Morgunblaðið - 01.04.2001, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 01.04.2001, Qupperneq 34
GREINARGERÐ 34 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í kjölfar skýrslu Rannsóknar- nefndar flugslysa um flugslysið hörmulega í Skerjafirði hinn 7. ágúst 2000 hafa málefni Leiguflugs Ísleifs Ottesen (L.Í.O. ehf.) verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Hafa þar fallið þung orð. Til þessa hafa for- svarsmenn félagsins kosið að tjá sig ekki um málið á opinberum vett- vangi. Mjög veigamiklar ástæður eru fyrir því, einkum þær að enn stendur yfir opinber lögreglurann- sókn vegna flugslyssins og tillitssemi við aðstandendur flugmannsins. Félagið L.Í.O. ehf. var stofnað ár- ið 1991 og flugrekstrarleyfi fékk félagið árið eftir. Félagið er nú eitt af örfáum flugfélögum í innanlands- flugi á Íslandi. Hjá félaginu starfa sjö manns og helstu verkefni félags- ins eru almennt leiguflug fyrir fyr- irtæki, stofnanir og einstaklinga, þ.m.t. útsýnisflug með erlenda ferða- menn. Auk þess gerði félagið, eftir útboð, samninga við opinbera aðila um áætlunarflug á Gjögur, áætlun- arflug milli Ísafjarðar og Bíldudals, svo og sjúkraflutninga fyrir heil- brigðisráðuneytið. - - - Auðvitað ná orð ekki að lýsa því áfalli sem flugslysið varð eigendum og öllum starfsmönnum L.Í.O. Það áfall er þó hjóm eitt í samanburði við þann harm sem kveðinn var að að- standendum þeirra sem slösuðust og létu lífið í flugslysinu og vegna af- leiðinga þess. Yfirlýsingu þessa má alls ekki skoða sem neins konar áfell- isdóm um þá baráttu sem aðstand- endur hafa háð fyrir því að hið sanna komi í ljós um orsakir flugslyssins í Skerjafirði. Opinber umræða um flugöryggis- mál í kjölfar slyssins er eðlileg og sjálfsögð í kjölfar skýrslu rannsókn- arnefndar flugslysa. Kveinkar um- bjóðandi minn sér ekki undan henni. Hins vegar er umræðan nú farin að snúast um að benda á blóraböggul eða sökudólg og refsa honum snarlega á einhvern máta þrátt fyrir að lögreglurannsókn standi enn yfir. Af þessu tilefni er nauðsynlegt að skýra atburði síðustu daga frá sjón- arhóli L.Í.O. ehf. Bréf samgönguráðuneytisins til Flugmálastjórnar 24. mars 2001 Með bréfi samgönguráðuneytisins til Flugmálastjórnar frá 24. þ.m. má segja að tónninn hafi verið gefinn fyrir atburðarás vikunnar. Þar sagði m.a. að ráðuneytið teldi ljóst að, ,,...ákvæði reglugerðar um flutninga- flug ... hafi ítrekað verið brotin“. Jafnframt sagðist ráðuneytið draga þá ályktun af skýrslu rann- sóknarnefndar flugslysa að, ,,...á flugrekstri Leiguflugs Ísleifs Otte- sen hf. varðandi rekstur TF-GTI hafi verið verulegir ágallar og aug- ljós ógn við öryggi flugfarþega á Ís- landi“. Í framhaldinu gerði Flug- málastjórn úttekt á rekstri L.Í.O. ehf. og skilaði skýrslu til samgöngu- ráðuneytis. Bréfi þessu var dreift til fjölmiðla áður en það barst til vitundar Ísleifs Ottesen. Skýrir það væntanlega hvers vegna honum var óhægt um vik að tjá sig um efni þess þegar fréttamenn leituðu eftir því. Umsögn Flugmálastjórnar til samgönguráðherra 29. mars 2001 Í svari Flugmálastjórnar til ráðu- neytis síns koma fram nokkur atriði sem fjallað hefur verið um í tengslum við framhald málsins. Í því bréfi er m.a. afar ónákvæmt orðalag, sem gefið hefur tilefni til ályktana – nú síðast í leiðara Morgunblaðsins í dag – um að ófært sé annað en segja upp samningum ríkisins við félagið og svipta það leyfum. ,,alvarleg[ ] vanræksla á faglegum grundvallarþætti í flugrekstri“ Í þessum orðum umsagnarinnar felst þungur dómur og má skilja af samhenginu þannig, að flugfélagið hafi almennt hagað sínum öryggis- málum þannig að stórhætta stafaði af. Þannig skildi a.m.k. undirritaður þessi orð þegar bréfið var fyrst lesið. En hvaða ,,alvarlegu vanrækslu“ skyldi hér vera átt við? Í því sam- bandi er rétt að birta alla þá máls- grein sem tilvitnuð orð eru tekin úr: „Allt frá því slysið varð, hefur leg- ið fyrir að ekki var af hálfu flugrek- andans nægjanlega framfylgt gild- andi starfsreglum sem ætlað var að tryggja farsælar lyktir sérhvers flugs hlutaðeigandi loftfars. Til dæmis voru leiðarflugsáætlanir [let- urbr. JKS] ekki gerðar. Í þessu felst alvarleg vanræksla á faglegum grundvallarþætti í flugrekstri.