Vísir - 28.02.1979, Qupperneq 16
16
Miðvikudagur 28. febrúar 1979.
vísm
LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST
Mary
Jeane Rasmussen við orgelið i Filadelfiukirkju, sem hún sagðist vera mjög ánægð með.
„Bandaríkjamenn gefa lítið
fyrir erlend prófskírteini"
- segir Mary Rasmussen sem heldur orgeltónleika í Fíladelfíukirkju í kvöld
„Kannski er þetta eins
erfittog það litur út fyrir aö
vera, hugsaði ég áður en ég
byrjaði að læra á orgei, en
þaö reyndist talsvert erfiö-
ara,” sagði Mary Jeanc
Rasmussen, I samtali við
Visi, en hún heldur orgcl-
tónleika f Filadelflukirkj-
unni I kvöld.
Mary Jeane, sem er
bandarisk lauk konsert-
organleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum i
Vinarborg á siðastliðnu
ári og var aðalkennari
hennar þar, prðfessor
Michael Radulescu. Hún
starfar nú sem aðal-
organleikari við eina
sögufrægustu klaustur-
kirkju Evrópu i Heil-
igenkreuz, sem er um það
bil fjörutiu kilómetra frá
Vin. Hún er á bakaleið úr
tónleikaferö um heima-
land sitt.
„Prófessorinn sem ég
stundaði nám hjá i
Massachusettshaföi lært i
Vinarborg, og þaö varö til
þess að ég fór þangað eft-
ir tveggja ára nám á org-
el heima i Bandarikjun-
um. Aður hafði ég lokið
prófi á pianó og fiðlu.
Dvölin i Vinarborg hef-
ur verið dásamleg og það
er mjög spennandi að
vinna við klausturkirkj-
una. Orgelið er afar gam-
alt, síðan árið 1804, en
klaustrið var byggt 1133.
Það stendur til að taka
upp dagskrá fyrir Euro-
vision á aðfangadags-
kvöld i kirkjunni, fyrir-
hugaðar eru ýmsar
endurbætur þarna og það
er alltaf eitthvað um að
vera Ég kann mjög vel
við mig og allir eru ákaf-
lega elskulegir og góðir
við mig.
Ég ætlaði raunar að
vera flutt aftur til Banda-
rikjanna og þóég viti ekki
hvenær af þvi verður má
það ekki dragast of lengi.
Bandarikamenn eru
nefnilega ekkert sérlega
upprifnir yfir prófskirt-
teinum frá erlendum
skólum og ef ég ætla að
hafa verulega góða at-
vinnumöguleika verö ég
að ljúka prófi frá viður-
kenndum skóla i Banda-
rikjunum, þó ég hafi lokið
námi i Vin.
Gott fyrir börn að
læra af öðrum
börnum.
Ég byrjaði að læra á
pianó hjá tónlistarkenn-
ara þegar ég var sjö ára
gömul, en frænka min
sem var aðeins eldri en ég
hafði kennt mér frá þvi ég
var fimm ára. Mér hefur
oft dottið i hug hvort ekki
væri með einhverjum
hættihægt að skipuleggja
og fjármagna slika
kennslu, þvi hún kemst
oft miklu betur til skila.
Einhvern veginn eiga
börn greiðari aðgang að
athygli annarra barna en
fullorðnir og njóta þess
gjarnan að miðla öðrum
af þvi sem þau hafa lært.
Annars hafði ég mjög
góða og áhugasama
kennara og það er óskap-
lega mikilvægt aö skynja
lifandi áhuga hjá þeim
sem er aö leiðbeina
manni, ekki sist á gelgju-
skeiðinu. Flestir sem ég
þekki i þessu fági hafa
einhverntima á þeim
aldri misst áhugann á
tónlistarnámi og ætlað aö
hætta. og ekki beinlinis af
irúarlegum ástæöum. 1
litlum kirkjum, eins og
þar sem ég ólst upp, eru
orgelin yfirleitt ekki góð,
þó söngurinn og orgel-
leikurinn.geti verið ágæt-
ur. Ég lét mér stundum
detta i hug hvað þaö hlyti
að vera skelfilegt aö leika
við svona messur ef
manni tækist ekki að
fylgja söngnum. Eftir að
hafa farið á orgeltónleika
fór ég að hugleiöa hvernig
væri að spila á þetta
hljóðfæri og ákvað að
fara i nokkra tima til að
kynnast þvi. Þá hafði ég
lokið námi i pianóleik.
