Vísir - 28.04.1979, Síða 32
Spásvæöi Veöurstofu islands
eruþysi: j. FaxafWJ. 2.
BreiOafjörður. 3. Vestfirðlr. 4.
Norðurland S.Norðausturland.
6. Austfirðir. 7. Suðaust-
urland. 8. Suðvesturland.
Veðursoá
dagsins
Veðurspáin i gaerkvöldi:
Á Grænlandshafi er 1017
millibara lægð og önnur að
myndast við Tobinhöfða, en
hæðarhryggur liggur yfir
landinu. Heldur hlýnar i nótt
en kólnar aftur á morgun.
Suövesturland til
Breiöafjarðar og
Suðvesturmiö til
Breiöafjarðarmiða: SV kaldi
og dálitið rigning I nótt,
gengur i NA kalda eða
stinningskalda með skúrum
og siðan éljum á morgun.
Vestfirðir og Vestjaröar-
mið: SV kaldi og dálitil
rigning inótt. Genguri NV átt,
stinningskaldi eöa allhvasst,
með éljum á morgun.
Norðurland og noröurmið:
SV gola eða kaldi og dálitil
rigning vestantil i nótt. Geng-
ur i NV stinningskalda með
éljum á miöum og annesjum á
morgun.
Noröausturland og norö-
austurmiö: NV gola og siöan
vestan kaldi og skýjað með
köflum i nótt, og fyrramálið.
NV stinningskaldi og él noröan
til siödegis.
Austfirðir og Austfjarðarmiö,
Suðausturland og Suðaustur-
mið: NV gola og skýjað með
köflum I fyrstu, en austan
kaldi eða stinningskaldi og
' skýjaömeðmorgninum. Sums
staðar dálitil rigning á morg-
un. Léttir til slðdegis með NV
kalda.
Austurdjúp og
Færeyjardjúp: NV 3-5, og
siöan vestan 5-6 Skúrir.
veöríð hér
og har
Aþena skýjað 18. Berlin
léttskýjaö 8Chicagorigning 6,
Feneyjar skýjað 13. Frankfurt
léttskýjaö 10. Gothaap alskýj-
að -1. London skýjað 11. Lux-
emborgskýjað 7. Las Palmas
skýjað 19. Majorka skýjáö 12.
Loki segii*
Þá hefur rfkisstjórnin sam- ■
þykkt að hækka rafmagn um ■
30% heitt vatn um 20-30%, ■
áburð um 53%, sement um ■
23% strætisvagnagjöld um S
25% dagheimiiisgjöldum 7.7% ■
og ieikskólagjöid um 14.3%. A ■
sama tima eru laun ýmissa I
stétta lækkuð um 3% Þetta “
heitir aö berjast fyrir hags- j§
munum alþýðunnar.
Niöurskurður hjá Ríkisútvarpinu á næstunni?
VERULEG STVTTIHG
SJONVARPSDAGSKRAR
Sjónvarpsdagskrá hverrar viku verður stytt
verulega, sumarlokun sjónvarps lengd i fimm
vikur og hlutur endurtekins efnis hjá útvarpinu
verður aukinn stórlega, verði ekki leyst úr fjar-
hagsvanda Rikisútvarpsins.
Þetta kemur meöal annars
fram i ályktun útvarpsráðs sem
samþykkt var á fundi ráðsins i
gær. Þar var fjallaö um fjár-
hagsstöðu Rikisútvarpsins og
bent á að nú væru siðustu forvöð
fyrir stjórnvöld að leiðrétta hlut
Rikisútvarpsins svo komist
verði hjá niðurskurði. Að öðrum
kosti koma meðal annars eftir-
taldar aðgerðir til
framkvæmda.
Sjónvarpsdagskrá hverrar
viku verði stytt verulega.
Niðurskuröinum veröi jafnaö á
erlent og innlent efni, skemmti-
þætti, fræðsluefni, iþróttaefni og
fréttatengda þætti. Leitast
verður við að draga ekki úr
flutningi barnaefnis.
Sumarlokunin veröur lengc^
eins og áöur segir og takmörkuö
gerð islenskra leikrita i
sjónvarpi. Dýrir þættir i útvarpi
verði felldir niður og dregiö
verulega úr leikritafiutningi. t
innlendri dagskrárgerð sitii i
fyrirrúmi gerð ódýrs efnis en
öllum dýrari verkefnum frestaö
svo og öllum áformum um
næturútvarp og aðra dagskrá.
t ályktun útvarpsráðs er bent
á að fyrir 10 árum kostaöi árs-
áskrift að dagblaði 1845 krónur
en ársafnot af útvarpi og
3.300 krónur. Nú kosti dagblað
36þúsund en útvarp og sjónvarp
36.200. Ef sama hlutfall hefði átt
að haldast hefðu afnotagjöld af
rikisfjölmiðlunum báöum átt að
vera 64 þúsund —SG.
