Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 19

Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 19
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 19 Ekta augnhára- og augnabrúnalitur, er samanstendur af litakremi og geli sem blandast saman, allt í einum pakka. Mjög auðveldur í notkun. Fæst í þremur litum og gefur frábæran árangur. Hver pakki dugir í 20 litanir. Útsölustaðir: Apótek og snyrtivöruverslanir Ath. naglalökk frá Trind fást í tveimur stærðum Allar leiðbeiningar á íslensku Fást í apótekum og snyrti- vöruverslunum um land allt. 3 au gn sk ug ga r sa m an Me ð næ rðu ára ngr i Með því að nota TRIND naglanæringuna færðu þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar svo þær hvorki klofna né brotna. handáburðurinn með Duo-liposomes. Ný tækni í framleiðslu húðsnyrtivara, fallegri, teygjanlegri, þéttari húð. Sérstaklega græðandi. EINSTÖK GÆÐAVARA Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317 NÝ TT NÝTT Frábærar vörur á frábæru verði. Gerið verðsamanburð. Vatnsþynnanlegt vax- og hitatæki til háreyðingar. Vaxið má einnig hita í örbylgjuofni. Einnig háreyðingarkrem, „roll-on“ eða borið á með spaða frá Nýjung Ný ju ng Þýskar förðunarvörur ATH. nú! Frá Tana Maskara Stone (Köku-maskari). Þessi (svarti) gamli góði með stóra burstanum. Uppl. í smáblaði sem fylgir augnbrúnalitnum. A ugnháranæ ring = Útsölustaðir: Snyrtivöruverslunin Nana, Rvík, Líbía, Mjódd, Hringbrautar Apótek, Rima Apótek, Grafarvogs Apótek, Lyf & heilsa, Álfabakka, Lyf & heilsa, Háteigsvegi 1, Borgarapótek, Álftamýri, Fína Mosfellsbæ, Gallerí Förðun, Keflavík, Sauðárkróks Apótek, Stykkishólms Apótek, Árnesapótek, Selfossi. Hafnarapótek, Höfn, Hornafirði, Lyfsalan Hólmavík. Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í glæsi- lega vorferð til Costa del Sol þann 8. maí á hreint ótrúlegu verði í 14 nætur. Þú bókar núna og 4 dögum fyrir brottför látum við þig vita á hvaða gististað þú dvelur í fríinu. Þú nýtur fegursta tíma ársins á þessum vinsælasta áfangastað við Miðjarðarhafið og á meðan á dvölinni stendur, nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Síðustu sætin Stökktu til Costa del Sol 8. maí frá 39.985 kr. Verð kr. 49.930 M.v .2 stúdíó, 8. maí, 14 nætur, flug, gisting, skattar. Verð kr. 39.985 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, 8.maí, 14 nætur. Flug, gisting, skattar. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is MÁLÞING Lögmannafélags Ís- lands og Læknafélags Íslands um persónuvernd og friðhelgi einkalífs- ins í ljósi gagnagrunna á heilbrigð- issviði var haldið á föstudag og var yfirskrift þingsins spurning um hvort lausnar væri að vænta í deil- unni um framkvæmd gagnagrunns- laganna. Athygli vakti að einn fyr- irlesari og einn þátttakandi í pallborðsumræðum höfðu ákveðið að draga sig í hlé en það voru þeir Einar Stefánsson, læknir og framkvæmda- stjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu, og Hlynur Halldórsson hæstaréttar- lögmaður sem starfað hefur fyrir sama fyrirtæki. Ásgeir Thoroddsen, formaður Lögmannafélags Íslands, gerði grein fyrir þessu í upphafi þingsins og sagði þá hafa hætt við þátttökuaf persónulegum ástæðum. Að sögn Ásgeirs hafði þetta nokkur áhrif á umræðuna á málþingingu og skekkti óneitanlega þá mynd ólíkra sjónar- miða sem ætlunin var að fá fram á þinginu. „Ég veit að afstaða þessara manna varð til þess að maður sá ekki þarna andlit manna sem maður vissi að væru sama sinnis og hafa greinilega tekið þá afstöðu líka að mæta ekki,“ sagði Ásgeir í samtali við Morgun- blaðið. Á málþinginu komu fram efa- semdir um að gagnagrunnslögin stæðust stjórnarská og töldu menn jafnframt að fyrr en seinna muni reyna á það atriði fyrir dómstólum. Þá var á þinginu var fjallað um leiðir sem leitt gætu til lausnar í deilunni um framkvæmd laga um gagna- grunna á heilbrigðissviði. Í erindi Jóns Snædals læknis kom fram að hugsanlegar lausnir væru helst ferns konar. Í fyrsta lagi að það yrði lagabreyting á þá lund að fengið yrði samþykki fólks og það spurt um heimild til nota heilsufarsupplýsing- ar þess í gagnagrunn. Jón taldi þessa lausn þó ólíklega þar sem engin ný rök hefðu komið fram frá því að gagnagrunnslögin voru samþykkt og því væri þessi leið mjög ólíkleg póli- tískt séð. Löggjafinn þarf að koma að málinu Í öðru lagi taldi Jón þá lausn at- hugandi að setja inn í lögin ákvæði um að upplýsingum verði eytt eftir að þær hafa verið færðar í grunninn, fari sjúklingur fram á það. Í þriðja lagi taldi Jón að væntan- leg yfirlýsing Alþjóðalæknafélagsins gæti haft áhrif en hún væri nú í bí- gerð og yrði líklega samþykkt í haust. Forsvarsmenn ÍE hafa lýst því yfir að þeir muni hlíta þeirri nið- urstöðu og taldi Jón að Læknafélag- ið hlyti að gera það einnig. Fjórða hugmyndin sem Jón varp- aði fram var aðkoma hlutlauss aðila sem bæði ÍE og LÍ treystu og sagði hann að framlag landlæknis hefði haft töluvert að segja í málinu. Hugsanlegt væri að embætti land- læknis gæti orðið nokkurs konar verndari sameiginlegrar yfirlýsing- ar. Jón taldi að lausn á málinu væri möguleg en löggjafinn hlyti að þurfa að koma að málinu aftur fyrr eða síð- ar á einhvern hátt. Málþing um persónuvernd í ljósi gagnagrunns á heilbrigðissviði Fjórar leiðir mögulegar til lausnar deilunni Morgunblaðið/Ásdís Fjölmenni var á málþingi Lögmannafélagsins og Læknafélagsins sem haldið var á Grand Hotel í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.