Morgunblaðið - 20.05.2001, Side 13

Morgunblaðið - 20.05.2001, Side 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 13 Kynnið ykkur stórglæsileg ferðatilboð á vefsíðu okkar www.samvinn.is og á söluskrifstofum um land allt. Rhodos • Ítalíu • Portúgal Mallorca • Benidorm • Albir Við bjóðum ferðir á eftirtalda staði: Bókaðu hjá traustu fyrirtæki og nýttu þér 25 ára reynslu og fagmennsku í ferða- þjónustu. Þín bíður frábær dvöl og einstök þjónusta á áfangastöðum okkar. aðeins á mann á La Colina 23.maí í eina viku SPÁNN ALBIR Miðað við tvo fullorðna og tvö börn. Skattar og gjöld innifalin. Einstakt tækifæri! GRIKKLAND RHODOS 28. maí í tvær vikur 59.082 kr. á mann á Rhodos Palace Miðað við tvo fullorðna og tvö börn skattar og gjöld innifalin 44.872 kr. aðeins Örfá sæti laus á sértilboði! FEÐGAR hafa verið fundnir sekir um árásir gegn níu ára dreng sem var nágranni þeirra í fjölbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur. Auk þess var fað- irinn dæmdur fyrir ráðast á móður drengsins þegar hún ætlaði að koma syni sínum til hjálpar. Í dómnum kemur fram að árásirnar hafa haft veruleg áhrif á líðan drengsins, öryggi og námsárangur. Héraðsdóm- ur Reykjavíkur dæmdi föður- inn til að greiða 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, greiða drengnum 150.000 krónur í miskabætur og móðurinni 75.000 í miskabætur. Ákvörðun um refsingu sonarins er frestað í tvö ár en hann var dæmdur til að greiða drengnum 50.000 krónur í miskabætur. Þá voru feðgarnir dæmdir til að greiða allan sakarkostnað. Árásirnar áttu sér stað sama daginn í desember 1999. Síð- degis réðst sonurinn, sem er rúmlega tvítugur, á drenginn skammt frá heimili þeirra og sparkaði í hann. Lögregla var kölluð til en sonurinn svaraði ekki þegar lögreglan barði dyra á heimili feðganna. Nokkru eft- ir að lögregla var farin af vett- vangi réðst faðirinn á drenginn í stigagangi fjölbýlishússins. Hann hrinti drengnum og sparkaði í hann. Þegar móðir drengins kom honum til hjálpar sló hann hana. Lögregla var aftur kölluð til og reyndu lög- reglumenn að ná tali af þeim feðgum með því að berja dyra og kalla til þeirra en fengu ekk- ert svar. Í lögregluskýrslu var bókað að frá íbúð þeirra heyrð- ist umgangur og mannamál. Feðgarnir neituðu báðir fyrir dómi að árásirnar hefðu átt sér stað. Hrottaleg og tilefnislaus árás Aðalmeðferð í báðum málun- um fór fram samhliða og voru skýrslur aðila og vitna teknar í einu lagi fyrir bæði málin. Fram kemur í dómi héraðs- dóms yfir syninum að drengur- inn hafi orðið viðkvæmur eftir árásina og að hann hafi verið hræddur um að það yrði aftur ráðist á hann. Í dómnum segir að árásin hafi verið hrottaleg og tilefnislaus. Í dómnum yfir föðurnum segir að einsýnt þyki að hin síðari árás vegi þyngra, „enda um endurtekið áreiti að ræða og ákærði fullorðinn mað- ur, en almennt eiga börn að geta treyst fullorðnum, þá átti síðara tilvikið sér stað á heimili brotaþola“. Hjördís Hákonardóttir hér- aðsdómari kvað upp dóminn. Dæmdir fyrir að ráðast á dreng SAMNINGUR um menntun ófag- lærðra í byggingariðnaði var und- irritaður á fimmtudag en aðild að honum eiga Starfsafl, Landsmennt og Menntafélag byggingariðnaðar- ins. Um fjögur þúsund ófaglærðrir starfsmenn vinna í byggingariðn- aði hér á landi og er með samn- ingnum stefnt að því að sinna reglulega þörfum ófaglærðra í byggingariðnaði fyrir símenntun, segir í fréttatilkynningu frá að- ilunum þremur. Menntafélag bygg- ingariðnaðarins sem annast sí- menntun sveina og meistara í byggingariðnaði, mun sjá um menntunina. Efla menntun ófaglærðra Morgunblaðið/Þorkell Ingi Bogi Bogason, Eyjólfur Bjarnason og Ágúst H. Elíasson. FFA – Fræðsla fyrir fatlaða og að- standendur – sem er samstarfsverk- efni Landssamtakanna Þroskahjálp- ar, Sjálfsbjörg landssambandsins, Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og Styrktarfélags vangefinna, boða til fræðslufundar fyrir afa og ömmur fatlaðra barna. Þetta verður síðasta afa- og ömmukvöld vetrarins. Á fundinn kemur sr. Guðný Hall- grímsdóttir, prestur fatlaðra. Sr. Guðný mun spjalla um starf sitt sem prestur fatlaðra, bæði hvernig hún tengist fötluðum sjálfum sem og að- standendum þeirra. Fundurinn verður haldinn hjá Þroskahjálp, Suð- urlandsbraut 22, þriðjudaginn 22. maí kl. 20. Afar og ömmur fatlaðra barna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.