Það fór vel um sóldýrkendur i Sundlaug Vesturbæjar I gær, þegar Ijós-
myndara Visis bar það að .
Visismynd:JA
Bragi fer fram
á móti Einari
Búast má viö fjörugum kosn-
ingum á aöalfundi Skáksambands
tslandssem fram fer I dag. Bragi
- Halldórsson kennari og skákmað-
ur hefur ákveðið að bjóða sig
fram sem forseti Skáksambands-
ins á móti Einari S. Einarssyni og
geta úrslit orðið tvisýn.
,,Það hefur verið afráðið að ég
bjóði mig fram og þvi ræður meö-
al annars óánægja skákmanna
með það stirða samband sem er
milli FIDE og Skáksambands-
ins,” sagði Bragi Halldórsson i
samtali við Visi. Hann sagðist
njóta stuönings skákmanna úr
ýmsum félögum, meöal annars
Taflfélagi Reykjavikur og Mjölni
auk félaga i Keflavik og af Suður-
landi. Sagði Bragi það skoðun
stuöningsmanna sinna að þeir
Einar myndu verða mjög jafnir i
atkvæðagreiðslu á aðalfúndinum.
,,Ég hef ekki heyrt um þetta 1
framboð Braga fyrr, en hef ekk-
ert nema gott um það að segja
ogfagna þvi að ksoning fari fram
á fundinum,” sagöi Einar S.
Einarsson forseti Skáksam-
bandsins er Visir leitaöi álits hans
á framboði Braga Halldórssonar.
Aðalfundurinn hefst klukkan
13:30 i dag i Veitingahúsinu
Glæsibæ, en ekki I kaffiteriu húss-
ins eins ogáður var ákveðið. Rétt
til fundarsetu hafa um-80 fulltrú-
ar frá 25 skákfélögum og svæða-
samböndum viðs vegar aö af
landinu.
— SG
UNDANÞAGA veitt
„Það er engin harka i þessu
ennþá hjá okkur,” sagði Ingólfur
Stefánsson framkvæmdastjóri
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins við VIsi i morgun.
Aðeins eitt skip hefur stöðvast
vegna verkfallsins til þessa en
það er Akraborgin. „Við höfum
fylgt þeirri reglu að leyfa losun
skipa”, sagöi Ingólfur, „en lestun
þeirra er óheimil.”
Yfirleitt hafa þetta verið skip
með áburð og fóðurvörur eða skip
með vörur á þá staði sem verst
urðu úti vegna hafiss.
Þó höfum viö einnig veitt
undanþágur fyrir flutning á vöru
til Kisiliðjunnar.”
Ingólfur sagði að alls hefðu um
tiu skip fengiö undanþágur til los-.
unar á farmi.
—KS
Kröfur yfirmanna:
Hæstu laun hækkl um
rúrna miiijðn á mán.
- samkvæmt útreikningum vinnuveitenda
Hæstu laun skipstjóra á
farskipum eru um 692 þúsund
krónur á mánuði yfirmanna um
1.723 þúsund á mánuði að þvi er
kemur fram I iaunatöflum sem
Vinnuveitendasamband islands
hefur sent frá sér.
Eru þá fridagar reiknaðir til
launa en grunnlaun skipstjórans
eru um 480 þúsund á mánuði en
yrðu um 1.006 þúsund væri gengiö
að kröfum þeirra.
Fridagar eru reiknaöir þannig
að fyrir hvern laugar-, sunnu- og
tyilidag utan heimahafnar eöa
unnin i heimahöfn ávinnur hver
yfirmaður sér einn frídag.
Fridagar þessir teljast vera
114,48 á ári eða að meöaltali 9,54 á
mánuöi.
Samkvæmt þessu hefur yfirvél-
stjórisem fær laun eftir 3ja flokki
um 499 þúsund i grunnlaun, um
202þúsund krónur reiknaðar fyrir
fridaga eða um 701 þúsund krónur
á mánuði en samkvæmt kröfum
yrðu launin með fridögum um
1.413 þúsund krónur.
Laun 1. stýrimanns á 3ja vakta
skipi i hæsta flokki og taxta eru
um 320 þúsund á mánuði
fyrirvinna að meöaltali er um 177
þúsund á mánuði eða samtals um
497 þúsund krónur. Með fridögum
reiknast launin 638 þúsund á
mánuöi.
Ef fariö yrði að kröfu yfir-
manna segir I frétt Vinnuveit-
endasambandsins yröu laun
stýrimanna á mánuöi eða útlagö-
ur launakostnaður reiknaður með
fridögum um 1.226 þúsund krónur
á mánuði.
—KS