Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 58

Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Naten me› kaupauka hjá Lyf & heilsu Kau pau ki -fjölbreytt fæ›ubót sem fólk talar um! w in th er /0 10 1 In nf ly tja ns di : H ei ld ar næ ri ng e hf • D re ifi ng : L yf ja dr ei fin g eh f - S ím i: 58 8 67 00 Páll Rósinkrans og hljómsveit á Borginni 17. og 24. febrúar Aðeins fyrir matargesti 1930 Brasserie á Hótel Borg Nýr matseðill 2 rétta hádegisverður frá kr. 1.190,- 3ja rétta Skuggabars afmælis matseðill frá kr. 3.350,- Tökum frá borð fyrir matargesti á Skuggabar eftir kvöldverð sé þess óskað. Borðapantanir í síma 551 1247. ÞÆR ERU mismunandi tilfinn-ingarnar sem vakna við þáiðju að hitta annað fólk. Oft- ast kvikna þær út frá þeim litlu upp- lýsingum sem maður hefur um ein- staklingana áður en maður mætir þeim. Það að rekast á Hákon Má Örvarssonar þessa dagana þykir mörgum eflaust skemmtilegt og ekki nóg með það því sú upplifun er líkleg- ast afar örvandi fyrir munnvatns- kirtlana. Og það af öllum réttu ástæðunum. Eins árs undirbúningur Hinn 24. janúar síðastliðinn hafn- aði hann í þriðja sæti í matreiðslu- keppninni Bocuse d’Or sem haldin er á tveggja ára fresti fyrir norðan Lyon í Frakklandi. Keppnin hefur verið haldin frá árinu ’87 en það var einn virtasti matreiðslumaður Frakklands, Paul Bocuse, sem „kveikti fyrst undir hellunni“, ef svo má að orði komast. Bocuse er sjálfur meðal þeirra sem velja hvaða þjóðir fá að senda fulltrúa sinn í keppnina. Þau lönd sem ná góðum árangri verða svo sjálfkrafa með næst. Þetta var í annað skipti sem Ís- lendingur tekur þátt en það var vel- gengni Sturlu Birgissonar, yfirmat- reiðslumeistara Perlunnar, í keppninni fyrir tveimur árum sem tryggði Íslendingum keppnisréttinn í ár. Hann lenti í fimmta sæti og sat þetta árið í dómnefndinni sem fulltrúi Íslands. „Manni er skylt að elda úr því sem er á staðnum,“ útskýrir Hákon. „Það er að segja, úr þessum grunnhráefn- um sem voru að þessu sinni barri og lamb. Grænmeti og annað slíkt máttu hafa með þér eða taka við á staðnum. Við not- uðumst við grænmeti og kryddjurtir sem við keypt- um daginn áður á markaðn- um. Það var í rauninni ekk- ert íslenskt hráefni í réttunum, nema hvað ég fór með lambavömb með mér og íslenskan humar.“ Hugmyndavinnan hófst fyrir rúmu ári þannig að í raun má segja að það hafi tekið ár að útbúa þessa verðlaunamáltíð. „Við vorum eiginlega alveg búnir að ákveða hvernig réttirnir ættu að vera. Allur nóvember og desember fóru t.d. í það að æfa réttina. Þú þarft að matreiða þá innan tímamarka þannig að það þarf rosalega mikla skipulagningu og hafa vinnutækni, áhöld og allt annað á hreinu. Eftir fimm klukkustundir átti að skila fisk- inum og svo 35 mínútum síðar lamb- inu. Réttirnir voru svo bornir fram á metralöngum bökkum.“ Eigi skal dæma bók eftir kápunni eða steik eftir útliti, þó svo að það hafi líklegast aldrei skemmt fyrir neinum að hafa þessa hluti á hreinu. „Bragðið vegur mest, en útlitið og frumleiki skipta líka miklu máli.“ Hákon var ekki eini Íslendingur- inn sem vann til verðlauna þennan dag því aðstoðarsveinn hans, Frið- geir Ingi Einarsson, vann önnur verðlaun aðstoðarmanna. Þrír efstu kokkarnir fengu plötu með nafninu sínu útskornu festa niður við inngang veitingahússins auk verðlaunagrips sem búinn var til úr samanþjöppuð- um hnífapörum. Eins og að vera á fótboltaleik Margir velta því eflaust fyrir sér hvaða þýðingu það hefur að komast á verðlaunapall í þessari keppni. „Geysilega mikla þýðingu, þá sér- staklega fyrir sigurvegarann. Til dæmis stofnaði sá sem vann síðast rakleiðis veitingahús og fékk styrkt- araðila til þess að borga eldhúsið. Þannig að öll þessi fyrirhöfn marg- borgar sig.“ Ætli Hákon sé í einhverjum slík- um hugleiðingum, að fara út í sinn eigin veitingahússrekstur? „Já, það er alveg inni í myndinni.“ Að vera viðstaddur keppnina sjálfa er víst ekki harla ólíkt því að mæta á spennandi fótboltaleik. Margir eldri sigurvegarar mæta á staðinn og rölta um í einkennisbúningum sínum og í stúkunni má sjá stuðningslið sem hvetja og styrkja sína menn. „Stemmningin þarna er alveg þannig að maður heyrir ekki manna á milli. Það eru svo margir gaslúðrar. Það myndast mjög spennuþrungið andrúmsloft. Allan undirbúningstím- ann var spiluð mjög hávær tónlist til þess að fá stemmningu á áhorfenda- pallana. Þetta er orðið eins og sirkus í bland við alla alvöruna í kringum þetta. Þetta var mjög mikil upplif- un,“ segir Hákon að lokum. F.v. Hákon Már, Friðgeir Ingi Einarsson og Gunnar Davíð Chan aðstoð- armenn hans við plötuna sem skrúfuð var niður fyr- ir utan veitingastað Paul Bocuse. Réttirnir voru bornir fram á metralöngum bökkum. Hér má m.a. sjá sig- urvegarann franska François Adamski, Hákon með verðlauna- gripinn, eiginkonu hans, Söru Hlín Pálsdóttur, og mánaðargamla óskírða dóttur þeirra í örmunum á Paul Bocuse mat- reiðslumeistara. Hákon Már að störfum. „Áfram Ísland!“ Það var stuð í stúkunni, trommu- sláttur og læti. Sturla Birgisson var ein- beittur í dómnefndinni. „Fyrirhöfn- in marg- borgar sig“ Þeir eru eflaust ófáir sem væru til í að fara í matarboð til Hákonar Más Örvars- sonar. Því tók Birgir Örn Steinarsson hressilega í höndina á honum þegar þeir mættust um daginn. Bocuse d’Or-ævintýri Hákonar Más í Frakklandi         

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.