Morgunblaðið - 29.04.2001, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 49
37 erlendir skiptinemar koma
til Íslands í ágúst nk. Þau bíða
spennt eftir að heyra frá
íslensku fósturfjölskyldunum
sínum.
Er fjölskylda þín
ein af þeim?
Viljið þið kynnast,.....
.....nýjum viðhorfum?
.....framandi menningu?
.....nýrri sýn á land og þjóð?
Ef svo er, þá gefst ykkur færi
á að taka á móti
erlendum skiptinema
í 5—10 mánuði.
Fami hillukerfi
Tilboðsdagar á vönduðum
ítölskum hillukerfum
Galvaniseraðar hillur
og stoðir
Sléttar hillur
Sérsmíði
Einföld uppsetning
Margir möguleikar
Hamarshöfði 1 - Sími 511 1122,
heimasíða: www.simnet.is/ris/
Verslun
Enskuskólinn
FAXAFENI 10 - FRAMTÍÐARHÚSINU - WWW.ENSKUSKOLINN.IS
ENSKA ER OKKAR MÁL
Innritun stendur yfir
s. 588 0303
Sndra Eaton Edward Rikson
Maí
námskeið
Málaskólar
í Bretlandi
Fyrir börn
Almenn enskunámskeið, áhersla á talmál.
Umræðuhópar.
Rituð enska og málfræði.
Viðskiptaenska og skrift.
Enska með öllu.
Sumarskóli í júní (6 til 12 ára).
Tveggja vikna enskunámskeið
með leiklist, söng og stuttum ferðum.
Námskeið fyrir fullorðna og
Sumarnámskeið í heimavistarskóla
fyrir börn (12 til 16).
„Hon var kvenna vænst, er upp óxu
á Íslandi, bæði at ásjónu ok vits-
munum. Guðrún var kurteis kona,
svá at í þann tíma þóttu allt barna-
vípur, þat er aðrar konur höfðu í
skarti hjá henni. Allra kvenna var
hún kænst ok bezt orði farin; hon
var örlynd kona.“
Þetta er ein frægasta kvenlýsing
íslenskra bókmennta. Konan var
Guðrún Ósvífursdóttur sem margir
menn elskuðu og
olli m.a. vinslit-
um og mannvíg-
um milli fóst-
bræðranna
Kjartans Ólafs-
sonar og Bolla
Þorleikssonar.
Hana dreymdi
fyrir fjórum
hjónaböndum sínum og sagði öldruð
þau orð um ástir sínar sem enn eru
uppi: „Þeim var ek verst, er ek unna
mest.“ Svona kona er sannarlega vel
að því komin að vera aðalpersóna í
ástarsögu.
Mér dettur stundum í hug þessi
mikilfenglega kvenlýsing þegar ég
les lýsingar ungra kvenna á sjálfum
sér í allskonar blöðum, tímaritum
eða sé og heyri þær tala í sjónvarpi
eða útvarpi. Munurinn er bara sá að
þær eru að lýsa sér sjálfar en Guð-
rúnu Ósvífursdóttur var lýst af öðr-
um, þ.e. höfundi Laxdælu. Á þessu er
grundvallarmunur.
Það er einhverra hluta vegna við-
kunnanlegra að lesa hól og skoðanir
fólks um aðrar manneskjur en lesa
sjálfshól og lýsingar fólks á sjálfu
sér. Ekkert síður finnst mér óvið-
kunnanlegt að lesa lýsingar fólks á
því sem það þó kallar galla sína. Til
dæmis: „Ég er ofsalega skapstór,
hefnigjörn, grimmlynd, kærulaus,
o.s.frv.“ Einhverra hluta vegna eru
sumir gallar vinsælli en aðrir í svona
sjálfslýsingum. Ég man t.d. ekki eftir
að hafa lesið í sjálfslýsingu ungs fólks
að undanförnu að því finnist það
sjálft ágjarnt, lygið, sóðalegt eða að
það sé slettirekur eða slúðurberar.
Sjálfhverfni er eiginleiki sem virð-
ist hafa náð töluverðum blóma í sam-
tíðinni. Þetta kemur víða fram en
einna skýrast í sjálfslýsingum sem
fólk gleymir sér hreinlega í á stund-
um.
Lýsingar fólks á öðrum sjást helst
í þáttum eða greinum um tiltekna
persónu, þá eru vinir viðkomandi
beðnir að lýsa henni. Þær lýsingar
standast sjaldnast samjöfnuð við lýs-
ingar hinna slyngu höfunda fornbók-
mennta okkar. Bæði hættir þessum
nútíma mannlýsendum til nokkurrar
væmni og ekki síður að teygja lop-
ann.
Til að fá tilbreytingu í þessar hóf-
lausu sjálfslýsingar væri ágætt að
t.d. hinar ungu „stjörnumerkjadöm-
ur“ nútímans færu að verða tannber-
ar nokkuð, glotta við tönn eða draga
aðra augabrúnina upp í hársrætur og
hina niður á kinn. Þær gætu líka
fengið einhverja af hinum ritglöðu
lögspekingum nútímans til að ráða
merkilegustu drauma sína, sbr. þeg-
ar Gestur Oddleifsson réð draum
Guðrúnar Ósvífursdóttur frænku
sinnar. Með þessu móti gætu lýsing-
ar orðið bragðmeiri og tilbreytinga-
ríkari.
Eða þá að þeir sem finna hjá sér
hvöt til að lýsa eigin áliti á sinni per-
sónu í smáatriðum segðu lýsinguna
einhverjum vina sinna sem svo kæmi
henni á framfæri, t.d. í grein eða
„bréfi til blaðsins“.
Það er eðlilega alltaf að koma nýtt
fólk sem um tíma lítur á sig sem
„nafla heimsins“. Slíkt mun aldrei
breytast, en aðferðirnar til að koma
þessum athyglisverðu upplýsingum á
framfæri mættu sem sé að ósekju
vera fjölbreytilegri.
Aðferðirnar sem ég nefndi hér fyrr
eru aðeins brot að því sem hægt væri
að gera í þessu skyni. Nútímalegt er
að fá vini sem óvini til að mata tölvu á
upplýsingum um tiltekna persónu og
birta svo niðurstöðu tölvunnar. Eða
þá að fólk láti gera á sér persónu-
leikapróf og þau birt – margt er hægt
að gera til að fá fjölbreytni í sjálfs-
lýsingarnar og veitir ekki af. Þetta á
auðvitað allt saman jafnt við um
karla sem konur.
Þjóðlífsþankar / Er ekki hægt að auka fjölbreytnina?
Ég er sóðalegur
slefberi …
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
M O N S O O N
M A K E U P
lifandi litir
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
BIODROGA
*MOIST* rakakremið
byggir upp, styrkir og nærir húðina.
Þú ert örugg með BIODROGA
Lífrænar jurtasnyrtivörur