Morgunblaðið - 29.04.2001, Síða 45

Morgunblaðið - 29.04.2001, Síða 45
48 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. STÚDENTAR við Háskóla Íslands eru mjög áhyggjufullir vegna yfirvof- andi verkfalls Félags háskólakenn- ara. Verkfallið kæmi illa niður á stúd- entum enda lendir það einmitt á þeim tíma sem á sjöunda þúsund stúdentar eiga að þreyta próf. Mikið óvissu- ástand ríkir innan skólans en þetta yrði í fyrsta skiptið sem nær allt starfsfólk Háskólans færi í verkfall. Stúdentar hafa ekki enn fengið skýr svör um hvernig námsmat og af- greiðsla námslána fari fram komi til verkfalls. Kemur illa niður á stúdentum Stúdentaráð hefur lagt mikla áherslu á alvarlegar afleiðingar verk- falls fyrir stúdenta. Forystumenn Stúdentaráðs hafa fundað með deilu- aðilum, háskólayfirvöldum, mennta- málaráðherra og forystumönnum stjórnmálaflokka og brýnt fyrir þess- um aðilum hversu illa verkfall muni koma niður á stúdentum. Komi til verkfalls Félags háskólakennara munu stúdentar verða fyrir vinnutapi og seinkun á afgreiðslu námslána mun hækka vaxtakostnað sem er nægur fyrir. Hætt er við að hópur stúdenta muni ekki þola slíkt fjár- hagslegt tjón og jafnvel hrekjast frá námi. Stúdentaráð hefur áætlað kostnað vegna vinnutaps stúdenta um hálfan milljarð króna hið minnsta. 831 stúdent er að undirbúa útskrift en vegna verkfallsins vita þeir ekki hvort og hvenær hún mun fara fram. Námsmenn fá engin svör Stúdentaráð hefur ítrekað óskað eftir svörum um hvað gerist ef af verkfalli verður. Stúdentar verða að vita hvernig próf verða lögð fyrir og afgreiðsla námslána verður háttað verði verkfall að veruleika. Nýleg yf- irlýsing rektors staðfestir málflutn- ing Stúdentaráðs um að algjör óvissa ríkir um hvernig próf verða lögð fyrir komi til verkfalls. Að frumkvæði stúdenta hefur verið skipaður starfs- hópur hjá LÍN til að undirbúa af- greiðslu námslána ef af verkfalli verð- ur. Stúdentar krefjast þess að fá greidd námslán þótt námsárangur liggi ekki fyrir komi til verkfalls. Samkeppnishæf laun Stúdentaráð telur mikilvægt að tryggja kennurum og starfsfólki Há- skólans samkeppnishæf laun í sam- ræmi við menntun og ábyrgð í starfi. Háskóli Íslands er í stöðugri sam- keppni við jafnt innlendar sem er- lendar stofnanir og fyrirtæki um hæft starfsfólk. Háskólinn verður að hafa bolmagn til að laða til sín gott starfs- fólk og stjórnvöld verða að tryggja skólanum fjárveitingar til þess að svo megi verða. Þegar þessi grein er skrifuð hafa samningar ekki náðst. Stúdentar eru orðnir mjög óþolinmóðir enda eru að- eins örfáir dagar til stefnu. Yfirvof- andi verkfall verður til umræðu utan- dagskrár á Alþingi á mánudaginn 30. apríl kl. 13.30. Við hvetjum stúdenta til að fjölmenna á þingpalla Alþings hafi samningar ekki náðst á mánu- dag. Grundvallarkrafa stúdenta er að samningar náist áður en til afdrifa- ríks verkfalls þarf að koma. ÞORVARÐUR TJÖRVI ÓLAFS- SON, formaður Stúdentaráðs, DAGNÝ JÓNSDÓTTIR, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs. Afstýrum verkfalli Frá Þorvarði Tjörva Ólafssyni og Dagnýju Jónsdóttur: Sundurlausir þankar Þú leggur af stað út í lífsins ferð þig langar að eygja svo margt, í huganum eygir þú frama og frægð og framtíðarljósið er bjart. Lokkandi geisli um götuna skín. Gæt þín. Þér finnst sem að örvi þig ylur og sól og áfram þig starfsþráin ber. Þó að þú sjáir í götunni grjót slíkt glepur ei hót fyrir þér. Foreldra raddir þér glymja sem grín. Gæt þín. En, þú ert ekki langt komin leitandi sál er líturðu freistninnar mynd ... Fullan heiminn með hræsni og tál þú hrasar. Þín lífsspeki er blind. Og finnst þér þá mömmu rödd glymja sem grín. Gæt þín. Því fleira er sem ýtir að glötunargjám en gæði til mannlífsins ber. Að vinna gegn löstum þarf karlmennsku og kjark slíkt kenna mun framtíðin þér. Það glóir svo margt til að glepja þér sýn. Gæt þín. Við metum svo lítils þau alvöruorð sem í æsku hún mamma okkur gaf og tökum of fátt sem má fulltingi ljá á ferð yfir veraldarhaf. Hvað gilda svo dæmin sem gerast oss brýn. Gæt þín. Já spyrn þú af alefli öllu því mót sem eykur nú þjóðanna mein. Hjálpaðu að rækta á mannlífsins meið menningar sterkustu grein. Á gjörningum illvætta er ginna til sín Gæt þín. Kvöld Nú sígur sól að unni og sveipar húmkyrrð lönd. Er þagnar þys í runni fer þögul nótt í hönd. Þá byrgjast hugans borgir oss bugar svefninn fljótt hann svæfir dagsins sorgir og segir góða nótt. Og draumar vonir vekja oss veröld opnast ný. Er ský og skugga hrekja þá skín oss sólin hlý. Nú blindar kvöldsins kliður og kyrrt er allt og rótt. En himinhelgur friður hvíslar. Góða nótt. Fegurð vetrarkvöldsins Fegurð hjúpar heiðríkt vetrarkvöld hundrað stjörnur blika á himni nætur. Um mig streymir austan gola köld af mér hreinsar dagsins strit og þrætur. Geng ég úti í guði vígðum reit grómið fellur, dreg ég andann léttar næturkyrrðin signir bæ og sveit svalur andi krans um háls mér fléttar. Yndislegt að eiga þessa stund eina að vin í húmi mildrar nætur. Fram og aftur geng ég þessa grund guði vígða uns hinir rísa á fætur. ÁRNI HELGASON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.