Morgunblaðið - 29.04.2001, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 27
E
INHVERJAR skær-
ustu stjörnur úr heimi
harmonikuleikara eru
væntanlegar hingað
til lands um næstu
helgi og halda á laugardag tónleika
í Laugarneskirkju. Tónleikar þessir
sigla í kjölfarið á Evrópumeistara-
móti í Frosini-tónlist, sem haldið
var í Hammarstrand í Noregi í nóv-
ember og er markmiðið að efla sess
harmonikunnar í upphafi nýrrar
aldar.
Ungir sem aldnir stunda harm-
onikunám um allt land um þessar
mundir enda mikil gróska í
kennslumálum. Íslenskir harmon-
ikukennarar hafa fram að þessu
lagt mikið af mörkum til að ungt
fólk framtíðarinnar njóti góðrar
kennslu um ókomin ár og nú hafa
sumir tónlistarskólar sem og félög
fengið til starfa kennara að utan,
ekki síst fyrir þá sem langt vilja ná
á þessu sviði. Í þessu sambandi má
hins vegar ekki gleyma samskiptum
við útlönd í þá veru að byggja upp
þekkingu og möguleika til þátttöku
í hinum ýmsu mótum sem völ er á
varðandi harmonikuna. Fátt er jafn
uppbyggilegt og áhugaaukandi og
þátttaka í keppni, ásamt þeim skoð-
anaskiptum er því fylgja.
Í tímaritinu Harmonikunni hefur
ýmsu verið til skila haldið um sögu
harmonikufélaga landsins, harmon-
ikuleikara og annars sem þessu
máli tengist hér á landi og annars
staðar og oft bjargað frá gleymsku.
Blaðið náði því marki nú í apríl að
verða 15 ára. Allar götur frá 1986
hafa komið út þrjú blöð hvert
áskriftarár og hefur mikil vinna far-
ið í að láta blaðið standa undir sér.
Á vegum þessa blaðs hefur einnig
verið sóst eftir að efla kynni við er-
lenda harmonikuunnendur, aðallega
á Norðurlöndunum, og koma því
sem þar er að gerast á síður blaðs-
ins, enda standa Norðmenn, Svíar
og Finnar mun framar en við á
þessu sviði.
Nafni harmonikusnillings
haldið á lofti
Árið 1985 var stofnað í Stokk-
hólmi af sænska harmonikuleikar-
anum Lars Ek svokallað Frosini-
félag (Frosinisällskapet) sem er
félagsskapur m.a. ætlaður til að
halda á lofti nafni hins heimskunna
harmonikusnillings og tónsmiðs,
Ítalans Pietro Frosini (f. 1885).
Frosini byggði upp tónsmíðar sínar
á þann hátt að formið styður að
nokkru við uppbyggingu kennslu-
æfinga í hefðbundinni harmoniku-
tónlist. Flestir tónlistarskólar í
heiminum sem kenna lengra komn-
um nemendum styðjast við tónlist
Frosinis, enda er hann þekktastur
höfunda harmonikutónlistar um
víða veröld. Í tengslum við Fros-
inifélagið hafa verið haldin mót á
Norðurlöndum þar sem keppendur
hafa reynt með sér um Frosini-
meistaratitilinn (Frosini Grand
Prix). Frosinifélagið hefur þróast
gegnum árin og teygir nú anga sína
til fleiri landa. Árið 1998 var stofn-
að alþjóðlegt Frosinifélag og gerð-
ist Ísland aðili að því.
Aðalmarkmið félagsins utan þess
fyrrnefnda er að byggja upp aukna
samvinnu sem flestra landa til að
koma á auknum kynnum milli
ungra harmonikuleikara og stuðla
að ýmiss konar menningarsam-
skiptum harmonikuleikara í nútíð
og framtíð og auka skilning á mik-
ilvægi þeirra. Í nóvember 1998 var í
fyrsta skipti haldin Evrópumeist-
arakeppni í Frosinitónlist og vann
þá ungur Finni titilinn. Árið eftir,
1999, fór hin eftirsótta keppni fram
í Helsinki og var þá í fyrsta skipti í
sögunni Íslendingur meðal kepp-
enda. Var það hinn átján ára gamli
Matthías Kormáksson sem þegar er
orðinn þekktur sem góður harm-
onikuleikari hér. Keppendur voru
alls 5, frá Noregi, Svíþjóð, Rúss-
landi, Finnlandi og Íslandi. Vinn-
ingshafi og þar með Evrópumeist-
ari varð 23 ára gamall Svíi, Mikael
Broberg.
