Vísir - 26.05.1979, Side 3
VÍSIR
Laugardagur 26. mal 1979
3
Hvert tré veröur aö vera i þurrki i þrjú ár, áöur en Páll getur fariö
aö fást viö þaö. Þegar viö heimsóttum hann var hann kominn nokk-
uö áleiöis meö aö skafa tré, en verkiö tekur um þaö bil þrjá mánuöi.
Páll hreinsar upp og þurrkar ýmis sjávardýr. Hér er hann meö krabba sem hann þurfti aö taka allan i
sundur til aö geta hreinsaö. Siöan limdi hann dýriö saman aftur.
Þrátt fyrir annir gefur Páll sér alltaf tima til aö Hta I bók. Hann á ágætis bókasafn. ,,Ég halla mér allt-
af eftir matinn á laugardögum og sunnudögum hér I bókaherberginu og lit þá I gamla kunningja eöa
eitthvaö nýtt sem mér hefur áskotnast".
Visismyndir: GVA.
//Skýst upp í kaffi".
„Hér dunda ég mér margar
stundir. Þaö er þægilegt aö
skjótast upp í kaffi og spjalla.
Ég hef útvarpiö hjá mér og hef
þaö alltaf opið. Siöan ég fór aö
hlusta á alla mögulega dag-
skrárliöi þá hef ég lært aö meta
ýmislegt sem ég kunni ekki aö
meta áöur fyrr. Sem dæmi vil ég
taka klassiska tónlist. Ég hef
ákaflega gaman af henni”.
„Konan min segir nú stundum
aö þetta tómstundagaman mitt
sé eins og ákvæöisvinna. Hún
hefur kannski dálitiö til sins
mál, þvi þegar maöur er kom-
inn eitthvaö á veg meö verkiö er
erfitt aö slita sig lausan frá
þvi”.
Steinasafn frá öllum
landshornum.
„Ég hef mjög gaman af þvi aö
feröast um landiö.hef gert þaö á
hverju sumri undanfarin ár. A
þessum feröum hef ég rekist á
marga fallega steina, sem ég
tek meö mér”, sagöi Páll þegar
viö litum þar inn sem hann
geymir steinasafniö sitt, ásamt
mörgum forvitnilegum plöntum
af sjávarbotnúog krabbadýrum.
„Fyrst I staö tók ég aöeins
meö mér einstaka stein, en þaö
kemur oft fyrir aö ég er kominn
meö fullan kassa nú oröiö. Þá er
ekkert um annaö aö ræöa en aö
slá bandi utan um kassann og
setja hann á flutningabfl þar
sem ég er staddur. Ekki er hægt
aö hafa þessi þyngsli meö i
farangrinum”.
Allir eiga steinarnir sinn staö
i hillum. Þeir eru vandlega
merktir eftir bergtegundum og
hvar þeir fundust. A hillunum
hjá Páli eru steinar frá öllum
landshornum.
Skepnur af hafsbotni.
I félagsskap steinanna eru
ýmis torkennileg dýr sem eiga
heimkynni sin á sjávarbotni.
„Sjómennirnir koma meö
ýmislegt sem þeir fá á dekkiö.
Þeir vita aö ég hef gaman af þvi
aö hreinsa þetta upp og
þurrka”.
Tveir stórir krabbar voru á
boröi ásamt ýmsu ööru skringi-
legu af sjávarbotni. Þá haföi
Páll hreinsaö. Til þess þurfti
hann aö taka þá I sundur til aö«
ná innan úr þeim. Siöan limdi
hann krabbana saman aftur, en
þaö er mikiö nákvæmnisverk.
Ýmis önnur sjávardýr fór
hann eins meö og lét sig ekki
muna um aö taka þau sundur I
ótal stykki og setja saman aftur.
Stund fyrir bækurnar.
Þrátt fyrir aö Páll sé önnum
kafinn viö aö skera i tré og mik-
ill timi fari i steinasafniö, þá
gefur hann sér einnig stund til
aö lita i bók. Hann á mikiö bóka-
safn sem hefur aö geyma ýmsar
gersemar.
„Ég hef þaö fyrir siö aö halla
mér eftir matinn á laugardög-
um og sunnudögum og þá ævin-
lega hér i bókaherberginu. Þá
litég I gamla kunningja eöa ein-
hverja nýja bók sem ég hef
eignast. Ég hef gaman af þvi aö
kikja i bækur um listir, en ann-
ars les ég allt sem ég næ i”.
„Þaö er nægur tlmi til aö
sinna áhugamálum sinum i
svona plássi, þaö er ekki svo
margt sem truflar. Ef áhuginn
er nægur, þá hefur maöur alltaf
tima”.
—KP.