Morgunblaðið - 04.02.2001, Síða 64

Morgunblaðið - 04.02.2001, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. Á HEIMSMÆLIKVARÐA S: 569 7700 VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR 1,5%, en þar á meðal er Ísland. Allur ís á Ís- landi er hins vegar 1% af öllum ís utan Suð- urskautslandsins og Grænlands. Þó myndi ís- inn hérlendis duga til þess að þekja allt Ísland með 40–50 m þykku íslagi ef hann væri jafn- dreifður yfir landið. Að sögn Helga Björnssonar, jöklafræðings við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, er lítil vetrarafkoma nú helsta ástæða rýrnunar jökla á Íslandi. „Það hefur lítið snjóað undanfarin fimm ár og einkum þess vegna hafa jöklar landsins rýrnað mjög hratt,“ segir Helgi. Hann flaug nýlega yfir Vatnajökul og segir nú mjög lítinn snjó vera á jöklinum. Samkvæmt rannsóknum Helga á búskap Vatnajökuls mældist vetrarafkoma jökulsins STÆRSTI jökull á vesturhluta Suðurskauts- landsins verður horfinn eftir 600 ár ef hann heldur áfram að bráðna með sama hraða og hann gerir nú, samkvæmt fréttum Reuters. Auk þess myndi sjávarborð hækka um 6 metra ef ísþekjan í heild á vesturhluta Suð- urskautslandsins bráðnaði að fullu, en hún hefur rýrnað stöðugt frá lokum ísaldar. Mælingar á Vatnajökli benda til að sama framvinda eigi sér stað hérlendis þótt ísmagn- ið sé vart umtalsvert í samanburði við hinn gríðarlega ísmassa á Suðurskautslandinu. Ef allur ísmassinn á öllu Suðurskautslandinu bráðnaði myndi sjávarborð hækka um 80 metra, en 90% alls íss á jörðinni er á Suð- urskautslandinu. Í Grænlandi eru um 8,5% ís- massa jarðar og á öllum öðrum svæðum aðeins árið 2000 1,5 m af vatni jafndreifðu yfir allan jökulinn. Sumarleysing í fyrra mældist hins vegar 2,3 m af vatni og því var heildarafkoma jökulsins neikvæð um tæpan metra. Leita þarf aftur til áranna 1992–1994 til að finna jákvæða heildarafkomu Vatnajökuls, þar sem vetraraf- koman var meiri en sumarleysingin. „Hér á landi höfum við ekki orðið vör við þá hlýnun á síðustu áratugum sem sést hefur á meginlöndum og rakin er til aukinna gróð- urhúsaáhrifa. Slík hlýindi eru talin sjást í rýrnun suðurskautsíssins, sem áður var greint frá.“ Helgi varpar hins vegar fram þeirri spurn- ingu hvort aukin gróðurhúsaáhrif geti breytt braut lægða upp að landinu og þannig dregið úr úrkomu svo að jöklarnir rýrni. Vatnajökull að bráðna líkt og suðurskautsísinn ÍBYGGINN á svip tók þessi neta- gerðarmaður á móti þrautreyndum trollum til skoðunar á Grandagarði á dögunum. Það er líka vissara að trollin séu vel undir það búin að færa okkur vænan fisk úr sjó. Trollskoðun á Granda- garði Morgunblaðið/Rax GARÐABÆR auglýsir um helgina eftir tilboðum í rekstur nýs leikskóla í Ásahverfi. Leikskólinn er í bygg- ingu og verður húsnæðið í eigu bæj- aryfirvalda en verið er að bjóða út umsjón og rekstur skólans. Gert er ráð fyrir að leikskólinn skiptist í fjór- ar deildir og að þar geti verið allt að 92 börn samtímis. Áætlað er að verk- samningur við nýjan rekstraraðila taki gildi 1. júní næstkomandi og að leikskólastarf hefjist hálfum mánuði síðar, eða 15. júní. Litið til reynslu bjóðenda og styrks Í útboðsgögnum kemur fram að sama gjaldskrá skal vera í hinum nýja leikskóla og hjá leikskólum sem reknir eru af sveitarfélaginu. Við mat á tilboðum er m.a. litið til reynslu bjóðenda og styrks, draga að skólanámskrám og tilboðsfjárhæðar. Í