Vísir - 26.05.1979, Blaðsíða 8
riðiii Laugardagur 26. mal 1979
8
lltgefandi: Reykjaprcnt h/f
Framkvæmdastjóri: Davift Guðmundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Hðrftur Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri er-
iendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaftamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Halldór Reynlsson, Jónlna
Michaelsdóttlr, Jórunn Andreasdóttlr, Katrln Pálsdóttlr, Kjartan Stefánsson, ðll
Tynes, Slgurður Slgurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson, Por-
valdur Frlðriksson. Iþróttir: Gylf I Krlstjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmynd-
ir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Otlit og hftnnun: Jón Öskar Haf-
stelnsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sttlustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og skrifstofur:
Slftumúla 8. Simar 84611 og 82260.
Afgreiftsla: Stakkholti 2-4 sími 86611.
Ritstjórn: Slðumúla 14 slmi 86611 7 Ifnur.
Askrift er kr. 3000 t mánuði
innanlands. Verð (
lausasölu kr. 150 eintakið.
Prentun Blaðaprent h/f
LeiKreglunum parl að breyla
Bæöi fylkingar launþega og vinnuveitenda eru klofnar. Þaö skapar sérstakan vanda.
Og þaö er eölilegt, aö rikisvaldiö setji þeim nýjar leikreglur.
Alþýðusamband Islands neitar
að setjast niður með Farmanna-
og fiskimannasambandinu til
sameiginlegra viðræðna við
vinnuveitendur. Og Vinnumála-
samband samvinnufélaganna
haf nar samstöðu með Vinnuveit-
endasambandi íslands gagnvart
launþegafélögunum.
Bæði fylkingar launþega og
vinnuveitenda eru þannig
klofnar í þeim vinnudeilum, sem
nú eru hafnar. I þessu kemur
fram eitt af stóru vandamál-
unum, sem við er að glíma við
gerð kjarasamninga hér á landi:
innbyrðis klofningur samtaka
launþega og vinnuveitenda, sem
veldur því, að nær ómögulegt er
að komast að heildarsamkomu-
lagi á vinnumarkaðnum.
Stundum á þessi klofningur
rætur að rekja til hagsmuna-
ágreinings, eins og nú virðist
vera uppi á milli ASI og FFSI. Al-
þýðusambandið krefst meiri
launajöfnunar, en Farmanna-
sambandið ræðst fyrst og f remst
út í verkfall sitt til þess að brjóta
niður þá launajöfnunarstefnu,
sem rekin hefur verið undan-
farin ár.
Um hinar raunverulegu ástæð-
ur til sundurlyndisins milli
Vinnuveitendasambandsins og
Vinnumálasambands samvinnu-
félaganna er erfiðara að segja.
Vinnumálasambandið ber fyrir
sig skort á samráði milli hinna
tveggja vinnuveitendasamtaka,
en Vinnuveitendasambandið
hafnar þeirri ástæðu sem hrein-
um fyrirslætti. Aðrir segja, að
Vinnumálasambandið sé komið í
einhverja ríkisstjórnarpólitík,
sem þó er mjög erf itt að sjá ein-
hverja glóru í, því að sjálfsagt
getur ekkert leitt meiri hörm-
ungar yfir núverandi ríkisstjórn
heldur en kjarasamningar, sem
ekki fá með nokkru móti staðist.
Hverjar sem ástæðurnar eru
til hins innbyrðis klofnings sam-
taka vinnuveitenda og launþega,
er vandinn, sem af klofningi
þeirra stafar, hinn sami:
heildarsamningar um kjaramál-
in verða nær ómögulegir. Sú
staða getur komið upp, að t.d.
Vinnumálasambandið byrji á því
að gera samninga við sína við-
semjendur, sem auðvitað yrðu
stefnumarkandi fyrir síðari
samninga þó sennilega aðeins
sem lágmarksviðmiðun. Slík
vinnubrögð eru síður en svo
óþekkt fyrirbrigði.
