Morgunblaðið - 01.04.2001, Blaðsíða 34
GREINARGERÐ
34 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í kjölfar skýrslu Rannsóknar-
nefndar flugslysa um flugslysið
hörmulega í Skerjafirði hinn 7. ágúst
2000 hafa málefni Leiguflugs Ísleifs
Ottesen (L.Í.O. ehf.) verið mikið til
umfjöllunar í fjölmiðlum. Hafa þar
fallið þung orð. Til þessa hafa for-
svarsmenn félagsins kosið að tjá sig
ekki um málið á opinberum vett-
vangi. Mjög veigamiklar ástæður
eru fyrir því, einkum þær að enn
stendur yfir opinber lögreglurann-
sókn vegna flugslyssins og tillitssemi
við aðstandendur flugmannsins.
Félagið L.Í.O. ehf. var stofnað ár-
ið 1991 og flugrekstrarleyfi fékk
félagið árið eftir. Félagið er nú eitt af
örfáum flugfélögum í innanlands-
flugi á Íslandi. Hjá félaginu starfa
sjö manns og helstu verkefni félags-
ins eru almennt leiguflug fyrir fyr-
irtæki, stofnanir og einstaklinga,
þ.m.t. útsýnisflug með erlenda ferða-
menn. Auk þess gerði félagið, eftir
útboð, samninga við opinbera aðila
um áætlunarflug á Gjögur, áætlun-
arflug milli Ísafjarðar og Bíldudals,
svo og sjúkraflutninga fyrir heil-
brigðisráðuneytið.
- - -
Auðvitað ná orð ekki að lýsa því
áfalli sem flugslysið varð eigendum
og öllum starfsmönnum L.Í.O. Það
áfall er þó hjóm eitt í samanburði við
þann harm sem kveðinn var að að-
standendum þeirra sem slösuðust og
létu lífið í flugslysinu og vegna af-
leiðinga þess. Yfirlýsingu þessa má
alls ekki skoða sem neins konar áfell-
isdóm um þá baráttu sem aðstand-
endur hafa háð fyrir því að hið sanna
komi í ljós um orsakir flugslyssins í
Skerjafirði.
Opinber umræða um flugöryggis-
mál í kjölfar slyssins er eðlileg og
sjálfsögð í kjölfar skýrslu rannsókn-
arnefndar flugslysa. Kveinkar um-
bjóðandi minn sér ekki undan henni.
Hins vegar er umræðan nú farin að
snúast um að benda á blóraböggul
eða sökudólg og refsa honum
snarlega á einhvern máta þrátt fyrir
að lögreglurannsókn standi enn yfir.
Af þessu tilefni er nauðsynlegt að
skýra atburði síðustu daga frá sjón-
arhóli L.Í.O. ehf.
Bréf samgönguráðuneytisins
til Flugmálastjórnar
24. mars 2001
Með bréfi samgönguráðuneytisins
til Flugmálastjórnar frá 24. þ.m. má
segja að tónninn hafi verið gefinn
fyrir atburðarás vikunnar. Þar sagði
m.a. að ráðuneytið teldi ljóst að,
,,...ákvæði reglugerðar um flutninga-
flug ... hafi ítrekað verið brotin“.
Jafnframt sagðist ráðuneytið
draga þá ályktun af skýrslu rann-
sóknarnefndar flugslysa að, ,,...á
flugrekstri Leiguflugs Ísleifs Otte-
sen hf. varðandi rekstur TF-GTI
hafi verið verulegir ágallar og aug-
ljós ógn við öryggi flugfarþega á Ís-
landi“. Í framhaldinu gerði Flug-
málastjórn úttekt á rekstri L.Í.O.
ehf. og skilaði skýrslu til samgöngu-
ráðuneytis.
Bréfi þessu var dreift til fjölmiðla
áður en það barst til vitundar Ísleifs
Ottesen. Skýrir það væntanlega
hvers vegna honum var óhægt um
vik að tjá sig um efni þess þegar
fréttamenn leituðu eftir því.
Umsögn Flugmálastjórnar
til samgönguráðherra
29. mars 2001
Í svari Flugmálastjórnar til ráðu-
neytis síns koma fram nokkur atriði
sem fjallað hefur verið um í
tengslum við framhald málsins. Í því
bréfi er m.a. afar ónákvæmt orðalag,
sem gefið hefur tilefni til ályktana –
nú síðast í leiðara Morgunblaðsins í
dag – um að ófært sé annað en segja
upp samningum ríkisins við félagið
og svipta það leyfum.
,,alvarleg[ ] vanræksla á faglegum
grundvallarþætti í flugrekstri“
Í þessum orðum umsagnarinnar
felst þungur dómur og má skilja af
samhenginu þannig, að flugfélagið
hafi almennt hagað sínum öryggis-
málum þannig að stórhætta stafaði
af. Þannig skildi a.m.k. undirritaður
þessi orð þegar bréfið var fyrst lesið.
