Morgunblaðið - 04.02.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 20/1–27/1
Læknafélag Íslands hef-
ur tekið ákvörðun um að
slíta viðræðum við Íslenska
erfðagreiningu. Félagið
sendi læknum bréf til að
útskýra afstöðu félagsins.
Kalla þurfti út björg-
unarsveit til að aðstoða
sænskan háskólanema sem
lent hafði í ógöngum á Esj-
unni. Maðurinn hafði geng-
ið upp á fjallið en ekki átt-
að sig á hvað dimmdi
snemma á þessu árstíma.
Hann komst því ekki hjálp-
arlaust niður af fjallinu.
Íslenska landsliðið í
handknattleik karla komst
ekki í 8-liða úrslit á heims-
meistaramótinu í Frakk-
landi. Liðið tapaði fyrir
Júgóslavíu, 31-27.
Íslandsbanki skilaði 662
milljóna hagnaði á síðasta
ári. Hagnaður árið á undan
var 2.959 milljónir. Arð-
semi eigin fjár var 6,8%.
Seðlabankinn spáir því
að verðbólga frá upphafi
til loka þessa árs verði
4,6%.
Fjórfalt fleiri konur en
karlar fá lágmarkslífeyri.
Þetta kom fram á ráð-
stefnu sem Kvenréttinda-
félag Íslands stóð fyrir.
Síðan í desember hefur
um 150 starfsmönnum í
fiskvinnslu verið sagt upp
störfum. Um er að ræða
sjávarútvegsfyrirtæki í
Vestmannaeyjum, Bolung-
arvík, á Húsavík og Eski-
firði.
Flugumferðarstjórar
hafa samþykkt að boða
verkfall. Um er að ræða
verkfall sem á að hefjast
20. febrúar og standa í tvo
daga.
Samanburðarleið en
ekki útboð á farsímum
STURLA Böðvarsson samgönguráð-
herra greindi frá því á Fjarskiptaþingi,
að síðar á þessu ári muni samgöngu-
ráðuneytið úthluta rekstrarleyfum fyr-
ir þriðju kynslóð farsíma. Sturla sagði
að við úthlutunina yrði beitt þeirri að-
ferð að hafa samanburðarútboð með
umtalsverðu leyfisgjaldi.
Þessi aðferð uppfylli það megin-
markmið stjórnvalda í fjarskipta- og
upplýsingamálum að Ísland verði
áfram í fremstu röð tæknivæddra ríkja
með ódýra, góða og aðgengilega fjar-
skiptaþjónustu.
Samgönguráðherra sagði að í næsta
mánuði muni hann leggja fram á Al-
þingi frumvarp til laga um úthlutun á
rekstrarleyfum fyrir þriðju kynslóð
farsíma.
Í frumvarpinu verði settar fram
skýrt skilgreindar lágmarkskröfur og
samkeppni umsækjenda muni felast í
að bjóða í þjónustu umfram þær. Stefnt
sé að afgreiðslu frumvarpsins í vor og
úthlutun leyfanna í haust.
676 öryrkjar fengu
hærri tekjutryggingu
Tryggingastofnun hefur greitt út bæt-
ur til öryrkja samkvæmt nýjum lögum
frá Alþingi. Lögin hafa áhrif á greiðslur
til um10% þeirra öryrkja sem fá bætur
frá stofnuninni. Þetta eru 676 einstak-
lingar, þar af 16 karlmenn. Samkvæmt
eldri lögum hefði þessi hópur fengið um
mánaðamótin 3.804.003 kr. en eftir
breytinguna fær hann 11.906.107 krón-
ur. Mismunurinn er 8.102.104 krónur.
Meðalviðmiðunartekjur hjóna á ári í
þessum hópi eru 1.870.726 krónur.
Meðaltekjur lífeyrisþega í þessum hópi
eru 134.386 krónur. Þarna er um
brúttóupphæðir að ræða og hluti af
þeim rennur aftur í ríkissjóð í formi
staðgreiðsluskatta.
