Morgunblaðið - 29.04.2001, Síða 41
44 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ENN kunna menn að yrkja
með fornyrðislagi. Sá er siður í
landi okkar að ein þingveisla
(alþingis) sé haldin á ári hverju.
Í þeim veislum mega menn ekki
taka til máls nema bundið sé. Í
þingveislu árið 2000 hófst ávarp
forseta (Halldórs Blöndals) svo:
Hljóðs bið ég alla
hér í salnum
þjóðskörunga
er á þingi sitja.
Býð ég vel kominn
til veislu þessarar
forseta vorn
er ég fyrstan tel.
Sé höldi þökk
fyrir höfðingsskap,
hafði boð inni
á Bessastöðum.
Voru aðföng
vítt að dregin:
háfur úr djúpi,
hreinn af fjalli.
Sé ég enn aðra
inn komna
til gildis fagnandi
gesti aufúsu.
Sveit kvenna
sveit karla
ég fann ei vaskari.
Vitið ér enn eða hvað.
Jón Ísberg bekkjarbróðir
minn sendi mér klippu héðan úr
Mbl., alþingissíðunni 31. mars.
Þar er orðalag sem við Jón
kunnum ekki við. Verða nú hjá
umsjónarmanni nokkrar mála-
lengingar. Sæng merkti áður
fyrr hvíla, hvílurúmið allt, ekki
aðeins yfirbreiðslan eins og nú.
Að reiða upp sæng merkti að
búa um rúm. Stundum notuðu
með orðið sæng í merkingunni
banasæng eða að minnsta kosti
kör og sögðu um þann sem átti
ekki annað eftir en vanlíðan og
dauða, að hann sæi sína sæng
upp reidda. Vandlega er um
þetta fjallað í marglofaðri bók
próf. Jóns G. Friðjónssonar
(Mergur málsins).
Alkunna er að orðtök breyt-
ast oft vegna misheyrnar, og
svo fór um orðtakið að sjá sína
sæng upp reidda. Það breyttist
í að „sjá sína sæng út breidda“
eða í einu orði „útbreidda“. Síð-
an átti merkingin eftir að
breytast. Menn áttuðu sig ekki
á að þetta þýddi að „horfast í
augu við endalokin“, eins og
próf. Jón orðar það. Menn fóru
jafnvel að halda að merkingin
væri góð og þetta þýddi að sjá
sér gott færi á einhverju. Ég
held að vitleysan hafi byrjað í
lýsingum á knattspyrnuleikj-
um. Þá var stundum sagt, ef
menn komust í gott marktæki-
færi, að þeir hefðu séð sína
sæng „útbreidda“. Merkingar-
breytingin gat varla verið ger-
tækari.
Þá komum við Jón Ísberg aft-
ur að Morgunblaðsgreininni frá
31. mars. Þar sagði um tiltekinn
þingmann, að hann hefði greini-
lega séð sína „sæng útreidda“,
þegar skýrsla Þjóðhagsstofn-
unar kom út og miklum við-
skiptahalla spáð. Þetta er sama
öfugnotkunin og hjá knatt-
spyrnumönnum. Nær lagi hefði
verið að segja, að ríkisstjórnin
hefði séð „sína sæng upp
reidda“, af þessu tilefni.
Kveð ég svo minn gamla
skólafélaga með virktum og
þökk fyrir tryggðina.
Óskar Þór Kristinsson (Sail-
or) kenndi mér eftirfarandi
vísuhluta (líklega hálf fer-
skeytla):
Sá hefur fiplað seimagrund,
sem að lúðu dregur.
Hvorugur okkar kunni meira,
og auglýsist nú eftir öðrum
hluta (hlutum) vísunnar. Seim-
ur var stundum haft um gull
eða gullþráð, sbr. „hinn andlega
seim“ í alfrægum jólasálmi
Sveinbjarnar Egilssonar. Sú
„grund“ sem ber gullskraut, er
auðvitað engin venjuleg slétta,
heldur kona, með öðrum orðum
seimagrund er kvenkenning.
