Morgunblaðið - 29.04.2001, Qupperneq 1
MORGUNBLAÐIÐ 29. APRÍL 2001
96. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Ákvörðun samkeppnisráðs
verði felld úr gildi
20
Skattkerfið verði
aðdráttarafl fyrir
erlend fyrirtæki
10
Sunnudagur
29. apríl 2001
ferðalögMeð hippum í ChilebílarBMW í RoverbörnVissuð þið...bíó Íslendingar í Cannes
Hvað segið þér um
þetta, herra Björnsson?
„Ég var talinn
slæmur – en tekið
fram að konan
mín væri þó
miklu hættulegri.“
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Aldrei of seint að
verða hamingjusamur
Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir
Tónlistarmennirnir
í Buena Vista Social
Club halda tónleika
hér á landi á morg-
un og þriðjudag.
Árni Matthíasson
hitti að máli þau
Omara Portuondo
og Ibrahim Ferrer
sem eru meðal gest-BErfitt að draga í land28
BRESK lögregluyfirvöld hafa ráðið
þekktan töframann til að halda
námskeið fyrir yfirmenn, í því
skyni að auka sjálfstraust þeirra og
leiðtogahæfileika.
The Daily Telegraph greindi frá
því í gær að Michael Vincent, sem
kosinn hefur verið töframaður árs-
ins í Bretlandi, muni sýna 20 hátt-
settum lögregluforingjum spila-
galdra og sjónhverfingar á
námskeiði er nefnist „Töfrar al-
mannatengslanna“, en tilgangurinn
er að bæta samskipti lögreglunnar
við almenning. Munu yfirmennirnir
sækja tvær fimm klukkustunda
kennslustundir, en lærdómurinn er
ekki ókeypis því hvor kennslustund
kostar 3.000 pund, eða rúmlega 400
þúsund krónur.
Hugmyndin hefur hlotið blendn-
ar viðtökur meðal lögreglumanna.
„Við höfum öll gaman af töfra-
brögðum, en er meiningin að lögg-
ur fari að draga kanínur upp úr
hjálmunum?“ spurði Dave Rodgers,
formaður samtaka lögreglumanna
á Lundúnasvæðinu. Aðrir reyndu
að horfa á björtu hliðarnar.
„Kannski getur [töframaðurinn]
galdrað fram nokkur þúsund lög-
reglumenn til viðbótar við lög-
regluliðið í höfuðborginni til að
berjast gegn innbrotum og ránum
og hjálpa okkur að vernda almenn-
ing,“ hafði The Daily Telegraph
eftir Norman Brennan, talsmanni
hagsmunasamtaka lögreglumanna,
„Verndum verndarana“.
Breskir lögreglumenn
Í læri
hjá töfra-
manni
London. The Daily Telegraph.
BANDARÍSKI auðjöf-
urinn Dennis Tito varð
í gærmorgun fyrsti
geimferðalangurinn,
þegar rússnesku
Soyus-geimfari var
skotið á loft með hann
innanborðs á leið til Al-
þjóðlegu geimstöðvar-
innar (ISS).
Soyuz-farinu var
skotið frá geimferða-
miðstöð Rússa í Baik-
onur í Kasakstan
klukkan 7:37 í gær-
morgun að íslenskum
tíma. Áætlað var að
flaugin tengdist Al-
þjóðlegu geimstöðinni á mánudag,
en vegna tölvubilunar í ISS er nú
óvíst um það. Auk Titos eru tveir
rússneskir geimfarar um borð.
Á myndsendingu frá geimflaug-
inni sést Tito í geimfarabúningi
skreyttum bandaríska fánanum,
með breitt bros á vör. Þegar stjórn-
andi á jörðu niðri spurði hann hvern-
ig honum liði, svaraði hann: „dásam-
lega“.
Tito, sem er sextugur að aldri, er
sagður hafa greitt sem svarar nær
tveimur milljörðum íslenskra króna
fyrir ferðina. Í viðtali sem CNN-
fréttastöðin tók við hann fyrir geim-
skotið kvaðst hann vera að uppfylla
draum lífs síns. „Það hafa aðeins um
400 manns komið út í geim, svo það
eru stórkostleg forréttindi fyrir mig
að geta virt jörðina fyrir mér frá
þessu sjónarhorni.“
Unnusta Titos, fyrrverandi eigin-
kona og börn þeirra þrjú voru í Baik-
onur til að fylgjast með geimskotinu.
