Morgunblaðið - 29.04.2001, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 29.04.2001, Blaðsíða 15
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 15 Við sendum innilegar þakkir til allra þeirra fjöl- mörgu ættingja og vina sem glöddu okkur með blómum, gjöfum og skeytum á 60 ára hjúskap- arafmæli okkar þann 9. apríl sl. Guð blessi ykkur öll. Elísabet og Halldór M. Ólafsson, Hafnarfirði. ÁRLEG Sæluvika Skagfirðinga hefst í dag og lýkur sunnudaginn 6. maí. Að venju mun sveitarstjórinn Snorri Björn Sigurðsson setja vikuna í Safnahúsinu á Sauðár- króki og opnuð verður málverka- sýning og kynnt úrslit í vísna- keppni Safnahússins. Þá verður frumsýning Leikfélagsins um kvöldið, en síðan rekur hver menningar-, lista- og skemmti- samkoman aðra, allt til loka vik- unnar. Sauðárkrókskirkja hefur aukið hlut sinn í vikunni og er nú með gospelmessu á sunnudagskvöld og á mánudagskvöldi verður ár- legt kirkjukvöld en þar er að- alræðumaður sr. Þórir Stephen- sen, fyrrverandi sóknarprestur á Sauðárkróki og Dómkirkjuprest- ur í Reykjavík. Hinn fyrsta maí verður hátíð- ardagskrá í Bifröst á vegum verkalýðsfélaganna og um kvöld- ið verða Ífurnar með menningar- dagskrá. Dægurlagakeppni kvenfélagsins Möguleikhúsið verður með leiksýningar fyrir yngri kynslóð- ina, og mikið verður um söng, því Rökkurkórinn verður með tónleika í Bifröst, Bjargræðis- kvartettinn með tónleika á Kaffi Króki, Söngflokkurinn Norðan átta heldur tónleika í Bóknáms- húsi Fjölbrautaskólans og þar mun einnig barítonsöngvarinn Kristján Valgarðsson halda ein- söngstónleika á lokadegi vikunn- ar. Dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks fer fram í Íþrótta- húsinu á föstudagskvöldinu, og lokadansleikir vikunnar verða í Miðgarði og Bifröst. Alla vikuna eru kvikmynda- sýningar í Bifröst og hátíðar- bragur á bænum. Leikfélag Sauðárkróks 60 ára Undir stjórn Eggerts Kaaber leikstjóra hefur Leikfélag Sauð- árkróks æft að undanförnu hinn sígilda franska gamanleik Ímyndunarveikin eftir Moliére sem verður frumsýndur á morg- un. Leikfélagið fagnar með því 60 ára afmæli Leikfélags Sauð- árkróks hins yngra, enda ekki vitað til þess að áður hafi verið fært upp verk þessa höfundar á þeim tíma sem félagið hefur starfað. Leikstjórinn Eggert Kaaber segir mjög ánægjulegt að starfa með leikhópnum, enda leikhefð í héraðinu gróin og margt ágætra og áhugasamra leikara innan félagsins. Eggert segir leikinn eiga að gerast í París 1673, en hann hafi fært hann nær nútímanum, stytt lítillega og aðlagað leikhópnum. Skemmtilegra sé að reyna að hafa söguna nær nútímanum, en þó eins tímalausa og mögulegt sé. Þrátt fyrir að Moliére hafi ver- ið kallaður konungur gamanleikj- anna hafi verk hans síður ratað inn á fjalir atvinnuleikhúsanna, miklu fremur verið vinsæl meðal áhugaleikhópa og verið sýnd víða um land. Jóhanna Bogadóttir opnar myndlistarsýningu Þeim Eggerti og Guðbrandi Guðbrandssyni, sem leikur hinn ímyndunarveika Argan, ber sam- an um að verkið eigi ekki síður erindi til áhorfenda á Íslandi í dag heldur enn í Frakklandi á sautjándu öld, því að „– hver er ekki meira og minna ímyndunar- veikur í dag, hver er ekki hrædd- ur um að nú sé heilsan að bila, og grípur fegins hendi – þegar allir eru að hræra í viðkomandi með sjúkdómslýsingum, þeim möguleikum sem nýjar pillur eða nýtt lyf færa“. Leikarar í sýningu Leikfélags Sauðárkróks eru 11 en alls koma að sýningunni um 30 manns. Við opnun Sæluvikunnar í Safnahúsinu verður opnuð sýn- ing á málverkum og vatnslitak- rítarmyndum Jóhönnu Bogadótt- ur. Sýningin stendur alla vikuna, til sunnudagsins 6. maí, og er op- in alla daga frá kl. 14–19. Fjölbreytt menningar- dagskrá á Sæluviku Sauðárkróki. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.