INNLENT
Líbýumaður dæmdur
fyrir Lockerbie-slysið
LÍBÝSKUR leyniþjónustumaður,
Lamen Khalefa Fahimah, var á mið-
vikudag dæmdur í lífstíðarfangelsi
fyrir að hafa grandað farþegaþotu í
eigu Pan Am-flugfélagsins yfir Loc-
kerbie í Skotlandi fyrir tólf árum.
Annar Líbýumaður var sýknaður. 270
manns fórust í slysinu, bæði farþegar
þotunnar og fólk á jörðu niðri. Að-
standendur fórnarlambanna krefjast
þess að Muammar Gaddafi Líbýuleið-
togi verði sóttur til saka, þar sem þeir
segja ljóst að hann hafi skipað fyrir
um hryðjuverkið. Stjórnvöld í Líbýu
neita hins vegar allri sök og krefjast
þess að refsiaðgerðum gegn landinu
verði aflétt. Réttarhöldin yfir Líbýu-
mönnunum fóru fram í Hollandi, en
réttað var samkvæmt skoskum lögum
og kváðu skoskir dómarar upp dóm-
inn.
Gífurlegt tjón
á Indlandi
ÞAÐ skýrðist smám saman í vikunni
hversu gífurlegt mann- og eignatjón
varð af völdum jarðskjálftans sem
reið yfir Gujarat-ríki á Indlandi þar-
síðasta föstudag. Enn er ekki ljóst
hve margir týndu lífi, en yfirvöld hafa
nefnt tölur á bilinu 25.000 til 100.000
manns. Sameinuðu þjóðirnar telja að
um 200.000 íbúar Gujarat-ríkis hafi
misst heimili sín og víða er enn vatns-
og rafmagnslaust. Björgunarsveitir
víðs vegar að úr heiminum hafa lagt
Indverjum lið og allt fram á miðviku-
dag var verið að grafa fólk á lífi úr
húsarústum, fimm dögum eftir að það
grófst undir þeim. Mörg afskekkt
héruð urðu illa úti og erfiðlega hefur
gengið að koma aðstoð og hjálpar-
gögnum þangað. Óttast var að far-
sóttir blossuðu upp og breiddust
hratt út vegna mengaðs neysluvatns.
FÆREYSKA land-
stjórnin tilkynnti á fimmtu-
dagskvöld að gengið yrði
til þjóðaratkvæðagreiðslu
um sjálfstæði eyjanna 26.
maí næstkomandi. Lagt er
til að eyjarnar stefni að
fullu sjálfstæði árið 2012.
Paul Nyrup Rasmussen,
forsætisráðherra Dan-
merkur, sagði á föstudag
að yfirlýsingin skapaði al-
varlega stöðu í sam-
skiptum þjóðanna.
Augusto Pinochet, fyrr-
verandi einræðisherra í
Chile, var á mánudag birt
ákæra fyrir að hafa verið
meðábyrgur fyrir 18
mannránum og 57 morðum
á fyrstu vikunum eftir
valdatöku hans í sept-
ember 1973. Rannsókn-
ardómarinn Juan Guzman
sagði að Pinochet myndi
koma fyrir rétt og svara til
saka fyrir herferðina gegn
andstæðingum herforingja-
stjórnarinnar.
JOE Erling Jahr, mað-
urinn sem er grunaður um
morðið á fimmtán ára þel-
dökkum pilti, Benjamin
Hermansen, í Ósló fyrir
viku, var handtekinn í
Kaupmannahöfn á fimmtu-
dagskvöld. Jahr er þekktur
meðlimur nýnasistahreyf-
ingar í Noregi og talið er
að ástæða morðsins hafi
verið kynþáttahatur.
ÞING Indónesíu sam-
þykkti á fimmtudag
skýrslu um spillingu Abd-
urrahmans Wahids, forseta
landsins, og opnaði þar
með fyrir málsókn á hend-
ur honum.
