Morgunblaðið - 29.04.2001, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 29.04.2001, Qupperneq 53
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ MOLDVARPAN kvikmyndagerð er félag fjögurra ungra Íslendinga sem í haust lögðu land undir fót og fluttu til Prag, höfuðborgar Tékk- lands. Þau Sigurður Hallmar Magn- ússon (Diddi), Erpur Sigurðarson, Helga Björk Arnardóttir og Stark- aður Barkarson búa í stúdenta- hverfinu Zizkov þar sem nám í kvikmyndafræðum, förðun og ein- staka ferðir á hverfisbarinn hafa átt hug þeirra að mestu. Diddi, Erpur og Starkaður stunda nám við listaháskólann AMU, nánar tiltekið í kvikmynda- skóla innan hans sem heitir FAMU og þykir merkur skóli í tékkneskri kvikmyndasögu. Helga hefur hins vegar fengist við förðun fyrir aug- lýsingar og stuttmyndir í vetur. Starkaður Barkarson Eftir að ljúka námi í íslensku og bókmenntafræðum við Háskóla Ís- lands lá leið Keflvíkingsins Stark- aðar í kennsluréttindanám. En þar sem flakkaraeðlið er sterkt í stráknum flúði hann fljótlega til Prag og hóf nám í kvikmyndafræð- um. Hann vill þó ekki meina að hann sé kvikmyndafrík. „Nei, ég er það alls ekki,“ svarar hann um hæl. „Ég held að það hafi aðallega verið einhver þreyta sem réð ferðinni, mig langaði að finna mér eitthvað allt annað að gera.“ Ertu ánægður með námið? „Það er ýmsu ábótavant hvað varðar kennslu og skipulag en kannski má kenna því um að þetta prógramm sem við erum í er nýj- ung við skólann. Þetta er eingöngu fræðilegt nám en við í bekknum ætlum að gera mynd sem verður þá algjörlega á okkar vegum.“ Myndin, sem hefur fengið vinnu- heitið Bréfberinn, verður tekin upp í maí. Í upphafi var ákveðinn rammi, að myndin skyldi fjalla um bréfbera og samskipti hans við þá sem hann færir böggla og bréf. Tíu nemendur eru í bekknum og voru skrifuð sjö handrit. Af þeim voru valin fjögur sem verða kvikmynduð og eiga Starkaður, Diddi og Erpur þrjú þeirra. En hvar liggur þitt áhugasvið innan kvikmyndagerðar? „Upphaflega var það bæði að skrifa handrit og leikstýra. En áhuginn hefur dvínað,“ viðurkennir Starkaður. „Ég á aðeins eftir að skrifa svona eins og eitt ljóð áður en ég fer heim, það myndi full- nægja sköpunarþörfinni.“ Hvað kanntu best við í Prag? „Stemmningin í borginni er mjög sérstök, einkum fyrir saklausan Ís- lendinginn. Við búum t.d. í götu þar sem öll hús eru yfir hundrað ára gömul og víða má finna mun eldri byggingar og staði með mikla sögu. Sagan er alls staðar í kringum mann.“ Sérðu þig fyrir þér sem kvik- myndagerðarmann í framtíðinni? „Það er aldrei að vita hvað verð- ur, kannski ég fari bara í hár- greiðslu næst.“ Erpur Sigurðarson Erpur man námkvæmlega hve- nær áhugi hans á kvikmyndagerð hófst. „Það var árið 1992 þegar ég og félagar mínir réðumst í að gera svokallaða „splattermynd“, sem við kláruðum reyndar aldrei,“ rifjar hann upp. „Það besta sem kom út úr þessu var nafnið Moldvarpan,“ bætir hann við og útskýrir: „Mold- varpan er alltaf neðanjarðar og svo er hún blind. Það er skemmtileg ír- onía í þessu.“ Af hverju ákvaðstu að flytja til Prag? „Ég kom hingað fyrst fyrir nokkrum árum og fannst þetta fal- leg borg, það er eins og maður búi inni í listaverki. Svo er auðvelt að gleyma sér hérna. Það er eitthvað við Prag sem togar mann til sín aft- ur og aftur.“ Ertu ánægður með námið? „Já, en tímarnir eru vissulega misjafnir og sömuleiðis kennararn- ir. En maður ræður því svolítið sjálfur hvað maður fær út úr þessu. Umhverfið er mjög sérstakt að vera innan um fólk sem er að vasast í þessu sama. Maður er alltaf að læra þó að maður sé ekki staddur í skól- anum.“ Eitthvað sem þér finnst neikvætt við Prag? „Komandi frá Íslandi er það vissulega áfall að sjá fólk á götum úti allslaust. En það er ótrúlegt hvað ég varð fljótt vanur þessu. Ég bjó í miðbæ Prag fyrir nokkrum ár- um. Það var í fyrstu áfall að sjá unglinga sprauta sig í stigagang- inum en fljótlega var ég hættur að kippa mér upp við það.“ Áttu þér eftirlætisstað í borg- inni? „Já, t.d. Mala Strana-hverfið og þá helst kaffihúsið Rubin. Þetta er einn af þessum börum sem virðast gera í því að forðast ferðamenn. Mér finnst slíkir staðir ágætir.