Þetta reyndist flóknara
en svo að nokkrir timar
dygðu og auk þess
skemmtilegra en ég hafði
átt von á. En lika erfið-
ara.Ein af ástæðunum til
að ég ákvaö að ljúka námi
i orgelleik er að það gefur
meiri atvinnumöguleika.
Mér virðist að litiö sé um
það viða i Evrópu að kon-
ur stundi organistastarf,
sérstaklega við stórar
kirkjur, en i Bandarikun-
um er það algengt og eins
i Frakklandi. Annars hef-
ur orðið mikil breyting a
kynskiptingu i störf á sið-
ustu árum og frekar er
spurt um hæfileika, þekk-
inguog áhuga en hvort þú
ert karl eða kona, sem
betur fer.
Af dönskum upp-
runa
Þessi tónleikaferð sem
ég var að koma úr var
öðrum þræði farin til að
heimsækja foreldra
mina. Hún gekk vel að
öðru leyti en þvi, að ég
veiktist og varð að aflýsa
einum tónleikunum og
færðinvarmjög slæm þar
sem ég var. Ég var þarna
aðeins tvær vikur. 1
fyrrasumar fór ég i tón-
leikaferö um Finnland,
Danmörku, Austurriki og
Þýskaland og stóð hún i
átta vikur. Ég hafði
aldrei áður komið til
Norðurlandanna og
fannst þaö sérstaklega
gaman. Afi minn og
amma voru dönsk og það
býr mikiö áf fólki af nor-
rænum uppruna þar sem
ég er alin upp. Mér fannst
þvi á margan hátt ég vera
komin heim og allt miklu
kunnuglegra en til dæmis
i Vinarborg.
Eg held aðeins þessa
einu tónleika hér i kvöld
en á morgun fer ég áleiðis
til Vinar, sagöi Mary
Jeane Rasmussen.
Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.30 i kvöld og
aðgangur er ókeypis.
A efnisskránni verða
verk eftir J.S.Bach,
Reger og Messiaen.
— JM
ÞÝSKUR KVIKMYNDASTJÓRI í
Fimmtudaginn 1. mars kemur þýski
kvikmyndastjórinn Werner Herzog i
stutta heimsókn til íslands á vegum
Þýska bókasafnsins. Heimsóknin er liður
i ferðalagi Herzogs um Norðurlöndin og
kemur hann hingað frá Noregi.
A fimmtudagskvöldið
mun Herzog hitta að máli
islenska kvikmyndagerö-
armenn, en á föstudags-
kvöldið verður sýning i
Tjarnarbiói á mynd hans
„Aguirre — reiöi Guös”
(gerð 1972 i Suður-
Ameriku). Sýningin verður
opin almenningi og hefst kl
9. Að sýningu lokinni mun
Herzog svara fyrirspurn-
um áhorfenda, og Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur
stjórnar umræðum.
Werner Herzog er einn
þekktasti núlifandi kvik-
myndastjóri Þýskalands.
Allmargar mynda hans
HEIMSÓKN
hafa veriö sýndar hér á
landi, t.d. var myndin
„Stroszek” sýnd hér á
kvikmyndahátið i fyrra,
„Kaspar Hauser” var
mánudagsmynd i Háskóla-
biói og siðar sýnd i sjón-
varpinu, og Fjalakötturinn
hefur sýnt 4 mynda hans.
Nýjasta mynd Herzogs er
„Nosferatu” ný útgáfa af
sögunni um Dracula greifa.
Næsta vorverður frumsýnd
i Þýskalandi mynd sem
hann hefur nú i smiðum og
byggir á leikritinu Woy-
zeck eftir Georg Buchner,
sem sýnt var I Þjóðleikhús-
inu i fyrra.
©
LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST