Vísir - 26.05.1979, Page 16
„Leitum í eitthvert skuggaskjól og grátum treg-
ann úr okkar hjörtum". Hann kastar gjarnan fram
þessari setningu. Til dæmis niörí kjallara í lönó
þegar eitthvaö bjátar á , — svo sem slæm krítik í
einhverju blaðanna eftir sýningu. Hann hefur dá-
læti á svona „Helga Hálfdanarlegum setningum"
eins og hann segir, og þessi er úr Macbeth. Eina
setningin sem hann man orðrétt úr hlutverki.
Vilji einhver rif ja upp leikferil Hjalta Rögnvalds-
sonar, þá borgar sig ekki aö fá hann í liö meö sér.
Hann vísar bara á skrifstofuna i lönó. Ekki þaö að
hann sé montrass eins og hann oröaöi þaö sjálfur.
Hann leggur þetta einfaldlega ekkert rækilega á
minnið.
„ÉG VIL FÁ A.
VERA HJALTI
efast satt að segja um aö ég geröi
þetta aftur. Hins vegar er ég
stoltur af aö hafa hellt mér út i
þetta, og þá f ljósi þeirrar sann-
færingar sem réttlætti þetta — aö
þaö væri óhjákvæmilegt.
degi'
rÞungt hugsi upp úr há-
— Er erfitt aö ná sér út úr hlut-
verki eftir sýningu?
„Nei, en ég er oröinn ansi þungt
hugsi upp úr hádegi þegar sýning
er um kvöldiö. Þá vil ég helst ekki
þurfa aö fara til bankastjóra eöa
kaupa I matinn. Ekki taka aö mér
neitt sem veldur heilabrotum.”
— Einhvern tíma oröiö fyrir
slysi 1 sýningu?
mér skilst aö þetta sé fyrir hendi
hjá mörgum.
„Mér er sagt aö þeir sem eiga
óskahiutverk fái iöulega svona
köst. En mér var eitt sinn ráölagt
af gömlum leikara aö óskahlut-
verkiö skyldi vera þaö-hlutverk
sem maöur er fást viö. Ég held
þaö sé ekki rétt aö eiga óskahlut-
verk, og þurfa svo aö horfa á eftir
óskinni sinni rætast hjá einhverj-
um öörum.”
„Hvergi eins gott að vera
leikari og á Islandi"
— Sumir segja aö svall sé mik-
iö hjá leikurum?
„Ég verö mjög litiö var viö
svall. Enda held ég þaö sé sjálf-
vism
Laugardagur 26. maf 1979
Laugardagur 26. maf 1979 VjtSJOFt
„Bláminn er aö bætast í
þetta"
„Ég þótti óþolandi kommi áöur
en ég flutti inn i þetta hús hérna.
En nú er mér sagt aö bláminn sé
aö bætast inn í þetta”. „Húsiö
hérna” er viö Brekkugötuna i
Hafnarfiröi, þar sem hann býr
ásamt fjölskyldu sinni. I gömlu
hverfi meö trjágarö fyrir utan og
fullt af bókum inni.
„Þetta kemur heim og saman
viö marga sem ég kannast viö”,
heldur hann áfram. „Fólk sem er
róttækt á meöan þaö stundar
nám, en er svo áöur en varir —
eftir aö námi lýkur, — komiö meö
Heimdallarkort upp á vasann.
SkoÖanir manna fara saman viö
þá aöstööu sem þeir eru I hverju
sinni. Ég veit ekkert ómanllegra
en fólk sem þykist miklir sósial-
istar, fær svo i kauphækkun þaö
sem svarar laununum mfnum, en
heldur áfram aö spila öreiga úti I
bæ. Þaö er sitthvaö skoöun eöa
hegöun. Trú þfn sést á lífi þlnu.
Ég held aö þaö borgi sig ekki aö
segja: ^ig er sósialistiT fyrr en
maöur sigur I gröfina.”
„Kannski er ég forstokkaöur
smáborgari og kapftalisti. Ein-
hvers staöar þætti þaö ekki viö
hæfi aö búa meö þessi húsgögn og
trjágarö sem upphaflega var sáö
til af lögfræöingi!”
„Ég er ófélagslyndur"
Hjalti er þrftugur eins og Kenn-
eth Harrison, lamaöi maöurinn
sem hann leikur á f jölunum I Iönó
þessa dagana. „Ættaður úr Dan-
mörku, Biskupstungum og Borg-
arfirði aö einhverju leyti.”
Stráknum Hjalta lýsir hann,
„Innhverfur, ófélagslyndur og
mannfælinn á köflum. Lftiö fyrir
slagsmál og fótbolta.”
