Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 12

Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 12
12 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ yrðum. Sjaldgæft er að rekast á slík- ar skoðanir í fjölmiðlum. Kristján Kristjánsson, prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri, hefur í mörg ár verið talsmaður líknardráps að uppfylltum mjög ströngum skil- yrðum eins og kemur fram hér á eft- ir og hefur hann viðrað þessar skoð- anir bæði í ræðu og riti. Skilyrðin eru þau að um ólækn- andi sjúkdóm sé að ræða, óbærilegir verkir sjúklings, endurtekin ósk um dauða borin fram af fúsum og frjáls- um vilja, og þegar aðrar leiðir hafi verið reyndar til þrautar og teymi heilbrigðisstarfsmanna, t.d. tveggja lækna ásamt hjúkrunarfræðingi og sálfræðingi, hafi kannað málið til hlítar og veitt samþykkti sitt. „Þessi skilyrði eru að nokkru samhljóða þeim sem gildandi eru í Hollandi en mín eru þó strangari, en þar þarf að- eins samþykki tveggja lækna,“ segir hann. „Þá vil ég alls ekki ganga eins langt og gert er í Hollandi með heim- ild til annarra tegunda líknardráps, til dæmis að ósk aðstandenda, enda held ég að slík heimild bjóði upp á misnotkun.“ Hvað þarf að koma til að hans mati hér á landi svo að hægt sé að leyfa líknardráp, ef það þætti æskilegt? „Lagabreytinga er þörf til að heimila beint líknardráp samkvæmt þeim ströngu skilyrðum sem ég tí- undaði hér að ofan. Þótt ég sé fræði- lega samþykkur slíkri lagabreytingu mætti hún ekki eiga sér stað fyrr en í kjölfar ítarlegrar umræðu í sam- félaginu.“ Ef deyfilyfin virka ekki Læknarnir sem rætt var við voru spurðir hvort þeim fyndist líknar- dráp ekki eiga rétt á sér undir nein- um kringumstæðum, til dæmis ef sjúklingurinn kvelst óheyrilega eða deyfilyfin virka ekki? „Ég ætti aldrei að segja aldrei. Sem læknir veit ég ekki í hvaða að- stæðum ég get lent,“ segir Valgerð- ur. „Ég er alfarið á móti líknardrápi og er tilbúin að nota allar aðrar leiðir til að bæta líðan sjúklingsins. Eftir því sem árin líða styrkist ég fremur en hitt í afstöðu minni og hef meira úthald til að fylgja sjúklingnum í baráttu hans. Kannanir sem gerðar hafa verið á Vesturlöndum á viðhorfi til líknar- dráps, og þær kannanir eru margar, sýna að afstaðan til líknardráps breytist eftir fjarlægðinni frá dauð- anum. Niðurstöðurnar sýna að því frískari sem einstaklingarnir eru því fleiri vilja líknardráp. Því nær sem einstaklingarnir eru dauðanum því færri vilja líknardráp. Með öðrum orðum, því nær sem einstaklingur- inn er dauðanum því fleiri daga vill hann eiga. Þorsteinn Svörfuður kvaðst enn ekki hafa kynnst sjúklingi sem þann- ig var ástatt fyrir að ekki var hægt að verkjastilla hann á viðunandi hátt með einhverjum þeirra aðferða sem í boði eru. „Það hefur því ekki komið til þess að ég hafi þurft að taka af- stöðu til þessarar spurningar,“ sagði hann. Jón og Sigurður tóku í sama streng. Rökin með og móti Fleiri rök hafa verið sett fram gegn líknardrápi til dæmis að þótt settar væru ákveðnar reglur væri samt hætta á að þær yrðu rýmkaðar með tímanum. Í Hollandi er hópur fólks sem tel- ur að frumvarpið um lögleiðingu líknardráps þar í landi gangi ekki nógu langt og vilja rýmka heimildina enn frekar. Einnig er talað um hættu á villum í mati lækna á horfum sjúklinga. Þessi síðastnefndi vandi kom glögglega í ljós í máli 67 ára gam- allar hollenskrar konu árið 1981. Málavextir voru þeir að hún bað vin sinn að hjálpa sér að enda líf sitt vegna þess að