Morgunblaðið - 01.04.2001, Blaðsíða 40
MINNINGAR
40 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
hús eru jafn ófúin og þau hefðu verið
reist í gær. Hitt er svo satt að um við-
hald þeirra hefur verið rekin sams
konar pólitík og sveitastúlkur reka
þegar þær láta tennurnar í sér grotna
niður og verða að geiflum svo þær
geti síðan farið suður og keypt sér
falskan góm.“ Rikki vildi enga falska
góma, þeir áttu að vera ekta. Hann
vildi að söguþjóðin gerði sér sem
gleggsta grein fyrir sérstöðu sinni og
lífsháttum og legði rækt við verndun
þeirra verðmæta sem hér er að finna.
Gegnum samvinnuna í Torfusam-
tökunum tengdumst við Rikki vin-
áttuböndum sem ekki rofnuðu þótt
samfundum fækkaði hin síðari ár.
Síðast hitti ég hann í Helsingfors fyr-
ir ári, þá fékk ég tækifæri til að kynna
mér forvörsludeildina við Listahá-
skólann þar. Rikki veitti þessari deild
forstöðu. Eldmóður skein úr augum
hans þegar hann sagði frá öllum þeim
margvíslegu verkefnum sem þarna
var unnið að í því skyni að bjarga
menningarverðmætum frá glötun og
skerpa þekkingu á sögu þjóðarinnar.
Ég sannfærðist um að þarna væri
réttur maður á réttum stað. Samt
vonaði ég innilega að Rikki kæmi aft-
ur heim til þess að leggja lið baráttu
fyrir betra mannlífi og betri borg sem
alltaf þarf að vera í gangi. Opna augu
og hvetja menn til dáða á hinum ýmsu
sviðum. Við fórum saman til Tallin,
kvöddumst og ætluðum að hittast aft-
ur hress og kát. Af því varð ekki.
Fjölhæfur maður með frómt hjarta
hefur yfirgefið okkur og ekki annað
eftir en þakka honum góð kynni og
samfylgd sem ávallt var uppbyggileg
og fræðandi. Hans nánustu sendi ég
innilegar samúðarkveðjur.
Guðrún Jónsdóttir arkitekt.
Ríkharð Halldór Hördal, forvörður
og deildarstjóri forvörsludeildar
EVTEK Institute of Art and Design,
lést í Helsinki 19. mars 2001. Hann
hafði þá verið á gjörgæsludeild eftir
umferðarslys frá því 28. janúar.
Ríkharð fæddist árið 1946 í Lundar
í Kanada. Báðir foreldrar hans voru
af íslensku bergi brotnir og þar ólst
Ríkharð upp. Hann lauk fyrsta há-
skólaprófi í Winnipeg með sagnfræði
sem aðalgrein. Árið 1968 fluttist Rík-
harð til Íslands og lauk þar fyrst prófi
í íslensku fyrir erlenda stúdenta og
síðan cand. mag. prófi í enskum bók-
menntum áður en hann fann sinn
rétta starfsvettvang. Hann lauk námi
í forvörslu málverka við Konunglegu
listaakademíuna í Kaupmannahöfn
og vann eftir það um skeið við Munch-
safnið í Ósló. Þá sneri hann aftur til
Reykjavíkur og vann við málverka-
viðgerðir í fyrirtæki sínu, Morkin-
skinnu, á árunum 1983–1992.
Árið 1992 var Ríkharð boðið að
flytja fyrirlestra um forvörslu mál-
verka við Vantaa School of Arts and
Crafts í Finnlandi. Hann varð fljót-
lega mjög virkur í að efla starfsemi
skólans og árið 1994 varð hann deild-
arstjóri forvörsludeildar skólans, sem
hafði þá breytt um nafn og heitir nú
EVTEK Institute of Arts and Design.
Árið 2000 var hann skipaður dósent í
forvörslu við stofnunina.
