Morgunblaðið - 04.02.2001, Qupperneq 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 23
O
FF
IC
IAL
COINS OFTHE
U
N
ITED
STATES OF A
ME
R
IC
A
Bandarískir minnispeningar
Merkustu viðburðir úr sögu Bandaríkjanna!
Í tilefni fundar Ameríku fyrir 1000 árum gáfu opinberir aðilar í Bandaríkjunum út sérstaka
hátíðarmynt úr silfri með mynd af Leifi Eiríkssyni.
Útgáfuverð minnispeningsins er
4.200 krónur (með vsk.) auk
sendingarkostnaðar 385 krónur.
Tekið er á móti pöntunum á heimasíðu
Myntsölunnar www.postur.is/myntsalan.
Einnig er hægt að hringja
í síma 580 1050 eða senda símbréf
í síma 580 1059.
Myntsala Íslandspósts býður viðskiptavinum sínum á
næstu mánuðum bandaríska minnispeninga til kaups,
einn pening í mánuði. Saman mynda peningarnir safn
sem sýnir merkustu viðburði úr sögu Bandaríkjanna.
Minnispeningur Leifs Eiríkssonar er sá fyrsti í þessu
myntsafni og fylgir honum myntskrín sem hægt er að
safna minnispeningunum í.
G
66
83
H
Ö
N
N
U
N
O
DD
I H
F
Útsölustaðir.
Libia Mjódd, Nana Hólagarði, Snyrtivörudeildir Hagkaups Kringlunni, Skeifunni,
Smáranum, Spönginni og Akureyri, Snyrtistofan Bæjarlind 3, Gallery Förðun Keflavík,
Húsavíkur Apótek, Arnes Apótek, Apótek Vestmannaeyja.
www.marbert.com
HYDRASOME færir þér
hvort teggja. Lípasóm
sér húðinni fyrir stöðug-
um raka, og Nanopart
verndar húðina gegn
ótímabærri öldrun af
völdum sólarljóss. Bestu
eiginleikar húðarinnar eru
dregnir fram og húð þín
mun líta vel út, verður
ungleg og frísk.
H Y D R A S O M E
Rakakremið sem verndar húð þína
Er húð þín þyrst?
Þarfnast hún raka
og verndar?
TVÆR ungar listakonur, báðar út-
skrifaðar úr málunardeild Myndlista-
og handíðaskóla Íslands, þó með
nokkurra ára millibili, hafa efnt til
sérstæðs gjörnings í Listasafni
Reykjavíkur sem þær nefna „Sófa-
málverkið“.
Innsetningin er góðra gjalda verð,
einnig hugmyndin að baki, hins vegar
eru þær stöllur fullkomlega úti
að aka með nafngiftina, sem
hefði öllu frekar átt að vera mál-
verkið yfir sófanum og þá í upp-
hafinni merkingu. Nafngiftin
hefur mjög farið í mínar fínu
taugar, því hér er um að ræða
alþjóðlegt hugtak yfir veggfóðr-
unarlist, þ.e. lítilsgilda fjölda-
framleiðslu undirmálslistar og
stofuskrauts. Til að skilgreina
hugtakið fullkomlega, þarf ein-
ungis að fara ofan í grein í nýj-
asta tölublaði Kunstavisen, þar
sem virtur listrýnir, Alex Steen,
minnist hins nýlátna listhöfð-
ingja, Knud W. Jensen osta-
kaupmanns, lengstum kenndur
við Lousiana-safnið í Humle-
bæk. Eftir að hafa vikið að því
hvernig eldhuginn hleypti nýju
blóði í Gyldendal-bókaforlagið
m.a. með útgáfu bókmenntarits-
ins Heritica, segir Steen: Sama
takmark var að baki þá hann
kom á fót stofnuninni List á
vinnustað 1954, sem með hundr-
uðum sýninga um land allt var
sem kjaftshögg á gróðasjónar-
mið og svindl með list, er í þá tíð
einkenndi 98% af dönsku „sófa-
málverki“. Þá útleggst hugtakið
lítilsgilt/lélegt/ómerkilegt mál-
verk í orðabókinni.
Til þess að varpa réttu ljósi á
hugtakið hefðu þær stöllur
þannig átt að róa á allt önnur
mið, engan veginn þurft að banka
uppi hjá fólki því yfrið nóg framboð er
af slíkum varningi í hinum ýmsu list-
húsum og innrömmunarverkstæðum
borgarinnar. Þá má með góðri sam-
visku gera því skóna að um 80% af öll-
um skiliríum yfir sófum á íslenzkum
heimilum sé sófamálverk í kórréttri
skilgreiningu, umsetningin sirka 70–
80% af allri sölu á myndverkum á
landi hér.
Í beinu framhaldi mætti spyrja
hvað dömunum gangi til með því að
setja alla fremstu málara þjóðarinnar
undir þetta alþjóðlega uppnefni á lít-
ilsgildri undirmálslist, jafnt braut-
ryðjendanna sem nýrri tíma brim-
brjótum, því í verknaðinum felst
skelfileg vanvirðing á íslenzkri mál-
aralist yfirhöfuð.