„Ég segi nú kannski ekki beint
aö ég sé mannfælinn ennþá. en ég
er ófélagslyndur. Og tala cf mik-
iö. Svona ábyrgöarlaust hjal
segja kunningjarnir. Ég tala of
mikiö þegar ég á ekki aö gera
þaö. Þess vegna er ég kallaöur
tungufoss. Þaö er nýyröi, notaö
um menn sem alltaf eru blaör-
andi úti i horni en taka litla
ábyrgö. Aftur á móti er mér tregt
um tungu þegar krafist er álits.”
A meöan hann var strakur ætl-
aöi hann sér eitt sinn aö veröa
danskennari. „Ég uppgötvaöi aö
ég haföi svo klunnalegar hreyf-
ingar og þar meö var danskenn-
arinn úr sögunni.” I annaö sinn
lögfræöingur. „Þaö kom út af þvi
aö ég sá lögfræöing heimsækja
mann sem haföi veriö kæröur fýr-
ir ölvun viö akstur. Mér fannst
svo mikiö til þessa manns koma,
sem var meö tösku, i bfl og haföi,
aö ég hélt, örlög manns i hendi
sér.”
„Bflstjóri og lögga ætlaöi ég aö
veröa eins og aörir strákar. Ég
held þaö hafi veriö þaö eina sem
ég átti sameiginlegt meö öörum
jafnöldrum minum á meöan á þvf
stóö.”
— Attu enn litiö sameigjnlegt
meö jafnöldrum?
„Þaö er alveg áreiöanlegt. Ég
er frammúr hófi gamaldags og
langt á eftir timanum I smekk á
ýmsu. Ég hef hótaö kunningjum
minum aö halda upp á áttatiu ára
afmæliö mitt I sumar. — Ég heföi
viljaö vera uppi á þeim tfma sem
þetta hverfi hérna var byggt.”
„Veikur fyrir sterkum,
heitum tilfinningum"
„Ég er á eftir tfmanum I tdnlist
og húsasmekk og Ijóöum. Ég er
ógurlega veikur fyrir stórum,
sterkum og heitum tilfinningum i
listgreinum. Mér finnst erfitt en
áhugavert aö segja viö konu f út-
varpsleikriti: Ég elska þig. Ég
hef mjög oft þurft aö segja þetta.
Þaö krefst þess aö maöur fari inn
I sjálfan sig. Hjá mörgum jafn-
öldrum, og reyndar yngra og
eldra fólki er þetta kallaö væmni.
Hugtökunum væmni og hlýju er
ruglaö saman. Tilfinningasemi
þýöir á nútimamáli: rómantfk á
villigötum.”
„Af leikritahöfundum þykir
mér Jónas Arnason afskaplega
áhugaveröur höfundur. Hann hef-
ur manna fyrstur, svo ég viti til
komiö þessu f orö og kallar þaö
„kaldrifjunarstefnan”. Sem lýsir
sér í þvi aö karlmenn mega ekki
gráta. Þeir veröa aö játa konu ást
sina meö þvi augnamiöi aö hún sé
kynferöisvera en ekki samferöar-
félagi. Mér þykir þetta gott orö,
kaldrifjunarstefna. Jónas er
snjall maöur.”
— Hvers vegna leikari frekar
en eitthvaö annaö?
1 „Ég hef aö gamni mfnu getiö
mér til um tvenns konar ástæöur.
Sú fyrri er grimmileg, — aö ég
hafi svo mikla þörf fyrir aö láta
bera á mér. Svo þaö fari ekki
iframhjá samfélaginu aö ég er
ofan foldar. Hin ástæöan er árátt-
an til aö skilja annaö fólk, kafa
inni þaö og koma þvi frá sér i ein-
hverri mynd. Eftir þvf sem á lfður
hallast ég aö fyrri skýringunni.”
„Hafna því aö allir menn
séu góðir"
„Ég er afskaplega dómharö-
ur”, heldur hann áfram. „Þaö er
helst þegar ég fæst viö hlutverk
utangarösmanna, moröingja,
fjárkúgara og annarra heiöurs-
manna, sem ég fæst til aö viöur-
kenna upphátt aö viökomandi
brjóti af sér vegna erfiöleika I
æsku. Of mikilla reykinga mdöur
á meögöngutíma eöa einhvers
slfks.”
„Ég verö var viö aö ég hafna
þeirri kenningu aö allir menn séu
góöir. Þegar ég les I blööum frétt-
ir af óhæfuverkum, er ég mjög
fljótur aö ákveöa hvort maöurinn
muni vera illmenni aö upplagi
eöa ekki. Annars er hryllingur aö
temja sér svona ósiö aö vera
dómharöur. Það getur oröiö til
þess aö maöur situr uppi gamall,
kaikaöur og vinalaus, búinn aö
bfta alla frá sér.”
— Einhver sérstök gerö manna
sem þú hefur lftiö álit á?