Ríkharð var mjög fróður um hvers
kyns menningarmál. Hann var sólg-
inn í að glíma við vandamál og var
sannkallaður baráttumaður, en hann
hafði líka ríka kímnigáfu og þegar við
þetta bættist lagni hans við að fást við
fólk, þá tókst honum að fá það í gegn
sem þurfti. Honum tókst að byggja
upp Vantaa-stofnunina sem alþjóð-
lega menntastofnun á örstuttum
tíma. Hann átti drýgstan þátt í endur-
skoðun og þróun námsefnis sem nú
telst meðal þess besta við evrópska
háskóla. Hann byggði einnig upp
mjög gott handbókasafn fyrir styrk
sem hann fékk frá Getty-stofnuninni í
Bandaríkjunum.
Ríkharð hafði mikil tengsl við sér-
fræðinga um allan heim á sviði for-
vörslu og þess vegna naut stofnunin
þess að fá gesti alls staðar að úr heim-
inum sem komu til að flytja fyrir-
lestra á ýmsum sérsviðum. Þótt hann
væri mjög virkur við að þróa náms-
efni stofnunarinnar og stýra upp-
byggingu hennar, voru stúdentarnir
alltaf í fyrsta sæti hjá honum. Hann
var kröfuharður en hvetjandi kennari
og var mjög mikið í mun að tryggja
nemendum fjölbreytta starfsreynslu.
Hann hvatti þá stöðugt til að leita
styrkja og fá þjálfun við bestu og
þekktustu stofnanir bæði innan Finn-
lands og utan.
Ríkharð var þátttakandi í margs
konar alþjóðlegum verkefnum á sviði
forvörslu. Þrír vinnufundir ICOM-
CC (International Council of Mus-
eums – Committee for Conservation)
voru haldnir í Vantaa og hann var for-
maður vinnuhóps um menntun og
þjálfun forvarða. Hann var einn af
stofnendum ENCORE, (European
Network for Conservators-Restorers
Education) og var fulltrúi Vantaa-
stofnunarinnar í mörgum verkefnum
á vegum Evrópusambandsins. Hann
var stjórnandi European Preventive
Conservation Strategy Project, og
lauk því starfi með mjög mikilvægum
fundi sem haldinn var í Vantaa í sept-
ember 2000, þar sem fulltrúar frá 23
löndum samþykktu viljayfirlýsingu
sem kallast „Vantaa-skjalið“. Annað
verkefni sem var honum mjög kært
var kallað „Kaleidoscope“ en það er
evrópskt orðasafn í forvörslu á sex
tungumálum sem hann ætlaði að gefa
út í árslok.
Ríkharð var ákaflega fær í sérgrein
sinni og stefndi alltaf að mestu mögu-
legum gæðum í því sem hann fékkst
við. Forvarðamenntun í Finnlandi
hefur notið krafta hans og óbilandi
bjartsýni undanfarinn áratug. Hans
verður minnst sem heimsborgara
sem hafði sterka trú á manninum og
eiginleikum hans. Margir kollegar
hans um allan heim áttu þess kost að
kynnast honum og smitast svolítið af
lífsgleði hans og krafti. Hans verður
sárt saknað hér á stofnuninni.
Maisa Huuhka, rektor Evtek
Institute of Art and Design.
Það var sólskin þegar við kynnt-
umst Rikka fyrst þótt það væri miður
vetur og það var sólskin daginn sem
hann kvaddi þennan heim. Rikki var á
margan hátt maður ljóss og sólar.
Hann bar með sér birtu inn í líf þeirra
sem hann hitti og hann var ósínkur á
að gleðja aðra.
Þótt við þekktum Rikka aðeins í
stuttan tíma eru endurminningarnar
margar og notalegar. Í minningunni
sjáum við Rikka dansa í stofunni með
litlu finnsk-frönsku vinkonur sínar,
Sari og Suzanne, á tánum og ógleym-
anlegar eru tilraunir hans til að dansa
finnskan tangódans við fullorðnar
vinkonur! Rikki hafði ótakmarkaðan
og fordómalausan áhuga á lífinu og
fólkinu sem hann hitti og hafði ein-
stakan hæfileika til að skapa tengsl.
Hann sá ætíð til þess að enginn væri
útundan. Hann var sá sem sameinaði
okkur hin, en hann var samt ávallt
miðpunkturinn.