Sú staða getur einnig komið
upp, og er einnig alþekkt, að t.d.
farmenn semji fyrst og síðan
komi aðrar stéttir á eftir, sem
knýi fram meiri hækkanir sér til
handa heldur en þeir fá, sem
fyrstir eru í samningaröðinni.
Þessi leikur hefur verið leikinn í
öllum kjarasamningum undan-
farin ár.
Á þeim vanda, sem af þessum
sökum skapast, er engin lausn
önnur en sú, að leikreglum við
gerð kjarasamninga verði breytt
á þá leið, að allar stéttir semji á
sama tíma og til jafnlangs tíma.
Slíkri breytingu verður trúlega
ekki komið á nema með löggjöf.
Og þetta er eðlilegt löggjafar-
atriði. Alþingi og ríkisstjórn væri
nær að snúa sér að því að sníða
augljósustu vankantana af
okkar núgildandi vinnumálalög-
gjöf og setja vinnuveitendum og
launþegum skynsamlegar leik-
reglur heldur en sífellt að vera
að krukka í einstaka kjara-
samninga, vísitöluákvæði
o.s.frv., sem aldrei leysir nein
mál, eins og roynslan sýnir.Nú er
það t.d. strax orðið misklíðarefni
milli ríkisst jórnarf lokkanna,
hvort eða hvernig eigi að breyta
vísitöluákvæðum hinna sjö vikna
gömlu Olafslaga um efnahags-
málin. Þetta er ósköp eðlilegt,
því að Alþingi og ríkisstjórn geta
ekki af viti ákveðið kaup og kjör,
það verða vinnuveitendur og
launþegar sjálfir að gera. Al-
þingi getur hins vegar sett
vinnuveitendum og launþegum
starfsreglur, sem fara beri eftir
við þessar ákvarðanir. Á slíkum
afskiptum ríkisvaldsins er nú
full þörf.
krákustígur
Sæmundur
Guövinsson
skrifar.
Vid eldhúsbordid
— Hvað er eiginlega þessi
veröbólga sem alltaf er veriö aö
tala um?
Konan var eitthvaö aö sulla I
eldhúsvaskinum á meöan ég var
aö flysja kartöflur fyrir matinn
og hlustaöi um leið á frettirnar I
útvarpinu. Þá þurfti hún endi-
lega aö slengja fram þessari
spurningu.
Ég varö strax var um mig.
Kannski hefur einhver logið I
hana aö allir græddu á verð-
bólgunni og hún haldi aö viö sé-
um oröin rik. Eins vist aö hún
vilji aö viö förum aö kaupa ein-
hverja vitleysuna.
— Veröbólgan gerir hina riku
rikari og hina fátæku fátækari.
Viö erum I seinni hópnum, sagöi
ég til aö hafa vaöiö fyrir neöan
mig.
Hún þurrkaöi sér *um
hendurnar og rjálaöi eitthvaö
viö sviöin en spuröi svo enn: —
En af hverju er þessi verðbólga
sem allir segjast vera aö berjast
gegn.
Þar fór i verra. Þessi langi
vetur hlýtur aö hafa fariö eitt-
hvaö illa I hana. Hún er ekki vön
aö ræöa efnahagsmál i víöara
samhengi en snertir hinn
þrönga hring heimilisútgjalda,
sem eru þó æöi oft til umræöu.
Gat þaö veriö aö konan væri far-
in aö hugsa um efnahagsvanda
þjóðarinnar lika, jafnvel komin
meö veröbólginn hugsunarhátt,
eins og þeir segja?
Ég skal skýra þetta út meö af-
ar einföldu dæmi! Rafveitan
ræöst i framkvæmdir, byggir
eitthvert mannvirki og kaupir
nýjar vélar. Til þess aö geta
borgaö þetta er rafmagnsveröiö
hækkaö. Þá þurfa önnur fyrir-
tæki aö hækka vöruverö til aö
geta borgaö hærri rafmagns-
reikninga og fólk fær lika
kauphækkun til að geta borgaö
vörurnar og svo auövitaö raf-
magnsreikningana. Þégar
kaupið hækkar þá hækkar þaö
auövitaö lika hjá fólkinu sem
vinnur hjá rafveitunni. Til þess
aö geta borgað hærra kaup
hækkar rafmagnsveitan raf-
magnsveröið, þá hækka fyrir-
tækin vörurnar, fólkið fær
kauphækkun og þá hækkar raf-
magnið aftur. Svona gengur
þetta koll af kolli.
