Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 19

Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 19 þó ekkert sérlega skemmtilegur staður, okkur myndi sjálfsagt leiðast ef við ynnum ekki svona mikið, hér er ekki mikið við að vera. Þótt við eigum hér góða vini eru þeir nær allir út- lendingar eins og við. Staðurinn á ekki ítök í okkur, við erum hér vegna vinnunnar. Verunni hér má líkja við eina langa vakt,“ segir Ásgeir. Þeir hafa hvorugt málið lært, albönsku eða serbnesku, segja slíkt geta kom- ið mönnum í vandræði, grípi þeir til rangs orðs. Tveir heimar Ásgeir og Þórir munu halda heim í júní nk. og hafa þá starfað í fjórtán mánuði við lífvörslu í Kosovo. Eftir verða tveir nýir meðlimir lífvarða- sveitarinnar, Hálfdán Daðason og Arnþór Davíðsson, sem komu til Kos- ovo í mars sl. Ásgeir og Þórir snúa báðir aftur til sérsveitar lögreglunn- ar, sem þeir hafa starfað með í níu og sjö ár. Ásgeir segist ekki telja að erf- itt verði að snúa aftur heim í rólegra starf og umhverfi en útilokar heldur ekki að hann muni halda á vit nýrra ævintýra seinna, enda með reynslu í farteskinu sem margir myndu vafa- laust fegnir þiggja. „Í mínum huga eru algjör skil á milli starfsins hér og á Íslandi. Þetta er gjörólíkt því sem við vorum að gera heima, fólk trúir okkur varla þegar við lýsum fyrir því hvað við er- um að gera hér,“ segir Ásgeir. „Við höfum fengið ótrúleg tækifæri í þessu starfi, tækifæri sem gefast varla nokkurs staðar annars staðar.“ Þórir og Ásgeir stilla sér upp ásamt félögum sínum úr lífvarðasveitinni og lög- reglumönnum af ýmsu þjóðerni fyrir indverskan ljósmyndara. Sjón af þessu tagi mun ekki vera óalgeng í Kosovo um þessar mundir. Ásgeir og Þórir taka það rólega ofan á brynvarinni bifreið. 650 kúbika Yamaha-mótorhjól bíð- ur eiganda síns í gámi við höf- uðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Kosovo. Um helgar rennir eigand- inn, Þórarinn Eyjólfsson, sér stund- um skottúr um héraðið sem er svo sem ekki stórt, á stærð við Þingeyj- arsýslur að flatarmáli. Þó hefur takmarkaður tími gefist til ferða þar sem starfsdagurinn er býsna langur, oft yfir tólf tímar og helg- arnar meðtaldar. Þórarinn er deildarstjóri verk- fræðideildar SÞ og sér um allan rekstur hennar; innkaup, samn- ingagerð, vöruhús og þungavinnu- vélar. Hann hefur starfað í Kosovo frá því í nóvember 1999 og fyrir SÞ í 19 ár. Þórarinn kom til Kosovo frá Líbanon en hann hefur starfað víða um heim; m.a. í Ísrael, Kýpur, öllum löndum Suður-Ameríku og Taílandi. „Það er erfitt að bera þessa staði saman, þeir eru gjörólíkir. Ástand- ið hér hefur batnað mikið frá því að ég kom nema hvað öryggis- ástandið er ekki nógu gott,“ segir Þórainn. Allt er þó með kyrrum kjörum og öryggi útlendinga ekki alvarlega ógnað, ólíkt því sem gerst hefur á sumum svæðanna sem hann hefur starfað á en hann hefur misst vinnufélaga og orðið innlyksa vegna átaka. Þrátt fyrir að Þórarinn hafi ekki búið eða starfað á Íslandi í 19 ár, segist hann enn telja sig eiga þar heima og vera mikill Íslendingur í sér. „Mér hefur ekki fundist ég eiga neins staðar heima þar sem ég hef starfað, nema kannski í Ísrael, þar sem ég vann í átta ár.