Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 27

Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 27 siðanefndar) og Persónuverndar. Þá er í þriðja lagi gert ráð fyrir að þar til að yfirlýsing WMA liggi fyrir séu báðir aðilar sammála um ákveðið bráðabirgðasamkomulag. Í því samkomulagi er gert ráð fyrir því að frá þeim tíma er ákvarðast af þeirri dagsetningu þegar fyrst verða flutt gögn í miðlægan gagna- grunn á heilbrigðissviði, að við- bættum sex mánuðum, verði „eng- in heilsufarsgögn notuð til vísindarannsókna á Íslandi án skriflegrar heimildar sjúklinga“. Farið verði með þau gögn sem nú eru til og þau sem verða til fram að ofanskráðum tíma samkvæmt ríkjandi hefðum og venjum við vís- indarannsóknir. Þá geti sjúklingur hvenær sem er óskað eftir að upp- lýsingum um hann sem farið hafa í gagnagrunna verði eytt. Hinn 28. desember sendi for- maður Læknafélagsins svar við drögum ÍE með uppkasti að nýjum drögum. Drögin eru áþekk tillögu Íslenskrar erfðagreiningar. Í 1. grein segir að almennt eigi að gilda alþjóðleg viðmið vísindasam- félagsins, eins og þau muni koma fram í væntanlegri yfirlýsingu WMA um álitaefni varðandi gagnagrunna á heilbrigðissviði. Þá skuli allar rannsóknir í gagna- grunnum á þessum upplýsingum vera háðar samþykki vísindasiða- nefndar og Persónuverndar. Í 2. grein segir að þar til yfirlýsing WMA liggi fyrir séu LÍ og ÍE sammála um ákveðin atriði varð- andi notkun heilsufarsupplýsinga í vísindarannsóknum. Fyrsta atriðið lýtur að því að strax og samþykkt- in gangi í gildi verði allir sjúkling- ar sem leita til heilbrigðisþjónust- unnar spurðir að því hvort þeir samþykki að heilsufarsupplýsingar þeirra megi nota til vísindarann- sókna og þeir skuli undirrita sér- stakt samþykkisblað sem embætti landlæknis útbúi í því skyni. Þá segir í öðru atriði þessa bráða- birgðasamkomulags að fram að til- teknum degi (D-degi) sé heimilt að flytja heilsufarsupplýsingar sem verða til vegna þjónustu við sjúk- linga í gagnagrunna enda hafi sjúklingur ekki sérstaklega lagt bann við slíkum flutningi. Eftir D- dag sé aftur á móti óheimilt að nota upplýsingarnar í vísindarann- sóknum nema sjúklingur hafi gefið samþykki (opið) og liggi ekki sam- þykki fyrir skuli upplýsingum um hann, sem fluttar voru í gagna- grunna fyrir D-dag, eytt án tafar úr gagnagrunnunum eftir D-dag. Óskuðu yfirlýsingar vegna samn- inga ÍE við heilbrigðisstofnanir Hinn 3. janúar sendir Kristján Erlendsson Sigurbirni tölvupóst og biður hann um að senda sér síð- asta skjalið á rafrænu formi til undirbúnings fundar þeirra mánu- daginn 8. janúar. Sigurbjörn svar- ar og segist hafa verið að spyrjast fyrir um hvort komið hafi fram yf- irlýsing frá Kára Stefánssyni við undirritun samninga við FSA varðandi viðræður ÍE við Lækna- félagið. Á fundi í desember milli ÍE og LÍ hafði Sigurbjörn lýst því yfir að yfirlýsing frá ÍE um við- ræðurnar við LÍ gætu mildað við- brögð félagsins gagnvart því að undirritaðir yrðu samningar við heilbrigðisstofnanir án þess að bú- ið væri að ganga frá samkomulagi á milli ÍE og LÍ. Í bréfinu segir Sigurbjörn að enginn kannist við að hafa heyrt slíka yfirlýsingu og spyr hvort hann geti fengið út- skýringu á því. Við undirritun samninganna hélt Kári ræðu, sem flutt var af munni fram, og samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri erfðagreiningu er hvergi til upptaka eða skráning á ræðu Kára. Aftur á móti telur Páll Magnússon, framkvæmdastjóri samskipta- og upplýsingasviðs ÍE, líklegt að Kári muni hafa komið yfirlýsingunni að enda hafi einu punktarnir sem Kári hafði með sér snúist um þessa yfirlýsingu. Í tölvupósti Einars Stefánssonar til Kristjáns Erlendssonar daginn fyrir undirritun samninganna segir að vegna viðræðna ÍE og LÍ um gagnagrunnsmálið þurfi að setja eftirfarandi texta í fréttatilkynn- ingu vegna undirritunar samninga og minnast þurfi á hann í ávarpi eða viðtölum: „Fulltrúar Íslenskr- ar erfðagreiningar hafa átt í við- ræðum við formann og varafor- mann Læknafélags Íslands um vísindasiðareglur er varða rann- sóknir sem byggjast á heilsufars- gögnum. Aðilar eru sammála um að rannsóknir á heilsufarsgögnum fari að landslögum og alþjóðlegum reglum og hefðum um vísindarann- sóknir, þ. á m. væntanlegri yfirlýs- ingu Alþjóðasamtaka lækna (WMA) um álitaefni varðandi gagnagrunna á heilbrigðissviði. Samningaferlið heldur áfram og vænst er samkomulags á næstu vikum, sem mun ná til fram- kvæmdar allra rannsókna sem byggjast á gagnagrunnum með heilsufarsupplýsingar.