Vísir - 27.04.1979, Síða 14

Vísir - 27.04.1979, Síða 14
VISIR Föstudagur 27. april 1979 sandkoin Umsjón: Edda i Andrésdóttir Óli Tynes skrifar Fréttirnar Góðu íréttirnar eru þær að það verður nóg til af bensfni næsta árið. Slæmu fréttirnar eru þær að það hefur enginn efni á aö kaupa þaö. Rétti tlminn Snjóa hefur nú leyst viðast hvar og veður orðið nokkuð þokkalegt, enda komið sumar. Það kom þvi engum á óvart að sjónvarpiö skyldi á mið- vikudagskvöid taka til sýningar mjög svo tfmabæra sænska fræðslumynd: „Varúð á vetrarferðum”. Þetta var gagnmerk mynd um varúðarráðstafanir á is og fjöllum, á vetrum og vori. Menn biða nú með eftirvæntingu eftir seinni helmingi fræðslunnar: „Hvernig forðast skal alvar- legan sólbruna”. Hún verður væntanlega tek- in tii sýningar i desember. Dularfulli framkvæmdastjór- inn. Hvaða Svelnn? VILDI ENGA PLATVÖÐVA Langi þig til að lita út eins og Superman, þá þarftu að vinna að þvi. Christopher Reeve, sá sem leikur Superman f myndinni sem nú er verið að sýna i Reykjavik, gerði það heldur betur eins og meðfylgjandi myndir sýna. Þær voru teknar eftir aö Reeve hafði fengið hlutverkiö, og þá tók við þjálfun og meiri þjálfun. Fram- leiðendur myndarinnar höfðu I upphafi þær hugmyndir að koma mætti fyrir platvöðvum á leikaranum, en Reeve tók slikt ekki f mál. Kaus aö vinna, þar til „tilskildum vöðvum” var náð. Samkvæmt nýjustu fregnum mun lifið ekki vera tómur dans á rósum hjá þeim Caroline og Junot. VILJA BINDA ENDA Á HJðNA- BAND CAROLINE OG JUNOT Grace prinsessa og Rainier fursti eru sögð hin verstu yfir hegðan tengdasonar sfns, Philippe Junot, og hvetja nú Caroline dóttur sina til að binda enda á átta mánaöa hjónaband þeirra. Náinn vinur Caroline segir furstahjónin nú naga sig i handa- bökin yfir að hafa samþykkt ráðahaginn. „En þó að Caroline virðist gera sér grein fyrir þvi að hún gerði mistök, er hún allt of stolt til að viðurkenna það fyrir öðrum. Hún reynir að þrauka, og enn sem komið er gerir allt tal um skilnað hana reiða.” Philippe Junot sem styrrinn stendur um, gerði konu sina og tengdaforeldrareið.þegar hann á þriggja vikna viðskiptaferðalagi um Norður-Ameriku tók sig til og flaug til New York og eyddi þar tima sinum með fyrrverandi vin- konu sinni, Greifynjunni Agnetu von Furstenberg. Junot fékk að kenna á þvi þegar hann sneri heim aftur, bæði hjá konu sinni og furstahjónunum, og Grace gerði honum skiljanlegt að framkoma sem þessi yrði ekki fyrirgefin i framtíðinni. Dagblaðið er stundum að reyna að bera þaö á Visi að hann sé einhver þjónustutfk Sjálfstæðisflokksins, sem er dálitið mikil fjarstæða. Ég hef sjálfur heyrt ágæta sjálf- stæðismenn kvarta yfir því livað Visir sé afskaplega mik- ið vinstri blað. Og kommarnir kvarta undan þvi hvað við sé- um vont hægri blað. En Dagblaöinu þykir gaman að nudda og það þarf ekki endilega að vera satt sem þaö segir. Tilraunir þess til að gefa Visi bláa stimpilinn koma fram I ótrúlegustu smáatrið- um. Sem dæmi má nefna að á miövikudag var frétt I DB um hverjir hefðu veriö kjörnir i fúlltrúaráö Sjálfstæðisflokks- ins. Meðal þeirra er Páll Stefánsson, sölustjóri Visis. i Dagblaðinu vai þess auð- vitað getið skýrt og skilmerki- legahvar hann ynni. Þetta er allt i' finu lagi, þvíviðskömm- umst okkar ekkert -fyrir Palla. En neðar á þessum lista var svo einhver Sveinn R. Eyjólfsson framkvæmda- stjóri. Þess var ekki getið hvort hann væri fram- kvæmdastjóri Sanasól á Akur- eyri eða timburverslunar i Trékyllisvlk. Hvað þá að það væri viöur- kennt að hann er fram- kvæmdastjóri Iíagblaösins og einn aðaleigandi. Nú er það spurningin hvor það er sem þeir á Dagblaðinu skammast sin fyrir: Sveinn eöa Sjálf- stæðisflokkurinn? Bandittar? Tveir ráðherrar hafa lýst þvi yfir að \eiktali y firmanna á farskipum se oþolandi, þaö eigi ekki að líða að hátekju- menn séu með slika frekju. Launalistar s\na þó að far- skipamenn eru nokkuð langt frá þvi að vera millar. Hún er að verða dálitið leiðmleg þessi tilhneiging rikisstjórnarinnar tU að úthrópa sem banditta alla þá sem hafa sæmilegar tekjur. —ÓT. BLAÐBURÐAR- BÖRN ÓSKAST: RAUÐÁRHOLT 1 RANARGATA KÓP AUST 1-A Háteigsvegur Bárugata Álfhólsvegur Garðarstræti Digranesvegur. Ránargata. Rauðarárstígur Þverholt Upplýsingar í síma 86611 HJÚKRUNARFRÆÐING OG SJÚKRALIÐA vantar á sjúkrastöð S.Á.A. Silungapolli. Upp- lýsingar á skrifstofu S.Á.Á. Lágmúla 9 í síma 82399. Urval af bílaáklæðum (coverum) Sendum i póstkrofu Altikabúðin Hverfisgotu 72. S 22677 Q Fró Mýrarhúsoskóla Seltjarnarnesi Innritun nýrra nemenda ! allar deildir skólans, fer fram mánudaginn 30. april n.k. kl. 9.00-15.00 simi 17585. Skólastjóri. MUNIÐ Bótnsýninguna í Sýnlngahöllinni Bíldshöfða, dagana 28. apríl til 6. maí

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.