Vísir - 26.05.1979, Page 19
19
VÍSIR
Laugardagur 26. maf 1979
hljómplata vikunnar
Sleggjusystur gáfu út lögin
„Mama Never Told Me” og
„Love Don’t You Go Through
No Changes” árið 1974, yngsta
systirin Kathie þá 14 ára og
Debbie sú elsta 19 ára. Stór
plata i framhaldi af þessu vakti
heldurenga athygli. Þrjú ár liðu
frá þvi systurnar birtust aftur á
vinyl, lagið „Bird In A Silver
Cage” og stóra platan „To-
gether” komu út 1977 — en sorg-
arsagan endurtók sig og
Sleggjusystur hurfu undir sjón-
deildarhringinn.
Seint á siöasta ári fréttist af
systrunum i stúdiói með æðstu
prestum diskóhljómsveitar-
innar Chic, Bernard Edwards
og Nile Eodgers. Og árangurinn
finnst á ,,We Are A Family”,
WE ARE A FAMILY - SISTER SLEDGE
Systra- og bræðrabönd eru frá
ættfræðilegu sjónarhorni oft á-
kaflega sterk, en þar sem þekkt
er i málinu orðið band sem
hljómsveit, er auðveldlega hægt
'að segja sem svo, að systra- og
bræðrabönd séu orðin nokkuð
algeng. Það kannast allir við
bræörabandið Bee Gees,
bræðurna Gibb, og Pointer-syst-
ur eru viðfrægar. Þessum pistli
er svo ætlað aö kynna enn annað
systrabandið, Sister Sledge,
sem viö gætum hæglega og án
nokkurs leyfis kallað Sleggju-
systur.
Til þess að kynnast ögn þess-
um systrum höldum við til Hol-
lands, en þar hafa Sleggjusyst-
ur vakið mikla athygli. Þegar
viö komum til sögunnar eru
stelpurnar i sjónvarpsstúdiói
nokkrum kilómetrum fyrir utan
Amsterdam og viö eltum þær
þangað, — á stað sem nefnist
Hilversum. Stelpurnar eru að
mæma sitt kunna lag „He’s The
Gnatest Dancer” þegar við lát-
um sjá okkur. Sleggjusystur eru
fjórar talsins og heita Kathie,
Debbie, Kim og Joni en við sjá-
um ekki betur en sú fimmta
standi þarna rétt hjá með spegil
og hárbursta i hendi. — Við
fræðumst um það, aö þetta er
ekki ein systirin, heldur
mamman, Florence Sledge.
Rétt áður hafði hún verið að
hjálpa Carol meö hárið og þar
áður hafði hún rækilega áminnt
Kathie að passa sig á erfiðum
kafla i laginu, sem erfitt er að
mæma. Carol???
Jú, Carol er ein Sleggju-
systra, nokkurs konar vara-
maður i liðinu. Debbie er oröin
svp gild um magann, að það var
ekki þorandi að fara með hana i
langferð. Þegar svo stendur á,
eða önnur „öhöpp” veröa,
hleypur Carol I skarðiö.
Stelpurnar taka mikið tillit til
móður sinnar, hún hefur enda
reynsluna umfram þær, sextán
ára flutti hún Ur foreldrahúsum
og gekk i dansflokk, lék i kvik-
myndum og vann svo á umboðs-
skrifstofu með húsmóöurstarf-
inu. Og kynni hennar af
skemmtanaiðnaðinum varö til
þess að hún gat stappað svo
stálinu I dætur sínar að þær gáf-
ust ekki upp þótt velgengnin léti
biða eftir sér.
stórri plötu með átta þrumu-|
diskólögum. Eitt laganna á plöt-'
unnihefur farið inn á topp tiu i
Bandarikjunum, lagiö ,,He’s
The Greatest Dancer” og tvö
önnur, titillagið „We Are A
Family”og„LostInMusic” eru
á góðri leiö meö aö slá i gegn.
Og Sleggjusystur eru þar með
orðnar frægar, næsta plata
kemur út I haust með einhverju
frumsömdu efni, — og vonandi
þurfa þær ekki að gráta I kodd-
ann út af viötökinum þegar sá
timi kemur.
—-Gsal
Glóðaðar
lambakótelettur
gráðosti
8 lambakótelettur
salt
pipar
merian eða oregano
matarolia
1 hvitlaukslauf
1 stór laukur
100 gr gráðostur
Hreinsið og þerrið kótelett-
urnarogristið 2-3 grunna skurði
I fitulagiö, en berjið þær ekki.
Kryddið kóteletturnar meö
salti, pipar, merian eöa
oregano, pensliö með mataroliu
og látið lfggja I 3-4 tima fyrir glóð-
un. Leggið kóteletturnar á
glóðarrist og glóðið i 6-8 minútur
á hvorri hlið.
Smásaxið lauk og hvltlauk og
brúnið i mataroliu á pönnu.
Breiöið laukinn yfir kjötið.
Leggið eina ostsneið á hverja
kótelettu ogsetjið kjötið augna-
blik inn I ofninn aftur.
Berið með kartöflur og hrátt
salat t.d. með salatblööum,
agúrku, tómötum, grænni
papriku og ólifum ásamt oiiu-
edikslegi.
Sítrónubúðingur
(rjómalaus)
3 eggjarauöur
1 dl sykur
safi og rifið hýði af einni sitrónu
3 blöð matarlim
1 msk.vatn
3 eggjahvitur
Leggiö matarlímið I bleyti i
kalt vatn. Þeytið saman eggja-
rauður og sykur í ljósa og létta
froðu. Stifþeytiö eggjahviturn-
ar. Kreistið vatnið úr matarlim-
inu og bræöið það I heitu vatns-
baði. Bætið sitrónusafa og vatni
út I matarllmið og hræriö þvi yl-
volgu smám saman út I eggja-
þykknið ásamt rifnu sitrónu-
hýði.
Blandiö stífþeyttum eggja-
hvltunum siöast varlega saman
við með slcikju.