Morgunblaðið - 29.04.2001, Qupperneq 22
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 25
Ert þú með smá
appelsínuhúð eða
kannski bara mikla?
Það skiptir ekki máli.
Silhouette
er alltaf lausnin!
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland
www.karinherzog.com
Ætlar þú í
sólbað í sumar?
Enn eitt árið í röð nota
keppendur fegurðarsam-
keppninnar Silhouette
...ferskir vindar í umhirðu húðar
FRÁ HÁSKÓLA ÍSLANDS
SKRÁSETNING NÝRRA STÚDENTA
Skrásetning nýrra stúd-
enta til náms í Háskóla Íslands
háskólaárið 2001-2002 fer fram í
Nemendaskrá í Aðalbyggingu
Háskólans og lýkur 6. júní 2001.
Umsóknareyðublöð fást í
Nemendaskrá sem opin er frá
kl. 10 til 15 virka daga. Einnig er
unnt að fá umsóknareyðublöð í
öllum framhaldsskólum landsins.
Í Háskóla Íslands eru ellefu deildir
sem hver um sig býður upp á
nám til fyrstu háskólagráðu og
framhaldsnám. Samtals eru 57
námsleiðir til fyrstu háskólagráðu
(BA/BS/kandídatspróf), starfs-
tengt viðbótarnám (eitt ár) eftir
fyrstu háskólagráðu er í 19
greinum og 74 námsleiðir eru til
meistaraprófs sem margar geta
einnig leitt til doktorsprófs. Auk
þess er boðið upp á stutt hagnýtt
nám í nokkrum greinum.
Nánari upplýsingar um nám við
Háskóla Íslands er að finna á
heimasíðu Háskólans, www.hi.is
Námsráðgjöf Háskóla
Íslands býður upp á eftirfarandi
þjónustu dagana 22. maí til 6. júní
frá kl. 9 til 16:
• Aðstoð við útfyllingu
umsóknareyðublaða í anddyri
Aðalbyggingar.
• Áhugasviðskönnun Strong fyrir
nýnema. Áhugasviðskönnunin
fer fram í stofu IX í
Aðalbyggingu frá kl. 10 ti 15.
(Þeir sem forskrá sig og vilja
taka áhugasviðspróf hafi beint
samband við Námsráðgjöf HÍ
í síma 525 4315 frá kl. 13 til 14
mánudaga til fimmtudaga.)
• Stutta kynningarfundi um
hagnýt atriði fyrir nýnema
og upplýsingar um námsleiðir í
stofu II í Aðalbyggingu.
Stúdentspróf er inntökuskilyrði
í allar deildir Háskólans, en
athugið þó eftirfarandi:
Þeir sem hyggjast skrá sig til
náms í raunvísindadeild (allar
greinar nema landafræði) skulu
hafa stúdentspróf af náttúrufræði-
braut.
Í eftirtöldum greinum eru
samkeppnispróf við lok haust-
misseris í desember og fjöldi
þeirra sem öðlast rétt til að halda
áfram námi á síðara misseri tak-
markaður (fjöldi í sviga): læknis-
fræði (40), hjúkrunarfræði (65),
sjúkraþjálfun (18) og tann-
læknadeild (6).
Við nýskrásetningu skrá
stúdentar sig jafnframt í
námskeið á komandi
haust- og vormisseri
Umsóknum um skrásetningu skal
fylgja:
• Ljósrit eða staðfest eftirrit af
stúdentsprófsskírteini. (Ath!
Öllu skírteininu. Athugið að
hægt er að forskrá sig áður en
til útskriftar úr framhaldsskóla
kemur í vor, enda verði
staðfest ljósrit af öllu stúdents-
prófsskírteininu lagt fram um
leið og það liggur fyrir).
• Skrásetningargjald kr. 25.000.
• Ljósmynd af umsækjanda
(í umslagi merktu nafni og
kennitölu).
Ekki er tekið á móti beiðnum um
nýskrásetningu eftir að auglýstu
skrásetningartímabili lýkur 6. júní
nk. Athugið einnig að skrásetn-
ingargjaldið er ekki endurkræft
eftir 20. ágúst 2001. Skrásetning
er þegar hafin. Mætið tímanlega
til að forðast örtröð.