„Ég hef afskaplega lftiö álit á
t.d. mönnum sem vinna viö aö
skipuleggja Reykjavlk. Ég er
haldinn timburhúsaást. Tilheyri
sérviskupúkum sem verður út-
rýmt á íslandi. t hvert skipti sem
maður sér timburhús tæmast, þá
verö ég dauðhræddur um aö nú
eigi aö rifa þaö.”
„Þaö er eins og þessir menn séu
á móti húsum sem ekki eru
kassalaga. Hvers vegna I ósköp-
unum má ekki byggja lengur hús
meö gluggapóstum, risi og mörg-
um linum I sér? Þaö væri freist-
andi aö fá þessa menn I nákvæma
sálkönnun. Hérna rétt hjá er for-
ljót bygging, algjör skandall, sem
heitir Dvergur. Ég segi stundum
viö konuna mina aö mig langi til
aö leigja stóran krana meö kúlu
til aö rifa niður þetta hús. En ég
hætti viö þaö þvi ég er hræddur
viö refsinguna og hef ekki tima til
aö sitja inni. En ég skil ekki þetta
hatur út f hlýlegt umhverfi.”
„ Ert þú 21.2. '49?"
Hafnarfjörður: „Mér hefur
alltaf þótt Hafnarfjöröur sjarm-
erandi, og þaö er gott aö búa hér
og hugsa. Þaö er sagt aö þaö sé
máttur I hamrinum. Þaö eru
meiri möguleikar a aö komast I
þorpsstemninguna hér. Gott? Já,
pangaö til náungarnir eru farnir
aö rakka mann niöur. Þeir eru
ekki byrjaöir á þvi ennþá, enda
er ég aldrei heima! Annars er
undarlegur háttatfmi hjá Hafn-
firöingum. A nýársnótt var slökkt
I hverju húsi klukkan hálf eitt.
Þaö haföi ég aldrei upplifaö
fyrr.”
„Mér fannst þaö hreinsun aö
flytja hingaö. Ekki sfst hreinsun
af ópersónulegri viökynningu viö
skrifstofufólk eins og I Reykjavfk.
Fólki sem spyr: Ert þú 21.2. ’49?
Þaö hefur komiö fyrir á ónefnd-
um staö. Ég gæti ekki búiö l stór-
borg. Ég vil fá aö vera Hjalti.
Enda þykir mér kannski vænst
um hann.... !”
Fyrsta hlutverkiö sem Hjalti
fékk I Reykjavlk var I Fiölaran-
um. „Ég var látinn leika litla
stelpu. Þaö var tveggja mfnútna
Spjallað við Hjaíta
Rögn vaídsson íeikara
innkoma rétt fyrir klukkan ellefu.
Og ég sagöi ekkert.”
„Ég hef leikiö mest af, held ég,
unglingsstrákum. Strákum, sem
eru vel gerðir af Drottins hendi en
eiga einhvern veginn erfitt meö
aö fóta sig. En inni á milli hef ég
leikið fulloröna menn, leikiö upp
fyrir mig eins og þaö er kallaö. í
Loka þó! eftir Böövar Guö-
mundsson lék ég einn sem átti aö
vera áttræöur. Þaö hentaöi mér
afskaplega vel. Samanber kenn-
inguna sem ég setti fram áöan.
En svo hef ég leikiö jafnaldra
mina eins og núna.”
— Er þaö erfitt hlutverk?
„Þaö er meö þeim erfiðari sem
ég hef fengiö. En ég hef ekki feng-
iö auövelt hlutverk ennþá.”
— Equus?
„Ég álit sjálfur aö þaö hlutverk
hafi skólaö mig einna mest, svona
til þessa. Þaö eru þessar stóru
tilfinningar — sem ég held svolft-
iö uppá!”
„Mundi hugsa mig um
tvisvar"
— I þvf leikriti var nektarsena?
„Já, ég var hræddur viö þaö
fyrst þegar ég byrjaöi aö lesa
handritiö. En eftir þvi sem ég
kynntist þvf nánar þá lagöist þaö
betur I mig. Mér fannst þetta svo
eölilegt og sjálfsagt framhald á
eftir þvf sem gerðist á undan. En i
dag mundi ég hugsa mig um
tvisvar ef ég væri beöinn um
þetta..Þaö er vont aö eiga atriöi
sem þetta eftir I sýningu. Þaö
fylgir þvf kvföi — gagnvart áhorf-
endum.”