“ Það er ekki að sjá annað en að skortur á að gera leiðarflugsáætlun sé meginástæða hins þunga van- ræksludóms. Orðalag bréfsins má skilja sem svo að það hafi verið regla hjá flugmönnum L.Í.O. ehf. að gera ekki slíkar áætlanir. Þetta er hins vegar ekki réttur skilningur. Flug- menn L.Í.O. ehf. hafa fylgt þeim ákvæðum reglugerðar um flutninga- flug að halda leiðarflugsáætlanir, bæði fyrir og eftir slysið. Það hefur Flugmálastjórn ekki dregið í efa. Það er hins vegar rétt að í ferðinni örlagaríku hefur ekki komið fram að flugmaðurinn hafi gert skriflega leiðarflugsáætlun og skilið eftir á brottfararflugvelli. Áður en áfellis- dómur er kveðinn upp um þetta ein- staka tilvik verður að hafa eftirfar- andi í huga: – Um var að ræða 14–16 mín. flugleið sem flugmaðurinn hafði flogið margsinnis sama daginn. –Flugmaðurinn gerði munnlega leiðarflugsáætlun áður en lagt var af stað í ferðina, eftir því sem fram kemur í útskrift af samskiptum hans við flugturn: ,,Já það er Vest- mannaeyjar Reykjavík, þrjátíu mínútur, flugþol tveir og hálfur. Muhameð plús fimm.“ Með þessu tilkynnir flugmaðurinn flugleiðina, áætlaðan flugtíma, flugþol og far- þegafjölda. Þar með eru upplýst þau atriði sem koma eiga fram í leiðarflugsáætlun. Það ætti að vera öllum ljóst skv. framansögðu að hin alvarlega van- ræksla, að mati Flugmálastjórnar, er lýsing á afmörkuðu atviki við óvenjulegar aðstæður. Þegar grannt er skoðað kemur í ljós að það sem málið snýst um er að strangasta formi er ekki fylgt, en efniskröfur eru uppfylltar. Hvernig þær aðstæð- ur geta orðið að alvarlegri van- rækslu á faglegum grundvallarþætti í flugrekstri er gjörsamlega hulin ráðgáta þeim sem til þekkja. Við það ástand sem var á flugvell- inum í Vestmannaeyjum hinn ör- lagaríka dag skal stórlega dregið í efa að nokkur flugrekandi hafi staðið formlega að gerð allra leiðarflugs- áætlana. Ef samræmis væri gætt ætti því að taka á málum allra flug- rekenda sem þar komu að málum með sama hætti. Uppsögn samninga ríkisins við L.Í.O. Í samningum L.Í.O ehf. um sjúkraflutninga og áætlunarflug er kveðið á um að segja megi þeim upp fyrirvaralaust (rifta) ef eftirfarandi skilyrði eru fyrir hendi: a) hljóti flug- rekandi dóm vegna vanrækslu í flug- rekstri b) hafi flugrekandi með sann- anlegum hætti gerst sekur um alvarlega siðferðilega eða faglega misbresti í flugrekstri. Samgönguráðherra óskaði, eins og áður segir, eftir umsögn Flug- málastjórnar um það hvort uppsagn- arheimild gæti verið fyrir hendi á þessum grunni. Niðurstaða Flug- málastjórnar er sú að svo væri ekki og heldur ekki forsendur til svipt- ingar flugrekstrarleyfis á grundvelli flugöryggissjónarmiða. Mál flugrekstrarstjóra L.Í.O. ehf. Flugmálastjórn tók það upp að eigin frumkvæði að vekja athygli ráðuneytisins á því að fram hefðu komið ávirðingar um brot flug- rekstrarstjóra félagsins sem flug- manns. Í niðurlagi bréfs Flugmála- stjórnar er svo vikið að því að ávirðingarnar séu svo alvarlegar að til hæfisbrests hans sem flugrekstr- arstjóra kunni að koma. Staðreynd þess máls er sú að fréttir birtust af frásögnum ung- menna, sem voru farþegar með vél frá Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum til Selfoss, um að of margir hefðu farið með vélinni. Því máli vísaði Flug- málastjórn til lögreglunnar í Reykjavík. Flugrekstrarstjórinn hefur neitað því að nokkuð í þá veru hafi