Í FRAMHALDI af
umræðum um skipu-
lagsmál á höfuðborg-
arsvæðinu síðustu
misseri segir Gestur
Ólafsson arkitekt og
skipulagsfræðingur
hjá Skipulags-, arki-
tekta- og verkfræði-
stofunni að fyrir tutt-
ugu árum hafi hann,
ásamt fleirum á Skipu-
lagsstofu höfuðborg-
arsvæðisins, byggt
upp tölvulíkan sem
sýndi m.a. áhrif nýrra
verslunarhverfa á þá-
verandi miðbæi á höf-
uðborgarsvæðinu. „Við sáum þá þeg-
ar hvert stefndi með fyrirhuguð
verslunarhverfi á höfuðborgarsvæð-
inu og bentum á að samræmd stefnu-
mörkun á þessu sviði væri eitt af
grundvallaratriðum í framtíðarþró-
un svæðisins,“ segir Gestur.
„Skýrslan okkar byggir á viður-
kenndri aðferðafræði sem hefur því
miður ekki hlotið hljómgrunn hjá ís-
lenskum stjórnmálamönnum eins og
reyndar margvísleg þekking og
reynsla hóps sérmenntaðra manna á
skipulagsfræðasviðinu,“ bætir Gest-
ur við. Gestur segir að með líkaninu
sé hægt að áætla hvernig velta í
verslun á höfuðborgarsvæðinu
dreifðist á viðkomandi verslunar-
hverfi miðað við stærð og nokkur
fleiri atriði, t.d. staðsetningu íbúðar-
hverfa og gatnakerfi. Þetta sé „að-
ferð við mat á áhrifum nýrra versl-
unarhverfa sem notuð hefur verið
um áratuga skeið bæði austan hafs
og vestan með góðum árangri en hef-
ur enn ekki átt upp á pallborðið hjá
íslenskum stjórnmálamönnum.
Mörg önnur lönd en Norðurlönd tak-
marka nú stærð verslunarhverfa ut-
an gróinna miðbæja, eins og t.d. á Ír-
landi þar sem nýjar verslunar-
miðstöðvar mega ekki vera stærri en
3.000 fermetrar. Undanþágur er þó
hægt að fá, upp í 3.500 fermetra ef
viðkomandi verslanir eru nærri
grónum miðbæjarkjörnum og því
ólíklegar til að raska jafnvæginu sem
þar ríkir fyrir. Til þessara ráðstaf-
ana er gripið til að koma í veg fyrir
óæskilegar sveiflur, að stærri eining-
arnar knésetji ekki þær smærri sem
aftur getur valdið minnkandi sam-
keppni og hærra vöruverði til neyt-
enda.
Skipulagsfræðingar hafa einnig
þróað aðferðafræði við heildstætt
mat fyrirhugaðra framkvæmda eða
aðgerða, sem hægt er að nota hvort
heldur um er að ræða flutning flug-
vallar, nýtt verslunarhverfi eða hót-
el, ráðstefnumiðstöð og tónlistarhús
eins og nú er ráðgert að reisa í gamla
miðbænum í Reykjavík. Um er að
ræða talsvert öðruvísi athugun held-
ur en framkvæmd er í venjubundnu
umhverfismati. Tekið er á öðrum
þáttum og hægt er að meta þau áhrif
sem hlutaðeigandi aðilar verða fyr-
ir,“ segir Gestur.
Skýtur skökku við
Gestur segir að sú þróun sem hér
hefur viðgengist skjóti skökku við
því ráðamönnum hér hljóti að hafa
verið kunnugt um þau vinnubrögð
sem viðhöfð hafa verið erlendis á
þessu sviði og þá vinnu sem Skipu-
lagsstofa höfuðborgarsvæðisins
innti af hendi á sínum tíma. Jafn-
framt hefðu allir umhverfisráðherr-
ar Norðurlandanna nýverið sent frá
sér stefnumörkun að vistvænni og
sjálfbærri þróun í þéttbýli sem sér-
staklega tæki á skipulagi verslunar-
hverfa.