En hvaða ,,alvarlegu vanrækslu“
skyldi hér vera átt við? Í því sam-
bandi er rétt að birta alla þá máls-
grein sem tilvitnuð orð eru tekin úr:
„Allt frá því slysið varð, hefur leg-
ið fyrir að ekki var af hálfu flugrek-
andans nægjanlega framfylgt gild-
andi starfsreglum sem ætlað var að
tryggja farsælar lyktir sérhvers
flugs hlutaðeigandi loftfars. Til
dæmis voru leiðarflugsáætlanir [let-
urbr. JKS] ekki gerðar. Í þessu felst
alvarleg vanræksla á faglegum
grundvallarþætti í flugrekstri.“
Það er ekki að sjá annað en að
skortur á að gera leiðarflugsáætlun
sé meginástæða hins þunga van-
ræksludóms. Orðalag bréfsins má
skilja sem svo að það hafi verið regla
hjá flugmönnum L.Í.O. ehf. að gera
ekki slíkar áætlanir. Þetta er hins
vegar ekki réttur skilningur. Flug-
menn L.Í.O. ehf. hafa fylgt þeim
ákvæðum reglugerðar um flutninga-
flug að halda leiðarflugsáætlanir,
bæði fyrir og eftir slysið. Það hefur
Flugmálastjórn ekki dregið í efa.
Það er hins vegar rétt að í ferðinni
örlagaríku hefur ekki komið fram að
flugmaðurinn hafi gert skriflega
leiðarflugsáætlun og skilið eftir á
brottfararflugvelli. Áður en áfellis-
dómur er kveðinn upp um þetta ein-
staka tilvik verður að hafa eftirfar-
andi í huga:
– Um var að ræða 14–16 mín. flugleið
sem flugmaðurinn hafði flogið
margsinnis sama daginn.
–Flugmaðurinn gerði munnlega
leiðarflugsáætlun áður en lagt var
af stað í ferðina, eftir því sem fram
kemur í útskrift af samskiptum
hans við flugturn: ,,Já það er Vest-
mannaeyjar Reykjavík, þrjátíu
mínútur, flugþol tveir og hálfur.
Muhameð plús fimm.“ Með þessu
tilkynnir flugmaðurinn flugleiðina,
áætlaðan flugtíma, flugþol og far-
þegafjölda. Þar með eru upplýst
þau atriði sem koma eiga fram í
leiðarflugsáætlun.
Það ætti að vera öllum ljóst skv.
framansögðu að hin alvarlega van-
ræksla, að mati Flugmálastjórnar,
er lýsing á afmörkuðu atviki við
óvenjulegar aðstæður. Þegar grannt
er skoðað kemur í ljós að það sem
málið snýst um er að strangasta
formi er ekki fylgt, en efniskröfur
eru uppfylltar. Hvernig þær aðstæð-
ur geta orðið að alvarlegri van-
rækslu á faglegum grundvallarþætti
í flugrekstri er gjörsamlega hulin
ráðgáta þeim sem til þekkja.
Við það ástand sem var á flugvell-
inum í Vestmannaeyjum hinn ör-
lagaríka dag skal stórlega dregið í
efa að nokkur flugrekandi hafi staðið
formlega að gerð allra leiðarflugs-
áætlana. Ef samræmis væri gætt
ætti því að taka á málum allra flug-
rekenda sem þar komu að málum
með sama hætti.
Uppsögn samninga ríkisins við
L.Í.O.
Í samningum L.Í.O ehf. um
sjúkraflutninga og áætlunarflug er
kveðið á um að segja megi þeim upp
fyrirvaralaust (rifta) ef eftirfarandi
skilyrði eru fyrir hendi: a) hljóti flug-
rekandi dóm vegna vanrækslu í flug-
rekstri b) hafi flugrekandi með sann-
anlegum hætti gerst sekur um
alvarlega siðferðilega eða faglega
misbresti í flugrekstri.
Samgönguráðherra óskaði, eins
og áður segir, eftir umsögn Flug-
málastjórnar um það hvort uppsagn-
arheimild gæti verið fyrir hendi á
þessum grunni. Niðurstaða Flug-
málastjórnar er sú að svo væri ekki
og heldur ekki forsendur til svipt-
ingar flugrekstrarleyfis á grundvelli
flugöryggissjónarmiða.
Mál flugrekstrarstjóra L.Í.O. ehf.
Flugmálastjórn tók það upp að
eigin frumkvæði að vekja athygli
ráðuneytisins á því að fram hefðu
komið ávirðingar um brot flug-
rekstrarstjóra félagsins sem flug-
manns. Í niðurlagi bréfs Flugmála-
stjórnar er svo vikið að því að
ávirðingarnar séu svo alvarlegar að
til hæfisbrests hans sem flugrekstr-
arstjóra kunni að koma.
Staðreynd þess máls er sú að
fréttir birtust af frásögnum ung-
menna, sem voru farþegar með vél
frá Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum til
Selfoss, um að of margir hefðu farið
með vélinni. Því máli vísaði Flug-
málastjórn til lögreglunnar í
Reykjavík. Flugrekstrarstjórinn
hefur neitað því að nokkuð í þá veru
hafi átt sér stað sem á hann hefur
verið borið.
