Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 53
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert vingjarnlegur og
vinafastur en þarft að gæta
þín á því að halda ekki of fast
í forgengilega hluti.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Áætlun þín þarfnast mikillar
yfirlegu áður en þú getur
hrint henni í framkvæmd.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu ekki undan lönguninni
til eyðslusemi heldur haltu
fast um budduna. Gættu þess
að skrifa ekki undir neitt sem
gæti komið í bakið á þér
seinna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vertu spar á loforð og gefðu
þau þá því aðeins að þú getir
staðið við þau. Vertu skor-
inorður þegar þú útskýrir
hugmyndir þínar fyrir öðrum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hlýddu á rödd samvisku
þinnar þegar þú nú stendur
frammi fyrir vandasömu vali.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft ekkert að óttast það
að treysta þínum nánustu fyr-
ir væntingum þínum og
draumum og jafnvel þiggja
eitt eða tvö ráð um það hvern-
ig þú getur látið draumana
rætast.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Stórhuga áætlun þín gengur
ekki upp nema þú leitir þér
aðstoðar hjá öðrum því það er
ekki á neins eins manns færi
að hrinda henni í framkvæmd
svo vel sé.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Stundum verður að meta
hlutina kalt og rólega og
leggja tilfinningarnar til hlið-
ar því okkur hættir svo til að
líta framhjá staðreyndum
þegar þær einar ráða ferð-
inni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er hyggilegt að vera við
öllu búinn þótt enginn teikn
séu um afturkipp en ef til
hans kemur gerir hann ekki
meiri skaða en það sem
minnst má verða.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Taktu það ekki illa upp þótt
vinir þínir séu þér ekki sam-
mála í öllu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Eitthvað óvænt kemur upp á í
dag og þú skalt þess vegna
vera við öllu búinn því þá
þarftu ekki að eyða dýrmæt-
um tíma í að leita að leiðrétt-
ingunni.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það hefnir sín alltaf að eyða
um efni fram svo þú skalt
hafa nánar gætur á útgjöld-
unum svo þau fari ekki úr
böndunum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú átt í einhverjum erfiðleik-
um með að koma málstað þín-
um skammlaust til skila. Þú
þarft þess vegna að setjast
niður og fara í gegnum málið
áður en þú flytur það fleirum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SUÐUR spilar þrjú grönd
og vestur leggur á bratt-
ann með laufgosa. Þú ert í
austur:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ KG102
♥ K103
♦ 1054
♣K52
Austur
♠ 8653
♥ 9752
♦ KG92
♣Á
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass Pass 1 grand *
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 3 grönd Allir pass
* 15-17 HP.
Sagnhafi lætur lítið lauf
úr borði og ásinn þinn slær
vindhögg. Hvað hyggstu
gera í öðrum slag?
Það blasir við að skipta
yfir í tígul, en það er ekki
alveg sama hvaða tígull
verður fyrir valinu. Tían í
blindum er ógnandi (og
iðulega vanmetin), og rétta
spilið hér er tígulgosinn:
Norður
♠ KG102
♥ K103
♦ 1054
♣ K52
Vestur Austur
♠ 974 ♠ 8653
♥ 84 ♥ 9752
♦ Á83 ♦ KG92
♣G10987 ♣Á
Suður
♠ ÁD
♥ ÁDG6
♦ D76
♣D643
Ef þú spilar tvistinum,
hleypir sagnhafi á tíuna og
drottningin verður á end-
anum fyrirstaða. Gosinn út
rekur fleyg á milli drottn-
ingar og tíu, sem sagnhafi á
ekkert svar við. Ekki dugir
suðri að dúkka, og ef hann
setur drottninguna, drepur
makker með ás og sendir
tígul í gegnum tíu blinds,
þar sem þú bíður með K92.
Á ensku heitir þessi spila-
mennska „surrounding
play“, en á íslensku hefur
orðið „fleygbragð“ heyrst,
þótt það sé svo sem ekki
orðrétt þýðing. Detti
mönnum betra orð í hug
væri gaman af frétta af því.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
SÍÐAST var rætt um
beygingu nafns þess
félags sem rekur Mbl., þ.e.
Árvakurs hf. Hún fer eftir
no. akur, í fornu máli akr,
þar sem á síðari málstigi
var u-i skotið inn í beyg-
inguna en r-ið hélzt áfram
í öllum föllum. Í því sam-
bandi var nefnt no. farald-
ur, sem beygist eins, og
faraldursfræði tekið sem
dæmi um samsetningu.
Tæplega hafði pistill minn
birzt, þegar sjá mátti hið
gagnstæða hér í blaðinu. Í
Mbl. 20. jan. sl. birtist löng
grein sem nefndist Far-
aldsfræðilegar rannsóknir
hjá Krabbameinsfélaginu
og var eftir faraldsfræðing
félagsins. Ef. þessa no. er
ævinlega í greininni far-
alds, aldrei faraldurs.
Þegar litið er í OM frá
1983, sést, að þar eru
gefnar upp báðar orð-
myndir, farald og faraldur
og seinni myndin, aðallega
sem kk.orð, en líka sem
hk.orð. Í seðlasafni OH
eru 4 dæmi um farald og
elzt frá 19. öld: kom þá
dæmalaust farald í hunda
og ketti. Hins vegar eru
þar 34 dæmi um hk.-
myndina faraldur og hið
elzta frá um 1600. Frá
sömu öldum og fram á
þennan dag er einnig talað
um faraldur í kk. Á síðustu
áratugum hefur faraldurs-
fræði verið mikið til um-
ræðu. Er ljóst, að menn
hafa ekki farið sömu leið
við notkun samsettra
orða. Vilmundur Jónsson
landlæknir talar um far-
aldurssögu um 1950 og frá
1990 er dæmi um no. far-
aldursfræðingur í OH.
