Vísir - 26.05.1979, Blaðsíða 20

Vísir - 26.05.1979, Blaðsíða 20
20 VÍSIR Laugardagur 26. mal 1979 hœ krcrkkar! Jóhanna Rútsdóttir. Vlsismynd: JA. heidlóunnar Við fljúgum saman, ég og karlinn minn, og erum að leita okkur að góðum staðtil að búa á. Við kom- um langt að til Islands og ætlum nú að setjast hér að og vera fram á haust. Eftir smástund höfum við fundið tilvalinn stað. Það er á milli tveggja þúfna. Það verður örugg- lega gott að búa til hreið- ur hér. Við höfum verið mjög heppin, því að í næstu þúf u á móti er dálítil hola og þar eru nágrannarnir. Það er músafjölskylda. Pabbinn, mamman og fjórir nýfæddir ungar. Þau eru mjög ham- ingjusöm. Það mun verða heldur lengra þangað til okkar börn komast í heiminn en við erum strax farin að búa okkur undir það að taka á móti þeim. Þau verða velkom- in í heiminn. Jú, lífið er dásamlegt. En hvað hef ur nú skeð? Dag nokkurn er eins og skuggi skelli hér yf ir. Það verður vont að anda og lyktin hræðileg. Við höf- um vappað um staðinn okkar, en flýtum okkur nú upp í loftið. Það kemur reykkóf og mér finnst ég vera að kafna. Karlinn minn er sterkari í vængj- unum en ég og er því á undan mér. Það er svo er- fitt að bera vængina og stöku sinnum dett ég niður smáhæð. O, ég er svo þreytt ég kemst örugglega aldrei. Karlinn mín snýr sér við aftur og aftur og kallartil mín, að ég verði að herða mig áfram. Ég Ift niður. Það er Ijótt að sjá. Allar fallegu þúfurnar eru svartar og eldurinn breið- ir sig yfir meira og meira. Loksins er ég komin í betra loft. Karlinn minn . hóstar og hóstar og ég get ekkert sagt þvi óloftið hefur fyllt hálsinn. Við erum að verða búin að jafna okkur, þegar ég minnist músaf jölskyld- unnar. Hvaðætli hafi orð- ið um hana? Við flýtum okkur af stað til baka. Nú eru komnir menn í svört- um og gulum kápum, sem sprauta yfir allt. Þarna eru líka 3 menn í svörtum jakkafötum með alls kon- ar glingri utan á. Þeir eru að tala við hóp af krökk- um. Viðf lýtumokkur nær til að heyra hvað þau segja. Krakkarnir segja að það sé gaman að brenna sinu og þeir ætl- uðu að brenna smávegis en eldurinn varð meiri en svo að þeir gætu haft stjórn á honum. Síðan fara börnin í burtu, svörtu og röndóttu karlarnir líka. Viða rýkur upp á milli þúfnanna og jörðin er svo heit, að við getum ekki vappað eftir henni. Við leitum og leitum að vinum okkar en sjáum ekkert. Það líður langur tími og þá finnum við loksins þúfuna, þar sem heimili okkar var. Það er allt í rúst. Ég fer að há- gráta og karlinn minn er að bresta í grát líka. Við huggum hvort annað og þökkum dýraguði fyrir, að við vorum ekki komin með ófleyga unga í hreiðrið okkar. Brátt fundum við leifar af vin- um okkar, músunum. All- ar litlu mýslurnar dánar. Jörðin hefur hitnað svo mikið að þau höfðu hlaupið út úr holunni sinni og út í eldinn. Ég skil ekk- ert í mannabörnunum, hvernig þeim getur dottið svona hræðilegt í hug. Það deyja ábyggilega fleiri dýr en músafjöl- skyldan í svona bruna. Ég fer að þvo mér um gogginn, því að ég er orðin svo skítug. Karlinn minn kemur fljúgandi til mín. Hann vill að við byrjum strax að leita að nýjum stað. Við verðum að byrja allt upp á nýtt. Allt er það brunanum að kenna. Jóhanna Rútsdóttir, 8. J.J. Langholtsskóla. Börn í Lang- holts' skóía skrifa Umsjón: Anna Brynjúlfsdóttir Hópur af krökkum I 7.P.B. Visismynd: Anna. Fjórar kátar vinkonur I 7.P.B Visismynd: Anna SINUBRUNI Addi og Konni voru að leika sér niðri í Laugar- dal, og þótt þeir væru orðnir 11 og 13 ára, voru þeir sífellt að fikta við að kveikja í sinu hingað og þangað um Laugardal- inn. Eitt sinn kveiktu þeir i, þegar hvasst var í veðri og þegar þeir ætluðu að slökkva þá réðu þeir ekki við neitt, eldurinn breidd- ist út og reykurinn leitaði inn um gluggana í húsun- um í kring. Strákarnir úrðu hræddir og földu sig. hjúkra honum. Hann setti hann í litla körf u inn i eld- húsi. Mamma gaf honum fuglamat en litli fuglinn hafði ekki lyst á neinu. Morguninn eftir var fugl- inn dáinn. Þegar Maggi sagði Adda og Konna frá þessu, urðu þeir hryggir og hétu þvi að kveikja ekki aftur í sinu. En þið krakkar, sem eruð alltaf að kveikja í sinu. Hvenær ætlið þið að hætta? Steingrímur Sævar Ólafsson, 7. P.B. Lang- holtsskóla. Lögreglan varð að slökkva eldinn. Seinna um daginn labbaði Maggi sem er 12 ára niður í dal- inn. Þar voru stór svæði kolsvört eftir brunann. Þar sem litla húsið hans og leikfélaga hans hafði staðið var nú ekkert nema svört hrúga. Maggi horfði sorgbitinn á þetta. Þá heyrði hann skyndi- lega eitthvert þrusk skammt frá sér. Hann svipaðist um og kom þá auga á lítinn fugl með sviðna vængina sína. Magga fannst sársauki í tístínu hans. Hann tók fuglinn varlega upp og fór með hann heim. En hvað hann langaði til að Steingrlmur ólafsson. Visismynd: Anna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.