Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 1
MORGUNBLAÐIÐ 4. FEBRÚAR 2001
29. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
10 Með metnaðinnað leiðarljósi
30
Kemur dauðinn
hann vill?
þegar
B
Trúnaðarbrestur helsta
orsök samningsslita
26
TÖLVUDEILD danska þings-
ins hefur orðið að loka fyrir að-
gang að heimasíðu sjónvarps-
þáttarins „Stórabróður“ vegna
of mikils álags á tölvukerfið á
svokölluðum „baðtíma“. Þætt-
irnir eru í beinni útsendingu
allan sólarhringinn á Netinu og
sýna tíu íbúa húss í öllum her-
bergjum þess. Heitt vatn er á
einn klukkutíma á sólarhring
og þá flykkjast áhugasamir á
Netið til að fylgjast með íbúun-
um baða sig.
Tölvukerfi þingsins ræður
ekki við að fleiri en 16 not-
endur fari inn á sömu heima-
síðu og því hefur verið gripið
til þess óyndisúrræðis að meina
þingmönnum og öðrum starfs-
mönnum aðgang. Stóribróðir
hefur víða valdið vandræðum í
tölvukerfum, t.d. á sjónvarps-
stöðinni TV Danmark, sem
sendir þáttinn út. Þættirnir
hafa vakið gríðarlega athygli
og umtal í Danmörku frá því að
þeir hófu göngu sína fyrir viku.
Ekki eru allir jafnhrifnir og
hafa tveir piltar í Árósum opn-
að heimasíðu sem beint er
gegn þáttunum. Nefnist hún
„Sjúkibróðir“ og inniheldur
gagnrýni á efni þeirra.
Fyrir áhugasama má benda
á heimasíðu Stórabróður:
www.bigbrother.dk.
Neitað
um Stóra-
bróður
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
JARÐSKJÁLFTI sem mældist 5
stig á Richters-kvarða reið yfir
Gujarat-ríki á Indlandi á laugar-
dagsmorgun, rúmri viku eftir að
öflugur skjálfti varð þar tugum
þúsunda manna að bana. Eftir-
skjálftinn olli ekki umtalsverðu
tjóni, en hann varð til þess að ótti
og skelfing greip um sig meðal
hinna hrjáðu íbúa svæðisins.
Jarðskjálftinn átti upptök sín
um 25 km norður af bænum
Bachao, sem varð einna verst úti í
stóra skjálftanum. Eftirskjálftinn
fannst um allt Gujarat-ríki, en yf-
irvöld þar sögðu að hvorki hefði
fregnast um manntjón né skemmd-
ir af völdum hans. Íbúar á svæðinu
þustu víða út úr húsum sínum, af
ótta við viðlíka hamfarir og urðu
fyrir viku.
Vajpayee fundar með
fulltrúum allra flokka
Forsætisráðherra Indlands, Atal
Behari Vajpayee, hélt á laugardag
fund með fulltrúum allra flokka á
þinginu, til að ná samstöðu um
hvernig skyldi staðið að neyðarað-
stoð í Gujarat-ríki, en talið er að
um hálf milljón íbúanna hafi misst
heimili sitt í skjálftanum í síðustu
viku. Leiðtogar stærstu flokkanna
samþykktu að setja á fót sérstaka
nefnd til að hafa umsjón með
hjálparstarfinu. Ríkisstjórnin hef-
ur legið undir gagnrýni fyrir slæ-
lega stjórn aðgerða, en skipulagi
neyðaraðstoðar mun víða hafa ver-
ið ábótavant.
Vajpayee tilkynnti einnig í gær
að hann hefði aflýst fyrirhuguðum
heimsóknum til Malasíu og Japans,
sem hefjast áttu í vikunni, til að
geta fylgst með gangi hjálpar-
starfsins.
Risaflutningavélar
koma með hjálpargögn
Nokkrar risaflutningavélar frá
bandaríska flughernum lentu í
Ahmadabad í Gujarat-ríki í gær
með ýmis hjálpargögn. Farmurinn
var meðal annars matvæli, lyf,
tjöld og ábreiður. Þá lagði bresk
Boeing 747-risaþota af stað til Ind-
lands á laugardag með 36 tonn af
hjálpargögnum, en þeim hafði ver-
ið safnað fyrir tilstuðlan samfélags
hindúa í Bretlandi.
Einnig er stefnt að því að 747-
þota komi til Indlands á mánudag
með hjálpargögn að andvirði 4
milljóna dollara, eða um 340 millj-
óna króna, frá þróunarsamvinnu-
stofnun Bandaríkjanna.