tilkynningu frá Garðabæ segir Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri að með útboðinu vilji bærinn höfða til metnaðarfulls fagfólks sem hefur áhuga á að byggja upp nýjan leik- skóla á grundvelli aðalnámskrár leikskóla og laga og reglugerða sem gilda um starfsemi leikskóla. „Þörf á uppbyggingu leikskóla í Garðabæ hefur farið vaxandi á und- anförnum árum og bæjaryfirvöld hafa lagt sig fram um að hraða bygg- ingu leikskólahúsnæðis. Um leið er lögð sérstök áhersla á að efla innra starf leikskólanna. Með nýjum leik- skóla vonumst við til að geta stytt biðlista eftir leikskólaplássi enn meira og markmiðið er að sem flest börn, sem verða tveggja ára á þessu ári, komist inn á árinu,“ segir Ásdís Halla. Sem fyrr segir er útboðið auglýst nú um helgina. Hægt er að kynna sér skilmála á vef Garðabæjar en út- boðsgögn liggja frammi á bæjar- skrifstofum Garðabæjar. Garðabær býður út rekstur leikskóla VEGNA hlýindanna að undanförnu og votviðrisins hefur Vegagerðin þurft að setja upp öxulþungatak- markanir á vegum víða um land, einkum á Norðurlandi og Austfjörð- um. Að sögn vegaeftirlitsmanna er þetta afar óvenjulegt á þessum árs- tíma, í byrjun febrúar. Greiðfært er um flesta vegi landsins en víða hálkublettir á fjallvegum á Vest- fjörðum og Norðausturlandi. Engin verkefni er að hafa fyrir snjóruðn- ingstæki sem í febrúarbyrjun verður að teljast einstakt. Öxulþunginn er víðast takmarkað- ur við tíu tonn og einstaka vagnlest má aldrei fara yfir 40 tonn í heild- arþunga. Á stöku malarvegum er miðað við 7 tonn að hámarki þegar aurbleytan er hvað mest. Viðkvæm- asti tíminn fyrir bundið slitlag er þegar frostið fer úr jörðu. Hætta er á að það skemmist eða jafnvel eyði- leggist við umferð þungra ökutækja á borð við flutningabíla með tengi- vagna. Kólnandi veður Veðurhorfur í dag eru þær að austanáttir, 8–13 metrar á sekúndu, verða víðast ríkjandi á landinu og skýjað með köflum. Dálítil él sunn- an- og austanlands. Veður fer kóln- andi og víða er búist við vægu frosti. Frostlaust verður þó með suður- og vesturströndinni. Þungatak- markanir í öllum lands- hlutum Óvenjulegt ástand á vegum landsins SALA á nýjum bílum dróst saman um 41,6% í janúar frá sama mán- uði 2000, að því er fram kemur í bráðabirgðatölum frá Skráningar- stofunni hf., sem heldur utan um bifreiðatölur. Alls seldust 645 nýir bílar í mánuðinum en 1.105 bílar í janúar í fyrra. Söluhæsta gerðin var Toyota sem seldist í 124 ein- tökum sem er 19,2% markaðshlut- deild, hlutdeild VW var 13,6% og Nissan 9,5%. Allt síðasta ár var tæplega 12% samdráttur í sölu á nýjum bílum. Tæplega 42% samdráttur í bílasölu  Mikið/D1 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ UNGUR maður ók á ljósastaur á Reykjanesbraut á móts við Hlíða- smára í gærmorgun. Að sögn lög- reglu slasaðist maðurinn, sem er ný- kominn með bílpróf, ekki alvarlega en bíllinn er talinn ónýtur. Tildrög slyssins voru að maðurinn missti stjórn á bílnum þegar hann var að stilla útvarpstæki með þeim afleiðingum að hann ók útaf veginum og á ljósastaurinn. Staurinn gekk inn í húddið, brotnaði og lenti ofan á þaki bílsins sem féll að hluta til saman. Að sögn lögreglu var mikil mildi að mað- urinn skyldi ekki slasast, en hann var í bílbelti og við áreksturinn blés öryggispúði bílsins út. Ungur öku- maður ók á ljósastaur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.