ERLENT
SENDIRÁÐ Íslands í Moskvu er,
samkvæmt upplýsingum frá alþjóða-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins, að
skoða mál íslensks sjómanns sem
ásamt japönskum vinnufélaga sínum
var handtekinn af rússnesku strand-
gæslunni í bænum Nevilsk á Sakhal-
ín-eyju í fyrradag. Maðurinn, sem
heitir Hrafn Margeir Heimisson, er
nú laus allra mála en sendi utanrík-
isráðuneytinu símbréf þar sem hann
fór fram á að borin yrði fram kvörtun
til rússneskra yfirvalda vegna ólög-
mætrar handtöku.
Hrafn Margeir, sem starfar sem
ráðgjafi um rækjuveiðar á skipinu
Mys Zenit, sem eitt sinn var í eigu
Nasco en er nú í eigu erlendrar út-
garðar og skráð á Kýpur, lýsti raun-
um sínum í bréfinu til ráðuneytisins,
en Morgunblaðið fékk afrit af bréfinu
frá ættingjum hans.
Lyfti jakkanum og lagði
höndina á byssuna
„Ég kom um borð í skipið í Japan
og við sigldum þaðan á mánudags-
kvöld,“ segir í bréfinu. „Í gær (fyrra-
dag), 1. febrúar, vorum við að taka
nokkra áhafnarmeðlimi um borð um 9
sjómílur frá landi, þegar strandgæsl-
an kom um borð og færði skipið til
hafnar. Eftir að hafa bundið skipið ut-
an á eftirlitsskipið í herskipahöfninni í
Nevilsk kom eins og vera ber útlend-
ingaeftirlitið og tollurinn til að fara yf-
ir pappíra en útlendingaeftirlitið
gerði ekki athugasemdir við neitt.
Hér voru líka aðilar frá MARPOL
sem er strandgæslan. Það var búið að
binda skipið um klukkan 8 í gærkvöld
(fyrrakvöld) og um miðnætti var toll-
skoðun lokið og ég fór að sofa um
klukkan 1. Klukkan 2 var ég vakinn
og 2. stýrimaður sagði mér að mað-
urinn sem væri með honum vildi að ég
færi til Kholmsk með honum, ég fór
eitthvað að kvarta og benti þeim á
hvað klukkan væri, en þá lyfti hann
jakkanum og lagði höndina á byssuna
og sagði mér og Oshima (japanskur
vinnufélagi Hrafns Margeirs) að
koma strax. Hann tók líka fram við
mig að hann væri með vegabréfið mitt
og tók það upp og sýndi mér það og
vegabréf Oshima. Það var farið með
okkur, reyndar í sitthvorum bílnum,
til Kholmsk, sem er í um 40 km fjar-
lægð en ferðin tók fjóra tíma vegna
storms, snjókomu og skafrennings og
afspyrnu lélegra farartækja.“
Aldrei borin fram
ein einasta spurning
„Þegar við komum til Kholmsk kl. 6
var farið með okkur inn í eitthvert
hús. Þar var okkur vísað inn í klefa
sem var hluti af gufubaðsaðstöðu og
þar voru bara harðir trébekkir og
ekki nokkur leið að leggjast til svefns.
Okkur var ekki boðið neitt nema einn
bolli af te og við sluppum ekki út fyrr
en umboðsmaður útgerðar skipsins
kom um klukkan 10 og sagði okkur að
við gætum komið með honum. Hann
var með alla okkar pappíra og það
gerði enginn neinar athugasemdir við
þá.
Þeir aðilar sem færðu okkur til
Kholmsk hurfu um leið og við komum
þangað og aldrei var borin fram ein
einasta spurning um eitt eða neitt og
það talaði enginn við okkur enda töl-
uðu þeir bara rússnesku sem hvor-
ugur okkar kann. Við vorum ekki
læstir inni en fyrir utan var vopnaður
vörður sem skipaði okkur að halda
okkur inni.“ Eins og áður sagði hefur
Hrafn Margeir farið þess á leit við ut-
anríkisráðuneytið að borin verði fram
kvörtun við rússnesk stjórnvöld
vegna óþarfa óþæginda sem hann
varð fyrir. Hann sagði að allir papp-
írar hefðu verið í lagi og þeir sem
handtóku hann hefðu hvorki útskýrt
hvert þeir hygðust fara með hann né
hvers vegna hann hefði verið hand-
tekinn.