Mér fannst þessi skýring bara
góö og sagöi konunni aö koma
meö sviöin enda væri drengur-
inn oröinn svangur og farinn aö
ókyrrast. En hún var enn meö
veröbólguna á heilanum.
— Ef þetta er svona eins og
þú segir, af hverju reka þeir
bara ekki rafmagnsstjórann
fyrir aö koma þessu öllu á staö?
spuröi hún sakleysislega og raö-
aöi sviöahausunum á fat.
Þetta var fáránlegt. Auövitaö
dettur engum I hug aö kenna
honum Aöalsteini rafmagns-
stjóra um veröbólguna. Raunar
hef ég ekki heyrt aö neinn sét-
stakur maöur eigi sök á verö-
bólgunni. Var hún kannski aö
láta aö þvl liggja aö ég vissi ekki
um orsakir veröbólgunnar?
Ekki er aö spyrja aö ósvifninni.
En ég ætlaöi ekki aö láta etja
mér út I frekari ræöuhöld um
bólguna.
— Eins og þú hefur séö i
auglýsingu frá Vinnuveitenda-
sambandinu þá er veröbólgan
lika i eldhúsinu. Sviöin sem þú
vonandi kemur loksins meö eru
veröbólgin. Þetta svinafóöur
sem kallast kartöflur er verö-
bólgiö og þaö er veröbólgulykt
af heita vatninu. A meöan
margir græöa á veröbólgunni og
enginn þorir aö gera þaö sem
þarf til aö ráöast gegn henni þá
verður veröbólga, sagöi ég fast-
mæltur.
Konan lagöi nú fatiö meö
sviöunum á boröið og drengur-
inn staröi stóreygöur á mig þeg-
ar ég tók einn kjammann og
byrjaöi að skera. Ég stakk upp I
mig tungubita og fann aö þetta
voru ágætis sviö. En konan var
ekki aö baki dottin. Um leiö og
hún settist spuröi hún af hverju
viö heföum þing og rikisstjórn
fyrst þeir menn sem þar sætu
geröu ekkert I málunum.
Drengurinn forðaöi mér frá
þvi að gefa svar viö þessu. Hann
haföi horft þegjandi á mig hand-
fjatla sviðin og tókst loks aö
koma hugsun sinni i orö.
— Pabbi borra hausa, sagði
hann ásakandi.
Ég var enn með hugann viö
veröbólgurugliö I konunni, skar
bita af tungu og rétti til hans.
— Hana, éttu þetta. Um leið
jarmaöi ég Htilsháttar I ein-
hverju hugsunarleysi. Þaö var
nóg til þess aö konan gleymdi
veröbólgunni.
— Hvaö er að heyra til þin
maður. Hvers vegna læturöu
svona viö barniö. Skerö tunguna
úr hausnum og otar henni jarm-
andi aö blessuöum drengnum
sem er svo hrifinn af litlu
lömbunum. Séröu ekki aö hann
er alveg að fara aö gráta?
Mér sýndist nú drengurinn
sæmilega ánægður þar sem
hann tuggöi i griö og erg. Hins
vegar varö honum tlölitið á
brostiö auga sviöahaussins sem
blasti viö honum svo ég sneri
kjammanum viö.
Veröbólgan var ekki rædd
frekar. Ég efast llka um að á
mörgum heimilum sé hún til
umræöu á svona breiöum
grundvelli. Hvaö þá verðbóta-
vlsitala, viðskiptakjaravlsitala
ellegar vlsitöluþakálaun. Eina
mælistikan sem almenningur
hefur á veröbólguna, er sú aö
allar tölur verða slfellt hærri og
hærri, séfstaklega á vörum og
þjónustu, og menn spyrja I ráð-
leysi hvar þetta endi.
Og viö höldum áfram aö
spyrja.
—SG.