Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 25

Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 25 Erum að innrita í löggiltar iðngreinar: Bakaraiðn, framreiðslu, kjötiðn og matreiðslu Nánari upplýsingar veitir kennslustjóri hótel- og matvælagreina á skrifstofutíma milli kl. 9.00 og 15.00 til 8. júní næstkomandi. Kennsla hefst 22. ágúst. HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI v/Digranesveg  200 Kópavogi. Sími 544 5530  Fax 554 3961  Netfang mk@ismennt.is Metnaður í fyrirrúmi! dæmda eigi að fara á skrá. Felst í því aukið réttaröryggi því dómari hefur enga hagsmuni af því að skrá sem flesta á meðan lögreglan hefur ugglaust tilhneigingu til að vilja sjá sem flesta á skrá. Ríkislögreglustjóri er þó auðvitað ekki eftirlitslaus sem skrárhaldari samkvæmt íslenska frumvarpinu. Honum ber að tilkynna brotamanni um skráninguna. Sá getur kært hana stjórnsýslukæru og örugglega borið hana undir umboðsmann Al- þingis eða dómstóla þótt ekki sé það tekið fram berum orðum. Jafnframt hefur Persónuvend eftirlitshlutverki að gegna. Fram kemur þó í umsögn Persónuverndar um frumvarpið að hún hefði kosið að hafa víðtækari eftirlitsheimildir en þar er gert ráð fyrir. Þótt skrárhaldari hafi greinilega eitthvert svigrúm til mats er auðvit- að ljóst að hugmyndin að baki frum- varpinu er sú að yfirleitt fari þær upplýsingar sem hér um ræðir inn á skrá. Það verði allt að því sjálfvirk skráning þeirra sem brjóta gegn viðkomandi ákvæðum. Sama er að segja um dönsku lögin sem fyrr var getið. Þýski stjórnlagadómstóllinn tek- ur allt annan pól í hæðina í nýlegum dómi (sjá Europäische Grundrechte Zeitschrift 2001, bls. 70–76). Í því máli voru stjórnarskrárvarin rétt- indi kærenda talin brotin vegna þess að þegar dómari í sakamáli tók ákvörðun um að sýni færu á skrá fór ekki fram sjálfstætt mat á hvort brotið gæti talist alvarlegt og hvort viðkomandi einstaklingur væri lík- legur til að fremja brot á nýjan leik. Það er sem sagt lögð áhersla á að skráning viðkvæmra persónuupp- lýsinga af þessu tagi eigi ekki að vera sjálfkrafa heldur lúti hún ströngu mati í hverju tilfelli á því hvort nauðsyn sé fyrir hendi. Hvenær á að eyða erfðaefni úr skránni? Það er grundvallarsjónarmið varðandi verndun persónuupplýs- inga að þær séu ekki geymdar á skrá lengur en nauðsyn krefur. Þeg- ar um gagnagrunn af þessu tagi er að ræða má einnig segja að það sé sanngjarnt að þeir sem hafa afplán- að dóm og snúið til betri vegar séu teknir í sátt að vissum árafjölda liðnum. Íslenska frumvarpið virðist ekki taka nægilegt tillit til þessa sjón- armiðs. Ekki er gert ráð fyrir að upplýsingum um erfðaefni verði eytt fyrr en tveimur árum eftir andlát eða þegar viðkomandi er sýknaður eftir endurupptöku máls. Boðskap- urinn er því «eitt sinn glæpamaður – ávallt glæpamaður». Í dönsku lög- unum er hins vegar miðað við að upplýsingum sé eytt þegar brota- maður nær sjötugsaldri. Hjá sumum öðrum Evrópuþjóðum er gert ráð fyrir að upplýsingum sé eytt þegar viss árafjöldi, til dæmis tíu ár, er lið- inn frá því afplánun lauk án þess að nýtt brot hafi verið framið (sbr. http://www.rechtsmedizin.uni- mainz.de/Remedneu/molgen/data- base.htm). Afturvirkni Frumvarpið gerir ráð fyrir að skrá megi upplýsingar um þá sem brotið hafa gegn fyrrgreindum ákvæðum hegningarlaga og „af- plána refsidóm uppkveðinn fyrir gildistöku laga þessara, sæta örygg- isráðstöfunum eða hefur verið veitt reynslulausn og reynslutími er ekki liðinn“. Frumvarpið er að þessu leyti aft- urvirkt sem vekur spurningar út frá grundvallarsjónarmiðum um bann við afturvirkni laga, sérstaklega á sviði refsiréttar. Einnig er það að vissu leyti mismunun að það er ein- ungis afturvirkt að því marki sem menn eru enn að afplána dóm á meðan þeir sem dæmdir eru eftir gildistöku laganna þurfa að sæta því að erfðaefni um þá sé geymt alla tíð, jafnvel löngu eftir að þeir eru búnir að afplána dóm. Hvernig á að nálgast lífsýni? Til þess að ná í erfðaefnisupplýs- ingarnar úr dæmdum mönnum þarf vitaskuld lífsýni. Stundum er það auðvitað svo að lífsýni hafa verið tekin úr sakborn- ingi á meðan rannsókn máls stóð yf- ir samkvæmt heimildum lögreglu í lögum um meðferð opinberra mála. Þarf því ekki að afla lífsýnis sér- staklega til að skrá í gagnagrunn lögreglu. Í öðrum tilfellum hefur ekkert sýni verið tekið. Frumvarpið er nokkuð loðið að þessu leyti. Þar segir að innan sex mánaða frá upp- kvaðninu dóms megi afla sýnis úr dómfellda og sé honum skylt að hlíta þeirri meðferð sem nauðsynleg sé talin vegna töku lífsýnisins. Ekki er hins vegar mælt fyrir um hver séu viðurlögin ef menn þráast við. Lögin svara því heldur ekki hvernig eigi að nálgast sýni úr þeim sem dæmdir hafa verið eða byrjað að afplána dóm fyrir gildistöku laganna. Laga- nefnd Lögmannafélags Íslands benti á þennan annmarka í umsögn sinni en allsherjarnefnd hefur greinilega verið á öðru máli því ekki er minnst á þetta atriði í áliti hennar eða breytingartillögum. Aðgangur að skránni Það vekur athygli að samkvæmt frumvarpinu á dómsmálaráðuneytið að hafa aðgang að skránni auk lög- reglu. Óneitanlega vaknar spurning- in, til hvers? Það svar er gefið í at- hugasemdum með frumvarpinu að slíkur aðgangur væri einkum nauð- synlegur þegar ráðuneytið fengi kærumál vegna óréttmætrar skrán- ingar til meðferðar. En er aðgangur að skránni sem slíkri nauðsynlegur til þess? Getur ráðuneytið ekki met- ið hvort lagaskilyrði séu til skrán- ingar án þess að hafa aðgang að upplýsingum úr skránni sem slík- um? Með sömu rökum ætti að veita dómstólum aðgang að skránni því auðvitað hlýtur að verða hægt að bera undir þá hvort skráning sé réttmæt eður ei. Í öðrum löndum þar sem stjórn- arfar er ótryggara myndi það að minnsta kosti vekja mikla tor- tryggni að heimila stjórnvöldum að- gang að skrá sem geymdi upplýs- ingar um erfðaefni úr þeim sem gerst hafa sekir um pólitíska glæpi eins og tilraun til landráða. Höfundur er lögfræðingur hjá Evr- ópuráðinu. Skoðanir sem kunna að koma fram í þessari grein eru alfarið á ábyrgð höfundar. Vinsamlegast sendið ábendingar um efni til pall@evc.net.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.