Næsta undarlegt að leita til þeirra
10–20 prósenta sem hanga uppi eftir
alvörumálara, sem í örfáum tilvikum
hafa getað framfært sér af list sinni,
líkast til enginn ef ekki kæmu til
tekjur makans eða utanaðkomandi
aðstoð.
Í ljósi þessa myndi ég mæla með 10
ára betrunarhúsvist til handa list-
tróðunum (!) ef ég væri þess ekki full-
viss um yfirmáta góða meiningu með
verknaðinum en öfugsnúnum skiln-
ingi á hugtakinu. Hér hefur orðið
skammhlaup, þó alltof algengt að
landinn telji sig hafa einkaleyfi á að
snúa útúr og umturna algildum, er-
lendum hugtökum til að styðja mála-
flutning sinn og gerðir, svona eftir
hentisemi.
Hvort heldur um skammhlaup eða
fáfræði er að ræða verður að afsaka
valkyrjurnar í ljósi hinnar fallegu
innsetningar þeirra í hornsölunum
uppi, sem eru eins og tempruð vin í
hrjúfleikanum sem við blasir úr
hverju horni. Ég er líka alveg viss um
að gestir skilji framtakið rétt eftir
skoðun sýningarinnar, að verið sé að
vísa til lofsverðs áhuga landans að
prýða heimili sín íslenzkum málverk-
um. Að málverk sem fólk kaupir hafni
svo fyrir ofan sófa í stássstofum er
hendanlegt en ekki algilt, en þangað
rata þó yfirleitt uppáhaldsmyndirnar,
sem geta jafnt verið af landslagi sem
huglægu myndferli. Annars hef ég
orðið var við að fólk sem ekki hefur
séð sýninguna heldur að hér sé verið
að skjóta á málverkið, sem þó er
þveröfugt svo sem allir uppgötva sem
lesa hinn upplýsta texta í hinni prýði-
legu sýningarskrá. Þó geri ég at-
hugasemd við málsgreinina: „Hug-
takið sófamálverk“ lýsir í hnotskurn
þeim sérstöku tengslum sem
eru á milli Íslendinga og verka
eftir íslenzka listmálara, sér-
staklega þegar um er að ræða
myndir sem lýsa náttúru lands-
ins. Þessum tengslum mætti
einna helst líkja við ástarsam-
band sem varað hefur alla 20.
öldina og verður því að teljast
býsna langlíft.
Hér mætti spyrja hvort held-
ur er átt við sófamálverkið í
sjálfu sér, eða verk gildra at-
vinnumálara sem í sumum til-
vikum hanga yfir sófunum, og
kannski má álykta að rangur
hugsunarháttur eigi þátt í þess-
ari áráttu Íslendinga.
Gild málverk eru nefnilega
aldrei hægindi, sem fara best yf-
ir stásssófum þótt 80% þjóðar-
innar kunni að halda það, og góð
málverk eru aldrei hlutlaust
skreyti í innibúi heimila, þau
hljóta að höfða til hins innvígða
skoðanda sem svipsterkt inn-
legg í rýmið. Reynsla mín segir
að með þjóðinni blundi afar
sterk lita- og formkennd, sem
því miður hefur verið í þyrnirós-
arsvefni fyrir vanmat á gildi
sjónmennta og lágmarks-
fræðslu í menntakerfinu. Er
einmitt ástæða þess að hið raun-
sanna fjöldaframleidda sófa-
málverk blómstrar sem aldrei
fyrr á landi hér ásamt röngum hug-
unarhætti á eðli málverka og mynd-
listar yfirhöfuð, eru burðarstoðir vel-
gengni þess á almennum markaði.
Gerist á sama tíma og fjöldi metn-
aðarfullra málara og þar á meðal
stöllurnar tvær stökkva hæð sína í
loft í hvert sinn sem verk þeirra
ganga út.
Hvað sem öðru líður er um áhuga-
verða sýningu að ræða sem hreyfir
við heilasellunum, og einkum er inn-
setning stóru myndanna frá Þingvöll-
um mögnuð og töfrandi. Allt hið mik-
ilsverðara ber að þakka með virktum.
Seinheppni – og þó …
MYNDLIST
L i s t a s a f n
R e y k j a v í k u r
H a f n a r h ú s i
„The Sofa- painting“. Anna Jóa,
Ólöf Oddgeirsdóttir. Opið alla daga
frá 11–15. Til 24. mars. Aðgangur
400 krónur í allt húsið.
SÓFAMÁLVERKIÐ
Allt er í stíl og nýtur sín til fulls, ekkert grípur
inn í annað og er því meira heild en skreyti.
Málverk: Frá Borgarfirði, Hafnarfjall eftir
Guðmund Thorsteinsson, olía á léreft.
Hér er meira um íburð en skipulag og málverkin hluti af þeirri heild.
Málverk yfir sófa: Frá Þingvöllum eftir Kjarval, olía á léreft.
Bragi Ásgeirsson