Morgunblaðið - 01.04.2001, Blaðsíða 31
að fyrirtækið var búið að ná góðri fót-
festu á heimamarkaði og ekki miklir
stækkunarmöguleika hér heima.
Hún hafði orðið vör við að konur bú-
settar erlendis, sem höfðu kynnst NO
NAME-vörunum, voru að láta útvega
sér þær héðan. Eins hafa þær fengið
mjög góðar viðtökur í fríhöfninni.
Hún þreifaði aðeins fyrir sér með út-
flutning til Svíþjóðar, en hafði ekki
árangur sem erfiði.
Hins vegar hafa NO NAME-
snyrtivörurnar nú náð fótfestu í Nor-
egi og gengur markaðssetning þar að
óskum, að sögn Kristínar. „Við byrj-
uðum í fyrra í Noregi. Ég fór þá út og
hélt námskeið. Umboðsmenn okkar í
Noregi heita Gyða Laufey Kristins-
dóttir og Jórunn Nordeide. Þær eru
báðar snyrti- og förðunarfræðimeist-
arar, þekkja þennan markað og hafa
sambönd.“ NO NAME-vörurnar
voru fyrst boðnar til sölu í verslun
Magic-keðjunnar í nýjustu verslun-
armiðstöð Oslóar, Oslo City.
„Það varð algjör sprenging,“ segir
Kristín um viðtökurnar. „Þær tóku
vörurnar inn í október og nú eru út-
sölustaðirnir orðnir sex án þess að
nokkuð hafi verið auglýst. Margir
hafa hringt að fyrra bragði, bæði
snyrtistofur og verslanir, og óskað
eftir að fá vörurnar til sölu.“ Þá má
geta þess að þrír norskir snyrtiskólar
eru farnir að nota NO NAME-snyrti-
vörur. Um þessar mundir stendur yf-
ir leit að fyrsta Andliti ársins í Noregi
og verður valið væntanlega kynnt á
næsta ári. Þá er einnig ráðgert að
opna NO NAME-förðunarskóla þar í
landi í september næstkomandi.
Skólinn verður rekinn með sama
sniði og hér á landi.
Kristín segir að í Noregi sé meira
um konur með dökkt litaraft en hér.
Þessi nýi markhópur hafi kallað á
nýja liti í förðunarlínu NO NAME.
„Ég hannaði því förðunarlínu fyrir
dökka húð sem fer á markað í Noregi
og verður einnig seld hér. Konur með
dökka húð hafa ekki átt auðvelt með
að fá snyrtivörur við sitt hæfi í Evr-
ópu, þótt slíkar förðunarlínur séu al-
gengar í Bandaríkjunum.“
Markaðssókn í Þýskalandi
Nú er nýlokið þátttöku NO NAME
í verkefninu Markaðsstjóri til leigu, á
vegum Útflutningsráðs Íslands.
Þetta verkefni hófst 1999 og segir
Kristín að tækifærið hafi verið notað
til markaðssóknar í Þýskalandi. Fyr-
ir milligöngu Gyðu L. Jónsdóttur,
sem stjórnaði verkefninu hjá Útflutn-
ingsráði, var fenginn sérstakur ráð-
gjafi í Þýskalandi. Sá heitir Benny
Sörensen, er danskur að ætt en bú-
settur í Þýskalandi. „Ég fór til
Þýskalands í janúar og var á stans-
lausum fundum í þrjá daga,“ segir
Kristín. Sörensen markaðsráðgjafi
hafði undirbúið fundina og ef mæli-
kvarði umfangs er lagður á viðmæl-
endur þá voru þeir allt frá einstak-
lingum með snyrti- og förðunarstofur
upp í fulltrúa verslunarkeðju með 640
verslanir. Kristín segir að samstarfið
við markaðsráðgjafann hafi sparað
mikinn tíma og fjármuni.
„Ég er tilbúin í aukna sölu og
þarna náðum við viðskiptasambönd-
um sem verið er að vinna í núna.“
Þótt viðskipti NO NAME í Noregi
séu rétt að byrja hafa þau vakið at-
hygli í nágrannalöndunum. Kristín
segir að fyrirspurnir hafi borist bæði
frá Svíþjóð og Finnlandi, sem verið
er að athuga. Hún segist vilja ná betri
fótfestu í Noregi og læra af mark-
aðssetningunni þar, áður en tjaldhæl-
arnir eru færðir enn frekar út á
Norðurlöndum.
Atvinnuskapandi snyrtivörur
Allt sem snýr að NO NAME-
snyrtivörunum, annað en sjálf fram-
leiðsla og blöndun efnanna, er unnið
hér á landi og skapar mörg störf, að
sögn Kristínar. Þar má nefna mark-
aðssetningu, gerð kynningarefnis,
auglýsingagerð, gerð ytri umbúða og
pökkun. Kristín segir að sú stefna
hafi verið tekin við gerð kynningar-
efnis, auglýsinga og veggmynda að
sýna vörurnar í íslenskri náttúru.