„Hvílík spenna,“ sagði Mike sonur
hans við AP. „Ég get rétt ímyndað
mér hvernig pabba hefur liðið þarna
uppi, þetta var ótrúlegt að sjá héð-
an.“
Samkomulag
við NASA
Geimferðastofnun Bandaríkjanna,
NASA, hafði óskað eftir að skoti
Soyuz-flaugarinnar yrði frestað
vegna tölvubilunar um borð í ISS.
Sökum bilunarinnar þótti æskilegra
að bandaríska geim-
skutlan Endeavour
yrði tengd geimstöð-
inni fram á mánudag og
þá yrðu geimförin
hættulega nálægt
hvort öðru.
Rússar neituðu að
fresta geimskotinu, en
komust að samkomu-
lagi við NASA um að
bíða fram á þriðjudag
með að tengjast geim-
stöðinni ef Endeavour
yrði ennþá tengd við
hana á mánudag.
Talsmaður NASA,
Michael Baker, sagði í
gær að hugsanlegt væri að Endeav-
our legði af stað til jarðar á sunnu-
dag, eins og áætlað var, en aðeins ef
viðgerðinni á tölvukerfinu yrði lokið.
Ekki kæmi til greina að bæði förin
væru tengd við geimstöðina í einu.
Rússnesku geimferðastofnuninni
var mikið í mun að Soyuz-farið væri
á áætlun, því það á að leysa eldra
flóttafar Rússa við ISS af hólmi.
Áætlaður líftími gamla flóttafarsins
rennur út í lok þessa mánaðar og
Tito og rússnesku geimfararnir tveir
munu fara á því til jarðar eftir sex
daga dvöl í geimstöðinni.
Tito fékk mikla þjálfun
fyrir geimferðina
NASA hafði fyrr í vikunni mót-
mælt því að Rússar seldu ferðir til
Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, þar
sem það samræmdist ekki öryggis-
sjónarmiðum, en stjórnendur geim-
stöðvarinnar komust á þriðjudag að
samkomulagi um að leyfa för Titos.
NASA tók þó skýrt fram að þetta
væri undantekning sem yrði ekki
endurtekin.
Rússar fullyrða hins vegar að Tito
hafi hlotið samsvarandi undirbúning
og aðrir geimfarar, en hann mun
hafa hlotið mikla líkams- og tækni-
þjálfun, auk þess að hlýða á fyrir-
lestra í samtals 900 klukkustundir.
AFP hafði eftir yfirmanni rúss-
nesku geimferðastofnunarinnar í
gær að viðræður væru í gangi um för
annars „ferðamanns“ út í geim.
Fyrsti geimferðalangurinn á leið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar
Óvíst að far-
ið tengist
á mánudag
Baikonur. AFP, AP.
AP
Soyuz-geimfarinu skotið á loft frá Baikonur í Kasakstan í gærmorgun.
Dennis Tito
SKJÖL, sem nýlega hafa verið gerð
opinber, staðfesta að bandaríska
leyniþjónustan (CIA) réð ýmsa
stríðsglæpamenn nasista til starfa
eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar.
Nefnd sagnfræðinga, sem skipuð var
af Bandaríkjaþingi til að rannsaka
skjölin, segir CIA hafa gert „hræði-
leg mistök“.
Í skjölunum, sem eru um 18.000
blaðsíður, kemur fram að kunnir
þýskir nasistaforingjar, á borð við
Klaus Barbie, Wilhelm Höttl, Emil
Augsburg og Guido Zimmer, hafi
verið ráðnir af vestrænum leyniþjón-
ustum til að njósna um Sovétríkin og
leppríki þeirra á fyrstu árum kalda
stríðsins, og að sumir þeirra hafi fyr-
ir vikið sloppið við ákæru vegna
stríðsglæpa.
Í einu skjalanna er sagt frá upp-
lýsingum sem Ferdinand Sauer-
bruch, læknir Adolfs Hitlers, veitti
CIA um geðheilsu hans. Þar segir að
haft hafi verið eftir lækninum árið
1937 að „nasistaleiðtoginn væri á
mörkum þess að vera snillingur og
brjálæðingur og að hann teldi að það
myndi ráðast á næstu mánuðum
hvort Hitler myndi hneigjast til þess
síðarnefnda. Prófessor Sauerbruch
sagði þvínæst að ef það gerðist yrði
Hitler „brjálaðasti glæpamaðurinn í
veraldarsögunni“.“ Í skjalinu segir
að læknirinn hafi komist að þeirri
niðurstöðu síðar á árinu 1937 að
brjálsemin hefði náð yfirhöndinni.
Nýútgefin skjöl bandarísku leyniþjónustunnar
Staðfest að CIA hafi
ráðið nasista til njósna
Washington. AFP, AP.