Morgunblaðið - 04.02.2001, Síða 20
ÍÞRÓTTIR
20 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Falur fór aftur í speglun
FALUR Harðarson, körfuknattleiksmaður frá Keflavík, fór á dög-
unum í speglun á hægra hné, en Falur fór í samskonar aðgerð seint
í haust. „Þetta vandamál má rekja til atviks sem gerðist í leik þegar
ég lék í Finnlandi. Ég fékk högg á hnéð og við það fór eitthvert
ferli af stað þar sem óeðlilega mikil brjóskmyndun á sér stað í
hnénu. Nú þurfti að skafa þetta í burtu aftur en ég er vongóður um
að geta verið með í úrslitakeppninni,“ sagði Falur.
Kristinn var fyrst inntur eftir þvíhvernig endurhæfingunni mið-
aði. „Ég fór strax í aðgerð eftir að ég
sleit og aðgerðin
heppnaðist vel. Í
vetur hef ég verið
hjá sjúkraþjálfara
og hlaupið og æft
mikið í vatni ásamt því að stunda
lyftingaæfingar og ég er því nokkuð
bjartsýnn á framhaldið.“
Hvað tekur nú við hjá þér ?
Ég er að fara til Noregs á morgun
og ætla að dvelja í Geilo í rúman
mánuð og prófa hnéð á skíðum. Ég
fór aðeins á skíði um jólin og maður
fór varlega eftir fimm mánaða hvíld
frá skíðunum, en eftir nokkrar ferðir
var þetta farið að ganga aðeins bet-
ur. Í Geilo mun ég hitta fyrir þjálf-
ara minn, Hauk Björnsson, og að-
staðan í bænum gerir það að verkum
að ég get farið nánast hvenær sem
mér hentar á skíði án þess að þurfa
að aka lengi eða ferðast nokkuð.
Haukur verður að mestu upptekinn
með sænska landsliðinu fram til loka
mars og við byrjum ekki að vinna
saman formlega fyrr en hann hefur
lokið við verkefnið með Svíunum. En
ég á góða að í íþróttamenntaskól-
anum í Geilo og get leitað til þeirra
ef mig vantar einhverja aðstoð.“
Hvert verður markmiðið hjá þér
nú þegar þú ert nýstiginn upp úr
erfiðum meiðslum?
„Það hefur gengið ágætlega að
halda sönsum þótt mann hafi óneit-
anlega oft langað að fara af stað aft-
ur í heimsbikarkeppnina. Ég stefni á
að undirbúa mig í vetur og sumar
með því markmiði að fara að keppa
næsta haust. Ólympíuleikarnir í Salt
Lake City árið 2002 og heimsmeist-
aramótið ári síðar eru einnig inni í
áætlun hjá mér og lengra hef ég ekki
hugsað að svo stöddu.
Ef allt gengur vel þá ætti ég að
verða kominn vel af stað á skíðunum
í maí og þá ætti ég að geta hafist
handa við „venjulegt“ undirbúnings-
tímabil í júlí og ágúst.“
Heldur þú að hnémeiðslin eigi eft-
ir að „hanga“ yfir þér í huganum
þegar þú byrjar að skíða á keppnum
í framtíðinni?
„Ég held að ég gleymi þeim fljót-
lega og sérstaklega þegar maður
verður byrjaður að æfa á fullu. Árið
1996 sleit ég hásin og missti úr 8
mánuði og ég hef lítið hugsað um
þau meiðsli síðan, þannig að ég held
að það sama verði upp á teningnum
núna. Ég kom mun sterkari tilbaka
eftir meiðslin 1996 þrátt fyrir að
undirbúningurinn þá hafi ekki verið
eins og best verður á kosið. Í dag hef
ég miklu betri stuðning úr öllum átt-
um til að klóra mig í gegnum þessi
meiðsli og ég er bjartsýnn á að allt
gangi upp.“
Hvernig líst þér á þróun skíða-
íþróttarinnar hér heima í snjó-
leysinu sem hefur ríkt í vetur?
„Ég dáist að elju og dugnaði unga
skíðafólksins okkar. Hér er hvergi
snjó að finna nema í Hlíðarfjalli og á
Sauðárkróki, en samt sem áður
mæta krakkarnir á allar æfingar.
Þau eru að mestu í þol- og styrkt-
aræfingum og félögin hér á höfuð-
borgarsvæðinu hafa brugðið á það
ráð að keyra norður á Akureyri um
helgar með hópa, svo að hægt sé að
renna sér eitthvað. En það þarf ekki
marga snjólitla vetur í röð til að
áhuginn fari að dvína. Félögin hafa
að mínu mati unnið þrekvirki í vetur
með að halda áhuganum uppi og á
einhverjum stöðum hefur iðkendum
fjölgað þrátt fyrir snjóleysið,“ sagði
Kristinn Björnsson.
Kristinn Björnsson byrjaður á skíðum aftur eftir erfið meiðsli
Ég er bjartsýnn
á framhaldið
Reuters
Kristinn Björnsson á fullri ferð í svigkeppni á heimsbikarmóti í Kranjska í desember árið 1999. Kristinn endaði í 4. sæti.
Kristinn Björnsson, skíðamaður
frá Ólafsfirði, hefur lítið staðið á
skíðum það sem af er vetri og
ekki er þar alfarið snjóleysinu á
höfuðborgarsvæðinu um að
kenna. Um miðjan september á
nýliðnu ári sleit Kristinn fremra
krossband í hné á æfingu í Saa-
Fee í Sviss og gekkst undir að-
gerð á hnénu, skömmu eftir at-
vikið, í Þýskalandi. Morgun-
blaðið náði tali af Kristni í
höfuðstöðvum Íþrótta- og ól-
ympíusambands Íslands þar
sem hann hefur haldið utan um
skrásetningu íþróttamannvirkja
í landinu í vetur í stað þess að
glíma við erfiðar brekkur á
heimsbikarmótum.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
Þrisvar sinnum hefur Keflavíkhampað bikarmeistaratitlinum.