Í framhaldi af því síðastgreinda
vakti Flugmálastjórn athygli ráðu-
neytisins á því að meðan á flug-
rekstrarstjóranum hvíldi grunur
gæti verið rökstudd ástæða til að
vantreysta honum. Af þessu var sú
ályktun dregin að heimilt gæti verið
að svipta flugfélagið svokölluðu flug-
rekandaskírteini og þar með væri
hægt að útiloka það frá flugrekstri.
Þessi röksemdafærsla er afar sér-
stök og í það minnsta hæpin á meðan
ekkert liggur fyrir um sannleiksgildi
ávirðinganna eða niðurstöðu lög-
reglurannsóknar. Þessi nýi angi
málsins er nú til frekari meðferðar
hjá Flugmálastjórn og lögreglu.
Skýrsla rannsóknar-
nefndar flugslysa
Hér verður ekki fjallað um efnis-
tök og niðurstöður skýrslu rann-
sóknarnefndar flugslysa sem er
kveikjan að bréfi samgönguráðu-
neytisins sem áður er minnst á. Það
verður að undirstrika að samkvæmt
lögum um rannsókn flugslysa er til-
gangur þeirra rannsókna ,,ekki að
skipta sök og/eða ábyrgð“. Á forsíðu
skýrslunnar um flugslysið í Skerja-
firði er tekið fram að henni skuli ekki
beitt sem sönnunargagni í opinber-
um málum.
Meðan á ritun skýrslunnar stóð
voru forsvarsmönnum L.Í.O. send
drög til yfirferðar og athugasemda.
Áttu sér þá stað samskipti á milli
nefndarinnar og félagsins sem rétt
þykir að upplýsa um:
– Af hálfu L.Í.O. voru gerðar athuga-
semdir við hæfi þriggja nefndar-
manna sem félagið benti á að
tengdust samkeppnisaðilum í flug-
rekstri. Þau tengsl gætu haft áhrif
á hlutlægni þeirra og traust á
nefndinni.
– Forsvarsmenn L.Í.O. ehf. gerðu í
tvígang umtalsverðar athuga-
semdir við drög skýrslunnar. Að
sumu leyti var tekið tillit til þeirra
athugasemda en að öðru leyti alls
ekki. Sérstaklega er hér bent á að í
niðurstöðum skýrslunnar, þar sem
greindir eru líklegir orsakaþættir
slyssins, er einungis eitt atriði sem
snýr að flugrekandanum, þ.e. að
eldsneytis- og olíuskrá hafi ekki
verið haldin samkvæmt reglum frá
því að flugvélin var tekin í notkun.
Þessu mótmælti flugrekandinn
ítrekað og lagði fram gögn máli
sínu til stuðnings. Jafnframt benti
hann á að ekki væru til þær reglur
sem kveða ættu á um þetta atriði.
Þess er í engu getið í lokagerð
skýrslunnar og er það út af fyrir
sig alvarlegur hlutur.
Forsvarsmenn félagsins telja að
endanlegri gerð skýrslunnar sé að
ýmsu leyti ábótavant; hún hafi að
geyma missagnir og jafnvel getsakir.
Bíða frekari athugasemdir betri
tíma en í því sambandi má minna á
að gerð skýrslunnar tók u.þ.b. sjö
mánuði en í dag eru liðnir sjö dagar
frá því að hún var kynnt.
- - -
Eins og áður greinir stendur enn
yfir lögreglurannsókn á slysinu sem
miðar að því að upplýsa frekar en
orðið er um það hvar ábyrgðin ligg-
ur. Jafnframt er ljóst að leitað er
leiða til þess að svipta L.Í.O. ehf.
flugrekstrarleyfi eða tilverugrund-
velli sínum með því að rifta gerðum
samningum.
Á meðan þessi orrahríð stendur
yfir krefst hún óskiptra krafta for-
svarsmanna þessa litla flugfélags.
Þeir vonast til að fjölmiðlar og al-
menningur sýni því skilning að sam-
hliða þeirri baráttu er þeim ekki
auðvelt að taka þátt í opinberri um-
ræðu um málið, en allt hefur sinn
tíma.
Margir hafa skaðast í þessu máli.
Einnig er ljóst að verulegur þrýst-
ingur hefur skapast á stjórnvöld og
flugmálayfirvöld að taka til hendinni
með einhverjum hætti. Þrátt fyrir
það er ekki ástæða til að hverfa frá
þeim grundvallarreglum að mönnum
verði ekki refsað eða mannorð þeirra
rúið trausti nema fyrir liggi óyggj-
andi réttlæting þess.
Reykjavík, 31. mars 2001.
Virðingarfyllst,
f.h. L.Í.O. ehf.
Jóhannes Karl Sveinsson hrl.
Yfirlýsing frá Leigu-
flugi Ísleifs Ottesen
Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Jóhannesi
Karli Sveinssyni hrl., fyrir hönd Leiguflugs Ísleifs Ottesen ehf.