfjáráætlun veröi lögö fyrir Alþingi meö fjárlögum og afgreidd sem ályktun Alþingis. Lögbinding á framlögum til fjárfestingasjóðs veröi afnumin en ákveöin i fjár- festinga- og lánsfjáráætlun til fjögurra ára i senn. Sérstök heildarlöggjöf veröi sett um starfsemi fjárfestingasjóða. Gert er ráö fyrir endurskoöun á starfsemi fjárfestingasjóöa, en eftirlit meö framkvæmd starfsemisjóðanna verði i hönd- um Framkvæmdastofnunar rik- isins sem fái meira vald til eftir- lits og ákvaröana. Varöandi verðlagsmál er I meginatriðum lagt til aö fylgt verði þeim lögum um verölag sem samþykkt voru I fyrra þar sem stefnt er að frjálslegri verölagslöggjöf, en þó fyrst um sihn meö öflugu verölagseftir- liti, auglýstu hámarksverði á nauösynjum. Hér hefur verið greint frá ýmsum atriöum i tillögum Framsóknarflokksins en ekki er rúm til aö rekja þær til hlitar. — SG .. Ricky Villard semur alla sina dansa sjálfur. Hann kemur fram á Óöali á sunnudag. Vfsimynd ÓT. r /# Eg sem mína dansa sjólfur" — segir Ricky Villard ,,Ég hef mjög gaman af dansi og fór oft á diskótek I heimabæ minum á Long Island. Mér var boöin þátttaka i diskókeppni sem haldin var þar, ég sigraði og siöan lá leiöin til New York i aöra keppni og loks til London á heimsm eistarakeppnina þar sem ég var I ööru sæti”, sagöi Ricky Villard, sem sýnir dans á diskókcppni Óöals og VIsis á sunnudaginn. Villard hefur veriö á stööug- um feröalögum frá þvl keppn- inni I London lauk og hyggst ekki leggja dansskóna á hilluna i bráö. Hann semur sína dansa sjálfur. „Fólk býst viö aö sjá þá dansa sem Travolta dansaöii Saturday Night Fever, en minir dansar eru ekkert likir þeim”, sagöi Villard. A sunnudaginn hefst þriöji liöur keppninnar svo nú fer aö styttast I úrslitakeppnina. —KP Efnahagstillögur Alþýðubandalagsins: Ríkisafskipti stóraukin ó flestum sviðum og um- skðpun í framleiðslu- greinum ,,Viö teljum aö þessi vlsitölu- vandi og þessi áhersla á prósentutölur 1. mars sé ekki neinn kjarni f vandamálina Aöal- atriöiö er hvort aö tekst aö ná fram grundvallarbreytingu á framleiöslukerfi landsmanna aö þaö geti borið auknar Iffskjara- bætur þegar viö erum komnir Ut úr veröbólguvandanum”, sagöi Ólafur Ragnar Grfmsson al- þingismaöur I samtali viö Visi I gærkvöldi. Hann sagöi aö meö sömu þróun og átt heföi sér stað undanfariö vegna margvislegra aögerða rlkisstjórnarinnar yröi veröbólg- an komin niöur fyrir 30% I árslok og jafnvel niöur í 25%. Þess vegna væri kominn timi til aö rlkisstjórnarflokkarnir ein- beittu sér aö nýsköpun atvinnu- llfsins og samræmdri fjárfest- ingastjórn. Þaö réöi úrslitum til lengdaf hvort viö næöum fram umsköpun atvinnulifeins, sam- ræmdri fjárfestingastjórn og þar aö auki niöurskuröi á marg- vislegri yfirbyggingu i þjóöfélag- inu sem framkallaöi eyöslu án þessaö skila nokkrum hagnaöi i gjaldeyrisskapandi greinum. Þvi heföi Alþýöubandalagið sett fram tillögur sem væru i 11 meginköflum og um 80 sjálfstæöa tillöguliöi. Kerfi af nefndum var sett upp Iflokknum til aö vinna aö þessum tillögum sem slöan var fjallaö um I nefnd er i áttu sæti auk Ólafs Ragnars, Lúövik Jósepsson, Kjartan ólafsson og