Vísir - 28.04.1979, Side 4
vtsm
Laugardagur 28. aprll 1979
Krakkar af Masaiaþjóöflokki snikja sælgæti af Astu.
Asta og Sævar ásamt fylgdarmönnum, Nikul^c bilstjóri er lengst tii hægri. I baksýn
er Kilimanjaro, fjalliö fræga. Þvi miöúr er h' If kollurinn hlulinn skýjaslæöu.
ÆVIHTÝRAFERÐ TIL KENYL A VEGUIH VfSIS:
„Bllstjórinn okkar, hann
Nikulás, gaf allt I botn þegar
hann sá ljónið. Þetta reyndist
kvendýr, með fjóra unga. Eftir
mikinn eltingaleik tókst að króa
ljónin af. Þá hófst mikil skot-
hrfð, meö myndavélum auð-
vitaö, þvl það er algjörlega
bannaö aö deyöa dýrin I görð-
unum”, sagði Sævar.
„Eftir aö ljónið var frjálst
ferða sinna, þá rákumst viö á
enn skæðara villidýr, hlébarða.
Hann gæddi sér á antilópu
ásamt ungum slnum. Mamman
var ekki beint frýnileg, þar sem
hún reif I sig kjötiö og blóðiö lak
niður kjálkana á henni. Ung-
arnir tóku einnig hraustlega til
matar slns’’
Fílarnir komu á fullri
ferð í átt að bílnum.
„Eftir aö hafa virt hlébarðann
fyrir okkur, var komiö aö fil-
unum. Við ókum fram á stóra
filahjörö. Enn á ný byrjaði skot-
hrlðin og I þetta sinn höfðu
menn ekki við að setja filmur I
myndavélarnar. Ég myndaöi
auðvitaö I grlö og erg og var
mjög ánægöur með hvað filarnir
voru nærri. Þeir voru einnig svo
llflegir, blökuðu eyrunum i
ákafa og fylgdust vel með bfln-
um. Þeir hlunkuðust þetta
áfram, nær og nær bllnum. En
allt I einu skell ég niður I sætið.
Það var allt gefið I botn og blll-
inn rauk áfram.
Skýringin á þessu kom eftir
skamma stund. Þegar fflar
blaka eyrunum, eins og þeir
sem ég var að mynda I grið og
erg og var svo ánægöur með,
eru þeir I árasarhug. Þeir
ætluðu að ráðast á bflinn. En
bllstjórinn kunni á þessu lagið
og hafði bllinn I gangi og I glr til
aö vera við öllu búinn”.
Flóöhestar, krókódilar og
rauðir fílar
„Næst var haldið upp á hæð
við rætur Kilimanjaro, sem er
eitt fallegasta fjall sem ég hef
augum litiö. Það gnæfir yfir
sléttuna meö hvitan kollinn,
sem manni finnst nú ekki passa
alveg aö hafa þarna við mið-
bauginn. , Svo langt sem augaö
eygði voru vinjar og sléttur .
I Amboseli þjóðgarðinum
gistum við I smáhýsum.
Um nóttina vaknaöi Asta við
flugu sem var I miklum árásar-
hug. Stakk hún sér hvaö eftir
annaö niður. Þegar við vorum
laus viö hana hrökk Asta aftur
upp viö að eitthvað skreiö á and-
litinu á henni. Var þarna komið
eitthvert kvikindi, sem við
kunnum ekki að nefna. Ein-
hvern veginn tókst okkur aö
hrista þaö burtu.
Þegar Asta vaknaði um
morguninn, brá henni I brún
þegar hún leit I spegil. Vörin á
henni hafði þá stækkað um
helming, en ekki vitum við
hvort það var flugunni aö
kenna, eða hinu kvikindinu sem
við fyrirhittum um nóttina.
I Masaiaþorpi
Eftir nokkurra daga dvöl i
Amboseli þjóðgaröinum, var
haldið I annan álika, sem nefnist
Tsavo þjóðgarðurinn.
Á leiðinni komu þau Sævar og
Asta við I þorpi innfæddra af
Masaiaþjóöflokki.
Við skulum fá að heyra lýs-
ingu Ástu á heimsókninni.
„Þorpið samanstóð af nokkr-
um moldarkofum. Allt um-
hverfiö var heldur sóðalegt,
húsdýrin gerðu sinar þarfir um
allt og fólkið og gestir sem skoö-
uöu þorpið, þurftu að vaða aur
og leðju upp I ökla.
Fólkiö hópaðist strax I kring
um okkur þegar við stigum úr
bllnum. Þaö reyndi aö troða á
okkur alls konar skrauti t.d.
armböndum og hálsfestum. Þaö
var eins gott að ná þessu strax
af sér aftur, þvl annars þurfi
maöur að taka upp peninga-
budduna og borga.
Flugurnar sem allt var mor-
andi af, fóru I taugarnar á mér.
Ekki vildu karlmenn láta
mynda sig með kvenfólkinu, það
þótti hin mesta niöurlæging. Hjá
þeim tlökast fjölkvæni og kven-
fólkið hefur þarna engan rétt,
þeir hika ekki við að berja þær
eins og haröfisk.
Þegar fólkið var farið að toga
I háriö á mér og strjúka Sævar.,
fannst okkur réttast aö koma
okkur I bllinn aftur. En áður
hafði Sævari tekist aö fá keypt
forlátaspjót af karli.”
Strandhótelið I Mombasa. Asta og Sævar viö sundlaugina.
„I Tsavo þjóðgarðinum er
dýralífið mjög fjölbreytt og
þarna fengum við einnig að sjá
nokkuð sýnishorn af þvi dýralifi
sem þirlfst i vötnum. Flóöhestar
möruðu I hálfu kafi og það var
eins gott að fara varlega þarna I
kring og fara eftir öllum
reglum, til að lenda ekki I gininu
á krókódil.
Jarövegurinn I þjóðgaröinum
er mjög leirkenndur og leirinn
hefur sérkennilegan rauðan lit.
Þvi var þaö að eftir aö fllarnir
höfðu ausið sig leðjunni, voru
þeir sérkennilega rauöir á lit-
inn.
Frá Tsavo-þjóðgarðinum var
haldiö aftur til Nairobi, en nú
var komiö að nýjum áfanga I
A FLÖTTA
IINDAN FÍLUM
í ARASARHUG
Þau voru í miöjum eltingaleik viö Ijón, Kenya-
fararnir sem unnu þessa ævintýraferö í feröa-
getraun Vísis, þegar viöskildum viö þau um síðustu
helgi.
Nú fáum viö að fylgjast með þeim í seinni hluta
ferðarinnar.
Ásta Sigurðardóttir og Sævar Tryggvason héldu
dagbók, sem viö lítum í, en einnig spjöllum við um
það sem fyrir augun bar.
Eltingaleikurinn við Ijónin átti sér staö í Amboseli
þjóðgarðinum, sem er nokkuð fyrir sunnan Nairobi,
en þann stað hafði Kristín Aðalsteinsdóttir hjá út-
sýn ráðlagt þeim að heimsækja, þegar hún að-
stoðaði þau við skipulagningu ævintýraferðarinnar
til Kenya i Afríku.
Hlébarðinn gæddi sér á Kilimanjaro með hvítan
antilópu koll
Selnnl hlutl - Textl: Katrln Pálsdðttlr