Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 31
Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni
hefst 8. maí - Þri. og fim. kl. 19:30
4ra vikna uppbyggjandi námskeið, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar fyrir þá sem eiga
við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu.
Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða
þekking á jóga nauðsynleg. Ásmundur tekur fyrir þætti eins og jógaleikfimi (asana), öndun,
slökun og andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu.Ásmundur
www.yogastudio.is
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 544 5560 og 864 1445
Yoga Studio - Halur og sprund ehf.
Í verslun okkar er að finna:
vandaða nuddbekki frá
Custom Craftworks,
og Oshadi 100% hágæða
ilmkjarnaolíur.
Opnir jógatímar í allt sumar
ganga á Herðubreið, töldum það hið
minnsta mál. Þoka kom í veg fyrir
þetta áform, sem örugglega hefði
orðið okkar hinsta för, því ganga á
Herðubreið (1682 m y.s.) er hin
mesta hættuför og ætti enginn að
reyna nema í fylgd gjörkunnugra í
einsýnu veðri.
Kalli á Narfastöðum gekk aftur á
móti hringinn í kringum Herðubreið
á sex tímum. Eitt vakti athygli mína
í þessari ferð, en það var að áfengi
var nú haft um hönd. Spurði ég vin
minn, Jónas bónda í Vogum, hverju
þetta sætti, ég hefði ekki orðið var
við áfengi á samkomum Mývetninga
fyrr: „Þú mátt gjarnan segja það
suður í Reykjavík, að eitt hundrað
Mývetningar hafi farið suður í
Herðubreiðarlindir með fimm flösk-
ur af brennivíni.“ Flestir fundu á sér
áfengisáhrif, því þeir höfðu jú borg-
að sinn hlut í púkkinu. Ég man vel
eftir Gísla bónda Árnasyni á Hellu-
vaði (1899–1963). Hann taldi sig
skyggnan og mælti, er hann fann á
sér: „Eyvindur er hér og líkar vel, að
Mývetningar séu í heimsókn í lind-
unum.“ Björgvin Árnason bóndi í
Garði (1894–1974) rifjaði upp eftir-
leitarferð þeirra Fjalla-Bensa á jóla-
föstu 1917, sbr. frásögn Ásu á Kálfa-
strönd í Hlín: „Þá gekk ég ofan
fjallið (Miðfell) og mælti við gamla
fjallahetju (Fjalla-Bensa): „Hvar
var farið yfir Jökulsá hér 2. desem-
ber 1917?“ Björgvin komst skemmd-
ur af kali til Möðrudals við illan leik
ásamt Bensa, lá þar alllengi, var
hjúkrað vel, en missti eitthvað af
tám. Þegar til Reykjahlíðar kom á
heimleiðinni biðu örlögin hans þar,
því þar tók við hjúkruninni Stefanía
Þorgrímsdóttir (1888–1959) frá
Starrastöðum á Fremribyggð í
Skagafirði, en hún var þá vinnukona
hjá Jónasínu og Sigurði Einarssyni í
Reykjahlíð (1884–1954). Hún varð
eiginkona Björgvins. Örlagadísirnar
spinna oft sinn sérstæða vef.
VI.
Hvað ber þá hæst í minningunni
um þessar tvær dýrðarferðir í
Herðubreiðarlindir? Séra Hermann
Hjartarson (1887–1950) á Skútu-
stöðum vakti athygli mína á hinum
víðáttumiklu eyrarrósabreiðum,
sem setja svo mikinn svip á þetta
umhverfi. Ræða Sigurðar Jónssonar
skálds frá Arnarvatni (1878–1949),
þar sem hann treysti sér ekki til
þess að gera upp á milli Eiríksjökuls
og Herðubreiðar, hvað fegurð
snerti. Svo mikil var víðsýni hans.
Að hafa kynnst Fjalla-Bensa per-
sónulega tel ég með merkilegustu
lífsreynslu minni, en ekki er ég alls
kostar ánægður með lýsingu frænda
míns, Gunnars Gunnarssonar, á hon-
um í Aðventu.
Draumur minn um að ganga á
Herðubreið rættist aldrei. Hæsta
fjall, sem ég hefi gengið á, þá 16 ára
árið 1943, er Bláfjall, 1222 m y.s. og
er ég alveg sáttur við þann árangur.
Fyrsta konan, sem gekk á Herðu-
breið, var Þorbjörg Þórhallsdóttir
kaupfélasstjóra á Húsavík, ca 1943.
Sendi Silli, fréttaritari Morgun-
blaðsins á Húsavík, þessa frétt að
norðan og þótti stórfrétt. Þorbjörg
var íþróttakennari að mennt og gift
Ara Kristinssyni (1921–1964) sýslu-
manni á Patreksfirði. Hún var fædd
2. júní 1919 og dó 15. maí 1992.
Fyrstu menn, sem vitað er með
vissu að gengið hafi á Herðubreið
voru þeir dr. Hans Reck og fylgd-
armaður hans Sigurður Sumarliða-
son, bóndi frá Bitrugerði í Kræk-
lingahlíð, þann 13. ágúst 1908.
Látum Ásu á Kálfaströnd eiga
lokaorðin í þessu spjalli: „Svo rann
upp morguninn. Mun nokkur
gleyma, þá sólin kom upp í almætti
sínu og Herðubreið svipti af sér
þokuhjúpnum, tárhrein og töfrandi.“
Höfundur er lögfræðingur í Reykja-
vík, en var í sumardvöl í Vogum í
Mývatnssveit árin 1936–1941.
Heimildir:
1. Hlín, tímarit, 41. árg. 1959, „Öræfaferð“, bls.
106–109 eftir Ásrúnu Árnadóttur frá Garði.
2. Ólafur Jónsson, Ódáðahraun I.–III., Bókaút-
gáfan Norðri, POB, Akureyri, 1945.
3. Landið þitt, Ísland, eftir Þorstein Jósepsson
og Steindór Steindórsson, bls. 58–9 í H–K.
4. Indriði Indriðason, Ættir Þingeyinga, I.–IV.,
Sögunefnd Þingeyinga, POB, Akureyri,
1969–1983.
5. Byggðir og bú, aldarminning Búnaðarsam-
taka S-Þingeyinga, POB, Akureyri 1963.
6. Byggðir og Bú Suður-Þingeyinga 1985, Tröð
Prenthús, Húsavík og Oddi hf., Reykjavík.
1986.