læknisskoðun hafði leitt í ljós að hún var með krabba- mein. Við krufningu kom hins vegar í ljós að þetta var ekki rétt. Lækn- irinn sem hafði úrskurðað konuna með krabbamein hafði látið hjá líða að fá álit annars læknis á ástandi hennar eins og krafist er í hollensku reglunum um líknardráp. Sá sem hafði hjálpað henni að stytta líf sitt var dæmdur í 6 mánaða fangelsi. Enn fleiri rök hafa verið nefnd gegn líknardrápi eins og til dæmis að það geti verið erfiðleikum háð, jafn- vel fyrir færasta lækni, að greina þunglyndi eða annan geðsjúkdóm sem mögulega er læknanlegur. Því sé stundum vandkvæðum bundið að sjá hvað í raun og veru býr að baki ákvörðun einstaklings sem biður um hjálp til að deyja. Ástæðurnar þurfa ekki endilega að vera þær að sjúk- lingurinn þjáist heldur geti þær ver- ið fjárhagslegar eða félagslegar. Það sé líka alltaf sú hætta að sjálfsvíg sem stutt er af lækni geti mistekist og sjúklingur orðið ör- kumla á eftir. Hver á mitt líf? Rökin með líknardrápi hafa hins vegar einkum verið þau að virða eigi sjálfsákvörðunarrétt einstaklings og að líknardráp geti komið í veg fyrir óbærilega þjáningu. Hugmyndin um rétt einstaklings- ins til að deyja hefur vakið áhuga heimspekinga síðan á dögum Forn- Grikkja. Það er þó ekki fyrr en um miðja síðustu öld sem umræðan um þetta málefni varð tímabær og út- breidd. Þá urðu framfarir í gjör- gæslutækni þess valdandi að hægt var að lengja líf sjúklinga sem engin ráð hefðu verið til að bjarga frá bráð- um bana fyrr á árum. Þegar deyj- andi fólk kemst undir læknishendur á tæknivæddum sjúkrahúsum nú- tímans er oft hægt að halda í þeim lífinu og það stundum gert, jafnvel löngu eftir að allar batalíkur og vonir um að sjúklingurinn geti notið nokk- urra lífsgæða eru úr sögunni. Sjúk- lingi er þá varnað að deyja með hjálp tæknibúnaðar. Umræðan um líknardráp komst í hámæli í hinum vestræna heimi árið 1975. Ung, bandarísk kona, Ann Quinlan, varð fyrir slysi sem leiddi til þess að hún féll í varanlegt dá. Lífinu var þó haldið í henni með hjálp önd- unarvélar um langt skeið eða þangað til faðir hennar fór fram á að slökkt yrði á vélinni. Læknar neituðu hon- um um þessa bón þrátt fyrir það að enginn ágreiningur væri um það að dóttirin myndi aldrei komast til með- vitundar. Þá leitaði faðirinn til dóm- stóla. Eftir löng og ströng réttarhöld var sá úrskurður kveðinn upp að Ann Quinlan skyldi tekin úr öndun- arvélinni samkvæmt ákvæði í banda- rísku stjórnarskránni um friðhelgi einkalífsins. Þær umræður sem fylgdu um réttinn til að deyja urðu til þess að skýra siðferðilegar, lagalegar og félagslegar hliðar þessa máls og spurningar um mannlegt sjálfræði urðu háværar. Spurt var: „Hver á mitt líf? Hef ég ekki rétt á að ráð- stafa því að minni eigin vild?“ Ákvörðunarréttur sjúklinga sterkur og skýr Í íslenskum lögum um réttindi sjúklinga er ákvörðunarréttur sjúk- linga sterkur og skýr, en þar segir í 24. grein laganna þar sem kveðið er á um meðferð dauðvona sjúklinga: „Dauðvona sjúklingur á rétt á að deyja með reisn. Gefi dauðvona sjúk- lingur ótvírætt til kynna að hann óski ekki eftir meðferð sem lengir líf hans eða tilraunum til endurlífgunar skal læknir virða þá ákvörðun. Sé dauðvona sjúklingur of veikur andlega eða líkamlega til þess að geta tekið þátt í ákvörðun um með- ferð skal læknir leitast við að hafa samráð við vandamenn sjúklings og samstarfsfólk sitt áður en hann ákveður framhald eða lok meðferð- ar.