“ Hvort Kári lét þessa getið í ávarpi sínu liggur ekki ljóst fyrir, a.m.k. fékk stjórn Læknafélagsins enga staðfestingu á að slík yfirlýsing hefði verið flutt við undirritun samninga við FSA. Hinn 5. janúar sendir Sigur- björn Kristjáni annað bréf þar sem hann segist telja rétt að fella niður ráðgerðan fund 8. janúar. „Ég vil meta stöðuna með stjórn minni á þriðjudaginn m.t.t. atburða síðustu vikna, undirritunar samninga við heilbrigðisstofnanir og ýmissa um- mæla forstjóra ÍE, Kára Stefáns- sonar, sem hann hefur látið falla um viðræður ykkar við LÍ á liðn- um vikum svo og annars sem skoða þarf þegar maður reynir að fá heildarmynd af því sem gerst hefur síðan við hittumst í febrúar forðum.“ Stjórn Læknafélagsins ósátt við ummæli forstjóra ÍE Í bréfi sem stjórn Læknafélags- ins póstlagði til félagsmanna sinna 29. janúar kom síðan fram að stjórnin hafði slitið viðræðum við Íslenska erfðagreiningu um fram- kvæmd laga um miðlægan gagna- grunn á heilbrigðissviði. Í bréfinu kemur m.a fram að undirritun samninga ÍE við heilbrigðisstofn- anir gat ekki annað en skaðað þann trúnað sem þó hafði ríkt í viðræðunum þrátt fyrir ágreining. Þá tjáði Kári Stefánsson sig í sjón- varpsþætti skömmu áður en við- ræður voru teknar upp í desemb- er, þar sem ekki fór á milli mála, að mati LÍ, hver væri hin raun- verulega afstaða hans til viðræðn- anna. „Sagði hann þar að Lækna- félag Íslands væri enginn formlegur samningsaðili, það væri gott fyrir ímyndina að standa í þessum viðræðum og að það þjón- aði alls ekki hagsmunum LÍ að samningar tækjust,“ segir í bréfi stjórnarinnar. Kári Stefánsson kom fram í sjónvarpsþættinum Silfri Egils á Skjá einum hinn 10. desember 2000 þar sem velt var upp ýmsum þáttum varðandi starfsemi Ís- lenskrar erfðagreiningar. Meðal annars var vikið að vinnu við upp- setningu á miðlægum gagnagrunni á heilbrigðissviði og sagði Kári þá m.a. eftirfarandi: „Auðvitað viljum við ná sátt við Læknafélagið, auð- vitað viljum við ná sátt við sem flesta. En þegar kemur að fram- kvæmd á þessum lögum er Læknafélagið ekki formlegur samningsaðili og má að vissu leyti líta svo á, að þó svo að við vildum ná samkomulagi við Læknafélagið, og það er mjög mikilvægt að vissu leyti að gera það, sérstaklega ímyndarinnar vegna, má kannski leiða að því rök að það þjóni ekk- ert endilega hagsmunum Lækna- félagsins að ná slíku samkomulagi, vegna þess að þeir eru að vissu leyti fagfélag í þessu samfélagi sem á að vera gagnrýnið, á að horfa á þetta hvössum augum.“ Íslensk erfðagreining óskar eftir áframhaldandi viðræðum Í fyrrgreindu bréfi LÍ segir að það sé skoðun stjórnarinnar „að grundvöllur frekari viðræðna sé mjög veikur og trúnaður milli aðila lítill, ef ekki brostinn“. Þá segir að stefna aðalfundar LÍ, sem mörkuð var síðasta sumar, sé alveg skýr. Hún felist í því „að breyta skuli lögum um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði, þannig að gert verði ráð fyrir skriflegu samþykki einstaklinga fyrir flutningi upplýs- inga úr sjúkraskrám í grunninn“ og „að fá sérleyfishafann til að fylgja þessari meginreglu verði lögum ekki breytt“. Viðræðuslitin komu forráða- mönnum Íslenskrar erfðagreining- ar á óvart og sagði Einar Stef- ánsson í samtali við Morgunblaðið 30. janúar að viðræðuslitin hefðu valdið sér vonbrigðum. Að sögn Páls Magnússonar komu viðræðus- litin á óvart, þar sem Íslensk erfðagreining leit svo á að búið hefði verið að samþykkja helstu kröfu Læknafélagsins um sam- þykki sjúklinga. Fyrirtækið sé jafnframt reiðubúið til að taka fullt tillit til yfirlýsingar WMA þegar hún berst og notast verði við skrif- legt samþykki, a.m.k. þar til yf- irlýsingin liggur fyrir. Íslensk erfðagreining óskaði hinn 29. janúar eftir því við stjórn Læknafélags Íslands, að hún end- urskoðaði ákvörðun sína um að hætta viðræðum. Svar hefur ekki ennþá borist við þessari ósk Ís- lenskrar erfðagreiningar, að sögn Páls Magnússonar. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Frá aðalfundi Læknafélags Íslands á Ísafirði síðasta sumar, þar sem samþykkt var að ekki yrði við annað unað en að aflað væri persónulegrar heimildar varðandi flutning heilbrigðisupplýsinga í gagnagrunn á heilbrigðissviði. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, og Halldór Jónsson, forstjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, við undirritun samninga 19. desember sl. Í desember lýsti formaður LÍ því yfir að yfirlýsing frá ÍE um viðræðurnar við félagið gætu mildað viðbrögð félagsins gagnvart því að undirritaðir yrðu samningar við heilbrigðisstofnanir, án þess að búið væri að ganga frá samkomulagi á milli ÍE og LÍ. Morgunblaðið/Kristján

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.