„Það samt er eitt að hafa stefnu og
annað að fara eftir henni. Sú stefna
sem umhverfisráðherrarnir voru að
marka er í sjálfu sér góð, en hvað
viðvíkur skipulagi verslunarhverfa
hér á höfuðborgarsvæðinu hafa öll
viðurkennd vinnubrögð í skipulags-
málum verið hunsuð. Mörg nýleg
dæmi í skipulagsmálum þessa stund-
ina sýna að við erum á mjög vafa-
samri leið og því lengra sem þróunin
fær að halda svona áfram, því erf-
iðara verður að breyta um og bæta
fyrir skaða, auk þess sem það eru
hinir almennu íbúar þessa svæðis
sem ávallt borga brúsann,“ segir
Gestur.
Hver er vandinn?
„Á þessu eru margar skýringar,
en þær veigamestu eru þó þær að lít-
ill vilji hefur verið fyrir því að nota
tiltæka þekkingu í skipulagsfræðum
til að ráða fram úr þessum málum.
Stjórnmálamenn eiga alltaf lokaorð-
ið þegar kemur að framkvæmdum
en þeir geta eðli málsins samkvæmt
ekki tekið faglega ábyrgð á skipu-
lagsákvörðunum. Þar er staðan sú,
að um svo gífurlega hagsmuni er að
ræða að það er erfitt að fá t.d. sveit-
arstjórnarmenn til að líta heildstætt
á málin og taka ákvarðanir sem eru
til heilla fyrir heildarmyndina. Þeir
hafa auðvitað tilhneigingu til að
hugsa fyrst og fremst um sitt sveit-
arfélag, enda vita þeir hvaðan at-
kvæðin koma.
Þegar ég tala um að lítill vilji sé
fyrir því að nýta tiltæka þekkingu í
skipulagsfræðum á ég við að hér á
landi eru margir reyndir skipulags-
fræðingar sem koma ekki að skipu-
lagsmálum þéttbýlissvæðanna, held-
ur ótal aðilar sem hafa starfsheitið
skipulagsfulltrúar og hafa ekki þá
lágmarksmenntun í skipulagsfræð-
um og starfsreynslu sem Evrópu-
samband skipulagsfræðinga áskilur.
Ég leyfi mér að segja að varðandi
t.d. nýjustu þekktu dæmin, kosn-
inguna um flugvöllinn og skipulag
Smáralindar, var ekki mjög faglega
að verki staðið.
Það er lítið vit í því að sveitar-
stjórnir geti tekið einhliða ákvarð-
anir um landnotkun og landnýtingu
sem síðan neyða ríkið út í misvitrar
framkvæmdir og útgjöld. Erlendis,
t.d. bæði í Bandaríkjunum og Evr-
ópu, viðgengst slíkt ekki.
Því miður kemur núverandi fyr-
irkomulag þannig út að svo virðist
sem enginn beri faglega ábyrgð á
stórum skipulagsframkvæmdum eða
samræmingu margra grundvallar-
þátta í þeirri þéttbýlisþróun sem nú
er að eiga sér stað. Þó er verið að
færa þúsundir milljóna í veltu og
verðmæti fasteigna fram og til baka
með skipulagsákvörðunum. Í siða-
reglum skipulagsfræðinga er knúið á
um heiðarleika og þar stendur að
skipulagsfræðingar skuli ávallt setja
almannahagsmuni efst á blað.
Þetta er dapurlegt ástand fyrir ís-
lenskan almenning. Þekking og við-
urkennd aðferðafræði auk menntaðs
fólks er hunsuð. Þetta eru enn frem-
ur slæm skilaboð til ungs fólks sem
hefur áhuga á að mennta sig í skipu-
lagsfræðum. Það sér að hér er ekki
not fyrir slíkt fólk eða þessa þekk-
ingu. En kannski rennur það samt
einhvern tímann upp fyrir fólki að
það er eitt að teikna hús sem er kyrrt
og í eðli sínu dauður hlutur, en allt
annað mál að vinna með það dínam-
íska fyrirbrigði sem líf manna á höf-
uðborgarsvæðinu er,“ segir Gestur.
Þekking og viður-
kennd aðferða-
fræði hunsuð
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Gestur Ólafsson.
Bakpoki
aðeins 1.600 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is