Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 24

Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 24
LISTIR 24 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ TÓNLEIKAR Kammersveitar Reykjavíkur sem haldnir verða í Listasafni Íslands á morgun kl. 20 verða helgaðir Leifi Þórarinssyni tónskáldi, en hann lést fyrir aldur fram árið 1998. Um er að ræða opn- unartónleika hátíðarinnar Myrkir músíkdagar sem nú er að hefjast. Kammersveit Reykjavíkur stend- ur fyrir tónleikunum í samvinnu við Tónskáldafélag Íslands. Þar verða eingöngu flutt verk eftir Leif Þór- arinsson, en þau voru samin á árun- um 1972 til 1993 og spanna því rúm- lega tuttugu ára tímabil. „Í öllum verkunum á efnisskránni koma einkenni Leifs sem tónskálds vel fram, en um leið er hægt að finna fyrir þróuninni í tónskáldskap hans,“ segir Rut Ingólfsdóttir forsprakki Kammersveitarinnar. „Við munum meðal annars frumflytja eitt verk eftir Leif, kammerkonsertinn Vor í hjarta mínu sem hann lauk við árið 1993. Mér þykir það nokkuð merki- legt að til sé verk eftir hann sem ekki hefur verið flutt áður. Greinilegt er að Leifur hefur haft þetta verk lengi í smíðum en sett lokapunktinn 1993.“ Konsertinn var einn af fjórum kammerkonsertum sem Leifur hugð- ist semja, en hann lauk aðeins við þrjá þeirra áður en hann lést. Hinir eru Styr (1988) og Á Kýpros (1993) og verður það flutt á tónleikunum. „Það verk höfum við leikið margoft áður, líkt og reyndar fleiri verk á efn- isskránni. Angelus Domini fyrir kammersveit og mezzósópran sem samið er árið 1975 er t.d. eitt af þess- um góðu verkum sem við höfum haft á efnisskrá hjá okkur af og til í gegn- um árin,“ segir Rut. Ljóðið í verkinu er þýðing Halldórs Laxness á Mar- íukveðskap frá miðöldum og birtist fyrst í niðurlagi Vefarans mikla frá Kasmír. Auk þess eru á efnisskrá Draumur um Húsið fyrir hörpu og strengi frá 1972 og strengjasveitarverkið Rent sem samið er í Kaupmannahöfn árið 1976. „Það er mikil breidd í þessari dagskrá,“ segir Rut. „Hljóðfæraskip- an er t.d. oft mjög sérstök hjá Leifi og hún verður mjög breytileg milli verka. Vor í hjarta mínu er t.d. fyrir gítar, hörpu og sembal, þ.e. plokkuð hljóðfæri, ásláttarhljóðfærin, mar- imbu, víbrafón og klukkuspil, mikið af slagverkshljóðfærum og lítinn strengjahóp. Þannig koma þrjátíu manns að tónleikunum þótt það spili aldrei nema um 12 til 14 manns í einu.“ Viðamikil útgáfustarfsemi Kammersveitin hefur hrint af stað átaki í að taka upp mikinn fjölda af ís- lenskum tónverkum. „Við höfum því sett saman þessa efnisskrá með verkum Leifs Þórarinssonar og erum um þessar mundir að taka þau upp til útgáfu,“ segir Rut, en sveitin stefnir að því að gefa út diska með verkum tónskálda á borð við Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, John Speight, Hjálmar H. Ragnars- son og Hafliða Hallgrímsson. Kamm- ersveitin leggur til hljóðfæraleikinn en fleiri aðilar munu koma að þessu metnaðarfulla útgáfustarfi. Rut segir kveikjuna að starfseminni hafa verið tónleikar sem sveitin hélt í tilefni af aldarafmæli Jóns Leifs. „Í kjölfar tónleikanna gerðum við upptökur á verkunum sem sum voru frumflutt á tónleikunum og voru það fyrstu upptökur sem gerðar voru á öllum þessum verkum. Eftir það tók- um við ákvörðun um að nauðsynlegt væri að hefjast handa við að taka upp mikið af þeim fjölda íslenskra verka sem við höfum spilað frá því að Kammersveitin var stofnuð árið 1974.“ Þá bendir Rut á að þótt íslensk tónskáld séu mjög afkastamikil og flest sem þau semja sé flutt a.m.k. einu sinni þá sé mjög lítið af því efni til útgefið á geislaplötum. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir tónlistar- lífið á Íslandi að þessi verk séu gefin út, og að fólk geti gengið að þeim og hlustað á þau,“ segir Rut að lokum. Kammersveit Reykjavíkur leikur verk eftir Leif Þórarinsson á morgun Öll helstu einkenni tónskáldsins koma fram Kammersveit Reykjavíkur mun leika á opnunartónleikum Myrkra músíkdaga. LEIFUR féll frá á besta aldri, 63 ára gamall, árið 1998. Þá hafði hann ný- lokið við bestu verk sín. Fráfall hans var mikill missir fyrir menningarlíf okkar. Hann auðgaði íslenska menningu og gaf henni nýjar víddir. Hann var nútímalegt tónskáld á 20. öld á al- þjóðlegan mælikvarða, frábær fag- maður, framúrstefnumaður og brautryðjandi. Verk Leifs eiga ekki aðeins erindi til okkar Íslendinga. Þau höfða til alls menningarheims tónlistarinnar, því þau standast fyllilega samanburð við það besta sem samið var á síðari helmingi 20ustu aldar. Þau endur- spegla þann tíma því Leifi var sú gáfa gefin að „kenna til í stormum sinnar tíðar“. Þess vegna kom aldrei nein mála- miðlun til greina. Leifur var trúr köllun sinni og list alla tíð, eins og allir meiriháttar listamenn. Hann sóttist lítt eftir hylli alþýðu eða valdsmanna, en hélt sínu striki ótrauður í gegnum ólgusjóa lífsins. Leifur var fjölhæfur kunnáttumaður og öll stílbrigði tónlistar, eldri sem yngri, léku í höndum hans. Hann breyttist með árunum, frá harðsnún- um seríalisma til einhvers konar tjáningarstíls, enda var hann leitandi sál. Hann átti alltaf trygga fylgjendur sem höfðu á honum tröllatrú. Rögn- valdur Sigurjónsson, Kristján Dav- íðsson, Halldór Laxness og Ragnar í Smára voru í þeim hópi. Hin besta list krefst nokkurs af þeim sem vilja meðtaka hana: ýtr- ustu einbeitingar hugans og næmis allra skilningarvita, forvitni, for- dómaleysis og hrifningar, ásamt gagnrýnu hugarfari og ýmsu öðru. Listaverkið getur þá launað mönn- unum fyrirhöfnina og lyftir hugan- um á æðra svið. Móðir mín sáluga sagði að tónlistin væri græðismyrsl á sálina. Leifur orti oft undir dýrum hátt- um og tónmál hans er margrætt, getur verið stirt og stundum nokkuð myrkt. Hann líkist Schubert – sem hann hélt mikið upp á – í því, að þeg- ar hann yrkir um ástina verður úr því sorg, og þegar farið er á vit sorg- arinnar verður úr því ást. Út hafa komið nýlega þrír diskar með verkum Leifs og þeir spanna feril hans frá árinu 1960 til 1997. Þeir eru hinir vönduðstu að allri gerð og flutningur allur frábær. Þar spila Sinfóníuhljómsveitin, Caput-hópur- inn og Kolbeinn Bjarnason, ásamt Guðrúnu Óskarsdóttur. Önnur sinfónían, yngsta verkið á þessum diskum, er svanasöngur Leifs. Magnað verk, einhvers konar „leit að liðnum tíma“ í tónlist, brim- rót endurminninga í fyllingu tímans á þessu jarðlífi, þegar ekkert er framundan og allt liðið, – tónlist sveipuð tregablæju einmanaleika, fortíðar og dauðagruns. Og í fiðlukonsertinum frá árinu 1975 má sjá voldug átök. Dýrustu og erfiðustu hættir tónlistarinnar eru sveigðir undir persónulegan og ástríðufullan tjáningarstíl. Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeistari fer á kostum: Dýpstu hræringar sálarinn- ar titra og verða heyranlegar á fiðlu- strengjunum. Svo leika hjónin Guðrún Óskars- dóttir semballeikari og Kolbeinn Bjarnason flautuleikari verkin sem Leifur samdi í Skálholti fyrir Helgu Ingólfsdóttur og Manúelu Wiesler. Þau eru samin 1978–87. Leifur dvaldi þá löngum við tónsmíðar og Manúela og Helga fluttu verkin jafn- óðum. Þetta var mjög eftirminnilegt þeim sem á hlýddu. Báðar voru þær snillingar á hljóðfæri sín, og Leifur næmur fyrir sérkennum spilara, sem hann notfærði sér í tónsmíðinni. Milli þeirra og Leifs myndaðist skapandi spenna. Gagnkvæmur inn- blástur átti sér stað. Það er sér- kennileg birta yfir þessum verkum, bæði einleiks- og samleiksverkun- um. Guðrún