“ Sigurður Hallmar Magnússon (Diddi) Diddi fær það hlutverk að rifja upp sögu Moldvörpunnar sem formlega var stofnuð fyrir um þremur árum. „Við Erpur sáum auglýsingu fyrir Stuttmyndadaga í Reykjavík og ákváðum að slá til og gera mynd sem við síðan skiluðum í keppnina mánuði síðar. Ekkert gerðist náttúrlega,“ segir Diddi brosandi, „en við lærðum heilmikið á þessu. Þar með varð Molvarpan kvikmyndagerð að veruleika en hún hafði fram að þessum tímapunkti aðeins verið nafn. Svo bættist Starkaður í hópinn og nú erum við allir þrír hér í Prag.“ Ertu ánægður með kvikmynda- námið? „Mér finnst reyndar allt nám frekar vafasamt. Ég held að það sem mestu máli skipti sé að áhug- inn sé til staðar. Þá lærir maður ósjálfrátt, skóli er aðeins viss hvatning.“ Hvað kanntu best við í Prag? „Hér ríkir allt annar hugsunar- gangur, maður finnur ekki jafnmik- ið fyrir lífsgæðakapphlaupinu. Svo er mjög ódýrt að lifa hérna en það hefur samt breyst frá því að ég kom hingað fyrst.“ Áttu þér uppáhaldsstað í borg- inni? „Já, kommúnistablokkarhverfið við enda neðanjarðarlestarlínunnar. Mér finnst gott að fara þangað einn og rölta um. Þetta er Breiðholt margfaldað með hundrað. Þarna er hægt að ganga endalaust innan um gráar blokkirnar.“ Hvað tekur við hjá þér eftir skól- ann í vor? „Ég er að grúska í heimildar- myndargerð núna og svo að gera mynd með bekknum. Ég er nú ekk- ert fullur af áhyggjum um hvað gerist ef ég hætti öllu kvikmynda- stússi. Ég myndi ekki líta á það sem neina uppgjöf, heldur snúa mér að einhverju öðru. En ég vil gjarnan halda áfram í kvikmynda- gerð og vonast til að geta búið í Prag eitthvað lengur.“ Helga Björk Arnardóttir Helga hefur lengi haft áhuga á förðun og fór því í nám í leikhús- og kvikmyndaförðun hjá No Name síð- asta vetur. „Ég kynntist strákunum í Moldvörpunni þegar ég var að sminka fyrir tónlistarmyndband,“ útskýrir Helga. Hún hefur síðan farðað fyrir myndir Moldvörpunn- ar, auglýsingar og fleiri tónlistar- myndbönd en að auki var hún yf- irsminka í kvikmyndinni Fyrsti apríl sem tekin var upp í Reykjavík síðasta sumar.“ Hvers vegna fluttir þú til Prag? „Mér fannst ég þurfa að komast í burtu, vildi prófa eitthvað nýtt og kynnast nýju fólki. Ég hafði heyrt að Prag væri yndisleg borg og hún hefur staðist allar mínar væntingar og miklu meira til.“ Hvað er það sem þú kannt best við í Prag? „Umhverfið er margs konar, hér ríkir stórborgarandi en einnig er auðvelt að vera einn með sjálfum sér. Það er endalaust hægt að gleyma sér á gangi í þessari borg.“ Hvað hefurðu verið að fást við síðan þú komst? „Ég hef verið að að sminka fyrir auglýsingar og einnig unnið fyrir fólkið í kvikmyndaskólanum. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt og gaman að fá tækifæri til að kynnast fólki í kvikmyndanámi sem er fullt af áhuga og hugmyndum.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í Prag? „Það er lítið hverfi, sem kallast Mala Strana. Fullt af þröngum göt- um og litlum görðum. Þegar ég vil vera ein með sjálfri mér fer ég og geng þarna um.“ Er eitthvað sem þú saknar frá Íslandi? „Það koma alltaf annað slagið tímar þegar maður hugsar heim,“ viðurkennir Helga. „En þá horfi ég bara til himins og skoða stjörn- urnar, þetta eru sömu stjörnurnar hér og heima.“ Íslenskt kvikmyndagerðarfólk við nám og störf í Tékklandi Fjögur andlit Moldvörpunnar Í gegnum aldirnar hafa margir listamenn dvalið í Prag og sótt sér innblástur. Þar frumflutti Mozart Don Giovanni-óperuna, Kafka sat þar við skriftir og Mahler við tónsmíðar. Engin furða, borgin á sér ríka sögu og fagrar byggingar. Sunna Ósk Loga- dóttir heimsótti þar fjóra Íslendinga sem eiga það m.a. sameig- inlegt að hafa tekið ástfóstri við borg hinna þúsund turna og búa til kvikmyndir undir nafni Moldvörpunnar. Helga: „Prag hefur staðist allar mínar væntingar og miklu meira til.“ Ljósmynd/Helga B. Arnardóttir Diddi: „Í Prag ríkir annar hugsunargangur, maður finnur ekki jafn- mikið fyrir lífsgæðakapphlaupinu.“ Ljósmynd/Helga B. Arnardóttir Erpur: „Prag er falleg borg, það er eins og maður búi inni í listaverki.“ Ljósmynd/Helga B. Arnardóttir Starkaður: „Ég á eftir að skrifa eins og eitt ljóð áður en ég fer heim, það myndi fullnægja sköpunarþörfinni.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.