Morgunblaðið - 01.04.2001, Blaðsíða 56
Hún mun seint hverfa úr
minni þeirra sem sáu viðureign Menntaskólans í Reykjavík og Borgarholtsskólans í
úrslitum Gettu betur. Ásgeir Ingvarsson var á staðnum og ræddi við tvö sigurlið.
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Dalv
egur
HÉR
KÓPAVOGUR
Máln
ing Skel
jungu
r
Fyrir
páskafríið
tískuverslun
v. Nesveg,
Seltjarnarnesi.
Sími 561 1680.
bolir og
kvart-buxur
ÓHÆTT er að full-yrða að aldrei fyrr ísögu Gettu betur
hafi sést önnur eins viður-
eign og sú sem fór fram á
föstudagskvöldið. Víst er
að þessi magnþrungna
keppni mun seint gleym-
ast, enda fylgdust án vafa
velflestir landsmenn með
þessari keppni, þar sem
Menntaskólinn hafði Borg-
arholtsskóla naumlega
undir í æsispennandi
bráðabana og vann þar
með hljóðnemann 9. árið í
röð.
Lið skólanna voru skip-
uð einvalaliði manna: lið
Menntaskólans í Reykjavík
þeim Sverri Teitssyni,
Hjalta Snæ Ægissyni og
Svani Péturssyni, en lið
Borgarholtsskóla skipuðu
Sæmundur Ari Halldórs-
son, Páll Theódórs og
Hilmar Már Gunnarsson.
Pabbi úti í bílskúr
„Þetta var alveg rosa-
legt,“ sagði Sæmundur úr
Borgarholti, aðspurður um
líðanina eftir keppnina.
„Ég vona bara að við höf-
um valdið mikilli spennu á
heimilum landsmanna. Ég
veit að pabbi minn hefur
líklega verið úti í bílskúr
alla útsendinguna því hann
hefur ekki þorað að horfa.
Ég held reyndar að það sé
óhætt að fullyrða að þetta
hafi verið mest spennandi
keppni Gettu betur frá
upphafi.“
Andinn innan liðsins var
að sögn Sæmundar sterk-
ur: „Það komu tímabil þar
sem við duttum niður, en
við börðum hver annan
áfram, og einhvern veginn
tókst þetta. Ég vissi að við
þyrftum að hafa heppnina
með okkur ef við ætluðum
að velta MR úr sessi, en
það má einmitt segja að við
höfum verið mjög heppnir.
Það var 6 stiga munur þeg-
ar tvær spurningar voru
eftir og ég átti ekki von á
því að í lok keppninnar yrði
jafnt,“ sagði Sæmundur, en
liði Borgarholtsskóla tókst
á frækilegan hátt að svara
tveimur síðustu spurning-
unum, og náði þannig að
jafna stöðuna og knýja
fram bráðabana.
Óskandi að skipta
hljóðnemanum
Þeir Hjalti, Svanur og
Sverrir í liði MR voru sam-
mála um að í raun stæðu
bæði lið uppi sem sigurveg-
arar: „Okkur finnst að
þetta hafi í raun verið jafn-
tefli og tilviljun ein hafi
ráðið því hvort liðið sigraði.
Raunin varð að það urðum
við, en það hefði allt eins
getað verið Borgarholt.
Þeir stóðu sig feikilega vel í
þessari keppni og hefðu al-
veg átt skilið að vinna,“
sagði Sverrir Teitsson.
„Við hefðum þó getað gert
ýmislegt betur, og erum
ekki fyllilega sáttir við okk-
ar frammistöðu, en það
breytir engu um það að
frammistaða Borghylting-
anna var frábær. Það væri
bara óskandi að hægt væri
að skipta hljóðnemanum í
tvennt.“
Logi Bergmann Eiðs-
son, spyrill keppninnar til
þriggja ára, sagðist sjálfur
aldrei hafa lent í öðru eins,
enda sátu allir í salnum á
sætisbrúnunum þegar síð-
ustu spurningarnar voru
bornar upp og eitt rétt svar
gat úrskurðað um sigur.
„Þessi keppni er það
skemmtilegasta sem mað-
ur getur komist í,“ sagði
Logi, „og sérstaklega kvöld
eins og í kvöld, þegar 1.200
manns eru í salnum og það
er þvílík dauðaþögn að
heyra mætti saumnál
detta.“
„Ég verð að játa það að
ég var búinn að sætta mig á
tímabili við að tapa,“ sagði
Svanur spurður um líðan-
ina síðustu mínútur keppn-
innar. Sverrir tekur í sama
streng: „Ég verð að játa
það líka að um tíma, þá sér-
staklega þegar Borghylt-
ingar voru einu stigi yfir og
við biðum eftir niðurskurði
um vissa spurningu um
hnefaleikakappa, þá hélt ég
að þeir hjá Borgarholtslið-
inu hefðu svarað rétt, og
það fór engin einasta til-
finning um líkama minn og
ég var búinn að sætta mig
við þetta. Ég og Svanur
vorum á tímabili að bugast
en Hjalti hvatti okkur
áfram.“
„Við bjuggumst við að
vera búnir að sigra þegar
Borgarholtsskóli svaraði
skyndilega rétt tveimur
þriggja stiga spurningum.
Ég verð að játa að við vor-
um einnig ansi svekktir
þegar eitt stig var tekið af
okkur,“ segir Sverrir, en
MR fékk fyrir slysni einu
stigi of mikið fyrir vísbend-
ingaspurningarnar, en það
var síðan lagfært þegar
skammt var eftir af keppn-
inni.
Sex sigurvegarar
Strákarnir sögðust ætla
að halda ærlega upp á sig-
urinn: „Við erum að fara
heim til mín,“ sagði Hjalti,
„þar sem við ætlum að
syngja og dansa fram á
rauða nótt, í góðra vina
hópi því allir ætla að koma:
Borghyltingarnir, dómari,
stigavörður og spyrill.“
Og með þessum orðum
voru þeir þotnir, í löngu
verðskuldaðan fögnuð, 6
fræknir piltar: Sæmundur,
Páll og Hilmar og Sverrir,
Hjalti og Svanur, sem allir
eru í dag hetjur, hver í sín-
um skóla, og eru sannar-
lega allir með tölu sigur-
vegarar kvöldsins.
MR mætir
jafnoka
sínum!
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hljóðneminn í
höfn 9. árið í röð:
Sigurlið MR, þeir
Svanur Péturs-
son, Hjalti Snær
Ægisson og
Sverrir Teitsson.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Á síðustu tveim-
ur spurning-
unum vann hið
frækilega lið
Borgarholts-
skóla upp 6
stiga forskot MR
og knúði fram
bráðabana. Lið
Borgarholts:
Páll, Sæmundur
og Hilmar.
Menntaskólinn í Reykjavík hafði nauman sigur í Gettu betur