“ En það er ekki þar með sagt að létt sé að snúa aftur til Íslands, Þórarinn segir marga Íslendinga við svipuð störf og hann hjá Sam- einuðu þjóðunum og að reynslan sýni að margir sjái eftir því lífi sem slík vinna sé. „Ætli það sé ekki að losna við allt daglega amstrið og stressið. Í svona starfi gefst ekki tími til neins annars en að vinna, vinnudagurinn er oftar en ekki um og yfir 12 tímar. Þetta er paradís vinnusjúklinga. Maður veit aldrei hvað morgundaginn ber í skauti sér, í mínu starfi á ég von á því að fá skipun um flutning hvenær sem er, ég gæti verið kominn til Eritreu áður en ég veit af. Svo er auðvitað ákveðinn ævintýraljómi einnig. Ís- lenska útþráin lætur heldur ekki að sér hæða.“ Fjölskylda Þórarins hefur verið með honum á flestum stöðunum en vegna náms barnanna er hún nú búsett í Svíþjóð. Þá hafa landsmenn Þórarins yfirleitt alltaf skotið upp kollinum en þó hvergi eins margir og í Kosovo, þar sem þeir eru orðn- ir 20 og halda flestir hópinn. Þórarinn segir erfitt að aðlagast samfélaginu í Kosovo, til þess sé hugsunarhátturinn of ólíkur því sem hann eigi að venjast. Þá sé hann ekki mikill aðdáandi Pristina og flutti því í lítið þorp skammt frá höfuðstaðnum þar sem hann vakn- ar við hanagal á hverjum morgni. „Ég nýt þess að vinna en utan vinn- unnar er hins vegar fátt við að vera svo ég keypti mér mótorhjól. Ég hjóla á kvöldin og um helgar þegar færi gefst. En það verður að fara varlega,“ segir Þórarinn sem við- beinsbrotnaði í fyrra þegar hann missti stjórn á hjólinu eftir að hafa ekið ofan í djúpa holu, sem meira en nóg er af á illa förnum vegum Kosovo. Hversu lengi dvölin í héraðinu varir er undir öðrum komið, Þór- arinn fer þangað sem yfirstjórn- endur hans hjá SÞ telja að mest þörf sé fyrir hann. Hann segist ætla að vinna fram að sextugu og taka sér þá ársfrí áður en hann gerir upp við sig hvað svo taki við. Það gæti sem best orðið meiri vinna. Brunað um Kosovo Þórarinn Eyjólfsson verkfræðingur starfar fyrir Sameinuðu þjóðirnar og segir ástandið hafa batnað í Kosovo nema í öryggismálum. enn miklu nær arabaheiminum en Evrópu. Það sést á hefndardrápum sem eru ævaforn siður. Þá er t.d. enn óskaplega viðkvæmt mál að ræða um takmarkanir barn- eigna. Í þeim tilfellum sem slíkt ger- ist er það nær alltaf karlinn sem ákveður að fleiri verði börnin ekki. Það telst enn vera skömm fyrir kon- ur að vera ógiftar framundir þrítugt en þær eru í erfiðri stöðu því konur eru mun fleiri en karlar í Kosovo. Samkvæmt kjörskrá sveitarstjórn- arkosninganna eru konur um 55%. Fjöldi karla féll í átökunum við Serba en mest munar þó um þá stað- reynd að svo margir þeirra vinna er- lendis, einkum í Sviss og Þýska- landi.“ Kristín segist hafa verið orðin þreytt á erfiðum aðstæðum er hún hélt á brott í desember sl. auk þess KRISTÍN Ástgeirsdóttir, fyrr-verandi þingkona, stóðst ekkimátið þegar tækifæri gafst til að ljúka hálfkláruðum verkefnum og sneri aftur til Kosovo, í þann mund sem upp úr blossaði í nágranna- ríkinu Makedóníu fyrir skemmstu. Spennan hafði magnast umtalsvert á þeim þremur mánuðum sem liðið höfðu frá því hún lauk störfum fyrir Kvennastofnun Sameinuðu þjóðanna og nýtt líf hlaupið í pólitíska umræðu sem Kristín fylgist sem fyrr með af áhuga. Kristín segir ástandið í Kosovo einkennast af mun meiri spennu en áður, einkum í tenglsum við átökin í Makedóníu. Þá sjáist greinileg merki um óþolinmæði, almenningur vilji sjá árangur starfs alþjóðastofn- ana. „Nú er verið að vinna að stöðu- lögum fyrir verðandi löggjafarsam- kundu héraðsins og þau hafa að sjálfsögðu hleypt nýju lífi í um- ræðuna um stöðu þess og kröfuna um