og Kolbeinn túlka verkin mjög ólíkt því sem Manúela og Helga gerðu að mig minnir. Einstök vandvirkni í smáatriðum og yfirveg- un einkennir túlkun þeirra, og í raun endurskapa þau þessi verk, flytja þau á sinn hátt, ólíkt því sem áður hafði verið gert. Og það er einkenni góðrar listar að hún þolir vel, raunar býður upp á, mismunandi túlkunar- máta og úrvinnslu. Þetta sannast á semb- al- og flautuverkum Leifs. Bandaríska tón- skáldið Gunther Schuller var mikill áhrifavaldur í lífi Leifs, kennari hans og síðar vinur og félagi. Schull- er er með áhrifamestu tónlistarmönnum vest- anhafs, jafnvígur á klassík og djass, af- burða hljómsveitar- stjóri og hefur nokkr- um sinnum stjónað Sinfóníuhljómsveit- inni. Að tilhlutan Schullers var gefinn út geisladiskur þar sem Caput-hópurinn sá um hljóðfæraleikinn. Þar er að finna Tríóið frá 1960 og Mósaík fyrir fiðlu og píanó sem sam- ið var 1961. Þessi verk eru „knöpp og klár í formi“ en þannig heyrði ég Leif lýsa samtímatónlistinni á þess- um árum. Tónskáldið agar tján- inguna í formviðjum röðunartækni- nnar. Að hlusta á þessi verk er líkt því að ganga yfir úfið hraun. Það er ekki alltaf auðvelt, en þar ber ým- islegt fagurt og óvanalegt fyrir augu. Snorri Sigfús Birgisson segir ein- hvers staðar um Leif: „Þegar ég kynntist tónverkum Leifs Þórarins- sonar fyrst lærði ég að leita að þræði sem í þeim er en liggur ekki alltaf í augum uppi. Það getur þurft að gefa sér nokkurn tíma til að finna þennan þráð en hann finnst að lokum og slitnar ekki. – Leifur kom heill að sínu verki.“ Svo er líka að finna á diskinum hina undurfögru Serenu við sjóinn fyrir fiðlu og hörpu, sem er samin 1995, og er sennilega upphafið að hinu forkláraða lokaskeiði Leifs. Það verk samdi Leifur sér sjálfum til sálubótar, til að sefa og stilla stríðan huga. Ég á nokkuð erfitt með að átta mig á ferli Leifs. Mér fannst um hríð að hann hefði spólað sig fastan í ein- kennilegum seríalisma. Þegar flestir aðrir, sem fiskað höfðu á sömu mið- um, breyttust, þá virtist mér hann hjakka í sama farinu, verk hans sam- anbarin og þvinguð. En hann fann sína leið að persónulegum og kraft- miklum tjáningarstíl, eftir að hafa brotist í gegnum sundurlausar stíl- blöndur þar sem listrænt hjálpar- leysi varð vegur lausnarinnar. Ég á við þau verk sem hann samdi á Ak- ureyri, en í einu þeirra lætur Leifur syngja bæn barnanna Ó, Jesú bróðir besti. Þetta er „falskur“ söngur og ámátlegur settur ofan í sundurtætt- an seríalisma. Þetta var stórkostleg listræn upplifun, utan alfaraleiðar. List hans var, á þessu skeiði ævinn- ar, óaðskiljanleg lífi hans. Hinn 5. febrúar næstkomandi hefjast Myrkir músíkdagar með tón- leikum Kammersveitar Reykjavíkur þar sem eingöngu verða flutt verk eftir Leif. Rut Ingólfsdóttir, formað- ur Kammersveitarinnar, og Kjartan Ólafsson, formaður Tónskálda- félagsins, eiga miklar þakkir skilið fyrir þetta stórhuga framtak. Ég hlakka til að heyra meistara- verk eins og Rent, strengjaverkið um hreinleikann, og Angelus Dom- ini, við texta Halldórs Laxness, þar sem engillinn ávarpar heilaga Guðs- móður, en þetta verk er kannski það tignarlegasta og einlægasta sem Leifur samdi, enda sanntrúaður kaþ- ólikki. Þá verður spennandi að heyra Drauminn um húsið, sem mig minnir að sé sprottið upp úr óperupæling- um. Leifur var leikhúsmaður að upp- lagi og eru hinir leikrænu þættir oft nálægir í verkum hans, þótt aldrei hafi honum auðnast að ljúka við óp- eru. Svo segir mér hugur að þessir tón- leikar verði einn af hápunktum yf- irstandandi tónlistarvertíðar. HUGLEIÐING UM LEIF ÞÓRARINSSON (1934–1998) Eftir Atla Heimi Sveinsson Leifur Þórarinsson Atli Heimir Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.