Við sendum Álfheiði og Láru okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Sigrún Klara og Jónína.
Það var mikið áfall þegar ég heyrði
að Rikki hefði lent í bílslysi í Helsinki
og lægi milli heims og helju. Það var
ennþá sárara að frétta að hann hefði
dáið.
Ég kynntist Rikka þegar ég kom
fyrst til Reykjavíkur árið 1983 til að
kenna danskar bókmenntir við Há-
skóla Íslands. Hann var einn af mín-
um fyrstu nemendum og mér fannst
það eins og náðargjöf að hafa hann í
hópnum. Það var ekki nóg með að
hann væri alltaf jákvæður og bjart-
sýnn, heldur bjó hann yfir einstakri
tegund af innri árvekni sem birtist í
því að alls staðar sem Rikki var fann
maður fyrir sérstakri og hlýlegri ná-
vist hans.
Ég minnist hans líka fyrir það hvað
hann tók lífinu með mikilli ró. Ekki
síst þegar hann gerði nokkuð sem af-
skaplega fáir leikarar hér í Dan-
mörku þora að gera, það er að syngja
kvæðin sem menningarfrömuðurinn
Poul Henningsen orti til Livu Weel. Í
tengslum við námskeið sem fjallaði
um millistríðsárin settu nemendur
mínir upp revíu með textum eftir
Henningsen og nú sé ég Rikka fyrir
mér, í Norræna húsinu, í Vík og á Sel-
fossi að syngja: „Man binder os på
mund og hånd, men man kan ikke
binde ånd, for ingen kan ejes, vi flag-
rer os fri.“ Svona var Rikki í hnot-
skurn.
Og nú, þegar hugur minn er hjá öll-
um þeim sem eru hræddir um að
hann sé horfinn á brott, þá sé ég hann
svona fyrir mér, með sín tindrandi
augu, eins og hann vissi meira en við
hin um himininn og stóra leyndar-
dóma lífsins, sem hann hlakkaði til að
við hin fengjum einhvern tímann hlut-
deild í.
Hann söng þessa vísu af sinni und-
arlegu, gleðilegu alvöru. Hvorki ég né
nokkur annar í salnum var í vafa um
merkinguna. Hvað svo sem kemur
fyrir mann, þá getur það ekki fjötrað
andann. Hann gefst aldrei upp.
Rikki hafði sérstaka elskulega þol-
inmæði í garð þeirra sem ekki skildu
þetta.
Við erum mörg sem erum sorg-
mædd yfir því að hafa Ríkharð Hör-
dal ekki lengur á meðal okkar. Hve-
nær sem maður var niðurdreginn
tókst Rikka alltaf að beina sjónunum
RÍKHARÐ H.
HÖRDAL
TÓMASARHAGI 51 - HÆÐ OG RIS - OPIÐ HÚS - TVÆR ÍBÚÐIR
Hér er um að ræða 5 herb. 116 fm efri sérhæð
ásamt 36 fm bílskúr og 4ra herb. um 97 fm ris-
hæð í fallegu mjög vel staðsettu húsi. Eignirnar
seljast saman eða sitt í hvoru lagi. Mjög fallegt
útsýni er úr báðum íbúðunum, sérstaklega ris-
íbúðinni. Hæðin skiptist í tvær saml. stofur, 3
herb., eldhús, bað o.fl. Tvennar svalir eru á hæð-
inni. V. 17,5 m.
Risíbúðin skiptist í hol, baðherbergi, 2 herbergi,
2 samliggjandi skiptanlegar stofur og eldhús.
Stórar suðursvalir eru út af stofu. Yfir íbúðinni er gott geymsluris. V. 13,9 m.
ÍBÚÐIRNAR VERÐA TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, MILLI KL. 13 OG 16. 1305
PARHÚS
Hávegur - Kópavogi
Vorum að fá í einkasölu mjög skemmti-
legt og vandað parhús um 160 fm auk
35 fm bílskúrs. Húsið hefur töluvert verið
endurnýjað og er í mjög góðu ástandi.