sjálfstæði,“ segir Kristín. Sveitarstjórnarkosningarnar í október sl. voru fyrsta skrefið í átt- ina að því að færa ábyrgð yfir á hendur íbúa Kosovo og stefnt er að því að um mitt ár hafi þeir yfirtekið öll ráðuneyti sem SÞ komu á fót í héraðinu. „Alþjóðastarfsmenn verða hér áfram en aðallega í ráðgjafahlut- verki. Það sorglega er hins vegar hinn átakanlegi skortur á stefnu og markmiðum stjórnmálaflokka. Hvers konar mennta- og heilbrigð- iskerfi vilja þeir? Hvernig vilja þeir reka þetta samfélag? Sem stjórn- málamann blóðlangar mig til hefja viðræður við þá um slík grundvall- aratriði.“ Kristín starfrækir skrifstofu UNIFEM, Kvennastofnunar Sam- einuðu þjóðanna, í Kosovo og kom upphaflega til starfa í mars 2000. Hún lauk störfum í desember sl. en var kölluð aftur út skömmu síðar. UNIFEM beitir sér einkum fyrir aukinni stjórnmálaþátttöku kvenna, í tengslum við komandi þingkosning- ar. Kristín vinnur m.a. með stjórn- málakonum, að því að fræða kjós- endur, þjálfa frambjóðendur og sinna ráðgjöf. „Þá reynum við að hafa áhrif á löggjöf svo að tillit sé tekið til kvenna og jafnréttis gætt. T.d. lögðum við mikla áherslu á kynjakvóta í kosningum og höfum unnið að framkvæmdaáætlun í jafn- réttismálum fyrir ráðuneytin.“ Í komandi þingkosningum verður 30% kynjakvóti en það sama var upp á teningnum í sveitarstjórnarkosn- ingunum, svo og við ráðningar í ein- stökum stofnunum, t.d. lögreglunni, þar sem konur eru 20% en það er eitt hæsta hlutfall lögreglukvenna nokk- urs staðar. „Kynjakvótarnir hafa orðið til þess að konurnar eru mun sýnilegri en áður. En það er langt í land og ég er hrædd um að það komi bakslag þegar alþjóðasamfélagið dregur sig að einhverju marki út. Því verðum við að þrýsta á um umbætur á meðan tækifæri gefst til.“ Staða kvenna í Kosovo hefur breyst umtalsvert á síðustu árum, ekki síst þar sem margar þeirra hafa fengið vinnu hjá alþjóðastofnunum og eru sumar hverjar einu fyrirvinn- ur heimilsins. „Í upphafi var mikið talað um aukið heimilisofbeldi sem afleiðingu þeirrar spennu sem þetta skapaði en nú virðist hafa dregið úr því, karlarnir eru að byrja að venjast þessari breyttu stöðu. Jafnvægið er viðkvæmt og það er alltaf spurning hvaða rétt SÞ hafi til þess að breyta menningu annarra þjóða? Fólk hér segist vilja lýðræði og kveðst horfa til vesturs, en hugsunarhátturinn er sem hún hafi orðið fyrir miklum von- brigðum með útkomu kvenna í sveit- arstjórnarkosningunum síðasta haust. Hún hafi hins vegar ekki stað- ist mátið að snúa aftur og ljúka hálf- kláruðum verkefnum, þrátt fyrir raf- magnsskort og á stundum svifaseint og stirðlegt kerfi. „Kannski er ég komin með Balkan-veiruna,“ segir hún. „Ég lít þó á þetta sem tíma- bundið verkefni, borgin er ekki að- laðandi en fólkið á ítök í mér. Ég nýt starfsins, þess að sjá árangur verka minna. Auðvitað verð ég stundum svartsýn vegna þess hve hægt hlut- irnir ganga. Hér gætir enda mikillar svartsýni á meðal alþjóðastarfsliðs- ins og margir gæta sín ekki og verða algerlega útbrunnir í starfi. En svo glittir í vonina annað slagið og það gefur manni endurnýjaðan þrótt til að halda áfram.“ Stutt við bakið á konunum Kristín Ástgeirsdóttir segist njóta þess að sjá árangur verka sinna við rekstur Kvennastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Kosovo og bætir við: „Kannski er ég komin með Balkan-veiruna.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.