“ Það kemur fram í máli Valgerðar að þegar sjúklingur er dauðvona verði vilji einstaklingsins að vega mjög þungt inn í mat á því hvernig meðferð skuli hagað. „Það er ekki mitt sem læknis að ákveða hvað er viðunandi líf heldur einstaklingsins sem ég er að meðhöndla,“ segir hún. „Læknirinn verður að setja sig í spor sjúklingsins og fá mat hans á því hvað er hvers virði. Sumir sjúklingar vilja eindregið lengra líf þó að þeim líði illa og þeir hafi mikið af auka- verkunum. Aðrir vilja styttri og þá betri tíma. Sumir sjúklingar vilja mikið samráð við lækninn og aðrir vilja ekki neitt samráð. Það er skylda manns sem læknis að finna út hvað sjúklingurinn vill. Ekki síst í líknar- meðferðinni. Það þarf líka að sjá til þess að sjúklingurinn hafi réttar upplýsingar um sitt ástand.“ Bóndinn sem vill ekki fara suður Sigurður segir að ef sjúklingur vilji ekki meðferð og læknirinn geti ekki sannfært hann um annað þá hafi sjúklingurinn alltaf síðasta orðið svo fremi sem sjúklingurinn sé ekki þunglyndur, andlega veikur eða ekki sjálfráða. Þegar tekin sé slík ákvörð- un komi ekki aðeins líffræðilegi þátt- urinn til álita heldur einnig félags- legar aðstæður og tók Sigurður dæmi um bóndann sem vill ekki fara suður heldur vill vera heima í daln- um hjá fólkinu sínu þótt honum líði verr líkamlega. Fleiri aðstæður geta varnað því, að sögn Sigurðar, að krabbameins- meðferð er ekki framkvæmanleg eins og ef sjúklingurinn er svo veikur að hann getur ekki legið kyrr í geislameðferðinni eða ef hann af fikti eykur dreypishraðann á lyfi í æð þannig að það valdi lífshættu. „En læknirinn er ávallt skyldugur til að reyna að telja sjúklinginn á að taka þeirri meðferð sem þykir árangurs- ríkust hverju sinni.“ Tíðkast þótt bannað sé með lögum Í framhaldi af þessari umræðu má spyrja hvers vegna eigi að virða ákvörðun dauðvona sjúklings um að hafna meðferð en ekki þegar hann fer fram á beint líknardráp? Kemur það ekki út á eitt fyrst sjúklingurinn deyr í báðum tilvikum? Svar Þor- steins Svörfuðar lýsir vel afstöðu læknanna þegar hann segir: „Sjúklingurinn ræður hvort hann þiggur meðferð eða ekki, en hann getur ekki neytt lækninn til að nota meðferð sem er gagnstæð sannfær- ingu hans og samvisku.“ Talið er að líknardráp tíðkist víða í hinum vestræna heimi þótt það sé bannað með lögum. Fyrir nokkrum árum var gerð könnun á meðal breskra lækna á sjúkrahúsum þar í landi og spurt hvort sjúklingar hefðu farið fram á það við læknana að þeir aðstoðuðu þá við að deyja? Lækn- arnir sem tóku þátt í könnuninni voru tæplega þrjú hundruð. Um helmingur þeirra kvaðst hafa fengið slíkar beiðnir. Þá voru læknarnir spurðir hvort þeir hefðu framfylgt óskinni? Þriðjungur læknanna sagð- ist hafa hjálpað skjólstæðingum sín- um að stytta líf þeirra. Nærri helm- ingur læknanna sagðist myndi íhuga að hjálpa dauðvona sjúklingum að enda líf sitt ef líknardráp yrði lög- leitt í Bretlandi. Viðgengst líknardráp á Íslandi? Í haust stendur til að rannsaka hvort líknardráp hafi viðgengist í sex Evrópulöndum en löndin eru Sví- þjóð, Danmörk, Holland, Belgía, Ítalía og Sviss. Farið verður yfir þús- undir dánarvottorða í hverju landi fyrir sig af þessu tilefni og læknar þar spurðir út í einstök efnisatriði þeirra til dæmis hvað réði vali þeirra á lyfjum eða annarri meðferð við lífs- lok. Sams konar rannsókn fór fram í Hollandi árið 1990 og 1995 og verður rannsókn landanna sex framkvæmd með sama hætti svo hægt verði að bera saman niðurstöðurnar. Markmiðið er að skoða hvaða ástæður ráða því hvaða meðferðar- form voru