Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 54
FYRIR skömmu var haldið Gala-
kvöld í Fjölbrautaskólanum í Garða-
bæ. Þessi uppákoma er orðin að föst-
um lið í skólastarfinu en þá koma
útskriftarnemendur og kennarar
saman, snæða hátíðarkvöldverð í
boði skólans og síðan tekur við dans
undir ljúfum tónum hljómsveitar
hússins. Til undirbúnings er þátttak-
endum boðið upp á dansæfingar sem
danskennarinn Óli Geir hefur séð
um. Danskort eru ómissandi þáttur
á slíku kvöldi, svo og marsering und-
ir styrkri stjórn íþróttakennara
skólans. Þetta kvöld er einn af
mörgum liðum í öflugu forvarna-
starfi skólans. Skilaboðin eru skýr:
Skemmtum okkur án vímuefna!
Björn Þorlákur Björnsson
og Hildur Ketilsdóttir.
Karitas Sæmundsdóttir, Lilja
Rut Jóhannsdóttir og Nanna K.
Traustadóttir.
Galakvöld
í Garða-
bænum
Halla Viðarsdóttir og
Hermann Sigurðsson.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 57
Á
sunnudögum
bjóðum við upp á
matseðil fyrir
sælkera.
Sunnudagar fyrir sælkera
4 rétta fiskmatseðill 2.700.-
5 rétta kjöt- eða fiskimatseðill 3.500.-
Stórglæsilegur a la Carté matseðill
Valin vín og vingjarnlegt umhverfi
Mike Scott, ásamt nýlega endur-
reistri Waterboys, hefur í hyggju að
gefa út Fishermans Blues Two, sem
mun innihalda lög sem komust ekki
inn á upprunalega meistarastykkið
frá árinu 1988.
Morrissey gengur þessa dagana
samningslaus á milli úgáfufyrir-
tækja með fulla vasa af lögum sem
enginn sýnir áhuga. Undarlegt.
Gruggsveitin Afgan Whigs hefur
nú hætt störfum (snökt, snökt)
vegna landfræðilegra ástæðna að
sögn Greg Dulli, leiðtoga sveitarinn-
ar.
Í bígerð er fjögurra diska kassi
með tyggjórokksveitinni sálugu
Monkees og tvöföld safnplata er
einnig á leiðinni.
Allar plötur XTC munu svo verða
endurútgefnar í maí og enginn smá
slatti þar á ferðinni.
Eminem stendur í stórræðum að
vanda en hann hyggst nú leika í kvik-
mynd byggða á eigin lífi.
Billy Corgan er um þessar mundir
í hljóðveri með þunglyndu dansbolt-
unum í New Order, en hann mun
syngja í ónefndu lagi sem verður á
væntanlegri skífu þeirra sveitar.
Hljómsveitin James er svo tilbú-
inn með nýja plötu en það er enginn
annar en sjálfur Brian Eno sem
sneri tökkunum við upptöku hennar.
Ljósmynd/Marlene Goldman
Morrissey á í engin hús að venda.
Poppkorn
Sími 551 5103
TANGO
HÁTÍÐ
Kennarar
Daniela og Armando
frá Buenos Aires
Einstakt tækifæri
FÓLK Í FRÉTTUM