Á síðasta ári, í nóvember 2000,
var keppni þessi haldin í Svíþjóð í
smábænum Hammarstrand í Norð-
ur-Svíþjóð. Enginn ungur harmon-
ikuleikari gaf sig fram hér heima,
svo leitað var til hins landsþekkta
harmonikuleikara Grettis Björns-
sonar sem tók góðfúslega í það að
vera fulltrúi Íslands í keppninni að
þessu sinni. Í þessari keppni eru
engin aldurstakmörk en af eðlileg-
um ástæðum er þetta kjörinn vett-
vangur ungu kynslóðarinnar. Í
keppninni 2000 tóku sömu lönd þátt
og 1999 auk Danmerkur sem bætt-
ist í hópinn. Evrópumeistarinn árið
2000 varð 16 ára gamall Rússi, Al-
exander Satsenko. Þar sem ég,
undirritaður, er fulltrúi Íslands í al-
þjóðlega Frosinifélaginu hef ég sótt
þessi mót. Ekki þarf mikið ímynd-
unarafl til að sjá og heyra hve þátt-
takan er tekin alvarlega og mikill
keppnisandi ríkir, enda takast þar á
snilldargóðir harmonikuleikarar.
Hinum snjalla Gretti Björnssyni
varð á orði er hann heyrði þetta
unga fólk æfa fyrir keppnina í
Hammarstrand að hann hefði verið
kominn nærri því að guggna er
hann gerði sér grein fyrir hæfi-
leikum þeirra.
Ákveðið að efna til
tónleika á Íslandi
Í lok keppninnar í Hammar-
strand var ákveðið að efna til tón-
leika á Íslandi með skærustu
stjörnunum er þar voru laugardag-
inn 5. maí 2001 í Langholtskirkju.
Erlendu gestirnir eru eftirtaldir
einleikarar: Evrópumeistarinn
2001, Rússinn Alexander Sadsenko,
16 ára, Magnus Jonsson frá Sví-
þjóð, 21 árs, Oleg Sharov frá Rúss-
landi, einn besti harmonikuleikari
heims, Seppo Lankinen frá Finn-
landi, mjög þekktur harmonikuleik-
ari og formaður finnska landssam-
bands harmonikuunnenda, og síðast
en ekki síst sænski snillingurinn
Lars Ek sem gert hefur garðinn
frægan um víða veröld, ekki hvað
síst hér á Íslandi. Auk þessara
snillinga munu fylgja með í þessari
ferð um 20 Svíar sem margir eru
harmonikuleikarar. Eins og áður
sagði er blaðið Harmonikan 15 ára
um þessar mundir og Grettir
Björnsson 70 ára og mun það því
tengjast þessum tímamótatónleik-
um og samvinnu í byrjun aldar.
Harmonikan hefur ríkt hér á
landi alla síðustu öld og gott betur
og því er farsælt að hefja nýja öld
með trompi, og sýna ungum sem
öldnum hvílíku valdi og tækni menn
hafa yfir að ráða á hið einstæða
hljóðfæri harmonikuna, sem margir
vilja kalla hljóðfæri gleðinnar, eða
þjóðarhljóðfærið.
Til vitnis um það hvað lengi
harmonikan hefur fylgt Íslending-
um má geta þess að í 1.tbl. Harm-
onikunnar, árg. 1992–1993, er að
finna heimild undir flokknum mol-
ar, þar sem eftirfarandi stendur: Í
samræðum við Lýð Björnsson
sagnfræðing kom fram að danskur
maður að nafni Stillhoff, sem var
skipstjóri á póstflutningaskipi, hafi
leikið á harmoniku á dansleikjum í
Reykjavík, sennilega fyrstur manna
á Íslandi. Hann hóf ferðir hingað
árið 1841 en hann mun hafa
drukknað er skipið fórst undir
Svörtuloftum á Snæfellsnesi árið
1857. Ekki gat Lýður þess hvar
þessar heimildir væri að finna en
hann er talinn áreiðanlegur fræði-
maður.
Harmon-
ikan um
aldamót
Þann aldarfjórðung sem mörg harm-
onikufélög hafa starfað hér á landi, skrif-
ar Hilmar Hjartarson, hefur margt
áunnist til að styrkja harmonikuna í sessi.
Hinn 16 ára rússneski Alexander Satsenko vann Evrópu-
meistaratitilinn í Frosini-tónlist árið 2000 og hér hampar
hann verðlaunagripnum og viðurkenningarskjali.
Matthías Kormáksson var fyrstur íslenskra ungmenna til að
taka þátt í harmonikukeppni á erlendri grundu. Hann keppti
fyrir Íslands hönd í Frosini Grand Prix árið 1999 í Helsinki.
Greinarhöfundur til vinstri og keppandinn í Frosini Grand Prix 2000, Grettir Björnsson blómum skrýddur.
Grettir Björnsson með sitt glæsilega hljóðfæri í keppninni.
Höfundur er pípulagningameistari
og útgefandi tímaritsins Harmonik-
unnar.