ákveðin. Úrvinnsla gagnanna verður blind- uð þannig að ekki er hægt að þekkja hvaða læknir eða sjúklingur átti í hlut, þannig að ef upp kemst um refsivert athæfi þá verður ekki hægt að ákæra viðkomandi. Telja viðmælendur okkar að líkn- ardráp viðgangist hér á landi þrátt fyrir að það sé bannað? „Ég tel að við séum ekkert öðru- vísi en aðrar þjóðir hvað það varðar að hér hafi átt sér stað ólöglegt líkn- ardráp. Ég þekki þó ekki nein dæmi um að íslenskur læknir hafi hjálpað sjúklingi að deyja að ósk hans,“ segir Valgerður. „Ísland er lítið samfélag og það fréttist hvað þar gerist og þess vegna held ég að það sé óalgengara hér en annars staðar að fólki sé hjálpað til að deyja,“ segir Sigurður. Þekktasti talsmaður líknardrápa í fangelsi Í Bandaríkjunum eru mjög ströng lög um líknardráp en dæmin sanna að ekki er tekið mjög strangt á þeim. Bandaríski meinafræðingurinn Jack Kevorkian er einn þekktasti tals- maður þess að læknir aðstoði dauð- vona sjúklinga að stytta líf sitt ef þeir fara fram á það. Hann situr nú í fangelsi fyrir líknardráp. Handtaka hans kom í kjölfar þess að fyrir þrem árum skoðaði lögreglan myndband sem var sýnt í þættinum „60 mín- útur“ í bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS. Á myndbandsupptökunni sást Kevorkian sprauta banvænum skammti af lyfi í 52 ára, dauðvona sjúkling, Thomas Youk, sem var haldinn ólæknandi taugasjúkdómi. Við réttarhöldin sem fylgdu á eftir sagði Kevorkian að sjúklingurinn hefði verið svo þróttlaus að hann hefði óttast að hann myndi kafna í eigin munnvatni. Á myndbandinu sást að Youk kinkaði kolli þegar hann var spurður hvort hann vildi binda enda á líf sitt og sást hann skrifa undir yfirlýsingu um að hann samþykkti banvæna lyfjagjöf. Eftir sjónvarpsþáttinn skoraði Kevorkian á lögregluna að handtaka sig. Hann kvaðst annaðhvort vilja að deilan um líknardráp yrði leidd til lykta fyrir dómstólum eða að lög- reglan léti hann í friði. Fyrir dómsuppkvaðninguna bað ekkja Youks dómarann um að sýna Kevorkian miskunn þar sem sjúk- lingurinn hefði sjálfur viljað deyja og óskað eftir banvænni sprautu. Kevorkian var dæmdur í 10 til 25 ára fangelsi en dauðarefsing er ekki til í refsilöggjöf Michigan-ríkis þar sem líknardrápið fór fram. Auk Yoks kvaðst Kevorkian hafa hjálpað 130 dauðvona sjúklingum við að binda enda á líf sitt. Er munur á líknardrápi og líknarmeðferð? Til eru þeir sem telja að það sé enginn munur á líknarmeðferð og líknardrápi. Þeir spyrja: Er vísvit- andi verið að deyða einstaklinginn þegar sjúklingurinn hættir að fá lífs- nauðsynlega næringu eins og nær- ingu í æð? Það er líka alkunn staðreynd að það tíðkast að gefa mjög þjáðum, dauðvona sjúklingum deyfilyf jafn- vel þó að vitað sé að lyfin geti í ein- stökum tilvikum flýtt fyrir dauða þeirra. Spyrja má hvort hér sé um að ræða fullkomlega eðlilega meðferð sem miðast að því að dauðdagi verði eins þjáningarlaus og með eins mik- illi reisn og kostur er eða er um líkn- ardráp að ræða? Þeir sem aðhyllast líknardráp myndu svara því játandi að ofan- greindar aðgerðir væru líknardráp, hinir segðu að hér væri um eðlilega meðferð deyjandi sjúklings að ræða. Í leiðbeiningum landlæknisemb- ættisins um takmörkun á meðferð Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/Jim Smart prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Morgunblaðið/Kristján prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri. Vilhjálmur Árnason, Kristján Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.