Vísir - 20.01.1979, Blaðsíða 27

Vísir - 20.01.1979, Blaðsíða 27
vtsm Laugardagur 20. janúar 1979. Andspyrnuhreyfing Réttarhöldin. Petiot hiustar á framburð vitna. Petiot kvaðst hafa verið hand- tekinn af Þjóðverjum en losnað úr fangelsi I janúar 1944. Er hann kom heim til sin sá hann sér til skelfingar sundurlimuð llk. Hann ályktaði að félagar sinir i andspyrnuhreyfingunni hefðu verið hér að verki, en þeir neituöu og töldu að annar hópur hefði staðiö að þessu. En félag- ar hans féllust á að hjálpa hon- um að hreinsa upp ósómann. Ekki þótti ráölegt aö flytja likin úr húsinu heldur gripu þeir til þess ráös að reyna að brenna likin. Petiot neitaöi að segja til þeirra sem höföu aöstoöað hann: kvað það andstætt starfs- háttum andspyrnuhreyfing- arinnar. Þríhyrnda herbergið SAKAMAL Kotroskinn leyfir Petiot ljósmyndurum aðmynda sig. Réttarsalurinn var alltaf þéttsetinn. verulegu mistökin. Hann hafði lagt fram bréf frá tveimur mönnum sem hann sagði aö væru I Suður-Ameriku. Siðar játaði hann að hafa myr.t þá. Þá höfðu þeir ekki skrifaö bréfin sjálfir enda viðurkenndi hann að hafa gert þaö. Þess vegna væru veggirnir svo þykkir og þvl væri gægjugatið. Læknar kváðu þetta fjarstæðu. Herbergið væri of lltið til að rúma bæði tæki og sjúklinga. í upphafi yfirheyrslna fóru menn heim til Petiots aö lita á aðstæður. Þrihyrnda herbergið vakti mikla athygli. Petiot sagöist hafa hugsað sér að stunda geislalækningar i þvi. Það var eina vörn Petiots að hann hefði verið i andspyrnu- hreyfingunni og fengiö fyrir- mæli um að taka þetta fólk af lifi. Hann neitaði stöðugt að nefna samstarfsmenn sina. Saksóknari reyndi að fullvissa hann um að þeim væri óhætt að gefa sig fram. En læknirinn átti óhægt um svör. Er saksóknarinn bað hann að lýsa nánar hvað hann hefði starfaö fyrir andspyrnu- hreyfinguna svaraði hann: ,,Þaö væri liklega fljótlegra að telja upp það sem ég gerði ekki!” Hann sagðist hafa sprengt upp farartæki Þjóðverja, stundað njósnir o.s.frv. Saksóknari bað hann nú að lýsa hvernig hann notaði sprengiefni. Læknirinn gat engu svarað. Hann reiddist og jós svi- virðingum yfir saksóknara. Hlátrasköll Sannað þótti að Petiot væri heill á geðsmunum og ábyrgur gerða sinna. Lögfræðingarnir kröföust dauöadóms og einn þeirra fór að rekja málavöxtu lið fyrir lið. Dómsforseti gat ekki stöðvað hann en Petiot kom honum til hjálpar er hann hrópaöi: ,,Ég vil vekja athygli á þvi að ég hef ekki borgaö mann- inum fyrir aö gera þetta!” Þá kváðu við hlátrasköll i réttarsalnum. Er menn höfðu loks lokið sér af aö tala varpaði dómsforseti hinn ákæröa: „Vilt þú segja eitthvað að lokum, Petiot?” Petiot svaraði: „Nei. Þiö eruð Frakkar. Þið vitið að ég myrti handbendi Gestapó. Þið vitið hvaö ykkur ber að gera”. Kviödómendur töldu Petiot sekan um 24 af þeim 27 morð- ákærum sem á hann voru born- ar. Mikil háreysti var I réttar- salnum er dómsforseti kvað upp dóminn. Fyrst heyrði Petiot ekki dóminn. En þegar honum skildist að hann hefði verið dæmdur, hrópaði hann til konu sinnar: „Þú verður að hefna min”. ■ i ■ ■—m Síöasta ferðin Marcel Petiot áfrýjaði dómn- um en var synjað. 26. mai 1946 var hann leiddur undir fallöx- ina. Hann hafnaöi prestsþjón- ustu og reykti siöustu sigarett- una. Hann bað að mega fara á salernið en fékk það ekki. Hann yppti öxlum og sagði: „Þegar menn fara I ferðalag hafa þeir allt meðferðis sem þeir geta boriö”. Að svo mæltu sneið fallöxin höfuö Marcels Petiots frá boln- um. 27 r -k Attu erfitt með að orða hugmyndir þínar? ★ Óttastu rœðustólinn? r ★ Ottastu óheyrendur? ★ Nœrðu að telja þér trú um oð það sem þú vildir segja sé tóm vitleysa? ★ Eða geturðu ekki verið þekktur fyrir að fó leiðsögn í rœðumennsku og fundarstjórn? ★ Ef ekkert af þessu tilheyrir þér, getur þó verið að þú þurfir leiðsögn vegna of mikillar mólgleði? Það sem hér aðofan er taliðeru f yrirbæri sem hinir mestu ræðusnillingar hafa einhversn tíma átt við að stríða. Heimdallur vill því í samvinnu við S.U.S. benda þér á félagsmálanámskeið sem haldið verður dagana 22.-25. jan. Staöur: Sjáifstæðishúsiö, Háaleitisbraut 1. Timi kl. 20.30 alla dagana. Efni: Mánudagur 22. jan. Inngangur — Almennar leiðbeiningar, leiðbeinandi, Friða Proppé Þriöjudagur 23. jan. Grundvallarþættir ræðumennsku, leiðbeinandi Friða Proppé Miövikudagur 24. jan. Fundarsköpog fundarstjórn, leiðbeinandi Friörik Sophus- son. Fimmtudagur 25. jan. Umræðufundur undir stjórn leiðbeinanda (Friöa Proppé) Námskeiöagjald aðeins kr. 1.500,- Námskeiðagögn afhent á staðnum. Þeir sem vildu fá nánari upplýsingar um námskeiðiö, hafi samband við skrifstofu S.U.S. eöa Heimdallar I sima 82900 eða sima 82098 eftir kl. 17.00. Heimdallur/S.U.S. .... ■ 1 SUBARU Sedan D.L. 4ra dyra sem allir eru ónœgðir með. Og verðið geta allir verið ónœgðir með kr. 3.160 þús. ______ __________________ INGVAR HELGASON Vonarlondi v Sogoveg — Simar 84510 og 8451 1 Auglýsið í Vísi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.