Kemur nú að sögninni að
fipla. Hún er í lærðum bókum
sögð merkja að fálma eða þukla
og á sér mörg lík orð í frænd-
málum íslenskunnar. Út úr
þessum vísuhluta kemur þá
eitthvað á þá leið, að sá sem er
fiskinn á lúður, sé líka góður
kvennamaður. Við Óskar bíðum
eftir frekari upplýsingum.
Salómon sunnan sendir:
Mælti Elfar með alls engum þjósti,
upp svo ég smávegis ljósti:
„Eftir nóttina eina
hjá Ögðu hans Steina,
ég vildi að ég væri enn á brjósti.“
Ég hef margsinnis reynt að
gera mönnum ljósan muninn á
eftirmála og eftirmálum. Þetta
hefur finnst mér, lítinn árangur
borið. Í sunnudagsblaðinu hér á
dögunum er framúrskarandi
hnitmiðuð og skýr grein um
þennan mismun eftir Jón Að-
alstein Jónsson fyrrv. orðabók-
arritstjóra. Nú geri ég hvort
tveggja, að þakka honum fyrir
þessa góðu grein og taka mér
Bessaleyfi til að endurbirta
hana hér. Eftir þetta getur eng-
inn afsakað sig á neinn hátt, ef
hann reynist ekki kunna
skilsmun orðanna eftirmáli og
eftirmál.
Jón Aðalsteinn Jónsson seg-
ir:
„Í sambandi við þessa pistla
mína hafa ofangreind orð borið
á góma hjá nokkrum lesendum
og þeir bent á ranga notkun
þeirra, trúlega af athugaleysi.
Verður nú litið nánar á þau og
það nú af sérstöku tilefni. Í
Degi 30. jan. sl. segir á forsíðu
frá nýlegum dómi Hæstaréttar.
Fyrirsögnin er á þessa leið:
„Eftirmálar ólíklegir.“ Síðan er
sagt nánar frá málinu, en að
síðustu er ekki gert ráð fyrir
öðru en málinu sé lokið.
Til þess höfðar fyrirsögnin.
En hér hefur blaðamanni orðið
heldur betur á í messunni og
svo mun hafa hent ýmsa aðra
fjölmiðlamenn. Hann ruglar
saman no. eftirmál og eftirmáli,
sem hafa gerólíka merkingu og
notkun. Þarf ekki annað en
fletta upp í OM til þess að sjá
þetta. Eftirmál er hk-orð og
merkir eftirköst, afleiðing,
rekistefna; lögsókn. Ft. þessa
orðs er í nf. eftirmál. Það er sú
merking, sem felst í ofan-
greindri fyrirsögn. Því átti að
segja: Eftirmál ólíkleg. Eftir-
máli er haft um niðurlagsorð
eða texta aftan við meginmál
sbr. formáli (á undan texta). Ég
held, að margir kunni enn skil á
þessum mun. Þess vegna átti
ofangreind fyrirsögn að hljóða
svo: Eftirmál ólíkleg, þ.e.a.s. að
ólíklegt yrði, að dómurinn hefði
nokkur eftirköst. Hins vegar er
talað um eftirmála bókarinnar,
og það er allt önnur Ella.“
Enn nærist elskan sanna,
enn kærleiks funinn brennur,
enn leiftrar ástar tinna,
enn kviknar glóð af henni,
enn giftist ungur svanni,
enn saman hugir renna,
enn gefast meyjar mönnum,
menn hallast enn til kvenna.
(Páll Vídalín 1667–1727, dróttkvæði.)
ÍSLENSKT MÁL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
1107. þáttur
Grensásvegur – Skrifstofuhúsnæði
Til sölu í þessu glæsilega húsi
við Grensásveg samtals 892.7
fm skrifstofuhúsnæði.
1. hæð 277 fm, skrifstofur og
lager.
2. hæð 380 fm, skrifstofur.
3. hæð 130.9 fm, skrifstofur.
4. hæð 104.8 fm, fundarsalur,
mötuneyti.
Nýlega er búið að standsetja og mála alla þessa eignarhluta. Stiga
hús er með lyftu og er allt mjög snyrtilegt. Húsnæðið er allt til fyrir-
myndar og í mjög góðu standi. Selst í einu lagi eða í minni eignar-
hlutum, mjög góð staðsetning. Hagstætt verð.