„Eftir tuttugu og fimm áýning-
ar fór aö koma fólk á flissaldrin-
um^ sem heitir á góöri íslensku
gangandi pfkuskrækir. Þá fór aö
veröa strembiö aö gera þetta. Ég
„Ég datt út í sal einu sinni, i
„Svartri kómedíu”. Þaö var stórt
og erfitt hlutverk. Viö lékum al-
gjört myrkur f fullu ljósi. Ég átti
aö bakka meö postulínslampa i
annarri hendi og ruggustól i
hinni. Ég taldi alltaf i huganum
fjögur og hálft skref, en i þetta
skipti taldi ég óvart fimm og hálft
skref. Ég datt út f sal — á fyrsta
bekk. Þaö var sárt, ég meiddi mig
svolitiö og var aumur lengi á eft-
ir. En þaö var ekki annaö aö gera
en fara upp aftur. Fyrst meö
mublurnar, svo meö mig.”
„Ég álft ekkert slys verra en aö
detta út af sviöinu, þar sem maö-
ur á aö halda sig. Ég nefni ekki
önnur i samanburöi viö þaö.”
„Veit ekki hvort þetta eru
púkar...."
— Gætirðu hugsaö þér aö gera
eitthvaö annaö?
„Þaö kemur alltaf upp inni á
milli. Ég veit ekki hvort þetta eru
púkar eöa eitthvaö svipaö og Al-
freö Flóki veröur fyrir. Ég gæti
málaö þessa áráttu ef ég væri
handlaginn.”
„Þaö er allur fjandinn sem
kemur upp I hugann. Þaö er ekki
til sú starfsgrein sem kemur ekki
til greina. En ég vil ekki kalla >
þetta vinnuleiöa. Ég kann ekki aö
útskýra þetta. En þó leiklistin sé
mericileg, þá eru önnur störf þaö
lika. Kannski er þaö algjör mun-
aöur aö vera i þessu. Sérstaklega
ef mikiö er aö gera. En þá fara
forgöröum öll tækifæri til fjöl-
skyldulífs. Mér veröur seint gert
til hæfis varöandi þaö aö vinna
mátulega mörg kvöld f vikú. Þaö
er ekki hægt aö hætta allt i einu þó
mig langi aö fara. Ég hélt um
tima aö ég væri einn um þetta, en
hætt fyrir þann sem ætlar aö gefa
sig aö hvorutveggja, af sam-
viskusemi. En ég hef oröiö var viö
að fólk sem er mikiö fyrir þaö aö
horfa upp til einnar stéttar heim-
færir upp á islenska leikara
kjaftasögur úr dagblööum um
menn eins og Roger Moore og
fleiri. Sem vaöa i peningum og
kvenfólki. Samt held ég aö þetta
fari minnkandi.”
„Og ég held þvi fram aö þaö sé
hvergi eins gott aö vera leikari og
á Islandi. Ekki launalega séö,
heldur er þetta friösælla samfé-
lag og færri atvinnuglaumgosar!
Óviöa f heiminum eru eins margir
leikarar sem hafa vinnu, ýmist
fasta eöa lausa. Þaö er aö
minnsta kosti hetra aö útskrifast
hérna.”
„Allt aö því rola á köfl-
um"
— Ertu rólegur?
„Ég er rólegur. Allt aö þvf rola
á köflum. Rólegur og þægilegur
eiginmaöur. Nei... þaö er voöa
hæpiö aö gefa sjálfum sér eink-
unn. En ég er rólegri hér I Hafn-
arfiröi en á mörgum öörum stöö-
um. Tré og sjór róa mig, og aö
horfa á skip og báta sigla inn
höfnina. Þaö hefur feiknalega ró-
andi áhrif.”
— Ekkert fengist viö aö leik-
stýra?
„Nei og hef engan áhuga á þvi.
Ég þráöi þaö ansi heitt einu sinni,
en þaö freistar mfn ekki lengur.
Ekkert slfkt reyndar. Ég auglýsti
einu sinni kennslu I framsögn en
hætti. Ég komst aö þvi aö maöur
var farinn aö skafa töfrandi per-
sónueinkenni af öörum og móta
eftir sjálfum sér. Þaö komu fáir
sem betur fer. Annars væru
margir Hjaltar út um allan
bæ....”~ — EA
Viðtal: Edda Andrésdóttir
' t .. ■ ■
msmum
Myndir: Jens Alexandersson
„Tiiheyri sérviskupúkum, sem verður út-
rýmt á lslandi”.
„Fólki sem spyr: Ert þú 21.2. ’49....”
„Aift ekkert slys verra en aö detta út af
sviðinu, þar sem maður á að haida sig”.
„Ég þótti óþolandi kommi áöur en ég flutti
inn...”
„Heid þaö borgi sig ekki aö segja: „Ég er
sósialisti” fyrr en rétt sem maöur sigur f
gröfina”.
„Ég er hræddur við refsinguna og hef ekki
tima tíl að sitja inni”.
„Annars er hryliingur að vera svona dóm-
harður”.
„Ég er ógulega veikur fyrir stórum, sterk-
um og heitum tilfinningum....”