„Ísland hefur afskapalega jákvæða
ímynd og er vinsælt alls staðar um
þessar mundir. Það er því jákvætt að
tengja þessar vörur við óspillta nátt-
úru landsins,“ segir Kristín. Hún seg-
ir að ljósmyndarinn Atli hafi unnið
fyrir NO NAME um árabil og honum
hafi tekist vel að tengja náttúruna og
NO NAME-vörur í ljósmyndum sín-
um.
Vörurnar eru settar í standa fyrir
verslanir, bæði gólf- og borðstanda.
Þessir standar eru gerðir úr akríl-
plasti og framleiddir hér á landi.
Baukarnir, dósirnar og hylkin sem
innihalda farða, krem og liti verða nú
sett í öskjur, umslög og kassa. Mark-
aðssetning utanlands kallar á það,
bæði vegna strikamerkinga og inni-
haldslýsingar. Þessar ytri umbúðir
hafa verið hannaðar í samvinnu við
Odda og eru prentaðar í Kassagerð-
inni. Kristín segir að þær verði
kynntar um leið og Andlit ársins
2001. Allar NO NAME-vörur eru
fluttar hingað til lands og umpakkað
á lager fyrirtækisins í Bolholti 6 í
Reykjavík.
NO NAME hefur ekki verið með
sérstaka verslun hér á landi. Þegar
hin nýja Debenhams-verslun verður
opnuð í Smáralind er ætlunin að vera
þar með sérstaka NO NAME-af-
greiðslueiningu, líkt og algengt er í
snyrtihúsum erlendis þar sem hver
framleiðandi hefur sína einingu. „Það
eru þær Ásdís H. Ágústsdóttir og
Sólveig Berg Björnsdóttir, arkitekt-
ar hjá Yrki arkitektum hf., sem
hanna þessa einingu,“ segir Kristín.
Hugmyndin er að slíkar NO NAME-
einingar verði síðar settar upp í
snyrtihúsum erlendis.
Miklir möguleikar
Kristín hefur mikil áform um upp-
byggingu fyrirtækisins og segist sjá
fyrir sér að NO NAME-snyrtivör-
urnar verði markaðssettar á heims-
vísu. Í hverju landi verði farin svipuð
leið og hér með vali á Andliti ársins
og förðunarkennslu. Til að það geti
orðið þarf aukið fjármagn.
„Fyrirtækið hefur vaxið svo ört og
tækifærin eru svo mikil að næsta
verkefni mitt er að finna íslenska
fjárfesta til að styrkja reksturinn enn
frekar,“ sagði Kristín Stefánsdóttir.
gudni@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 31
Útsölustaðir:
Reykjavík: Verslanir Hans Petersen, Myndval í Mjódd, Beco ehf. Kópavogur: Hans Petersen. Garðabær: Framköllun Garðabæjar ehf.
Hafnarfjörður: Filmur & Framköllun. Keflavík: Verslunin Hljómval. Vestmannaeyjar: Bókabúðin - Penninn. Selfoss: Hans Petersen. Akureyri: Pedromyndir.
Sauðárkrókur: Bókabúð Brynjars. Ísafjörður: Penninn - Bókaverslun Jónasar Tómassonar ehf. Akranes: Penninn - Bókabúð Andésar Nielssonar.
www.hanspetersen.is
LJÓSMYNDANÁMSKEIÐ
FYLGIR HVERRI MYNDAVÉL
R
Ú
N
A
Falleg hönnun, stór skoðari og
stórir stjórntakkar.
Góð vél fyrir byrjandann
Verð: 6.690
C a n o n P R I M A B F - 9 S
Léttasta APS vélin (aðeins 115g).
Álíka stór og hefðbundið greiðslukort.
Einföld og meðfærileg.
Tilboðsverð: 11.900.- með tösku.
C a n o n I X U S M 1
Nýjasta Ixus myndavélin
með aðdráttarlinsu. Hlaut hin
eftirsóttu EISA verðlaun 2000-2001
í flokki APS myndavéla. Fjölmargir
möguleikar í myndatöku.
Tilboðsverð: 17.990.-
C a n o n I X U S Z 5 0
Falleg og stílhrein myndavél á
frábæru verði. Fer vel í hendi og
er einföld í notkun. Aðdráttarlinsa
fyrir nærmyndir sem og landslags-
myndir. Canon taska fylgir.
Tilboðsverð: 12.390-
(13.990.- með dagsetningu).
C a n o n P r i m a Z o o m 7 6
Heildverslun
Vantar meðeiganda til að kaupa næstum aldagamla heildverslun sem
er með ótal mjög góð umboð fyrir margvíslegar vörur. Umsækjandi
þarf að vera góður sölumaður og sjá um þau málefni. Veltan var yfir
100 millj. á sl. ári. Þarf að geta byrjað strax. Hinn meðeigandinn er
mjög hæfur stjórnandi og reyndur á þessu sviði. Frábært og einstakt
tækifæri fyrir duglegan og snjallan sölumann. Upplýsingar hjá Fyrir-
tækjasölunni Suðurveri og aðeins á skrifstofunni.
ATVINNA mbl.is