Sendiráð Íslands í
Moskvu er að skoða málið
Íslenskur sjómaður segist hafa verið handtekinn
á Sakhalín-eyju fyrir engar sakir
SAMKVÆMT nýrri könnun Gallup
mælist fylgi ríkisstjórnarinnar nú
52% en var 66% í sambærilegri könn-
un fyrir fimm mánuðum. Þetta er
minnsti stuðningur við ríkisstjórnina
sem mælst hefur í könnunum Gallup
á þessu kjörtímabili, sem nú er senn
hálfnað.
Gallup spurði einnig um fylgi við
flokkana. Sjálfstæðisflokkurinn
mælist með 38% fylgi og Framsókn-
arflokkurinn með 13%, sem er svipað
og í síðustu Gallup-könnun. Fylgi við
stjórnarandstöðuflokkana breyttist
heldur ekki mikið frá síðustu könn-
un fyrir um mánuði. Samfylkingin er
með 25% fylgi og Vinstri hreyfingin
– grænt framboð með 22%.
52% styðja
ríkis-
stjórnina
Könnun Gallup
♦ ♦ ♦
PÁLL Skúlason, rektor Háskóla Ís-
lands, gerði hleypidóma um ham-
ingjuna og eigin þekkingu að um-
talsefni í ræðu sinni við
brautskráningu kandídata í gær.
Rektor sagði að hleypidómar gætu
verið skaðlegir lífi manna og velferð
og nefndi sem dæmi þann hleypi-
dóm um hamingjuna sem fælist í
þeirri skoðun „að því meir sem við
eignumst eða öðlumst af verald-
argæðum þeim mun sælli verðum
við“.
Að sögn rektors eru rökin gegn
þessari skoðun þau að enginn geti
fengið sig fullsaddan af peningum,
völdum eða frægð, enda séu mann-
eskjurnar bókstaflega óseðjandi í
þessum efnum. Af því leiðir að
hamingjan getur ekki sprottið af
veraldlegum gæðum eingöngu, þar
sem „hamingjan er ofin úr gæðum
sem spretta af góðmennsku, and-
legri og siðferðilegri auðlegð sem
fátækir, valdasnauðir og óþekktir
kunna að eiga ekki síður en þeir
sem veraldargæða njóta í ríkari
mæli“.
Þá nefndi rektor annars konar
hleypidóm sem standi háskólafólki
nær, enda hafi háskólafólk sjaldn-
ast hugsað mikið um veraldargæði
nema til þess að lifa og stunda störf
sín við viðunandi veraldleg skilyrði.
Hins vegar sé háskólafólk veikara
fyrir þeirri tilhneigingu að halda að
kunni maður eitthvað fyrir sér á
einu sviði, sé maður sjálfkrafa fær í
ýmsum öðrum efnum.
„Tilhneigingin er sem sé sú að
telja að reynsla manns og kunnátta
í einni grein geri mann hæfan og
dómbæran um allt milli himins og
jarðar.“
Rektor sagði að forsvarsmenn í
stjórnmálum og frumkvöðlar í at-
vinnulífi ættu vafalaust í mestum
vanda með að hemja hleypidómaár-
áttu sína í þessu tilliti. Þeir væru
settir í þá stöðu að þurfa að mynda
sér skoðun og taka afstöðu til alls
kyns málefna sem þeir hafi í reynd
takmarkaðar forsendur til að fjalla
um af skynsemi.
„Sú óskynsemi, sem oft einkennir
umræður og ákvarðanir á opinber-
um vettvangi, stafar án efa af því
að þjóðfélagið þrýstir fast á ráða-
menn að taka ákvarðanir – og þá er
freistandi að taka afstöðu án þess
að yfirvega málin og efna til skyn-
samlegrar umræðu um þau meðal
kunnáttumanna og almennings.“
Hleypidómar skaðlegir