Mjög góð staðsetning og fallegur garð-
ur. V. 16,9 m. 1367
RAÐHÚS
Vesturberg - nýtt á skrá
Fallegt tvílyft um 240 fm raðhús með frá-
bæru útsýni. Á neðri hæðinni er forstofa,
snyrting, þvottah., herb., stofa, eldhús
og innb. bílskúr. Á efri hæðinni eru 4
herb., baðh. og um 47 fm sólstofa. V.
18,9 m. 1362
HÆÐIR
Hamrahlíð - 170 fm + bílskúr
Vorum að fá í sölu stóra íbúð (sérhæð) á
tveimur hæðum, samtals 170 fm, auk
33,6 fm bílskúrs. Góðar stofur og tvenn-
ar svalir. Sérþvottahús. Stór og björt
íbúð á góðum stað. 1364
4RA-6 HERB.
Háaleitisbraut
Góð 5-6 herbergja u.þ.b. 125 fm íbúð
auk bílskúrs við Háaleitisbraut. Eignin
skiptist m.a. í fimm herbergi, stofu, eld-
hús og baðherbergi. Þvottahús í íbúð.
Tvennar svalir. V. 13,9 m.1377
Neðstaleiti - laus strax
106 fm íbúð á jarðhæð ásamt bílskýli í
góðu lyftuhúsi. Gengið er slétt inn í íbúð-
ina frá bílastæði, en lyftan nær niður í
bílageymslu. Íbúðin skiptist í 3 svefnher-
bergi, eldhús og bað. Sérgarður er útaf
stofu. V. 14,2 m. 1368
Ljósheimar - lyftuhús
Vorum að fá í sölu fallega og bjarta
u.þ.b. 97 fm íbúð á 2. hæð í góðu lyftu-
húsi. Parket og endurnýjað eldhús. Vest-
ursvalir. Falleg íbúð í grónu hverfi. V.
12,5 m. 1357
Fálkagata
Vorum að fá í einkasölu snyrtilega og
bjarta u.þ.b. 93 fm íbúð á 1. hæð í góðu
steinhúsi. Parket á stofu og suðursvalir.
Þrjú svefnherbergi. V. 10,9 m. 1360
Víðimelur - 4ra herb. á hæð
Ákaflega falleg og björt 4ra herbergja 85
fm íbúð á efri hæð í þríbýli. Tvær stofur
og tvö herbergi. Gott eldhús og bað.
Geymsluris. Parket á gólfum. Frábær
staðsetning. Laus strax. V. 12,5 m. 1091
3JA HERB.
Gnoðarvogur - frábær stað-
setning Mjög falleg og björt 3ja-4ra
herbergja þakhæð með sólstofu. Hæðin
skiptist í hol, stofu, sólstofu, eldhús, ný-
standsett baðherbergi, og tvö svefnher-
bergi. Frábært útsýni. Rólegur staður. V.
13,9 m. 1396
Engihjalli
Mjög falleg 3ja herbergja íbúð við Engi-
hjalla á 6. hæð með glæsilegu útsýni til
suðurs, vesturs og norðurs. Eignin skipt-
ist m.a. í stofu, tvö herbergi, baðherbergi
og eldhús. Falleg íbúð. Snyrtileg sameign.
Kíktu á þessa. V. 9,4 m. 1363
2JA HERB.
Sólheimar - lyftuhús
Vorum að fá í sölu fallega og bjarta u.þ.b.
72 fm íbúð á 9. hæð í vinsælu lyftuhúsi.
Íbúðin er rúmgóð og snýr til suðurs og er
með stórum suðursvölum. Góð sameign
og frábært útsýni. Íbúðin er upprunaleg
en snyrtileg og losnar fljótlega. V. tilboð.
1365
ATVINNUHÚSNÆÐI.
