Vísir - 11.06.1979, Side 17
21
VtSIR Mánudagur 11. júnl 1979
Keppnissvæði rall-i-kross manna að Möum á Kjaiarnesi en þar hefur
BÍKR látið ryðja þokkalega braut.
Enn bætlst vlö bllrelOaíbröttlrnar:
RALL-I-KROSS
Hinn 16. júni næstkomandi verður haldin kynning á einni tegund bif-
reiðaiþrótta sem nefnist á islensku rall-i-kross. Það eru félagar i Bif-
reiðaiþróttakiúbbi Reykjavlkur sem stunda þessa spennandi Iþrótta-
grein og er hún fóigin f þvi að 4-6 bilar aka á lokaðri braut nokkra hringi
og er um að ræða kappakstur.
Nú loks hafa leyfi fengist fyrir
þessari keppni og tryggingar
komnar á hreint. Strangar
öryggiskröfur eru gerðar til rall-i-
kross ökutækja en bifreiðarnar
eru ekki skráð ökutæki. 1 bif-
reiðunum þarf að vera veltibúr, 4
punkta öryggisbelti o.fl.
Fyrsta rall-i-kross keppnin
verður 30. júni. Brautin sem
keppt verður á er 950 metra löng
og hefur BIKR lagt hana i landi
Móa á Kjalarnesi en þar verður
kynningin hinn 16. júni. Fyrir-
hugaðar eru 4-6 keppnir þarna i
sumar og i haust.
1 kvöld verður haldinn almenn-
ur fundur hjá BIKR og verður
hann i ráðstefnusal Hótel Loft-
leiða og hefst hann kl. 20.30. Rætt
verður um rall-i-kross og Visis-
rallið i sumar.
Hrlngferð skáta
um Auslurland
Skátastarfsemi hefur staðið
með miklum blóma á Austurlandi
i vetur og verður siðar i sumar
haldið mikið mót til að ljúka
verkefnum vetrarins. Það hefst
24. júliá Egilsstöðum og stendur i
6 daga. Fyrst verður haldið til
Seyðisfjarðar og siðan með skipi
til Neskaupstaðar og verður þar
fjölbreytt dagskrá með kvöld-
vöku.
Næst er haldið til Reyðar-
fjarðar og þaðan i gönguferð upp
á Hérað og i tjaldbúð i Skriðdal og
verður þar dagskrá i nokkra
daga. Loks verður svo haldið á ný
til Egilsstaða og mótinu slitið þar.
Þetta er nýstárlega skátamót
er haldið á vegum skátafélag-
anna á Egilsstöðum og Neskaup-
stað og tilkynnist þátttaka
þangað en gert er ráð fyrir að
félögin um allt land sendi 1-3
flokka á mótið. —u
Meðalaldur fyrlrtækja í
byggingariðnaði brjú ár
„Afleiðingar lélegrar afkomu I
byggingariðnaðinum má greini-
lega sjá af þvi að yfir 80% fyrir-
tækja i honum eru með 5 starfs-
menn eða færri” segir I skýrslu er
Landssamband iðnaðarmanna
sendi frá sér nýverið.
1 skýrslunni er vitnað til at-
hugunar sem fram fór á árinu
1974. Þá kom i ljós að frá 1972 til!
1973 hætti þriðja hvert fyrirtæki I
húsasmiði rekstri og ný komu i
staðinn þannig að meðalaaldur
fyrirtækjanna var um 3 ár.
Telja iðnaðarmenn þetta meðal
annars stafa af mjög sveiflu-
kenndri lóðaúthlutun og of mikilli
lóðaúthlutun til einstaklinga.
Gerir það byggingaraðilum mjög
erfitt fyrir aö koma við hag-
ræðingu i rekstri þar sem til þess
þarf venjulega nokkra fjárfest-
ingu sem menn eru ekki reiðu-
búnir að leggja út i vegna óvissu
um frekari lóðaúthlutun.
—ÓM
Lððadthlulun flregsl
saman ð Slör-
Reyklavikursvæðinu
Lóðaúthlutun hefur dregist
verulega saman á Stór-Reykja-
vikursvæöinu á þessu ári og
veröur i ár aðeins úthlutað um 340
lóöum á þessu svæði en var I fyrra
738. Þetta kemur m.a. fram i
viðamikilli skýrslu sem Lands-
samband iðnaðarmanna hefur
tekið saman i samráði við
Þjóðhagsstofnun.
Lóðaúthlutanir i Reykjavik
eru ráðgerðar um 150 i ár en voru
522 i fyrra. 1 Kópavogi er ekki
gert ráð fyrir úthlutunum i ár,en
siðastþegar úthlutað var þar 1977
voru úthlutanir 158. Það er þó tek-
ið fram i umræddri skýrslu aö
fjöldi úthlutaðra lóða segi ekki
alla söguna um ástand i bygg-
ingariðnaðinum, þar eð áhrifa
lóðaúthlutunar taki ekki að gæta
strax. Lóðir þær sem nú er út-
hlutaö verða margar hverjar ekki
byggingarhæfar fyrr en á árinu
1980 eða síðar og gera iðnaöar-
menn þá ráð fyrir að samdráttar-
ins fari aö gæta verulega. Þess er
og að geta að inni i þessu dæmi
eru ekki eignarlóðir en ekki er
vitað nákvæmlega um fjölda
þeirra.
AKARN H.F.,
Strandgötu 45, Hafnarfiröi,
sími 51103, heimasími 52784.
NORSK
■^OAVARA
Cjörbylting
ígerð
milliveggja-
ryðfrítt stál notað
í stað timburs.
Gjörið svo vel að líta inn,
eða hringið í síma 38640.
£& Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
'Armúla 16 ■ Reykjavík ■ sími 38640
Ódýrara, styttir upp-
setningartímann,
tryggir, að grindin
verpist ekki.
Frá KPS, stærstu heimilistækjaverksmiðju Noregs bjóðum við
stórglæsilegt úrval eldavéla, kæliskápa og uppþvottavéla á
mjög hagstæðu verði. Góðir greiðsluskilmálar. Tiskulitir:
Karry gulur, Avocado grænn, Inka rauður, hvitur og það allra
nýjasta: svartur. -----------------------
Sendið úrklippuna til okkar Nafn..................
og við póstleggjum bækling strax.
Heimilisfang
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaöastræti 10 A — Sími 16995.
—ÓM