Morgunblaðið - 20.05.2001, Page 21

Morgunblaðið - 20.05.2001, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 21  Hjartans þakkir sendum við, ég og eiginkona mín, öllum þeim, sem lögðu leið sína í félags- heimilið Baldur á Drangsnesi eða glöddu okkur með öðrum hætti í tilefni af níræðisafmæli mínu þann 11. maí sl. Guð blessi ykkur öll. Höskuldur Bjarnason. Meistaraskóli fyrir: Bakara, framreiðslumenn, kjötiðnaðarmenn, og matreiðslumenn Nánari upplýsingar veita kennslustjóri hótel- og matvælagreina og deildarstjóri Meistaraskólans á skrifstofutíma milli kl. 9.00 og 15.00 til 8. júní næstkomandi. Umsóknum fylgi staðfesting á sveinsprófi. Kennsla hefst 22. ágúst. HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI v/Digranesveg  200 Kópavogi. Sími 544 5530  Fax 554 3961  Netfang mk@ismennt.is Nám til meistara in með einstakling sem búið er að gefa grænt ljós á að sé eðlilegt að fara með í fóstureyðingu. Við sjáum það fyrir að með árunum verður farið að líta á þessi börn sem eru á lífi sem síðustu móhík- anana og hvernig á þá að réttlæta stöðu þeirra og mannvirðingu? Mér finnst þeim vera sýnd van- virðing og ég er ekki ein um þá skoðun. Svona upplifum við for- eldrar þessara barna hugmyndir af þessu tagi. Það vakna upp ýmsar spurning- ar þegar svona er komið. Mér finnst til dæmis skelfilegt að hugsa til þess að fyrir 20 árum hafi við- horf heilbrigðisyfirvalda verið þannig að ekki þótti svara kostnaði að senda þessi börn í hjartaað- gerð. Sem betur fer hefur það breyst en hvaða skilaboð eru heil- brigðisyfirvöld að senda okkurmeð því að skima fyrir þessum litn- ingagalla hjá öllum konum? Ef far- ið verður að forgangsraða innan heilbrigðiskerfisins þegar fram í sækir og hvar verður þá sonur minn á þeim lista með þennan litn- ingagalla? Er það hlutverk heil- brigðisyfirvalda að ákveða hvað verður um þá? Það má ekki gleyma því að þessir einstaklingar eru hluti af litrófi mannlífsins. Er verið að leysa einhvern sam- félagslegan vanda með þessu? Hvað eru heilbrigðisyfirvöld að teygja sig langt í þessum efnum? Menn vita ekki þegar litningagalli 21 greinist hvort um er að ræða heilbrigt barn eða hvort barnið er með hjartagalla. Hugsanlega er um að ræða heilbrigt fóstur sem boðið er upp á að eyða af því að það er með litningagalla og þar af leiðandi líklega greindarskert. Er það næg ástæða til þess að fara í fóstureyðingu? Er tilgangurinn að reyna að útrýma greindarskerð- ingu? Þá hlýt ég sem foreldri að líta á það sem fordóma. Í mínum huga er þetta eins og í Kína, þar sem stúlkubörn voru borin út. Við fordæmum þær að- gerðir og finnst þær ekki réttlæt- anlegar. Við vitum að það eru framkvæmdar fóstureyðingar á börnum í Ísrael sem eru með skarð í vör. Við fordæmum það líka og segjum að það verði aldrei tekið upp hér. En hvað erum við að gera? Hvar á að láta staðar numið og hver á að taka ákvörðun um það? Eru það heilbrigðisyfivöld sem eiga að taka ákvörðun um hversu langt á að ganga? Spyrja má hvaða skoðun hafa þjóðkjörnin fulltrúar okkar á þessu. Alvarlegur galli Þarna finnst okkur sem foreldr- um við verða að fá einhver svör.“ Ásta bendir á að umræðan snú- ist um að bjóða fóstureyðingu þeg- ar um alvarlega galla væri að ræða. „En það er boðið upp á fóstur- eyðingu þegar um downs-heilkenni er að ræða,“ segir hún. „Það hlýt- ur þá að teljast sem alvarlegur galli. Í hverju er hann fólginn ef annars vegar fóstrið er líkamlega heilbrigt? Er gallinn þá fólginn í því að fóstrið er hugsanlega greindarskert? Við þessu viljum við foreldtar fá svör. Hvers vegna er verið að leita uppi þennan litn- ingagalla? Okkur foreldrum þessara barna finnst ástæða til að hafa áhyggjur af því hvernig þær upplýsingar verða sem eiga að koma frá heil- brigðisyfirvöldum til verðandi for- eldra. Hvernig ætla menn að hafa þær óhlutdrægar þannig að valið verði raunverulegt? Ég sé ekki hvernig það getur gerst. Menn eru komnir svo langt að þeir gleyma sér í nýrri tækni, framförum og nýjungum. Ég er ekki að gera lítið úr fóst- ureyðingum sem líkn það er allt annað mál. Eins og þetta blasir við mér er verið að skima eftir ein- staklingum sem eru eins og sonur minn. Eru það ef til vill fordómar sem hugsanlega eru byggðir á vanþekkingu?“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.