Vísir - 28.04.1979, Blaðsíða 19
VISIR Laugardagur 28. aprll 1979
19
KENNARAR SKEMMTA SER
Nýlega héldu tvö stéttarfélög kennara i Reykjavik
sameiginlega árshátið. Stéttarfélag grunnskólakennara i
Reykjavik og Félag gagnfræðaskólakennara i Reykjavik
hafa undanfarin ár sameinast um árshátið á öskudegi, en að
þessu sinni var hátiðin færð fram að páskum.
250—300 manns mættu á árshátíðina og gerðu gestir góðan
róm að „stemningunni” og skemmtuninni, enda eru slikar
skemmtanir kjörið tækifæri til að hitta fólk, sem það annars
hittir sjaldan eða aldrei.
Dagskráin hófst með þvi, að veislustjóri ,örlygur Richter,
setti samkomuna. Þá söng Una Eleksen, kennari við
Laugarnesskólann, einsöng við undirleik Mána Sigurjónsson-
ar. Næst skemmti söngflokkurinn Kjarabót. Vakti flokkurinn
athygli fyrir góða texta og hressilegan flutning. Að lokum
skemmti Jörundur.
Það vakti ánægju og athygli, að engar ræður voru fluttar,
en það mun hafa verið „prinsip-mál” hjá skemmtinefndinni
að komast hjá ræðuhöldum.
Hinrik Bjarnason segir borðfélögum sinum skemmtilega sögu
„Þjónn! Getum við fengið siipuna núna?”
Olafur Guðmundsson kennari og kona hans skemmta sér konunglega undir borð-
haldinu.
„... en hefurðu heyrt um bandarlska Klnverjann sem var aö leita aö uppruna slnum
og skrifaði um þaðbók? Hann kallaði bókina Gulrætur...
Siguröur Simonarson yfirkennari segir Jóhönnu konu sinni og öðrum boröfélögum
brandara.
Söngsveitin Kjarabót skemmti, hressileg að vanda.
Kennarar við Hvassaleitisskóla
Valgerður Jónsdóttir, sem hefur séð um þættina „Gagn og gaman” I sjónvarpinu
auk útvarpsþátta,og Kari Jeppesen.
...og dansinn var stfginn fram eftir nóttu...