ráöherrar flokksins. Þessar tillögur voru slöan kynntar og af- greiddar á sameiginlegum fundi framkvæmdastjórnar flokksins, þingflokksins og stjórnar verklýösmálaráös hans á fimmtudaginn. I tillögum Alþýöubandalagsins er sett þaö markmið aö á þessu ári og næsta veröi náö jO-15% framleiðniaukningu í sjávarút- vegi fiskiönaöi og almennum iönaöi, til aö þeir geti boriö aukn- ar kjarabætur. I þessu skyni er sett upp itarleg áætlun I mörgum þáttum. Meðal annars er gert ráö fyrir aö nú þegar veröi settir þrlr milljaröar I framleiöniumsköpun I þessum greinum. Þetta veröi sett undir sérstaka samstarfs- aöila. Liöur i þessu veröi sam- ræmd verkaskipting fyrirtækja. Uppskurður á kerfinu Gert er ráö fyrir miklum uppskuröi á ríkiskerfinu. Bæöi meö þvl aö leggja til breytingar á almennum vinnubrögöum i rekstrareftirliti I rikiskerfinu. Gerð veröi úttekt á ákveðnum málasviöumalvegá næstunni og i þriöja lagi eru tilgreindar átta stofnanir sem lagöar veröi undir sérstakar sparnaöaraögeröir á allra næstu mánuðum. Þar eru stofnanir eins og Póstur og slmi, Seðlabankinn, Orkustofnun, Landhelgisgæslan, rikisspltalar og Hafrannsóknarstofnun. Auk þess veröi hreyfanleiki I æöstu stjórnunarstööunj hjá rik- inu og menn bara ráönir til ákveðins tlma. Þá kom þaö fram I samtalinu viö Ólaf Ragnar Grímsson aö at- huganir sem viöskiptaráðuneytiö hefur gert hafa leitt þaö I ljós, aö innflutningsverö til landsins er um 20 milljöröum króna hærra á ári en I nágrannalöndunum. Alþýðubandalagiö væri meö ákveðnar tillögur til aö breyta þessu og draga verulega úr þeim umframkostnaöi sem hér væri umfram nágrannaþjóöirnar. Þaö næöist fram meö aö beita höröu eftirliti á innflutningsfyrirtækin meö verslunarleyfum og gjald- eyriseftirliti og álagningu sem byggöi fyrst og fremst á lægsta fáanlega innkaupsveröi. Verðlagseftirlit Næsti meginþáttur I tillögum Alþýöubandalagsins er um verölagseftirlitið. Verövitund al- mennings veröi mjög efld meö aögeröum sem veita aöhald i efnahagsllfinu og verömyndunar- kerfinu. Rfldsvaldiö geri samning viö fjöldasamtök, verkalýðsfélög eða önnur fjöldasamtök og fjöl- miöla. Veitt veröi verulegt fjármagn I þessu skyni, geröar veröi verölagskannanir og það tilkynnt hvar lægsta vöruverö á landinu sé aöfinna. Rlkiö mun þá standa aö auglýsingum um þessi mál. Breyting á Seðlabanka Þá er gert ráö fyrir breytingum á bankamálum og peningakerfinu I landinu. Gerö veröi sérstök út- tekt á viöskiptabönkunum og þeim fækkaö og Seölabankinn tekinn til uppskuröar. Breyta á hlutverki Seölabank- ans, draga úr gífurlegri starfs- mannafjölgun bankans og gera bankann að virkara tæki i efiia- hagsstjórninni I landinu. Flytja á bankaeftirlitiö út úr Seðlabank- anum og gera þaö að virku eftir- litstæki. Meöan þessi endurskipulagning á sér staö skal til aö tryggja framkvæmd efnahagsstefnu rikisstjórnarinnar, setja sérstaka nefnd sem hefur yfirumsjón meö bankakerfinu og lánastarfsemi I landinu. Siöan eru ýmsar tillögur I skattamálum, um orkusparnaö ogsvo tillögur um hvernig háttaö veröi samráöi viö verkalýös- hreyfinguna. —sg

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.