Ólíkur smekkur virðist
ráða hér.
- J.A.J.
ORÐABÓKIN
Faraldur
LJÓÐABROT
Sveitin mín
Fjalladrottning, móðir mín!
mér svo kær og hjartabundin,
sæll ég bý við brjóstin þín,
blessuð aldna fóstra mín.
Hér á andinn óðul sín
öll, sem verða á jörðu fundin.
Fjalladrottning, móðir mín,
mér svo kær og hjartabundin.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
Engið, fjöllin, áin þín,
yndislega sveitin mín,
heilla mig og heim til sín
huga minn úr fjarlægð draga.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
Sigurður Jónsson frá Arnarvatni
Árnað heilla
90 ÁRA afmæli. RagnarJóhannsson, fv.
skipstjóri á Ísafirði og síðar
kaupmaður í Reykjavík, til
heimilis í Lönguhlíð 15,
Reykjavík, verður 90 ára á
morgun, 5. febrúar.
MARGIR íslenskir skák-
menn eiga minningar frá
skákferðalögum til Gaus-
dals í Noregi. Á árum áð-
ur réð þar Arnold Eikrem
ríkjum og fékk fjöldinn
allur af íslenskum ung-
lingum eldskírn sína á
mótum hans. Hann lést
fyrir nokkrum árum og
hefur sonur hans reynt að
viðhalda þeirri hefð sem
faðir hans byggði upp. Þó
að slagkrafturinn sé ekki
eins mikill og áður eru
engu að síður haldin þar
mót nokkrum sinnum á
ári. Staðan kom upp í
Tröllameistaramóti Gaus-
dals sem lauk fyrir
skömmu. Hvítt hafði stór-
meistarinn Einar Gausel
(2.481) gegn finnska koll-
ega sínum Heikki Wes-
terinen (2.405). 10. Ba6!
Rxe5 11. Bxb7 Rg6 12.
Bxa8 Dxa8 13. Rd2 Hvít-
ur hefur nú skiptamun yf-
ir og að því er virðist létt-
unnið tafl. Það er
hinsvegar ekkert áhlaupa-
verk að sigrast á gömlu
kempunni frá Finnlandi
og tók það meira en 40
leiki í viðbót fyrir Norð-
manninn að innbyrða
vinninginn. Lokastaða
efstu manna varð þessi:
1.–2. Ralf Akesson og
Stella Brynell 7 vinningar
af 9 mögulegum. 3.–4. Joe
Gallagher og Einar Gaus-
el 6½ v. 5.–7. Bin-Sattar
Reefat, Maris Krakops og
Leif Erlend Johannessen
6 v.
Meistaramót Hellis
hefst á morgun, mánudag,
klukkan 19:30 í félags-
heimili Hellis, Þöngla-
bakka 1 í Mjódd. Aðsókn
hefur verið góð að þessu
móti á undanförnum ár-
um, enda hefur vegur
félagsins farið mjög vax-
andi. Tefldar verða kapp-
skákir, sjö umferðir. Góð
verðlaun eru í boði og ekki
einungis fyrir þá sem efst-
ir verða, heldur verða
einnig sérstök verðlaun
fyrir skákmenn undir
2.000, 1.800, 1.600 og 1.400
stigum, ásamt sérstökum
verðlaunum fyrir stiga-
lausa auk barna- og ung-
lingaverðlauna.
SKÁK
Umsjón Helgi
Áss Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Aldrei meira úrval af nýjum
brúðarkjólum
Ítölsk föt fyrir herra
FATALEIGA GARÐABÆJAR
sími 565 6680
Opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14.
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudaginn 9. febrúar og laugardaginn
10. febrúar í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 553 8800.
Meðvirkni
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið Stefán Jóhannsson, MA,
fjölskylduráðgjafi
Aukið sjálfsöryggi
meira jafnvægi
Upplýsingar í síma 694 5494
Nýtt námskeið hefst
7. febrúar
Með sjálfsdáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða upp-
byggingu á öllum sviðum.
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
Garn- og prjónalistinn
Margaretha
Póstverslun fyrir hannyrðavini
Sími 533 5444
Fax 533 5445
Netfang: hv@margaretha.is
Veffang: margaretha.is
Margaretha ehf. hefur nú ákveðið að
bæta við úrvalið hjá sér af hannyrðavörum
og er okkur því sönn ánægja að kynna
Garn- og prjónalistann á Íslandi.
Vörulistinn sem inniheldur það allra nýjasta í
garni og prjónaskap kemur frá „Garntjänst“
sem er stærsta póstverslunin í
Svíþjóð, sem selur garn.
Í listanum er að finna hefðbundið
garn og munstur og það allra nýjasta.
Einnig er að finna úrval af útsaumsvörum.
„Garntjänst“ er eitt af elstu vefnaðarvöru-
fyrirtækjum í Svíþjóð og á rætur
sínar að rekja til ársins 1864.
já takk! Sendið mér póstlistann — mér að KOSTNAÐARLAUSU!
Nafn
Heimilisfang
Póstnúmer
Margaretha, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, s. 533 5444
✂ Svarseðill
Nýtt á Íslandi - pantið ókeypis eintak
ÁSKRIFTARDEILD
netfang: askrift@mbl.is eða sími 569 1122