Tunguháls 7- heil húseign Til
sölu um 1251 fm mjög vandað stál-
grindarhús á sérlóð með þrennum inn-
keyrsludyrum, góðu athafnasvæði og
byggingarrétti. Góð lofthæð og góð að-
koma. Í kjallara er lagerpláss með inn-
keyrsludyrum og steyptum rampi. Hentar
sérlega vel undir ýmiskonar lagerpláss,
verkstæðisrekstur o.fl. V. 72,0 millj. 1326
Trönuhraun - 200 fm götu-
hæð Vorum að fá til sölu gott atvinnu-
húsnæði á götuhæð u.þ.b. 200 fm. Pláss-
ið er með einni nýrri innkeyrsludyr og
skilast strax tilbúið til innréttinga, einn
vinnusalur, skrifstofa, snyrting og kaffi-
stofa. Hentar vel undir ýmiskonar atvinnu-
starfsemi, iðnað, lager, verkstæði, vinnu-
stofur og jafnvel með íbúðaraðstöðu.
Áhv. ca 10 millj. Lítil útborgun. V. 13,9 m.
9751
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
netfang: lundur@f-lundur.is - heimasíða:www.f-lundur.is
LOGAFOLD 60 - NÝ SÉRHÆÐ
SKEIÐARVOGUR - RAÐHÚS
Hér er til sölu glæsileg 115 fm neðri sérhæð í nýju tvíbýlishúsi í hinu sívinsæla
og veðursæla Foldahverfi. Íbúðin er til afhendigar strax fullbúin vönduðum inn-
réttingum og tækjum en án gólfefna, nema flísar á forstofu og baði. Tvö svefn-
herbergi og góð stofa með útgengi á stóra suðurverönd. Verð 14,8 millj.
Vorum að fá í einkasölu eitt af þessum
vinsælu Skeiðarvogs-raðhúsum á 3
hæðum. Á aðalhæðinni er m.a. eldhús
og góðar stofur með útgengi í suð-
urgarð. Uppi eru 3 svefnherbergi og
baðherbergi. Í kjallara eru 2 stór her-
bergi, þvottahús, wc og sturta. Góður
möguleiki á séríbúðaraðstöðu. Verð
17,5 millj.
LANGHOLTSVEGUR
Mjög góð 2ja herb. íb. á jarðhæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi. Parket. Góðar
innréttingar. Gler, gluggar og ofnakerfi endurnýjað. Áhv. 3,8 millj. Verð 7,9 millj.
1340
ARNARSMÁRI – BÍLSKÚR - KÓP.
Gullfalleg 88 fm 3ja herb. endaíb. á 1. hæð með sér 20 fm verönd og sérbyggð-
um 26 fm bílskúr. Fallegar innréttingar. Flísar. Þvottahús í íbúð. Frábær staðsetn-
ing. Áhv. 5,7 millj. 1389
HJARÐARHAGI
Mjög rúmgóð og björt 3ja-4ra herb. endaíbúð í kj. í góðu fjölb. Stærð 106 fm.
Parket. Frábær staðsetning. Parket. Áhv. 5,2 millj. Verð 11,5 millj. 1390
JÖTNABORGIR
4ra herb. íbúðir á 2. eða 3. hæð í litlu fjölb. með eða án bílskúrs. Húsið verður
afhent fullbúið að utan og tilbúið að innan án gólfefna. Stærð 102 fm nettó. Verð
frá 13,9 millj. Afhending í júní/júlí.
MIÐLEITI – BÍLSKÚR
Fallega innr. 3ja herb. íb. á 2. hæð ásamt stæði í bílskýli. Tvö svefnherb. Góðar
innréttingar. Suðursvalir. Parket og flísar. Hús og sameign í mjög góðu ástandi.
Góð staðsetning. Verð 14,5 millj. 1382
FOSSVOGUR
Mjög gott raðhús ásamt bílskúr við Ljósaland. 5 svefnherb. 2 stofur. Stærð 195
fm. + 24 fm bílsk. Gott hús og góð staðsetning. 1391
LINDIR – KÓPAVOGI
Vorum að fá í sölu einbýlishús á einni hæð með innb. bílskúr á besta stað. Húsið
verður afhent uppsteypt, einangrað að utan og múrað með einni umferð, glugg-
ar ísettir og járn á þaki. Lóð grójöfnuð. Tilboð óskast. 1403
OPIÐ Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 12-14