Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 15
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 15
VERKALÝÐSSÝNINGIN í sal
Ljósmyndasafns Reykjavíkur er víst
fremur skipulögð af Borgarskjala-
safni Reykjavíkur en Ljósmynda-
safninu. Hún er ekki stór en áhuga-
verð því það er ekki á hverjum degi
sem boðið er upp á sögulegar sýn-
ingar á málefnum verkalýðs, baráttu
hans og frídegi. Fyrir utan nokkrar
ljósmyndir sem varðveist hafa frá
göngum á 1. maí, og útifundum þeim
tengdum, eru á sýningunni nokkur
kröfuspjöld, eða plaggöt, sem eru
talandi tákn um þann tíma þegar þau
voru gerð. Þá eru stækkaðar fyrir-
sagnir úr dagblöðunum sem varða
málefni verkalýðsins á 1. maí.
Eins og oft vill verða um svona
sýningar vantar nægar upplýsingar.
Að vísu er ekki beinlínis við Ljós-
myndasafn Reykjavíkur að sakast
því ítarlegar skýringar fylgja af-
bragðsfínum ljósmyndum Gísla
Ólafssonar. Talin eru upp mætir
menn, konur og börn sem tekist hef-
ur að bera kennsl á, eða gefendur
myndanna hafa þekkt. Hins vegar
vantar tilfinnanlega upplýsingar um
ljósmyndarann.
Það er ekki í fyrsta sinn sem slíkt
hendir. Undirritaður hefur séð út-
gáfur af íslenskum listaverkabókum
þar sem fyrirsætanna var getið – og
titlar þeirra málsmetandi voru ræki-
lega tíundaðir – en málararnir voru
ekki nefndir á nafn. Þá fylgir enginn
bæklingur né blöðungur sýningunni
og þar með vantar sárlega allar
nauðsynlegar upplýsingar. Á tímum
þegar lenskan er sú að hnýta í sýn-
ingastjóra og finna þeim allt til for-
áttu er best að ganga í lið með suðinu
og kvarta rækilega yfir slælegum
vinnubrögðum.
Til dæmis er engar upplýsingar að
hafa um teiknara plaggatanna. Voru
þeir íslenskir eða voru þetta danskir
og þýskir teiknarar? Hefðin gæti
verið fengin þaðan án þess að það sé
víst. Þetta skiptir máli því auglýs-
ingaspjöldin tvö sem prýða vestur-
vegginn í salnum eru fagurlega og
fagmannlega teiknuð. Það væri
vissulega gaman að vita hver höf-
undurinn er, að ekki sé nú talað um
reynist hann hafa verið íslenskur.
Vissulega er nauðsynlegt að tína
til þá sem stóðu á grjóthrúgunni í
ljósmynd Gísla – hún átti síðar eftir
að verða Alþýðuhúsið við Ingólfs-
stræti og Hverfisgötu – og þrumuðu
gegnum lúður undir fánaborginni á
1. maí. Ártalið vantar að vísu en það
mætti eflaust reikna út með litlum
tilkostnaði. Á grjóthrúgunni má
meðal annarra sjá þá Sigurjón Á.
Ólafsson, Sjómannafélagi Reykja-
víkur, og Dagsbrúnarforkólfana
Guðmund Ó. Guðmundsson og Héðin
Valdimarsson messa yfir ekki
ómerkari mönnum en Jóhanni
Jeremías Kristjánssyni – síðar lækni
á Ólafsfirði – bróður Sigurliða kaup-
manns sem betur var þekktur sem
Silli í Silla og Valda.
Á annarri mynd eftir Gísla – af 1.
maí-göngu á Laugaveginum – má
greinilega sjá Odd sterka Sigur-
geirsson af Skaganum, Þóru Péturs-
dóttur, ömmu Ingjalds Hannibals-
sonar, og Ernst Fridolf Backman,
málmbræðslumann frá Filipstad á
Värmlandi í Svíþjóð – afa leikkon-
unnar Eddu Heiðrúnar – ásamt fjöl-
skyldu sinni. Það sannar að erlendir
verkamenn eru alls ekkert nýnæmi í
íslenskri atvinnusögu, því myndin
var tekin 1. maí árið 1923, eða fyrir
hartnær sjö áratugum.
Þetta er því merkileg sýning fyrir
ættfræðinga og aðra ámóta forvitna
en mér finnst sem íslenskir verka-
menn eigi betra og vandaðra skilið
en svona greinilega upphróflað
skyndihengi í tilefni af frídegi sínum.
Það var dálítið tríst að sjá auglýsing-
arrenninginn framan við innganginn
– þar sem sýningin var hetjulega til-
kynnt – hálfan kominn ofan á gólf af
því límbandið hafði gefið sig. Ef á
annað borð er verið að halda sýningu
þarf málamyndanatni af hálfu skipu-
leggjenda. Annars er betur heima
setið en af stað farið.
Fram þjáð-
ir menn
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Eitt verkanna á sýningunni í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Grófarhúsi.
MYNDLIST
L j ó s m y n d a s a f n
R e y k j a v í k u r ,
G r ó f a r h ú s i
Til 21. maí. Opið mánudaga til
föstudaga frá kl. 10–16.
LJÓSMYNDIR &
VEGGSPJÖLD
GÍSLI ÓLAFSSON &
FLEIRI
Halldór Björn Runólfsson
Vekjaraklukka
aðeins 900 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is