Eftirskjálfti sem mældist 5 stig reið yfir Gujarat-ríki á Indlandi
Reuters
Björgunarmenn bera lík úr húsarústum í borginni Anjar í Gujarat-ríki í
gær, rúmri viku eftir að jarðskjálftinn mikli reið yfir á Indlandi.
Olli ótta en
engu tjóni
ALFRED Sirven, fyrrverandi að-
stoðarforstjóri franska olíufélags-
ins Elf, var handtekinn við komuna
til Þýskalands á laugardags-
morgun. Hann hafði verið á flótta í
þrjú ár eftir að hafa verið sakaður
um verulegan fjárdrátt, en elting-
arleiknum lauk á Filippseyjum á
föstudag. Sirven bar fyrir rétti í
Frankfurt í gærmorgun að hann
myndi ekki mótmæla framsali til
Frakklands, en á myndinni sjást
fréttamenn þyrpast að lögreglubíl
sem flutti hann til dómshússins.
Sirven tengist einnig spilling-
armáli sem höfðað hefur verið á
hendur Roland Dumas, fyrrverandi
utanríkisráðherra Frakklands.
Sirven tekinn höndum
AP
DONALD Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, varði í gær
þau áform Bandaríkjastjórnar að
koma upp eldflaugavarnakerfi.
Rumsfeld sótti fund með evrópskum
starfsbræðrum sínum í München í
Þýskalandi í gær og veitti þá frétta-
mönnum viðtal í fyrsta sinn síðan
hann tók við embætti fyrir tveimur
vikum.
Ýmis ríki hafa lagst gegn áformum
Bandaríkjamanna um að koma upp
eldflaugavarnakerfi, einkum Rússar
og Kínverjar, en einnig nokkur Evr-
ópulönd. Rumsfeld vísaði áhyggjum
þeirra á bug í gær og sagði að því færi
fjarri að eldflaugavarnakerfi væri
ógn við önnur ríki eða valdajafnvægið
í heiminum. Kerfið yrði ekki nógu
viðamikið til að draga úr fælingar-
mætti kjarnorkuvopnabúrs Rússa.
Ígor Ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, lét á fimmtudag í ljós
áhyggjur af því að Bandaríkjamenn
myndu brjóta í bága við gagneld-
flaugasáttmálann frá 1972 ef þeir
kæmu upp eldflaugavarnakerfi, en
Rumsfeld gerði lítið úr mikilvægi
sáttmálans. „Þetta er ekkert annað
en kaldastríðshugsunarháttur,“ sagði
hann á leið til fundarins í gær. Varn-
armálaráðherrann vildi þó ekki gefa
upp hvort hann teldi að gera ætti
breytingar á gagneldflaugasáttmál-
anum, í þá veru að heimila beitingu
eldflaugavarnakerfis, eða fella hann
alfarið úr gildi.
Gerhard Schröder, kanslari Þýska-
lands, lagði á fundinum í gær áherslu
á að nauðsynlegt væri að Bandaríkja-
stjórn hefði samráð við aðildarríki
Atlantshafsbandalagsins (NATO) áð-
ur en ákvarðanir væru teknar um að
koma upp eldflaugavarnakerfi.
Breska dagblaðið The Daily
Telegraph hafði í gær eftir ónafn-
greindum háttsettum embættis-
mönnum að bresk stjórnvöld íhuguðu
að beita sér fyrir því að Bandaríkja-
menn og Rússar myndu þróa eld-
flaugavarnakerfi í sameiningu, svo að
draga mætti úr spennu milli þjóð-
anna. Bretar hafa haldið sig til hlés í
málinu, en haft er eftir embættis-
mönnunum að eftir valdatöku George
W. Bush í Bandaríkjunum sé orðið
nauðsynlegt að endurskoða þá stefnu.
Rumsfeld ver eld-
flaugavarnakerfi
München. AFP, AP, Reuters.
SUNNUDAGUR
4. FEBRÚAR BLAÐB
SUNNUDAGUR
Eyjan Phuket utan suð--
vesturstrandar Taílands er
þekkt fyrir að þar er boðið upp
á köfun á heimsmælikvarða.
Þorkell Þorkelsson skellti sér
suður þangað, hitti fyrir Davíð
Sigurþórsson sem starfaði
einmitt við að kenna
ævintýraþyrstum ferðalöngum
köfun./B12
Ljósmynd/Pascal Laigle
Úr snjó í sjó