Nánari upplýsingar veitir, Magnús Gunnarsson sölumaður á
Valhöll í síma 899 9271.
Mjög góð
staðsetning
Hagstætt
verð
Opið hús í dag á HVERFISGÖTU 58
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ehf.
Sími 562 4250, Borgartúni 31
4ra herbergja íbúð á
þessum vinsæla stað í
hjarta Reykjavíkur.
Rúmgott eldhús með
nýlegri furuinnréttingu,
stórar samliggjandi
stofur. Furugólfborð á
gólfum sem gefa íbúð-
inni skemmtilegan svip.
Skápar í herbergjum.
Búið að endurnýja gler
og rafmagn. Þyrí tekur á móti þér og þínum í dag á milli kl.
13 og 16. SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
Opið hús í dag á milli kl. 14 og 17
Básbryggja 13 - 3. h. v.
Opið hús í dag á milli kl. 14 og 17
Staðarsel 1
Opið hús í dag á milli kl. 14 og 17
Hagamelur 34, kjallari
Í dag getur þú skoðað þessa rúmgóðu 2ja herb. 75 fm íbúð sem er í kjall-
ara í fjórbýli. Sérinngangur er í íbúðina. Parket og flísar á gólfum, ný eld-
húsinnrétting, stór og rúmgóð stofa. Héðan er örstutt í Háskólann. Ásgeir
tekur vel á móti ykkur. Verð 9,3 millj.
Skólavörðustígur 16
Vorum að fá frábært verslunarhúsnæði neðarlega á Skólavörðustíg. Eign-
in er til sölu eða leigu. Húsnæðið er til afhendingar fljótlega. Allar nánari
upplýsingar veitir Ásmundur á Höfða, símar 533 6050 eða 895 3000.
Við viljum minna á www.hofdi.is og www.nybygg-
ing.is. Þar getur þú skráð eignina þína í sölu og
skoðað þær eignir sem við bjóðum til sölu í
máli og myndum.
Í dag býðst þér og þinni fjölskyldu
að skoða þetta einstaklega fallega
234 fm einbýlishús sem er með inn-
bygg. 71 fm bílskúr. 17 fm sérlega
vandaður sólskáli og fallegur garð-
ur, hannaður af landslagsarkitekt.
Arinn í stofu. 4 svefnh. Fallegt hús
sem hentar mörgum. Ása tekur vel
á móti ykkur. Verð 23,9 millj.
Ein sú allra flottasta er nú komin í
sölu. Vorum að fá í sölu alveg stór-
glæsilega og fullbúna 141 fm þak-
íbúð í þessu fallega húsi. Stórar
suð-vestursvalir. Glæsilegar innrétt-
ingar og gólfefni. Hér var hvergi til
sparað. Lúðvík býður ykkur velkom-
in í dag. Áhv. húsbr. 8,0 millj. Verð
21 millj.
Suðurlandsbraut 20,
sími 533 6050,
www.hofdi.is
Hóll hefur fengið í sölu þekkt fyrirtæki í brauð
og kökugerð, sem hefur sterka markaðshlut-
deild. Um er að ræða rekstur og viðskiptavild
fyrirtækissins, ásamt tækjum. Fyrirtækið ræð-
ur yfir öflugu dreifikerfi, og er í örum vexti. Hjá
fyrirtækinu starfa u.þ.b. 8-10 manns. Þetta er
atvinnuskapandi kostur fyrir sveitarfélög.
Þetta er tækifæri fyrir stærri eða minni bakarí
til að tryggja sér markaði. Einnig tilvalið fyrir
einstaklinga. Fyrirtækið selur vörur sínar í alla
helstu matvörumarkaði á suðvesturhorni
landsins. Hægt er að fjármagna að mestu leyti
fyrir traustan aðila. Makaskipti vel hugsanleg.
Hagstætt verð.
Sláðu strax á þráðinn til okkar
félaganna, Ágúst í síma 894 7230
eða Franz í síma 893 4284,
og við veitum þér nánari upplýsingar.
Til sölu framleiðslufyrir-
tæki í brauð og kökugerð.