Hamar frá Hveragerði verður and-
stæðingur Keflvík-
inga og er óhætt að
segja að erfitt verk-
efni bíði Péturs Ing-
varssonar og hans
lærisveina, enda hefur liðinu gengið
illa á útivelli í vetur. Hamar hefur
aldrei áður leikið í undanúrslitum og
spurning er hvort leikmenn liðsins
séu orðnir sáttir við að hafa unnið
leikinn í 8-liða úrslitunum eða hvort
þá langi í einn leik til viðbótar. Í
Grindavík taka núverandi bikarmeist-
arar á móti nýliðunum frá Reykjavík,
ÍR, en Grindvíkingar hafa átt það til
að spýta vel í lófana í bikarkeppnum á
undanförnum árum, en liðið vann m.a.
Kjörísbikarkeppnina í nóvember á
síðasta ári. Grindvíkingar hafa farið
þrisvar sinnum í úrslitaleik bikar-
keppninar, fyrst árið 1995, 1998 og nú
síðast árið 2000 og í öll skiptin hefur
liðið fagnað bikarmeistaratitlinum.
ÍR fór síðast árið 1989 í Laugardals-
höll í úrslitaleik og Jón Örn Guð-
mundsson, þjálfari liðsins, er sá eini í
ÍR-liðinu sem lék þann leik, en fjórum
sinnum áður hafði ÍR leikið til úrslita
en aldrei hefur liðið fagnað sigri.
Keflvíkingar verða að teljast sigur-
stranglegri gegn Hamri og er ástæð-
an einföld, Calvin Davis. Bandaríkja-
maðurinn hefur farið á kostum undir
körfunni í vetur og gefið skyttum
Keflavíkurliðsins aukið svigrúm til að
missa marks þar sem Davis hirðir
flest sóknarfráköst sem í boði eru.
Veikasti hlekkur Hamars er skortur á
hávöxnum leikmönnum, en Ægir
Jónsson er með slitið krossband og
Hjalti Pálsson er ekki öfundsverður
að verkefni dagsins gegn Davis. Chris
Dade, Bandaríkjamaðurinn í liði
Hamars, hefur oftar en ekki bjargað
liðinu sóknarlega þegar til hans hefur
verið leitað, en gegn Keflavík má
hann búast við því að Gunnar Ein-
arsson „lími“ sig á hann og sóknar-
leikur annarra leikmanna Hvergerð-
inga fær þar með ágætis
prófverkefni. Keflavík hefur oft klár-
að leikina með þriggja stiga skorpum
og þeir Guðjón Skúlason. Magnús
Gunnarsson, Gunnar og Hjörtur
Harðarson verða fljótir að refsa gest-
unum ef færin gefast.
Kevin Daley hefur breytt
miklu hjá Grindavík
Í Grindavík er svipað upp á ten-
ingnum og í Keflavík, gestgjafarnir
eru með bikarhefðina á bak við sig og
þekkja tilfinninguna að fara í bikarúr-
slitaleik. Gengi liðanna í deildinni hef-
ur verið brokkgengt en í þessum leik
skipti það engu máli og óvæntir hlutir
gætu gerst í leiknum. Bandaríkja-
maðurinn Kevin Daley, sem hefur
leikið þrjá leiki vetur með Grindvík-
ingum, hefur breytt töluverðu í leik
liðsins. Daley er meiri ógnun inn í
teignum en forveri hans og landi, Kim
Lewis, en að sama skapi mæðir meira
á Elentínusi Margeirssyni í hlutverki
leikstjórnanda. Páll Axel Vilbergsson,
Guðlaugur Eyjólfsson, Bergur Hin-
riksson og Kristján Guðlaugsson fara
varla inn fyrir þriggja stiga línuna og
fari þeir í gang líkt og í úrslitum Kjör-
ísbikarkeppninnar er voðinn vís fyrir
ÍR.
Eiríkur Önundarson er lykilmaður-
inn að velgengni liðs ÍR. Eiríkur verð-
ur að vera iðinn við að skora og á
sama tíma verður hann að skapa færi
fyrir Cedrick Holmes og aðra leik-
menn. Holmes verður að treysta á að
fá boltann frá samherjum sínum und-
ir körfuna og takist það verður lág-
vaxið lið Grindavíkur í vandræðum.
En oftar en ekki í vetur hafa leikmenn
ÍR farið langt út fyrir hlutverk sitt og
verið að reyna hluti sem líta vel út en
eru misvænlegir til árangurs. Hregg-
viður Magnússon og Sigurður Þor-
valdsson leika þar stórt hlutverk, en
spurningin er hvernig til tekst með
samvinnu leikmanna ÍR í dag. Líkt og
í undanúrlitum kvennaliðanna í gær
er hefðin með Suðurnesjaliðunum og
samkvæmt öllu ættu liðin sem leika á
heimavelli að vinna, en það mun koma
í ljós í kvöld þegar úrslitin liggja fyrir.
UNDANÚRSLITALEIKIR karlaliða í bikarkeppni Körfuknattleiks-
sambands Íslands fara fram í dag og eru báðir leikirnir á Suður-
nesjum. Í Keflavík gera heimamenn atlögu við að komast í sjöunda
bikarúrslitaleik félagsins, en til þess þarf liðið að leggja Hamar frá
Hveragerði og en í Grindavík mætast núverandi bikarmeistarar og
nýliðarnir frá ÍR.
Eftir
Sigurður Elvar
Þórólfsson
Suðurnesjarimma?