átt sér stað sem á hann hefur verið borið. Í framhaldi af því síðastgreinda vakti Flugmálastjórn athygli ráðu- neytisins á því að meðan á flug- rekstrarstjóranum hvíldi grunur gæti verið rökstudd ástæða til að vantreysta honum. Af þessu var sú ályktun dregin að heimilt gæti verið að svipta flugfélagið svokölluðu flug- rekandaskírteini og þar með væri hægt að útiloka það frá flugrekstri. Þessi röksemdafærsla er afar sér- stök og í það minnsta hæpin á meðan ekkert liggur fyrir um sannleiksgildi ávirðinganna eða niðurstöðu lög- reglurannsóknar. Þessi nýi angi málsins er nú til frekari meðferðar hjá Flugmálastjórn og lögreglu. Skýrsla rannsóknar- nefndar flugslysa Hér verður ekki fjallað um efnis- tök og niðurstöður skýrslu rann- sóknarnefndar flugslysa sem er kveikjan að bréfi samgönguráðu- neytisins sem áður er minnst á. Það verður að undirstrika að samkvæmt lögum um rannsókn flugslysa er til- gangur þeirra rannsókna ,,ekki að skipta sök og/eða ábyrgð“. Á forsíðu skýrslunnar um flugslysið í Skerja- firði er tekið fram að henni skuli ekki beitt sem sönnunargagni í opinber- um málum. Meðan á ritun skýrslunnar stóð voru forsvarsmönnum L.Í.O. send drög til yfirferðar og athugasemda. Áttu sér þá stað samskipti á milli nefndarinnar og félagsins sem rétt þykir að upplýsa um: – Af hálfu L.Í.O. voru gerðar athuga- semdir við hæfi þriggja nefndar- manna sem félagið benti á að tengdust samkeppnisaðilum í flug- rekstri. Þau tengsl gætu haft áhrif á hlutlægni þeirra og traust á nefndinni. – Forsvarsmenn L.Í.O. ehf. gerðu í tvígang umtalsverðar athuga- semdir við drög skýrslunnar. Að sumu leyti var tekið tillit til þeirra athugasemda en að öðru leyti alls ekki. Sérstaklega er hér bent á að í niðurstöðum skýrslunnar, þar sem greindir eru líklegir orsakaþættir slyssins, er einungis eitt atriði sem snýr að flugrekandanum, þ.e. að eldsneytis- og olíuskrá hafi ekki verið haldin samkvæmt reglum frá því að flugvélin var tekin í notkun. Þessu mótmælti flugrekandinn ítrekað og lagði fram gögn máli sínu til stuðnings. Jafnframt benti hann á að ekki væru til þær reglur sem kveða ættu á um þetta atriði. Þess er í engu getið í lokagerð skýrslunnar og er það út af fyrir sig alvarlegur hlutur. Forsvarsmenn félagsins telja að endanlegri gerð skýrslunnar sé að ýmsu leyti ábótavant; hún hafi að geyma missagnir og jafnvel getsakir. Bíða frekari athugasemdir betri tíma en í því sambandi má minna á að gerð skýrslunnar tók u.þ.b. sjö mánuði en í dag eru liðnir sjö dagar frá því að hún var kynnt. - - - Eins og áður greinir stendur enn yfir lögreglurannsókn á slysinu sem miðar að því að upplýsa frekar en orðið er um það hvar ábyrgðin ligg- ur. Jafnframt er ljóst að leitað er leiða til þess að svipta L.Í.O. ehf. flugrekstrarleyfi eða tilverugrund- velli sínum með því að rifta gerðum samningum. Á meðan þessi orrahríð stendur yfir krefst hún óskiptra krafta for- svarsmanna þessa litla flugfélags. Þeir vonast til að fjölmiðlar og al- menningur sýni því skilning að sam- hliða þeirri baráttu er þeim ekki auðvelt að taka þátt í opinberri um- ræðu um málið, en allt hefur sinn tíma. Margir hafa skaðast í þessu máli. Einnig er ljóst að verulegur þrýst- ingur hefur skapast á stjórnvöld og flugmálayfirvöld að taka til hendinni með einhverjum hætti. Þrátt fyrir það er ekki ástæða til að hverfa frá þeim grundvallarreglum að mönnum verði ekki refsað eða mannorð þeirra rúið trausti nema fyrir liggi óyggj- andi réttlæting þess. Reykjavík, 31. mars 2001. Virðingarfyllst, f.h. L.Í.O. ehf. Jóhannes Karl Sveinsson hrl. Yfirlýsing frá Leigu- flugi Ísleifs Ottesen Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Jóhannesi Karli Sveinssyni hrl., fyrir hönd Leiguflugs Ísleifs Ottesen ehf.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.